Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Side 11
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. 11 Skaut fjórtán manns til bana Simamynd Reuter Fjórtán manns féllu fyrir hendi óðs byssumanns í bænum Hungerford í Englandi í gær og fjórtán særðust, þar af tveir alvarlega. Eftir að hafa verið umkringdur af lögreglu skaut morð- inginn sig til bana í gærkvöldi. Fjöldamorðið hófst með því að mað- urinn skaut til bana unga konu er sat og borðaði nesti í hádeginu ásamt tveimur börnum sínum í skógi fyrir utan Hungerford. Síðan lá leið morð- ingjans inn í bæinn sem er í um það bil hundrað kílómetra fjarlægð í vest- ur af London. Þar myrti hann móður sína, kveikti í húsi sínu og hlóð á sig skotvopnum og skotfærum áður en hann hélt áfram ferð sinni. Að sögn vitna skaut hann á allt sem hreyfðist með sjálfvirkum riffli og skammbyssu. Lögreglumaður, sem reyndi að stöðva hann, varð fyrir ban- vænu skoti. Leigubílstjóri og kona er ók bifreið sinni urðu einnig fórn- arlömb morðingjans sem virtist þyrma bömum. Morðinginn var að verki á háannatíma í bænum og hélt sig á verslunargötu. Lögreglan, sem hafði umkringt bæ- inn, fann að lokum morðingjann í skóla þar sem hann hafði leitað skjóls. Er lögreglumennimir reyndu að fá hann til að gefast upp ógnaði hann Morðinginn réðst meðal annars inn i hús gamals manns og skaut hann til bana. þeim með handsprengju. Þeir heyrðu síðan að hleypt var af skoti og fundu hann dauðan. Umhverfis hann var fjöldi vopna. Hann var meðlimur í skotfélagi og átti mikið safh vopna. Nágranni hans, sem missti fóður sinn í skothríðinni, segir manninn ekki hafa komið við sögu lögreglunnar. Lögregla hylur leigubil með einu fórnarlamba morðingjans sem skaut til bana fjórtán manns í bænum Hungerford í Englandi í gær. > Símamynd Reuter Útlönd 475 látnir í flóðunum Fjögur hundruð sjötíu og fimm manns hafa nú látist og liðlega ein milljón manna er heimilislaus af völdum flóðanna sem gengið hafa vfir Biingladesh undanfarið. Þetta eru mestu flóð sem þar hafa komið í fjóra áratugi. Flóðin hafa staðið í nokkra daga og í gær kom enn til mikilla rigninga í norðanverðu landinu, þar sem ástandið er verst. Yfirvöld aegja að um þrjátíu manns, að minnsta kosti, hafi látið lífið undanfama tvo daga vegna vaxtar í ám og fljótum af völdum rigninganna. Margir þeir sem komist hafa lífs af úr flóðunum hafa misst aleigu sína og verið sviptir möguleikum sínum til að framfleyta fjölskyldum. Talið er að framundan sé mikil hungursneyð á flóðasvæðunum og að þúsundir kunni að látast þar ef ekki verður brugðið bart við með hjálparstarfi. Vonir vakna um aðra gísla Ævintýralegur flótti bandaríska blaðamannsins Charles Glass frá mann- ræningjum í Beirút, þar sem hann var í haldi í tvo mánuði, hefur vakið að n>ju vonir um aö fleiri gíslar kunni að sleppa úr haldi þar eða verði látnir lausir. Glass hitti í gær fjölskvldu sína í London en hann kveðst hafa komist undan meðan mannræningjamir sváfu. Sýrlendingar halda því fram að ræningjamir hafi heimilað Glass að strjúka og hafi þeir með því hlýtt ráðum Sýrlendinga. Hafa sýrlenskir embættismenn lýst því vfir að innan tíðar muni þeir frelsa aðra vestræna gísla í Líbanon á svipaðan máta. Fjöldamorð í Súdan? Uppreisnarmenn i Súdan hafa sak- að stjómarher landsins um að hafa myrt sex hundruð almenna borgara í tveggja dagamorðæði fyrr í þessum mánuði. Fjöidamorðin eiga að hafa átt sér stað í bænum Wau í suður- hluta landsins. Engin viðbrögð við ásökununum höfðu borist frá stjómvöldum í morgun. Enn órói Námuverkamenn gripu til mót- mælaaðgerða í Seoul, höfúðborg S-Kóreu, í gær til þess að leggja áherslu á kröfúr sínar um hærri laun. Deilum á vinnumarkaði lands- ins er því hvergi nærri lokið þótt tekist hafi að semja við verkamenn í Hj’undai-verksmiðjunum og vinna hafi hafist þar að nýju í gær. llFGoodrich Bjóðum nú þessi frábæru kjör: A: Útborgun 25% B: Eftirstöðvar á 4-6 mánuðum LT215/75R15 32xll.50R15LT 235/85R16LT LT235/75R15 33xl2.50Rl5LT 31xl0.50R16.5LT 30x9.50R15LT 35xl2.50Rl5LT 33xl2.50Rl6.5LT 31xl0.50Rl5LT 255/85R16LT 35xl2.5R16.5LT Einnig fólksbílahjólbarðar AMRTsf Jeppadekkin sem duga. Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.