Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. 9 > Útlönd Ættingjar með eitt fórnarlamba fjöldamorðsins í Tyrklandi. Simamynd Reuter Fjöldamorð í Tyrklandi Áttatíu skæruliðar Kúrda slátruðu i fvrrinótt tuttugu og fimm manns í þorpi í suðurhluta Tyrklands. Meðal hinna föllnu voru konur og böm. Réð- ust skæruliðamir inn i þorpið með eldflaugar, handsprengjur og skot- vopn. Nokkur fómarlambanna bmnnu til bana eftir að skæruliðamir höfðu hellt bensíni á hús þorpsbúa og kveikt í þeim. Flest fómarlambanna tilheyrðu þremur fjölskyldum. Maður nokkur missti fimm ættingja og þar á meðal þriggja daga gamalt bam sitt sem drepið var í vöggunni. Að sögn vitna höfðu skæruliðar bar- ist við vopnaða þorpsverði og fellt tvo þeirra áður en þeir komust í gegnum raðir þeirra og réðust á þrjú heimili í þorpinu. Efast um sjátfsmorð Sonur Rudolfs Hess, fyrrum nas- istaforingja, sem lést fyrr í vikunni, segist efast um að faðir hans hafi framið sjálfsmorð. Lík Hess verður flutt til Vestur-Þýskalands þar sem hann verður grafinn í grafreit fjöl- skyldu sinnar. Yfirvöld segja að krufiúng á líki Hess, svo og sjálfsmorðsbréf, sem fannst í vasa á fötum hans, sýni að hann hafi frsunið sjálfknorð. Hess hengdi sig í rafinagnsleiðslu í fang- elsinu í Spandau og vörður sem fylgdi honum eftir fann hann of seint til að bjarga lifi hans. Bæjaryfirvöld í Wunsiedel í Bavaríu, þar sem ætlunin er að jarðsyngja Hess, hafa lýst sig fremur mótfallin því að hann verði greftraður þar. Segj- ast þau óttast að gröfin verði gerð að helgistað nýnasista. Brú hrundi í Frakklandi Ein kona lét lífið og tuttugu og tveir meiddust þegar brú hrundi í ferða- mannabænum Chamonix í Frakklandi í gær. Átta hinna meiddu vom taldir alvarlega slasaðir en fiórtán hlutu litils háttar meiðsl. Lögreglan á staðnum segir að tuttugu og fimm manns hafi verið á brúnni, sem var viðarbrú, þegar hún hrundi og féll fólkið tuttugu metra niður. Jarðgangaverkfall Verkamenn, sem vinna undirbún- ingsvinnu fyrir gerð jarðganga undir Ermarsund, milli Frakklands og Englands, efhdu i gær til verkfaUs vegna launamála og annarra um- kvörtunarmála sinna. Alls lögðu liðlega hundrað og fimmtíu verkamenn niður vinnu í gær, að sögn verkalýðsfélags, en að sögn verktakafyrirtækisins, aem sér um gerð ganganna, vom verkfalls- menn í raun aðeins sextiu. Að sögn verkalýðsfélagsins krefj- ast verkamenn sérstakra greiðslna fyrir vinnu á fridögum og helgidög- um, svo og ferðapeninga. ÞÚ FÆRÐ BUXUR Á100-1KRÚNUR Ég veit að þú átt erfitt með að trúa þessu en komdu og sjáðu þetta með eigin augum. Þú getur klætt alla fjölskylduna fyrir nokkur hundruð krónur á útsölunni hjá okkur. VERSLUNIN ÁNAR við hliðina á Regnboganum á Hverfisgötu. Sími 62-38-60 Vill aðgerðir gegn Frökkum Gunnlaugur A. Jónssan, DV, Lundi: Sten Andersson, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði nýlega í sjónvarpsvið- tali að Norðurlöndin ættu í samein- ingu að standa fyrir aðgerðum gegn Frökkum vegna hertra vegabréfs- reglna þeirra gegn þeim löndum sem ekki em í Evrópubandalaginu. „Eðli- leg viðbrögð væm að flytja Evrópur- áðið frá Strasbourg í Frakklandi til einhvers annars lands,“ sagði Anders- son. Anderson hefur áður verið mjög gagnrýninn í garð Frakka fyrir hinar hertu reglur þeirra en nú segir hann að mælirinn sé fullur og eðlilegt að Frakkar verði látnir taka afleiðingum gerða sinna. skotið Aquino. Því var einnig haldið fram við réttarhöldin sem haldin vom í tíð Marcosar. Nú hafa réttarhöldin, sem tekin vom upp að nýju, staðið yfir í fjóra mánuði. Myndimar, sem sýndar voru í gær, vom teknar af syni ráðherra í stjóm Corazon Aquino. Sagðist hann hafa óttast um líf sitt og þvi ekki borið vitni fyrr. Yfirvöld í Sviss efast um að stjómin í Manila fái á næstunni aðgang að leynilegum bankareikningi fyrrum forseta Filippseyja, Ferdinands Marc- osar. Talsmaður svissneskra yfirvalda sagði að fyrst þyrftu þau að vera viss um að farið yrði í mál gegn Marcosi vegna afbrota hans. Ekki þurfi að bíða eftir málaferlunum sjálfum heldur þurfi aðeins vissu um að þau muni fara fram. Svissneskur lögfræðingur stjómar- innar á Filippseyjum hafði greint frá því í gær að hann byggist við að yfir- völd í Sviss myndu veita aðgang að reikningum Marcosar í næsta mánuði. í gær komu fram nýjar upplýsingar um morðið á fyrrum leiðtoga stjómar- andstöðunnar á Filippseyjum, Ben- igno Aquino. Var hann sleginn í höfúðið og skotinn aftan frá af her- manni, að því er kom fram á myndum sem áður hafa ekki verið birtar. Sam- kvæmt fyrri upplýsingum átti Aquino líklega að hafa fallið fyrir hendi kommúnista. Myndir frá kmfningunni sýna að stefria byssukúlunnar var niður á við og þar með þykir víst að hann hafi verið skotinn af einhverjum sem var fyrir ofan hann. Aðeins öryggisverðir flugvallarins, sem þá vom hliðhollir Ferdinand Marcosi forseta, vom fyrir ofan og aftan Aquino er hann var skotinn 21. ágúst 1983. Var hann þá að koma úr sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum. Hermenn sögðu byssumann úr röð- um kommúnista hafa komist framhjá öryggisvörðum á flugbrautinni og Svissneskur lögfræðingur stjórnar- innar á Filippseyjum, Sergio Salvioni, sagöi á fundi með fréttamönnum i gær að innstæða bankareikninga Marcosar í Sviss yrði brátt gerð kunn- ug en yfirvöld i Sviss draga það i efa. Simamynd Reuter Bið á upplýsingum um auðæfí Marcosar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.