Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1985, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1985, Blaðsíða 25
DV. MANUDAGUR 3. JUNI1985. 25 arkverða nýjung: x DBANDSTÆKI A 49.900*. rðamyndbandstæki, afnotaréttur af myndtökuvél. ORION NE-VM-A fjölnota-mynd- bandstækið með afnotarétti af myndtökuvél, á viðráðanlegu verði, er lausnin. í samvinnu við ORION, verktakaverksmiðju NESCO í lapan, hefur framleiðsludeild NESCO síðustu misserin unnið að þróun og gerð fjölnota-myndbandstækis á viðráðanlegu verði. Það er okkur mikil ánægja að kynna árangurinn hér. ORION fjölnota-myndbandstækio samanstendur af tveimur megin einingum, sem hér eru sýndar í eðlilegri stærð: Upptöku- og afspilunareining, sem gengur bæói fyrir 220V heimilisrafstraumi og 12V (en Iítill I2V rafgeymir, sem stungið er inn í taekið, fylgir því) og viðtækis- og tímatækiseiningu, fyrir upptöku sjón- varpsútsendinga og stillingu á upptöku fram í tímann. Auk þess fylgir hleðslutæki fyrir rafgeyminn, þráðfjar- stýring og axlaról fyrir upptöku- og afspilunartækið. Síðast en ekki síst fylgir afnotaréttur af mjög vandaðri og góðri ORION myndtökuvél, í allt að 15 daga á ári í 3 ár, með í kaupunum. Athuganir okkar benda til, að þetta ætti að vera fuHnægjandi fyrir hinn almenna notanda. Auðvitað er hægt að kaupa sér aukinn afnotarétt, ef þörf krefur, gegn vægu gjaidi (dagsleiga tveggja átekinna myndkassetta). Að liðnum 3 árum er líklegt, að verð myndtökuvéla hafi lækkað í þeim mæli, að menn geti keypt sér slíkar vélar og átt. Eins verður, aúðvitað, áfram nægt að leigja sér myndtökuvélar á ódýran hátt eftir þörfum. Sérstaklega skal tekið fram, að notkun ORION fjölnota-myndbandstækisins, ekki síður ferðabúnað- arhlutans en heimilishlutans, er sáraeinföld og á allra færi, og kostnaður við eigin upptökur er enginn (nema kostnaðarverð myndkassettunnar, sem tekið er upp á). Hér er engin framköllun, engir eftirmálar af neinu tagi, menn geta horft á upptökurnar strax og þær hara farið fram. Myndgæðin á eigin upp- tökum eru mjög mikil, fyllilega sambærileg við það, sem menn sjá í almennum sjónvarpsútsendinum. Islenskur notkunarleiðarvfsir fylgir ORION fjölnota- myndbandstækinu._________________________ *Verð og greiðsluskilmálar á ORION rjölnota-myndbandstæk- inu eru afar hagstæðir. Staðgreiðsluverð á ORION NE-VM-A fjölnotamynd- banastækinu, með afnotarétti af myndtökuvél, er aðeins 49.900 kr. Ef búnaðurinn er keyptur með 24.900 kr. útborgun er söluverðið 54.900 kr. og eftirstöðvar til 6 mánaða. Sé ORION NE-VM-A keypt með 9.900 kr. útborgun er söluverðið 59.900 kr., en þá má greiða eftjrstöðvar á allt að 10 mánuðum. í raun er það litlu meira átak að festa kaup á ORION fjölnota-myndbandstækinu en á venjulegu heimilismyndbandstæki. Er þá nokkur spurning, hvort borgar sig!!?? LAUGAVEG110 SIMI27788 FYRIRTÆKIÐ. SEM UEKKAR VÖRUVERÐ Á ÍSLANDIMEÐ ÞÁTTTÖKU í ALÞJÓÐA VIÐSKIPTUM VIUL.TIPLE VIDEO CASS E TTE RECOBDER O R I O 1NÍ BJARNI DAGUR: AUGLÝSINGASTOFA UÓSM.: ÍMYND SETN. TEXTA: SAMSETNING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.