Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. Erlendir fréttaritarar Gandhi færir sig til vinstri Jón Onruir HaDdóisscai, DV, Landon: Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sem átt hefur mjög undir högg að sækja heima fyrir á síðustu mánuðum, hefur lofað breytingum á e&iahagsstefiiunni sem miða eiga að því að bæta kjör fátækra í landinu. Fram til þessa hefur stefna Gand- his einkennst af tilraunum til þess að innleiða aukið markaðsfrelsi á Indlandi og auka innflutning á vest- rænni tækni. Stefna Gandhis fram til þessa hefur í reynd miðast við að örva þann hluta efnahagskerfisins sem nær til þeirra tvö hundruð og fimmtíu milljóna Indverja sem eiga einhverja peninga og kallast geta neytendur vöru og þjónustu. Hinar rúmlega fimm hundruð milljónir Indveija, sem aldrei sjá peninga og ekki kaupa iðnaðarvörur, hafa síður verið á dagskrá stjómar Rajivs en gerðist í stjómartíð móður hans, Indiru. Aukin samstaða hægri afla I ræðu sem Gandhi flutti um helg- ina af því tilefhi að fjömtíu ár em liðin frá sjálfstæði Indlands frá Bret- landi lofaði hann auknum aðgerðum til þess að bæta kjör fátæklinga í borgum og sveitum landsins og til aukins jafhaðar í þjóðfélaginu. I fyrri ræðum hefur Gandhi minna talað um jöfhuð og aðstoð við þá fátæk- ustu en meira um markaðsfrelsi og aukna tæknivæðingu. Ræður Gand- his að undanfömu hafa þótt minna sífellt meira á ræður Indiru móður hans en hún sótti pólítískan styrk sinn fyrst og fremst til fátæklinga á Indlandi og var andstaðan gegn henni alla tíð frá ríkari stéttum Ind- lands. Að undanfomu hefur margt bent til aukinnar samstöðu hægri afla á Indlandi en staða Rajiv Gand- his hefur veikst svo mjög að margir telja hugsanlegt að honum verði bolað frá völdum á næstu mánuðum. Ungir ráðgjafar Þegar Rajiv Gandhi komst til valda, eftir morðið á móður hans fyrir tæpum þremur árum, valdi hann sér unga ráðgjafa sem vildu breyta indversku efiiahagslífi meir að markaðshyggju og vestrænni tækni. Þessir menn vom flestir Einangraðistfrá flokknum Um leið og Gandhi studdist við ungu mennina einangraðist hann frá stjómmálamönnum í Congress- flokknum. Þetta kom ekki að sök á meðan hann átti sína hveitibrauðs- daga á valdastóli en eftir að erfið- leikamir byijuðu að dynja yfir í lok síðasta árs gerði Gandhi sér ljóst að hann komst ekki af án margra þeirra stjómmálamanna sem hann hafði áður lýst fyrirlitningu sinni á. Marg- ir leiðtogar flokksins em taldir illa spilltir en þeir ráða flokksmaskín- unni sem er forsætisráðherranum nauðsynleg. Margir telja að stefnubreyting Gandhis og aukin áhersla hans á vandamálum fátæklinga eigi sér skýringar i þessum pólítísku aðstæð- um frekar en breyttu hjartalagi forsætisráðherrans, því stjómmálin við grasrótina á Indlandi, þar sem spilltir stjómmálamenn ráða mestu, snúast verulega um kaup og afkomu fátæklinga með loforðum sem er skiptimynt í slíkum viðskiptum. Siðferðisleg krossferð Gandhi virðist nauðugur sá kostur að taka höndum saman við marga stjómmálamenn af hæpnara tagi til þess að halda völdum og um leið gera raunvemlega breytingu á stefiiu sinni þannig að einhver hluti af hundmðum milljóna fátæklinga landsins muni finna. Um leið lendir hann í þeirri hættu að hægri menn og aðrir andstæðingar hans geti far- ið í siðferðislega krossferð gegn honum fyrir samvinnu við spilling- aröflin en hættulegasti andstæðing- ur hans, Singh, fyrrum fjármálaráð- herra og síðar vamarmálaráðherra, fer nú um Indland og lýsir sig sem krossfara gegn spillingu. Um leið er einnig ljóst að Gandhi þarf á auknum stuðningi vinstri manna að halda þvi hægri menn hafa í auknum mæli náð saman í andstöðu við hann. Fyrir fáum vik- um björguðu til að mynda þingmenn kommúnista Gandhi frá verulegum vandræðum við forsetakosningar á Indlandi. Um leið hefur vinskapur Gandhis við Gorbatsjov aukist og í síðustu heimsókn hans til Moskvu var honum fagnað með meiri viðhöfri en sést hefur þar í borg um langa hríð. menntaðir í Bretlandi, eins og Rajiv sjálfur, eða í Bandaríkjunum, og voru þegar frá unphafi sakaðir um litla þekkingu á öllu því sem að er sérstætt á Indlandi og gerir þetta land svo gersamlega öðruvísi en Vesturlönd. Allt frá sjálfstæði Indlands hafa ríkisstjómir móður Gandhis og Nem afa hans fylgt stefhu sem nefna mætti indverskan sósíalisma og byggðist á sjálfsþurftarbúskap, mið- stýrðri áætlanagerð, jöfnuði í tekju- skiptingu, banni við útlendri fjárfestingu og fleira af sama toga. Um leið byggðist utanríkisstefha Indlands á náinni vináttu við Sovét- menn. Sakaðir um spillingu Gandhi reyndi að breyta mörgu af þessu á skömmlim tíma, hann opnaði glufu fyrir erlenda fjárfest- ingu, sem þó er hverfandi lítil, hann dró úr miðstýringu og úr þeim miklu hömlum sem ríkið setur á einka- rekstur í landinu. Um leið reyndi hann að auka innflutning á útlendri tæknivöm og örva framleiðslu á tæknivöm í landinu sjálfu. Um leið færðust hinarfimm hundmð milljón- ir fátæklinga í landinu eitthvað neðar á dagskrá stjómarinnar. Á síðustu mánuðum hafa hver vandræðin af öðrum dunið yfir Rajiv Gandhi og meðal annars með þeim afleiðingum að hann hefiir orðið að ýta til hliðar mörgum af fyrri ráð- gjöfum sínum. Sumir þeirra hafa lent i vandræðum vegna ásakana um spillingu en aðrir hafa lent skökku megin við borðið í flóknu valdatafli innan Congressflokksins og enn aðr- ir hafa sýnt, svo ekki verður um villst, að vestræn menntun þeirra má lítils við skilning á indverskum vandamálum. Staða Rajiv Gandhis hefur veikst svo mjög að margir telja hugsanlegt að honum verði bolað frá völdum á næstu mánuðum. Simamynd Reuter Kosningabaráttan hafin í Noregi Björg Eva Erlendsdóttu-, DV, Osló: Nú liður að kosningum í Noregi. Um miðjan september verður koaið til bæjar- og sveitarstjóma. Kosningabarátta hinna ýmsu flokka hefur verið í fullum gangi nú seinni part sumars. Hæst heyr- ist í tveimur stæretu flokkunum, Verkamaimaflokknum og Hægri flokknum. Hjartans mál allra flokkanna eru aö vanda heilbrigðismál, skólamál og fjárhagur fólks og þjóðar. En velferðarþjóðfélagið Noregúr á við vaxandi vandamál að stríða á öll- um þessum sviðum. Biðraðimar við sjúkrahúsin lengjast í sífellu og bráðum er svo komið að til þess að komast á sjúkrahús þarf fólk að vera í bráðri lífshættu. Margir spítalar þurfa að loka deildum og sumir hóta að leggja uiður starfsemina. Ástæðumar eru tvær. í fyrsta lagi of lágar fjárveit- ingar og í öðru lagi skortur á starfefólki sem skapast af lágum launum hjúkrunarfólks og miklu vinnuálagi. Kennaraflótti Skólarnir líða líka vegna fjár- skorts og námsárangri nemenda fer hrakandi. Kennararnir flýja stétt- ina vegna lágra launa. Viðhaldi skólabygginga er einnig meir ábótavant en oft áður og að minnsta kosti einn grunnskóli varð að fresta opnun í haust vegna þess að hann var að hruni kominn. En skólar hér í Noregi byrja kringum 18. ágúst. Fjárhagur unga fólksins á hús- næðÍ8markaðinum verður sífellt erfiðari. Vextir af lánum fara hrað- vaxandi, verðlag hækkandi en kaupmáttur eykst ekki að sama skapi. Þeir einu sem aldrei tapa em bankamir. Með vöxtum og vaxta- vöxtum og auknum kostnaði við beina þjónustu hafa þeir ráð undir rifi hverju til þess að ná öllum þeim pening sem hægt er úr vösum al- mennings. Óráðsíu kennt um Gunnar Berge fjármálaráðherra hefur haft á orði að setja lög á bankana til þess að halda vöxtun- um niðri. En þeir hafa svarað með því að kenna óráðsíupólitík ríkis- stjórnarinnar um vaxtahækkan- imar. Hægri flokkurinn tekur málstað bankanna í þessu máli. Lofar hann bæði lækkun skatta og bættum lífe- kjörum ef flokkurinn kemst að í kosningunum. Vandamál skóla og sjúkrahúsa vill Hægri flokkurinn leysa með því að gefa reksturinn frjálsan fyrir einkaaðila. En Verkamannaflokkurinn vill áfram reyna félagslegu leiðina þó að árangurinn hafi ekki verið sem allra bestur upp á síðkastið. Og eftir skoðanakönnunum að dæma styður meirihluti landsmanna póli- tík Verkamannaflokksins en ekki stjórnarandstöðuna. Bílþjófar skotnir á italíu Baldnr Rciieilsgan, DV, Genúa: Lögreglan í Novara á Norður- Ítalíu stöðvaði nýlega fjóra flækinga á nýjum, stolnum bíl. Flækingamir voru ekki á því að láta lögregluna ná sér fyrirhafharlaust og hófii því skothríð að laganna vörðum. Lögreglan svaraði fyrir sig og stóð skotbardaginn yfir í rúmlega fjórar klukkustundir. Tveir flækinganna létust, einn þeirra særðist illa og sá fjórði slapp. Atburðurinn átti sér stað í miðborg Novara en þar er hinn þekkti glæpa- maður Renato geymdur í fangelsi um þessar mundir og héldu íbúar borgarinnar að hann væri að gera aðra tilraun til þess að sleppa úr fangelsinu. 200 hótel á hausinn Baklur Röbertssan, DV, Genúa: Síðustu ftmm árin hefur fjöldi ferðamanna, sem lagt hafa leið sína til Liguriu á norðvesturströnd Ítalíu, farið minnkandi en búist hafði verið við að þeim fjölgaði. Hafa rúmlega tvö hundruð hótel farið á hausinn vegna þess. Ástæðan er talin vera léleg lána- fyrirgreiðsla ítölsku stjórnarinnar þannig að eigendur hótela geta ekki endurbætt hótel sín til að standast kröfur ferðamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.