Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. 19 í 3. skipti á 4 áram sem Þór vinniir KR, 3-1, heima - Guðmundur Valur Sigurðsson skoraði 2 marka Þórs og sín fyrstu í 1. deild Gylfi Kristjgnsson, DV, Akureyri „Við áttum að vera komnir í 2-0 eftir fimmtán mínútur. Við áttum fyrsta hálftímann algerlega, fengum síðan mark á okkur úr þeirra fyrstu sókn og vorum ekki búnir að jafna okkur á því þegar þeir skoruðu aftur. Að við skyldum vera 0-2 undjr í leik- hléi var mjög ósanngjamt. Úr þessu held ég að erfitt verði að stöðva Vals- menn. Þeir eru með það reynslumikið lið. Við erum hins vegar með yngsta lið deildarinnar en strákamir í liðinu hafa fengið ómetanlega reynslu í sum- ar.“ Þetta sagði Gordon Lee, þjálfari KR-inga, í samtali við DV í gærkvöldi eftir að KR-ingar höfðu tapað fyrir Þórsurum á Akureyri með einu marki gegn þremur. Er þetta í þriðja skipti á fjórum árum sem KR tapar 1-3 á heimavelli Þórsara. KR-ingar byijuðu mun betur og strax á fjórðu mínútu átti Þorsteinn Halldórsson skot að marki Þórs sem 'fór í vamarmann og þaðan rétt fram- hjá. Skömmu síðar munaði ekki nema hársbreidd að Birni Rafhssyni tækist að skora og KR-ingar réðu lögum og lofum á vellinum fyrstu tuttugu mínút- umar. Fyrsta mark Guðmundar Vals í 1. deild Á 20. mínútu skomðu Þórsarar fyrsta mark sitt. Kristján Kristjánsson gaf fyrir mark KR og knötturinn barst til Guðmundar Vals Sigurðssonar sem þrumaði honum með glæsibrag í mark gestanna. Var þetta fyrsta mark Guð- mundar í 1. deild og fyrsta sömuleiðis fyrir Þór en Guðmundur lék áður með Breiðabliki f Kópavogi. „Það var rosa- leg tilfinning að sjá knöttinn hafna í netinu," sagði Guðmundur eftir leik- inn. Guðmundur Valur hafði ekki sagt sitt síðasta orð. Á 24. mínútu var hann aftur á ferðinni og skoraði með góðu skoti eftir sendingu frá Einari Arasyni. Páll varði víti Þórsarar hófu síðari hálfleik af krafti og litlu munaði að þeim Sigur- óla og Einari tækist að skora f upphafi hálfleiksins og Ágúst Már var rétt búinn að skora sjálfsmark. Á 63. mínútu leiksins var dæmd víta- spyma á KR eftir að Jósteinn hafði haldið Hlyni Birgissyni innan víta- teigs. Guðmundur Valur fékk nú tækifæri til að skora sitt þriðja mark í leiknum en Páll Ólafsson, markvörð- ur KR-inga, gerði sér lítið fyrir og varði fast skot hans. „Ég hitti boltann vel en skotið var ekki nægilega utar- lega,“ sagði Guðmundur Valur um vítaspymuna. Þórsarar vom nú komnir á fleygiferð og KR-ingar geta þakkað Páli mark- verði að Þórsarar skomðu ekki tvívegis skömmu eftir vftaspymuna. Kristján Kristjánsson og Hlynur Birg- isson komust báðir einir inn fyrir vöm KR en Páll varði í bæði skiptin. Stuttgart mætir Köln Stuttgart mætir Köln í fyrstu umferð v-þýsku bikarkeppninnar í knattspymu. Leikurinn fer fram í Köln 29. ágúst. Kaiserslautem (Lárus Guðmundsson) leikur gegn Mannheim á heimavelli og Uerd- ingen (Atli Eðvaldsson) leikur gegn áhugamannafélaginu SV Heidingsfeld Wúrznurg á útivelli. Bikarmeistarar Bayem Múnchen leika gegn Rot-Weiss Essen. Hamburger leikur gegn Homburg, Mönchengladbach gegn Leverkusen og Frankfurt gegn Schalke. -SOS Kristján skoraði með hægri Þriðja mark Þórsara var skorað fimm mfnútum fyrir leikslok. Halldór Áskelsson renndi þá knettinum á Kristján Kristjánsson eftir að hafa fengið sendingu frá Jónasi Róberts- syni og Kristján, sem er örvfættur, skoraði með hægri fæti eftir að hafa snúið á einn vamarmann KR. Það var svo á síðustu sekúndum leiksins að Willum Þór Þórsson náði að laga stöðuna fyrir KR með skalla- marki eftir sendingu frá Pétri Péturs- syni. Þegar á heildina er litið var leikur liðanna þokkalegur. KR-ingar áber- andi betri fyrstu tuttugu mínútumar en eftir það vom Þórsarar yfirleitt með undirtökin og sigur þeirra var sanngjam. Þeir Júlíus Tryggvason, Einar Arason og Guðmundur Valur Sigurðsson vom bestir hjá Þór en hjá KR bar mest á þeim Páli Ólafssyni og Ágúst Má Jónssyni. Leikinn dæmdi Eyjólfur Ólafsson að viðstöddum um 1100 áhorfendum. Hann sýndi þeim Pétri Péturssvni og Nóa Bjömssyni gula spjaldið. -SK • Pétur Pétursson fékk að sjá gula spjaldið á Akureyri. Eyjólfur Ólafsson sýnd Pétri spjaldið eftir að hann mótmælti vitaspyrnudómi hans. DV-mynd GK, Akureyri með í Róm Ólympíumeistarinn í 5.000 m hlaupi frá OL í Los Angles, Mar- okkómaðurinn Said Mouita, til- kynnti í gær að hann gæti ekki tekið þátt í heimsmeistarakeppn- inni í frjálsum íþróttum í Róm. Hann á við meiðsli á vinstri fæti að stríða. Það er sjónarsviptir að þessum snjalla hlaupara, sem hefur sett fjögur heimsmet í 5.000 m hlaupi, geti hann ekki keppt í Róm. -sos Aouita ekki Waddle með þnimu- fleyg aff 25 m færi - þegar Tottenham lagði Newcastle að velli, 3-1 Clive Allen og Chris Waddle hjálp- uðu áhengendum Tottenham að gleyma brottför Glenn Hoddle í gær- kvöldi þegar þeir fóru á kostum á White Hart Lane, þar sem Tottenham vann sigur, 3-1, yfir Newcastle. Allen, sem skoraði 49 mörk sl. kepppnistíma- bil, opnaði leikinn með því að skora gott mark á 21. mínútu. Waddle lét ekki eftir sitt liggja og sendi knöttinn með þrumufleyg af 25 m færi, aðeins fjórum mín. seinna. Það var svo Steve Hodge sem skoraði þriðja mark Tott- enham með skalla á 34. mín. David McCreery skoraði mark Newcastle í seinni hálfleik. David Pleat, framkvæmdastjóri Tottenham, sem sá á eftir Glenn Hoddle til Monaco í Frakklandi í sum- ar, lét fimm leikmenn leika á miðjunni. Þetta gerði hann eftir að Tottenham tapaði fyrir Coventry um sl. helgi. • Clive Allen hefur tekið fram skot- skóna á ný. •Mistök hjá Peter Shilton, mark- verði Derbv. kostaði nýliðana sigur gegn QPR á gervigrasinu í London. Phil Gee kom Derby yfir, 1-0, eftir sjö mín. Gary Bannister jafnaði, 1-1, fyrir QPR eftir að Shilton hafði slegið knöttinn til hans. •Arsenal náði jaftitefli, 0-0, gegn Manchester únited á Old Trafford. • Kevin Moore tryggði Norwich sig- ur, 1-0, gegn Southampton. Stuart Pearce skoraði sigurmark Nottingham Forest úr vítaspymu, 1-0, gegn Wat- ford. •Chelsea, Coventry og Nottingham Forest eru með fullt hús í ensku 1. deildar keppninni eftir tvær umferðir. •Leeds lagði Leicester að velli, 1-0, á Elland Road í 2. deild. -sos íþróttir • lan Rush kominn á fulla ferð. Jón Röski er skæður á Ítalíu Ian Rush hefur farið hamförum með Juventus í síðustu vdðureign- um liðsins. Hefur hann gert 8 mörk í 5 æfingaleikjum og skoraði garp- urinn síðast gegn Genova í fy'rra- kvöld. Eru forráðamenn Juventus skýj- um ofai' vegna fi'amgöngu piltsins. Hafa þeir því gefið hann lausan í landsleik Wales og Danmerkur sem fram fer 9. september í Bret- landi. Þá hafa forkólfamir heimilað Dananum Mikjáh Laudmp að glíma í sömu rimmu. Stjómarformaður Juventus, Francesco Morini, sagðist ekki óttast að sínir menn fæm illa í nefhdum leik. „Menn geta rétt eins meiðst við það eitt að fara yfir götu,“ sagði hann og brosti við skríbentum. -JÖG/JKS Tungumála- vandamál hjá lan Rush Markaskorarinn Ian Rush hefui- átt erfitt með að tjá sig á Ítalíu þar sem hann er nú leikmaður hjá Juventus. ..Það hefur komið upp vandamál vegna málsins. Leik- menn Juventus tala htið eitt í ensku. Það verður mikil hjálp fyTÍr mig, þegar ég læri ítölskuna,“ sagði Ian Rush, sem segist hafa náð tökum á nokkrum orðum í ít- ölsku. „Ég hef verið að læra ítölsku frá því í janúar. Máhð er nokkuð strembið." sagði Rush. -SOS Aðeins tvö ensk félög í UEFA-keppni Knattspvmusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti það i gær að Eng- lendingar fengju aðeins að senda tvö lið í UEFA-keppnina þegar ensk lið fá aftur að leika í Evrópu- keppninni, 1988. Fjögur ensk félög léku i UEFA-keppninni áður en bann var sett á ensk knattspymu- félög. Það em fjögur lið ftá Rússlandi, V-Þýskalandi og ítalíu í UEFA-keppninni. -SOS Bann sett á ólátabelgi Belgíska knattspymufélagið Antverpen setti i gær bann á 24 ólátabelgi sem hafa sótt leiki fé- lagsins. Þessir pömpiltar hafa oft komið við sögu á heima- og úti- leikjum félagsins. önnur félög í Belgíu hafa hug á að setja bann á ólátabelgi. FC Bmgge er t.d. með nöfh á 300 mönnum á svörtum lista hjá sér. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.