Skírnir - 01.01.1894, Blaðsíða 76
76
Bandaríkin.
gerzt verndari smærri ríkja þar austur frá. En lítið er þ6 vald þeirra í
samanburði við það sem Kínverjar mega sín, þegar þeir hafa náð sama
menningarþroska.
Svarti dauði, eða einhver pest, sem líktist honum, geisaði í Kanton
og Hongkong sumarið 1894. Pólkið hrundi niður unnvörpum. Hclzta or-
sökin til pestarinnar virtist vera næringarskortur.
Bandaríkín. Tolllagafrumvarp Wilsons, sem getið er um i síðasta
Skírni, tók mjög miklum breytingum hjá öldungadeildinni, öllum í toll-
verndaráttina. Til þess að málið fengi einhvein enda, vnrð fulltrúadfild-
in að sætta sig við þær breytingar. og Cleveland forseti sá engan veg til
að spyrna móti broddunum. En svo ógeðfeldar voru honnm breytingarnar,
að hann gat ekki fengið af sjer að skrifa undir lögin, svo þau öðluðust
gildi án hans samþykkis. Þjóðinni þótti sem sjerveldisflokkurinn á þingi
hefði svikið loforð 'sín, og varð hann afaróvinsæll. Kom það mjög áþreif-
anlega fram við kosningar um haustið. Congressmenn voru þá kosnir í flest-
öllum ríkjunum, oglyktaði þeim kosningum svo, að samveldismennnáðu yfiiráð-
um yfir hjer um bil a/a atkvæða í fulltrúadeildinni, og í öidungadeildinni,
sem kosin er af ríkjaþingunum, urðu þeir !íka yfirsterkari. Áður hafði
sjerveldisflokkurinn verið í meiri hlut í báðum þeim deildum. Ekki eru
þó líkindi til að samveldisflokkurinn breyti tolllögunum nýju til mik-
illa muna.
Atvinnuleysis-neyðiu meðal verkamanna í borgunum hjelzt enn þetta
ár, ef ti! vill nokkru vægari en árið áður, en þó mjög tilfinnanleg. Út
úr neyðinni var það, að æsingamaður einn í Ohio, Coxey að nafni, tók að
gangast fyrir því, að grúi atvinnuleysingja safnaðist saman hvaðanæfa i
Washington í aprílmán. til þess að skora á oongrcssinn að samþykkja lög,
er bæta áttn úr atvinnuleysinu. Coxey hugðist að geta stefnt saman ein-
nm 100,000 mönnum. Mönnum stóð alls eigi lítill stnggur af fyrirtækinu,
enda hefði það getað orðið'alvarlegt, ef þnð hefði tekizt. Það er ekkert
árenuilegt að fá á einn stað slíkan grúa af misjafnlega innrættum og mis-
jafnlega siðuðum allslausum mönnum. En fyrirtækið tókst ekki í þetta
sinn. Coxey kom að eins með fá hundruð manna til Wasbington og varð
að athlægi.
Verkföl! urðu ýms á árinu og töluverðar óeirðir þeim samfara, meðal
annars afarvíðtækt verkfall meðal kolanámamanna, sem leit um tíma mjög