Fréttablaðið - 27.04.2001, Qupperneq 13
FðSTUPAGUK 27, apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
is
Hagsmunir 6.700 stúdenta í hufi
•jc ^ •’•; ft ■ & y ' -. "■ •... ' *'■ ■' ' •> • .. • ;* r: • f" $ jfc * ' • > '*>. ■ • •'
Tveggja vikna verkfall kostar þá hálfan milljard, miðað við lágmarkslaun. Formaður stúdentaráðs óttast að
margir hrekist frá námi. Engin svör frá háskólanum um fyrirkomulag prófa.
STÚDENTALEIÐTOCINN.
Verði verkfall þarf stór hópur stúdenta að lifa allt að mánuði lengur en ella á yfirdráttarlánum frá bönkum því námslánin til að greiða
upp yfirdráttinn verða ekki afgreidd fyrr en prófum er lokið og einkunnir liggja fyrir. Þorvarður Tjörvi og félagar vinna að þvl að LIN flýti
afgreiðslu lánanna ef af verkfalli verður.
Tekju- og fjámiagnsskattur
20 prósent
skattaaukning
skattamái Skattar á tekjur og hagnað
aukast töluvert á milli ára, eða um
tæplega 20%. Það stafar einkum af
mikilli aukningu í innheimtu á tekju-
skatti fyrirtækja og fjár-
magnstekjuskatti, að því er kemur
frama í hálf fimm fréttum Búnaðar-
bankans. Innheimta á tekjuskatti
einstaklinga eykst um 13 1/2% þrátt
fyrir það að tekjuskattshlutfallið
hafi lækkað um 0,33% frá síðustu
áramótum. Þetta stafar af samnings-
bundnum launahækkunum auk þess
sem persónuafsláttur einstaklinga
hækkaði 5.6% minna en laun á tíma-
bilinu. ■
FIMMTÁN ÁR LIÐIN AP-MYND.
Leonid Kutchma, forseti Úkraínu, minnist
fórnarlamba kjarnorkuslyssins í Tsjernóbyl
Sviptingar á Ukraínuþingi:
Stjórnin fallin,
forsetinn tórir
kiev. flp. Leonid Kutchma, forseti
Úkraínu, slapp naumlega undan
ákæru til embættismissis í gær, fá-
einum klukkustundum eftir að þingið
hafði samþykkt vantrauststillögu á
ríkisstjórnina.
Þessa atburði bar upp á sama dag
og Úkraínubúar minntust þess að 15
ár eru liðin frá því kjarnorkuslysið í
Tsjernóbyl átti sér stað. Meira en
4.000 Úkraínubúar hafa látið lífið af
völdum slyssins og yfir 70.000 manns
teljast óhæfir til vinnu vegna þess.
Einungis 209 þingmenn greiddu
ákærunni atkvæði sitt, en 226 þurfti
til þess að hún næði tilskildum meiri-
hluta. Málið er þó ekki úr sögunni,
heldur frestast það einungis þangað
til þingið kemur saman að nýju í sept-
ember.
Sumir stjórnarandstöðuhópar
telja Kutchma sekan um spillingu,
hann sé vanhæfur í starfi og hafi átt
þátt í morði á blaðamanni, sem hafði
haft uppi gagnrýni á stjórnvöld.
Kommúnistar eru á hinn bóginn and-
vígir áformum hans um efnahagsum-
bætur.
—♦—
Fordómar í Bandaríkjunum:
Tortryggni
gagnvart
Asíufólki
new york. flp.Fjórðungur Bandaríkja-
manna er haldinn neikvæðum for-
dómum gagnvart kínversk-ættuðum
löndum sínurn og 23% ættu erfitt
með að greiða forsetaframbjóðanda
af asískum uppruna atkvæði sitt, að
því er fram kemur í könnun sem gerð
var fyrri hluta mars. Tæplega þriðj-
ungur Bandaríkjamanna telja kín-
verska Bandaríkjamenn frekar halda
tryggð við Kína en Bandaríkin. Nið-
urstöðurnar eru taldar benda til þess
að fordómar lifi enn góðu lífi í Banda-
ríkjunum. ■
háskólinn „Það eru hagsmunir á sjö-
unda þúsund stúdenta í húfi og við
höfum reiknað út að líklegur kostnað-
ur þeirra verði hálfur miljarður, mið-
að við að verkfall standi í tvær vik-
ur,“ sagði Þorvarður Tjörvi Ólafsson,
formaður Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands, um verkfall það sem háskóla-
kennarar hafa boðað til þann 2. maí
nk.
Hann segir ljóst að próf muni ekki
hefjast strax að verkfalli loknu og
því muni verða allt að mánaðar seink-
un á áformum þeirra 6.700 stúdenta
sem verkfallið snertir og hefur
áhyggjur af því að stúdentar hrekist
úr námi ef til verkfalls kemur því
margir hafi fjölskyldur á framfæri
og þoli ekki að bíða í mánuð eftir að
komast út á vinnumarkaðinn.
Þorvarður Tjörvi segir að Stúd-
entaráð hafi ítrekað það við deiluað-
ila, bæði kennara og stjórnvöld, hve
alvarlegt málið sé fyrir stúdenta,
bæði þá 831 sem stefna að útskrift í
vor og aðra. Engin svör hafi fengist
frá háskólarektor um hvenær og
hvernig próf verða lögð fyrir að
verkfalli loknu. „Það hefur valdið
okkur miklum vonbrigðum," sagði
hann og segir að jafnframt hafi verið
skorað á fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra að þeir beiti
sér fyrir lausn deilunnar. „Það er
ekki hægt að æðsti maður mennta-
mála. horfi aðgerðalaust á meðan
starfsemi háskólans leggst í rúst,“
segir Þorvarður Tjörvi.
Útreikningur Þorvarðar Tjörva
um hálfs milljarðs króna tekjutap
stúdenta er gerður með því að marg-
falda fjölda stúdentanna með lág-
markslaunum verkalýðsfélaganna,
sem eru um 81.200 kr. á mánuði. „Ef
við miðum við meðallaun verkafólks,
sem eru um 109 þúsund kr. er kostn-
aðurinn 750 milljónir króna. Þá er
eftir að taka tillit til aukins vaxta-
kostnaðar vegna seinkunar á af-
greiðslu námslána. Það eru allir stúd-
entar með yfirdrátt í botni." ■
899l(i:
1199kr.
l'l I'1 /cF’iO.Sii. M.»: di •: n,i t lii.,1 l»lai 06 i.iLI ctiitla. a ii i k a uíi .
l'l l'i . . cí.'íOiScJ 1M»>: : CÍÍ i n< > < lí. l.lctl 4.1, t.tli 'iaiit 1 a
Iiol.,1 • Kjc.t,, ■, 1 ,sa 'i 1 i'l iii ctg 1 . U|(. ÍÍJ
• iiuitrí rí.Ví1 .
I'l ,u t ■: ilSÖSii Mi.j ’ZLii i ,iii , i h. .í.iar o ;S (cit i •iaiu ia »V‘ t-pjjij
i aiil- 11J < ii<V Jl l'“l“ )l ii •. . íi <ii ( tíl oi il U1
I'l |ú ■• ' cÍSt ; - < l i\i. : ai ( -ii. < i lt.. il.iai o icií: •iainia l'Hi|^i.)lll
llíil 1 • 1 (>;«( 1 ...il. o • 1 í )ii 1 tUll- ÍÍJ < Ji cí-í j j/up1 iki 1 UjJ < lllllll
Pjpi /zasoha. i\i,,í i ai • ,ii< , . Ij. líiiai o síali ilaiiiia
P‘-l 1 >eroni: S LiuL. * 1 Tc nilali: ik í»:
Pj l'l i fli1Sí).Sci.. Mo< : cil i .11. , > l„. a.iai .r sictl: 'Íailíia. < iræn j)aj)i
I júiiií Oíi oVCjJplÍ
Pjpj........ M< •■
1499k
¥
i
mzzA
mlúm
Iw. /TiiJík.íjijai u.síaj)lau»ia. VvCjjpij. l*».j^ji».joj>í nauluijUii»i».-^
rM
ni *
V V "?• W’.
Jl j I Jiö hcyUjdVlK ÍI IboöÍö ýíldii i.JqQaÍiá i / . apllÍ / j’óai Ojj ciötiii- of cOII' el'.
. ^
i
7
Fréttablaðið liggur frammi
Meðan verið er að eyða hnökrum á dreifingu
Fréttablaðsins verður hægt að nálgast blaðið
á öllum bensínstöðvum Esso á höfuðborgar-
svæðinu.
Á BENSÍNSTÖÐVUM ESSO >>
f framtíðinni mun blaðið liggja frammi á fyrstu
bensínstöð Esso eftir að komið er inn á höfuð-
borgarsvæðið, hvaðan sem komið er.