Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. Fréttir Flutningur utanríkisvidskipta: Lagabreyting- ar undirbúnar nokkur álvtaefríi óleyst „Utanríkisráðuneytið hefur nú þeg- ar tekið við mestu af þeim verkefnum sem áformað er að flytja frá viðskipta- ráðuneyti," sagði Hannes Hafstein ráðuneytisstjóri í samtali við DV í gær. „Það eru nokkur verkefhi eftir sem bundin eru undir viðskiptaráðuneyti í lögum, svo sem útgáfa útflutnings- leyfa og staða Útflutningsráðs Is- lands.“ Hannes sagði að unnið væri að undirbúningi nauðsynlegra laga- breytinga og yrðu þær lagðar fram í upphafi þings í haust. „Flestu öðru höfum við tekið við. Þar má sem dæmi nefiia samskiptin við Evrópubandalagið, EFTA og GATT. Þá höfum við einnig tekið við framkvæmd á viðskiptasamningum við Austur-Evrópuríki. Innan utanríkisráðuneytisins verður starfrækt sérstök viðskiptaskrifstofa. Nú þegar hefur einn maður flust úr viðskiptaráðuneytinu til okkar og annar kemur líklega í sambandi við útgáfu útflutningsleyfa." Áðspurður sagði Hannes að nokkuð átakalaust hefði gengið að greina á milli hvaða verkefni skyldu flytjast í utanríkisráðuneytið. „Það hefúr ekki verið neinn teljandi skoðanamunur. Það er einstaka samstarfsnefhd sem er álitaefni hvort fellur undir útflutn- ingsverslun eða innanlandsverslun." sagði Hannes. -ES Bið eftir húsnæðislánum langt fram í tímann: Margir slá út á loforðin hjá bönkum og verðbréfasolum Húsnæðismálastofhun hefur ekki gefið út nein lánsloforð síðan í vor og þegar stíflan springur næst fá umsækjendur loforð um lán á árinu 1989 og síðar. Eins og áður lána bankar og sparisjóðir út á þessi lof- orð að hluta. Verðbréfasölur hafa gengið lengra og lána viðstöðulítið út á allt að 90% upphæðar hvers lánsloforðs. Þessi lán út á loforð um húsnæðis- lán eru miklu dýrari en húsnæðisl- ánin sjálf og má reikna með að krafist sé 14-16% raunávöxtunar á ári hjá verðbréfasölunum, auk þess sem þóknun leggst á fyrirgreiðsluna, venjulega 1-2%. Bankamir taka 8-9% vexti umfram verðbólgu, auk kostnaðar. Af húsnæðislánunum sjálfum, þegar þau koma til sögunn- ar, greiðast aftur á móti 3,5% vextir umfram verðbólgu eins og er og við bætist afgreiðslukostnaður. I flestum tilfellum bætist svo enn við þinglýs- ingarkostnaður, 0,5-1,5%. Á móti því að slá lán út á væntan- leg húsnæðislán kann að sparast talsvert, hvort sem keypt er notað húsnæði eða byggt nýtt. Dæmi eru til um að við kaup á notuðum íbúð- um fáist verðið niður um 5-8%. Þetta er þó mjög vandmetið þar sem upphaflegt mat á verði notaðra fas- teigna er ætíð umdeilanlegt. Þá fá húsbyggjendur 3-10% afslátt á bygg- ingarefhi við staðgreiðslu og allt að 25% afslátt á steypu, svo dæmi séu nefhd. Verðbréfasölumar hafa mismun- andi hátt á fyrirgreiðslu sinni en allar lána þær út á lánsloforðin sem síðan er ávísað til þeirra sem greiðslu. Þetta er sambærilegur háttur og bankamir hafa haft á árum saman og fara öll þessi við- skipti fram á þinglýstum pappírum. Þjónusta verðbréfasalanna hefur verið talsvert notuð í sumar en úr henni hefur dregið þar sem hús- næðislánakerfið er nú stíflað. -HERB Það er einum af hundraði dýrara að byggja núna heldur en i júli Byggingarkostnaður: Prósenti dvr- ara að Það er einum af hundraði dýrara að byggja núna í ágúst en var í júlí. Þetta segir Hagstofan eftir að hafa farið ofan í saumana á byggingar- kostnaði. Mest munar um hækkun á gatnagerðargjöldum og steypu. Nýja byggingarvísitalan sem byrjaði á 100 í júní og gilti fyrir júlí er komin Í101.3 og gildir sú vísitala í september. byggja Gamla vísitalan sem byijaði á 100 í desember 1982 er komin í 324 fyrir september í ár. Á síðustu 12 mánuðum hefur byggingarvísitalan hækkað um 18%. Hækkun síðustu þriggja mánaða um 3.3% jafngildir 14% hækkun á heilu ári. -HERB Gjögur: Kindunum geffin saltsíld Regína Thorarensen, DV, Gjögii Axel Thorarensen, á nfræðisaldri, sem býr á Gjögri, hefur undanfarin ár lagt síldametsstubba um verslunar- mannahelgina og oft fiskað vel af góðri og stórri síld en nú hefur hún verið smá og horuð, aðeins ein og ein sæmi- leg inni á milli. Axel saltar síldina í tunnur og gefur rollum sínum yfir veturinn og þarf fyrir vikið að heyja minna. í dag mælir Dagfari Stuttbuxnadeildin Enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi gengið til kosninga í vor og tap- að þriðja hverju atkvæði hefur lítið borið á áhyggjum af þeim kosninga- úrslitum. Flokkurinn hefur verið upptekinn við myndun ríkisstjómar, að öðm leyti tekið sér sumarfrí sem nú er búið að standa samfleytt frá því í apríl þegar kosningatölur lágu fyrir. Einhver skýrsla var tekin sam- an af'þar til skipaðri nefhd sem átti að draga saman skýringamar á tap- inu en sú skýrsla hefur síðan verið læst niðri í skúffúm þeirra sem hana sömdu og verður ekki önnur ályktun dregin en sú að með því ætli Sjálf- stæðisflokkurinn að varðveita tapið sem hemaðarleyndármál fram að næstu kosningum til að geta endur- tekið það. Auðvitað má það ekki spyrjast til kjósenda eða flokks- manna hvemig flokkurinn fór að því að tapa svo myndarlega ef meiningin er að endurtaka tapið og algjörlega ástæðulaust að láta aðra flokka komast að því leyndarmáli. Þeir gætu jafnvel stolið glæpnum frá Sjálfstæðisflokknum og tekið upp á því að tapa líka. Eftir því sem lesa má í félagsmála- auglýsingum Morgunblaðsins standa fyrir dyrum landsþing hjá sjálfstæðiskonum annars vegar og stuttbuxnadeildinni hins vegar. Af konunum er lítið að frétta og ekki sjáanlegt að til neinna tíðinda dragi á þeim bæ. Konumar í Sjálfstæðis- flokknum komust hvort sem er lítið að á framboðslistum og skiptu engu máli frekar en endranær og þess vegna finnst engri þeirra taka því að sækjast eftir völdum innan kven- félagsins í flokknum. Þær em upp á punt hvort sem er. Á hinn bóginn virðist vera einhver hreyfing meðal ungliðanna og þá í þá vem að skipta um formann í SUS. Þetta má merkja af lesenda- bréfúm í Morgunblaðinu, frásögnum á Stöð tvö og í slúðurdálkum Þjóð- viljans en í þeim dálkum er jafiian getið um innanbúðarmál Sjálfstæð- isflokksins af hvað mestri ná- kvæmni. Tveir menn em sagðir í framboði til formanns og skiptir ekki máli hvað þeir heita því þeir em flestir eins, fijálshyggjudrengimir hjá íhaldinu, eftir að Hannes Hólm- steinn heilaþvoði ungliðahreyfing- una í Sjálfstæðisflokknum með kenningum Hayeks og Friedmanns. Munurinn á þessum tveim frambjóð- endum er sagður sá að annar heldur því fram að flokkurinn þurfi að gera breytingar á skipulagi sínu til að ná betri árangri í kosningum. Hinn heldur því fram að það þurfi að gera breytingar á hugarfari til að ná betri árangri í kosningum. Hvomgum hefúr hins vegar dottið í hug að gera þurfi breytingar á forystu eða fram- bjóðendum til að fólkið í landinu kjósi Sjálfstæðisflokkinn, enda skiptir það greinilega engu máli í flokknum hveijir veljast til framboðs og forystu ef skipulagið og hugarfar- ið er í lagi. Ekki getur Dagfari fjallað mikið um skipulagsbreytingamar sem eiga að bjarga Sjálfstæðisflokknum en hins vegar er ástæða til að staldra við þau ummæli annars formanns- kandidatsins að hugarfarsbreytingu þurfi að verða hjá flokksforystunni á þann hátt að hún komist aftur í tengsl við fólkið og kjósenduma en á það finnst hinum unga manni að hafi skort fram að þessu. Þetta er mjög athyglisverð kenning. Nú hélt maður að sjálfstæðisforystán hefði verið upptekin við önnur störf, feim- in við ókunnuga eða jafnvel yfir það hafin að komast í tengsl við kjósend- ur, eins og frambjóðendur gera oftast þegar þeir sækjast eftir atkvæðum. En með því að halda því fram að hugarfarsbreytingu þurfi er SUS maðurinn að upplýsa að í forystu Sjálfstæðisflokksins hafi ríkt það hugarfar eða viðhorf að ástæðulaust sé að skapa tengsl við almenning. Þau vom engin, segir kandidatinn og er ekki lengur viss um að þetta sé rétt hugarfar gagnvart háttvirtum kjósendum. Ekki skal dregið í efa að formannsefnið hafi rétt fyrir sér en þá er líka búið að upplýsa hemað- arleyndarmálið í Sjálfstæðisflokkn- um sem enginn hefur mátt vita um. Forysta flokksins hefur með ráðnum hug og að yfirlögðu ráði gengið til kosningabaráttunnar með það hug- arfar að forðast öll tengsl við kjós- endur! Svo em menn hissa á kosningaúrslitum Sjálfstæðisflokks- ins! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.