Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 34
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. 34 Jarðarfarir Matthildur Björg Matthíasdóttir lést 12. ágúst sl. Hún fæddist 12. sept- ember 1921, dóttir Matthíasar Eyjólfssonar og Guðríðar Ólafsdótt- ur. Eftirlifandi eiginmaður Matthild- ar er Guðmundur Eyjólfsson. Þau hjón eignuðust íjögur börn. Útför hennar verður gerð frá Bústaða- kirkju í dag kl. 15. Útför Sölva Ólafssonar, fyrrv. kaup- manns, Hringbraut 99, Keflavík, sem lést 12. ágúst sl., fer fram frá Kefla- víkurkirkju fostudaginn 21. ágúst kl. 14. Aðalbjörg Þórðardóttir, Norður- brún 1, Reykjavík, er lést 17. ágúst sl., verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 21. ágúst nk. kl. 10.30. Guðmunda Sigríður Jónsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 21. ágúst kl. 15. Jórunn Svava Árnadóttir, Sigtúni 53, Reykjavík, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 21. ágúst kl. 11.30. Steinunn Sturludóttir, Kleppsvegi 26, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 21. ágúst kl. 13.30. Útför Sigríðar Gísladóttur, Drop- laugarstöðum, fer fram frá Fossvogs- kapellu föstudaginn 21. ágúst kl. 10.30. Pétur Pétursson, Fjólugötu lla, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni á morgun, föstudaginn 21. ágúst, kl. 13.30. Guðmundur Á. Ingólfsson fram- kvæmdastjóri, Lyngholti 22, Kefla- vík, sem lést á sjúkrahúsi í London 13. ágúst, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 22. ágúst kl. 14. Tilkyimingar Erindi um fóðrun fiska Föstudaginn 28. ágúst kl. 14 mun Dr. H. George Ketola halda erindi í fundarsal Rannsóknarstofnunnar landbúnaðarins á Keldnaholti um „The influence ofdiet and peroxidative rancidity on fry of Atlantic and coho salmon" Dr. Ketola lauk dokt- orsprófi í fóðurfræði frá Cornell háskóla 1973. Hann er nú einn helsti vísindamaður National Fisheries Center, Tunison La- boratory of fich Nutrition, Cortland, New York ríki í Bandaríkjunum, sem rekið er af U.S. Fish & Wildlife Service. Auk þess er hann aðstoðarprófessor við Cornell háskólann. Undanfarið hefur hann aðal- lega starfað við og rannsakað áhrif fóðuijis á fosfór í afrennslivatni frá fiskeldisstöðv- um, fóðrun undaneldisfiska, amínosýru- og steinefnaþarfir, praktískt fóður og óhefðbundna próteingjafa í fóðri laxa og silunga. Alit áhugafólk um fiskeldi er hvatt til að koma og hlýða á erindið. Bolli Þór Bollason ráðinn í fjármálaráðuneytið Bolli Þór Boilason hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa sem sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu frá 1. september nk. Hann mun starfa að hagrannsóknum og áætlanagerð varðandi ríkisbúskapinn og vinna að heildarendurskoðun skattakerf- isins. Bolli Þór hefur unnið hjá Þjóð- hagsstofnun síðan 1974, þar af sl. þrjú ár sem aðstoðarforstjóri. NÝDÖNSK sigraði í hljóm- sveitarkeppninni í Húsafelli Hljómsveitin Nýdönsk lenti í fyrsta sæti í hljómsveitarkeppninni í Húsafelli um verslunarmannahelgina. Alls tók þátt í keppninni 21 hljómsveit víðs vegar af landinu og komust þrjár í úrslit. I öðru sæti lenti hljómsveitin Blátt áfram frá Reykjavík og í þriðja sæti varð hljómsveit- in Hvass frá Snæfellsnesi. 1 dómnefnd sátu sex manns, einn fulltrúi frá MX21, einn frá Stuðmönnum, einn frá Stuðkompaní- inu, einn frá Sveitinni milli sanda og loks tveir úr hópi mótshaldara. Hljómsveitin Nýdönsk er skipuð fimm hljóðfæraleikur- um og einum söngvara en meðlimir hljómsveitarinnar eru allir við nám í menntaskólum í Reykjavík. Söngvari sveitarinnar er Daníel Ágúst Haraldsson, hljómborðsleikarar eru þeir Einar Sig- urðsson og Bergur Bernburg en hann lék áður með Rauðum Flötum. Slagverksmað- urinn er Ólafur Hólm Einarsson, gítar- sláttumaðurinn Valdimar Bragason og bassaleikarinn Björn Friðbjörnsson. Nýd- önsk er um þessar mundir í hljóðveri að taka upp tveggja laga plötu en það fylgdi sigrinum í Húsafelli. Norræn kennslumiðstöð Dagana 13. og 14. ágúst var haldin á hótel Sögu í Reykjavík ráðstefna um kennslu í norrænum málum á Islandi, í Færeyjum og á Grænlandi. Þátttakendur voru um 50 og komu frá Finnlandi, Svíðþjóð, Nor- egi, Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Norður-Þýskalandi auk íslensku þátttak- endanna. Norræna málstöðin í Osló stóð fyrir ráðstefnunni og meginverkefni henn- ar var að fjalla um hvernig við gætum best styrkt og bætt kennslu í Norðurlanda- Hjartans þakkir færi ég börnum mínum, tengdabörn- um, barnabörnum og öllum sem sýndu mér vinarhug á 85 ára afmæli mínu. Sérstakar þakkir færi ég Birgi og starfsfólki Gullna hanans fyrir frábæran mat og góða þjónustu. Guð blessi ykkur öll. Jónína Þórðardóttir Suðurgötu 14 Keflavík Greifynjan veitir velföan Andlitsböö Húöhreinsun Handsnyrting Föröun Litun, plokkun Vaxmeöferö Fótsnyrting Fótaaðgeröir Handsnyrting o.fl. SNYPTIVORUP í ÚPVAI I VERILÓ VELKOMIN Hulda Jónsdóttir snyrtifrœöingur Sœunn Halldórsdóttir snyrtifrœöingur í gærkvöldi d Jónas Fr. Jónsson: Vantar „vakna og í vinnuna“ Það kom vel á vondan að vera spurður álits á dagskrá útvarps og sjónvarps í gærkveldi þar sem hvor- ugan miðilinn bar fyrir augu mín né eyru. Á dagskránni var heldur lítið sem höfðaði til mín nema þá þátturinn um Pétur mikla. Yfirhöfuð fylgist ég lítið með þess- um miðlum en þó eru nokkrir liðir sem maður reynir helst að missa ekki af. Fréttimar reynir maður að sjá á báðum stöðvum sjónvarpsins, strax og ríkisútvarpsfréttunum er lokið. Fær Stöð 2 fyrstu einkunn af þessum aðilum fyrir sína frétta- mennsku sem er bæði málefnaleg og hnitmiðuð. íþróttaþættir, Miami Vice, Churchill og Dagbækur Cian- o’s greifa eru dagskrárliðir sem ég vil alls ekki missa af. Annars er með höppum og glöppum hvað er séð eða heyrt en þó er stundum horfandi á kvikmyndimar á Stöð 2 en sjaldan í ríkissjónvarpinu. Dagskrá útvarps og sjónvarps finnst mér í heildina nokkuð flöt. Útvarpsrásimar em flestar líkar og „gufan“ höfðar ekki til mín nema á fréttatímum. Of margir dauðir liðir em í dagskrá sjónvarpsstöðvanna til að gott sé. Hins vegar er það eitt sem ég sakna meira en annars á dag- skránni og það em góðir „Vakna og í vinnu“ þættir með fréttatengdu efhi, viðtölum, léttri tónlist og fleim sem væri tilvalið til að koma manni af stað inn í hversdagsleikann eftir ljúfa drauma næturinnar. málum í þessum þrem löndum. Mörg mjög fróðleg erindi voru haldin og umræður voru fjörugar og leiddu til margra hug- mynda sem til bóta horfa. Meðal hug- mynda bar eina hæst og fékk hún stuðning allra, sú að stofna „Norræna kennslumið- stöð“ á Islandi. Miðstöðin á að veita íslenskum kennurum upplýsingar um námsefni um Norðurlönd og vera tengilið- ur við að útvega námsefni einkum út- varpsefni og myndbandaefni. Einnig á hún að stuðla að því að nemendur á Islandi kynnist jafnöldrum á Norðurlöndum með nemendaskiptum, bekkjaheimsóknum, bréfaskriftum og dvöl í skólabúðum. Nú þegar starfar Norræn kennslumiðstöð í Helsingfors. Slík miðstöð á að þjóna kennslu á öllum skólastigum og í öllum námsgreinum, t.d. landafræði, sögu og líf- fræði. Á ráðstefnunni voru menn sammála um að styrkja bæri stöðu Norðurlanda í hugum íslenskra unglinga og að þetta gerðist helst með beinum tengslum við jafnaldra. Þörf er því á fé til að brúa At- landshafið með bekkjaheimsóknum og nemendaskiptum. Auk þess settu menn fram óskir um að sjónvarpið tæki oftar til sýningar vinsælt efni frá Norðurlöndun- um. Færeyskir þjóðdansar í opnu húsi I dag, fimmtudag 20. ágúst, verður fær- eyskur dans á dagskrá í opnu húsi í Norræna húsinu, en það er breyting frá áður auglýstri dagskrá. Félagar í þjóð- dansafélagi frá Færeyjum ætla að sýna færeyskan dans og syngja kvæði í hefð- bundnum færeyskum stíl. Flokkurinn kemur hingað frá Færeyjum og ætlar að dveljast á íslandi næstu viku og sýna fær- eyskan dans. Hér gefst ágætt tækifæri að kynnast þessari þjóðlegu hefð Færeyinga og ættu menn ekki að missa af þessari þjóðdansasýningu nágranna okkar. Að- gangur er ókeypis og allir velkomnir. Að venju býður kaffistofan upp á ljúfengar veitingar og bókasafn hússins er opið til kl. 22. Foringjarnir á tónleikum Rokkkvöld verður í Evrópu í kvöld, fimmtudagskvöld. Hljómsveitimar For- ingjamir og Exizt rokka grimmt fyrir gesti. Hljómsveitin Foringjamir hefur ný- lega sent frá sér sína fyrstu plötu og hefur lag af henni verið á vinsældalistum. Einn- ig munu Foringjamir heimsækja Akureyri 21. ágúst og vera með tónleika í H-100 það kvöld. Síðan heimsækja þeir Skagafjörð og verða þar með dansleik í Miðgarði á laugardagskvöld. Ferðalög Útivistarferðir Símar: 14606 og 23732. Helgarferðir 21.-23. ágúst. 1. Þórsmörk - Goðaland. Góð gisting í Útivistarskálanum Básum. Ennþá er möguleiki á sumardvöl í heila eða hálfa viku. Skpipulagðar gönguferð- ir með fararstjóra. 2. Gljúfurleit - Þjórsárfossar. Ferð um afréttarsvæðið vestan Þjórsár, inn af Þjórsárdal. 3. Skógar - Fimmvörðuháls - Básar, 22.-23. ág. Brottför kl. 8.00 laugard. Gengið yfir á laugardeginum. Gist í Básum. Helgarferð 28.-30. ágúst. Eldgjá - Langisjór - Sveinstindur. Gist í húsi. Sumarleyfisferð í Núpsstaðarskóg 27.-30. ágúst. Brottför kl.8.00. Einn af skoðunarverðustu stöðum á Suð- urlandi. Gönguferðir m.a. að Tvílita- hyl. Tjöld. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Dagsferðir sunnudag 23. ágúst: Kl. 8.00 Þórsmörk, einsdagsferð. KL. 13.00 Strompahellar (Bláfjalla- Bobbys Blues band Bobby Harryson er orðinn löngu kunnur fyrir ýmsan tónlistarílutning. Hann er þekktur fyrir að hóa saman hinum ýsmu tónlistarmönnum. Hans nýjasta afkvæmi er nýstofnuð blues hljómsveit sem sam- anstendur af Guðmundi Ingólfssyni píanóleikara, Friðriki Karlssyni gítarleik- Gítartónleikar í Askirkju Gítarleikaramir Paul Galbraith og Einar Kristján Einarsson halda tónleika í Ás- kirkju í kvöld 20. ágúst kl. 20.30. Á efnis- skránni eru verk eftir Bach, Bartók, hellar). Sérstæðar hellamyndir. Hafið ljós með. Verð kr. 600. Frítt f. böm m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Engin sveppaferð á laugardag. Sveppaferð verður auglýst síðar. Helgarferðir Ferðafélagsins 21.-23. ágúst 1. Hítardalur - gengið á Klifsborg. Gist í tjöldum í Hítardal. Gönguferð- ir í skemmtilegu umhverfi. 2. Landmannalaugar - Krakatindur (1025 m). Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum og farin þaðan dagsferð á Krakatind. 3. Þórsmörk - gist í Skagfjörðsskála/ Langadal. Gönguferðir við allra hæfi - ratleik- ur. Það er ekki síður ánægjulegt að ferðast um óbyggðir þegar sumri tek- ur að halla. Komið með í helgarferðir Ferðafélagsins. 21. - 26. ágúst (6 dagar): Landmanna- laugar - Þórsmörk. Gengið milli gönguhúsa F.I. frá Landmannalaugum til Þórsmerkur. Fararstjóri: Jóhannes I. Jónsson. Upplýsingar og farmiðasala á skrif- stofunni, Öldugötu 3. Kynnið ykkur verð og tilhögun ferðanna. Dagsferðir Ferðafélgsins: Laugardagur 22. ágúst: kl. 10 - Berjaferð - Tínt verður í landi Ingunnarstaða í Brynjudal. Verð kr. 800.00 (berjaleyfi innifalið). Sunnudagur 23.ágúst: Afmælisganga nr. 6 Gengið verður yfir hálsinn milli Flókadals og Reykholtsdals. Létt ganga, en þeir sem vilja geta haldið áfram með rútunni að Rauðsgili í Reykholtsdal og gengið þar um, en ara, Jóhanni Ásmundssyni bassaleikara og Gunnlaugi Briem trommuleikara. Munu þeir félagar frumflytja blues eftir Bobby Harryson af væntanlegri blues plötu þeirra félaga sem hljóðrituð mun verða á tónleikum hljómsveitarinnar. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir á Hótel Borg í kvöld 20. apríl kl. 22. Haydn, Brahms, Rave og Hans Werner Henze, en þeir félagar hafa undanfarið flutt hluta úr henni á sumartónleikum á Akureyri og víðar norðánlands. Rauðsgil er sérstaklega skoðunar- vert. I Reykholti mun Snorri Jó- hannesson segja frá sögu staðarins. Verið með í síðustu afmælis- göngunni. Verð kr. 1000.00 ATH.: Kl.13 sunnudag verður engin ferð. Miðvikudagur 26. ágúst: Kl. 08. - Þórsmörk - dagsferð. Verð kr. 1.000. Þetta verður síðasta miðvikudags- ferðin á þessu sumri. Notið tækifærið og dveljið milli ferða í Þósmörk. Brottför í dagsferðirnar er frá Um- ferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Faxamarkaðurinn: Metverð í morgun Á uppboði Faxamarkaðarins í morg- un fékkst hæsta meðalverð fyrir þorsk sem fengist hefúr frá því fiskmarkað- imir hófu starfsemi sína. Seldar vom 24,5 lestir af þorski og var meðalverð- ið 40,30 krónur fyrir kílóið. Þetta samsvarar 60 til 62 krónum fyrir kíló- ið á breska markaðnum. I allt vom seldar 30 lestir af fiski á Faxamarkaðnum í morgun og var meðalverðið 40 krónur. Fyrir utan þorsk var seld ýsa, koli og hlýri. Bjami Thors, framkvæmdastjóri markaðarins sagðist ekki vita hvort haustkippur væri að koma í söluna ellegar hvort hér væri aðeins um ein- stakt tilfelli að ræða, það kæmi í ljós á næstu dögum. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.