Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. 13 Neytendur Réttur þeirra sem leigja HÚSALEIGU SAMNINGAR UPPLÝSINGARTT HÚSNÆDISSTOFNUNAR RÍKISINS Margir þeirra sem blaðið ræddi við er DV kannaði húsaleigumarkaðinn, sögðu að ómögulegt væri að fá húseig- endur til að gera samning. Húsaleigu- samningur er nefnilega það eina sem leigutaki getur veifað sé á hann hall- að, án samnings er hann gjörsamlega réttlaus. Þetta er hins vegar misskilningur af hálfú húseigenda. Sé samningur gerður þá vemdar hann rétt beggja. Við litum á það sem löggjafinn hefur um þessi mál að segja, en upplýsingar um það er að finna í bæklingi Hús- næðisstoínunar ríkisins sem nefnist húsaleigusamningar. Þar stendur fyrst að leigusala og leigutaka sé skylt að gera samning. Hafi þetta ákvæði verið brotið þá lítur löggjafinn svo á að stofiiað hafi verið til ótímabundins leigusamnings. Það er því einhver misskilningm1 hjá hús- eigendum ef þeir halda að þeir geti sloppið við að veita leigjendum rétt með því að gera ekki samning, ef í hart fer gildir þetta ákvæði. En hvað er ótímabundinn leigu- samningur? í bæklingnum segir að ótímabundinn samningur sé samning- ur án tiltekins tíma. Báðum aðilum er hins vegar heimilt að segja upp slík- um samningi, með lögskipuðum uppsagnarfresti. Þetta þýðir að leigj- andi verður að segja upp með þriggja mánaða fyrirvara en af hálfú leigusala horfir málið svolítið öðruvísi við. Upp- sagnartími hans miðast við það hversu lengi leigjandi hefur búið í íbúðinni. Þannig er hann þrír mánuðir fyrsta árið, sex mánuðir eftir 1-5 ára sam- fellda leigu og tólf mánuðir ef leigjandi hefur búið í íbúðinni fimm ár eða leng- ur. Þar að auki er réttur þessi bundinn við fardaga sem eru tveir 1. júní og 1. október. Leigjendum er þvi aðeins skylt og heimilt að fara úr húsnæði þessa tvo daga, séu þeir með ótíma- bundna samninga. Það getur því orðið erfitt að losna við leigjandann, sé því sleppt að gera samning, hafi hann r VIÐ GETUM LÉTT ÞÉR SPORIN OG AUÐVELDAÐ ÞÉR FYRIRHÖFN SMÁAUGLÝSINGADEILD ekki áhuga á að yfirgefa húsið. Annað sem mikið virðist stundað er að láta leigjendur greiða fyrirfram. Er þá oft mikið fé sett í fyrirfram- greiðslu, jafnvel ár eða tvö. En það fylgir þama böggull skammrifi. í lög- unum segir: Eigi sér stað fyrirfram- greiðsla húsaleigu til lengri tíma en þriggja mánaða, þá á leigjandinn rétt á íbúðinni fjórfáldan þann tíma er leiga var greidd fyrir. Þetta er byggt á ákvæði sem segir að leigusala sé óheimilt að krefjast fyrirframgreiðslu til lengri tíma en fjórðung hins ums- amda leigutíma. Auglýsingar sem að oft sjást um að íbúð sé til leigu í eitt ár, allt fyrirfram standast ekki, leigj- anda er í lófa lagið að neita að hreyfa sig úr íbúðinni fyrr en að fjórum árum liðnum og er þá fátt til ráða fyrir leigu- sala, annað en að reyna að standa leigutaka að því að brjóta verulega skyldur sína gagnvart íbúðinni. I bæklingnum eru einnig reglugerðir um réttindi og skyldur beggja aðila og er vel þess virði fyrir menn að kynna sér efni hans, hvort sem þeir hyggja á að leigja út eða taka á leigu húsnæði. -PLP cR] □ WirfMi Bæklingur Húsnæðisstofnunar um réttindi og skyldur leigusala og leigutaka Vikan Fjölbreytt efni sem fyrr Ástin fer ekki í manngreinar- álit og hún gerir heldur ekki upp á milli þjóða Viðtöl við nokkra einstaklinga sem staðfesta það Frábær kjúklingaréttur í eldhúsinu Heklaður dúkur í handavinnuþættinum Nýir bílar Nafn Vikunnar: Haraldur Kristjánsson I fimmta gír með Jóni Ragnarssyni, Islandsmeistara í rallakstri M/L Strokumaðurinn af Kleppi og systir Rikku rugluðu, smásaga eftir Helga Má Barðason Elvis Presley, kóngurinn á Glæsivöllum Vikan í pílagrímsferð á slóðum Elvis tíu árum eftir lát hans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.