Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1987, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987.
Fréttir
Alþýðubandalagíð:
Óákveðin vara-
formannsefni
Nokkrir einstaklingar hafa verið
nefndir sem hugsanlegir kandídat-
ar við varaformannskjör í Alþýðu-
bandalaginu á landsfundi þess um
helgina. Enginn þeirra hefur lýst
neinu yfir vegna þessa opinberlega
og því spurði DV þá hvort þeir
hefðu tekið ákvörðun um að gefa
kost á sér ef eftir því verður leitað
og fara svör þeirra hér á eftir.
Svanfríður Jónasdóttir
Ætia að bíða og
sjá hvað setur
„Það er rétt að leitað hefur verið
til mín inn að gefa kost á mér sem
varaformaður flokksins. Ég hef
ekki geflð nein svör við því og ætla
ekki að gera það fyrr en á lands-
fundinum. Ég ætla aö bíða og sjá
hverju fram vindur. Við vitum ekíd
enn hve margir varaformennimir
verða og því vil ég ekki segja neitt
um málið á þessari stundu,“ sagði
Svanfríður.
Hún var spurð að því hvort henni
væri sama með hvoru formanns-
efninu hún ynni ef hún gæfi kost á
sér sem varaformaður.
„Ég þykist vita að menn myndu
ekki samþykkja það að bæði form-
aður og varaformaður væru úr
Eyjafirði,“ sagði Svanfríður Jónas-
dóttir.
HelgS Seljan:
Fer eftir ýmsu
„Það fer nú eftir ýmsu hvort ég
gef kost á mér sem varaformaður
flokksins. Þetta hefur verið nefnt
við mig og ég er enn að hugleiða
málið. Það fer mjög eftir því hvem-
ig mál skipast á landsfundinum
hvað ég geri. Menn eru að hugleiða
mitt framboð til varaformanns
fyrst og fremst með það í huga að
Sigríður Stefánsdóttir verði kjörin
formaður. Það hefur ekki verið leit-
að til mín frá stuðningsmönnum
Ólafs Ragnars með þetta," sagði
Helgi Seljan.
Þfóstur Ólafsson:
Erfitt að svara
„Það er erfitt fyrir mig að svara
þessu nú. Ég hef mjög mörg verk-
efni á minni könnu og er því
önnum kafinn. Það er alveg ljóst
að ef ég tek að mér varaformann-
sembættið þarf ég að að hætta
ýmsu því sem ég hef starfaö að og
ég er ekki reiðubúinn að svara því
á þessari stundu hvort ég er tilbú-
inn til þess. Ég mun skýra frá
minni afstöðu á landsfundinum,"
svaraði Þröstur Ólafsson.
Steingrímur J. Sigfússon:
Ekki á dagskrá
„Það hefur enginn talað um þetta
við mig, nafn mitt var aðeins nefnt
í útvarpinu án þess að til mín væri
leitað fyrst. Og ég fullyrði að það
er ekki á dagskrá hjá mér að gefa
kost á mér sem varaformaður, slíkt
er bara alls ekki inni í myndinni,"
sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Grétar Þorsteinsson:
Gefekkikostámér
„Ég hef ekki hugsaö mér að gefa
kost á mér sem varaformaður og á
ekki von á því að það breytist neitt
á landsfundinum,“ sagði Grétar
Þorsteinsson, formaður Trésmiöa-
félags Reykjavíkur.
-S.dór
Þessi mynd var tekin úr lofti af Egilsstaðaflugvelli I gær. Flugstöðin og flugbrautin blasa við á miðri myndinni.
Nýja flugbrautin verður vinstra meginn við flugstöðvarbygginguna, nær Lagarfljóti, og liggur næstum samsíða
gömlu brautinni. DV-mynd Anna Ingólfsdóttir
Flugmálastjóm:
Líklegast að þeir sem
buðu lægst fái veridð
Jóhann Bergþórsson:
Útboðið spar-
ar milljónir
„Þetta útboð við Egilsstaðaflugvöll
sýnir að útboðsaðferðin er sú rétta
en menn verða að fara varlega hka
þegar boðið er í. Þetta útboð hefur
sparað skattborgurum miUjónir
króna, miðað við að samið hefði ver-
ið beint við heimamenn eins og til
stóð að 'gera,“ segir Jóhann G. Berg-
þórsson, forstjóri Hagvirkis.
Fyrirtækið átti hæsta tilboð í fram-
kvæmdirnar við EgilsstaðaflugvöU.
TUboð fyrirtækisins var 16,8 mUljón-
ir. Inni í þeirri töfu er flutningur
tækja og véfa og að koma sér upp
aöstöðu á EgUsstöðum upp á um 3,8
mUljónir króna.
Jóhann segir að hann telji aö búið
hafi verið að búta verkið of mikið
niður til að aðrir en heimamenn ættu
raunhæfa mögufeika á að fá verkið
þar sem flutningskostnaður tækja og
véla austur væri hfutfaUslega afft of
kostnaðarsamur.
„Ef verkið hefði verið stærra þá
hefði staða heimamanna ekki verið
eins sterk,“ segir Jóhann.
-JGH
„Tiúlegt að vifl
séum of lágir"
„Það er trúfegt að við séum of
lágir,“ segir Kjartan Ingvarsson,
forsvarsmaður Samstarfsfélags
bíla- og tækjaeigenda á Héraði,
en fyrirtækið átti lægsta tilboð í
fyrsta áfangann við EgUsstaða-
flugvöli TUboðið er um 8,5 rnUIj-
ónir króna. Næstlægsta tUboðið
var frá Vökvavélum hf„ einnig
frá Héraði Þeirra tUboð var tæp-.
lega 8,9 milljónir króna.
Kjartan segir aö hann telji að
búiö sé að skera verkiö niöur um
þrjá fjóröu af því sem upphaflega
var áætlað að framkvæma og þeir
Héraðsmenn heföu staðið í samn-
ingum um í sumar.
„Ég lít svo á að 18 milljónimar,
sem rætt er um að kostnaöará-
ætlunin sé fyrir þennan áfanga
sem nú á að gera, sé of há tala
fyrir verkiö. Mér finnst þeir fara
frjálslega með tölur á Almennu
verkfræöistofunni," segir Kjart-
an Ingvarsson á Héraði.
-JGH
Jóhann H. Jónsson, fjármála-
stjóri flugmálastjómar, segir að ekki
sé búið að taka ákvörðun um hverjir
fái framkvæmdimar við fyrsta
áfanga EgUsstaðaflugvaUar. „En það
bendir aUt tíl þess að þeir sem buðu
lægst, Samstarfsfélag bUa- og tækja-
eigenda á Héraði, fái verkið.“
- Óttastu að tilboð þeirra sé of
lágt og að þeir klári ekki verkið, rúUi
með það?
„Nei, ég hef enga trú á að stofnun-
in verði fyrir neinum skakkafóUum
þó þessu tilboði verði tekið og þó það
sé nokkuð undir kostnaðaráætlun."
Jóhann segir að á fjárlögum þessa
árs séu 60 mUljónir króna vegna
framkvæmda við EgUsstaðaflugvöU.
„Þegar til stóð að semja beint við
heimamenn og þeir vom búnir að fá
verklýsingu komu þeir með tilboð
um aö vinna verkiö fyrir 59,7 mUljón-
ir króna. Þeir leiðréttu sig sjálfir
skömmu síðar og fóm niður í um 56
miUjónir króna. En þá var verkið
stærra."
Jóhann bætir við: „Þegar talan 56
miUjónir frá þeim lá fyrir var um-
sögn Almennu verkfræðistofunnar
samkvæmt markaðsspá að hægt
væri að fá verkið gert fyrir um 42
mUljónir króna með útboðum. Eftir
þetta ræddu heimamenn um að
framkvæma verkið fyrir 45 til 50
miUjónir króna.“
Jóhann segir að þá hafi verkiö ver-
ið skorið niður og boðið út. „Nei, það
var ekki bútað niður til að heima-
menn stæðu betur heldur var vetur-
inn að koma og ljóst að ekki var eins
hagstætt að framkvæma verkið. Við
slepptum mikiUi fyUingu, jarðvegs-
skiptum, sem gert verður síðar,"
segir Jóhann.
Kostnaðaráætlun fyrir þann
áfanga sem nú hefur verið boðinn
út segir Jóhann vera um 18,6 mUljón-
ir og inni í þeirri tölu sé flutnings-
kostnaður austur fyrir verktaka
annars staðar frá. Sé miðað við
markaðsspá tel ég töluna rúmlega 13
milljónir vera sambærilega við 42
miUjónir hefði verkið verið tekið aUt
eins og til stóð í fyrstu. Það sem spar-
ast er því mismunurinn á 13 miUjón-
mn og 8,5 miUjónum króna sem er
lægsta tilboðið."
-JGH
Þórarinn V. Þórarinsson:
Um kaupmátt-
araukningu
getur ekki
orðið að ræða
„Við getum ekki vænst þess að um
kaupmáttaraukningu verði að ræða
hér á landi á næsta ári, til þess eru
engin efni,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambandsins, í samtaU við
DV.
í gær var það haft eftir honum í
DV að kauphækkun gæti ekki orðið
meiri en 3% til 7%. Þórarinn sagði
að þar væri óvarlega með farið, því
hann hefði þar átt við það sem hugs-
anlegt væri á samningstímanum.
Hann sagðist hafa verið að skýra
hvað hægt væri að tala um sem með-
altalskauphækkun við þær aðstæður
sem við höfum hér almennt búið við.
„Ég vU í því efni vísa til þess sem
gerist í nágrannalöndum okkar sem
miða í öUum meginatriðum við að
halda gengi sem stöðugustu. í Dan-
mörku vænta menn þess að laun
hækki um 7%, í Finnlandi um
6%-7%, Svíþjóð um 4% og í Noregi
sömdu menn um óbreytt laun en
vinnutímastyttingu. Þetta eru stað-
reyndir sem við okkur blasa,“ sagði
Þórarinn.
Loks sagði Þórarinn að það væri
gleðiefni fyrir okkur íslendinga að
um þessar mundir stæðum við með
hæsta kaupmáttarstig sem nokkru
sinni hefur gerst í sögu þjóðarinnar.
„Að halda því stigi er afrek ef það
tekst,“ sagði Þórarinn.
-S.dór
Komandi samningar:
Þórarinn er á
villigötum
- segir Guðmundur J.
„Þórarinn V. Þórarinsson er ungur
maður og vaskur en hann er á villi-
götum ef hann heldur að hægt verði
að ná samningum um innan við 7%
launahækkun á næsta samnings-
tímabili. Ég hef sagt það og get
endurtekið það nú að launahækkun
á komandi samningstímabili þarf að
vera tveggja stafa tala í prósentum,"
sagði Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands-
ins, spurður álits á ummælum
framkvæmdastjóra Vinnuveitenda-
sambandsins í DV í gær.
Guðmundur sagði aö Verka-
mannasambandiö væri tilbúið að
taka höndum saman við fiskverk-
endur um að gera hag fiskvinnslunn-
ar það góðan að hún gæti greitt
fiskvinnslufólki mannsæmandi laun.
Hann sagðist telja fráleitt aö leggja
launaskatt á fiskvinnsluna sem og
það að neita að greiða henni uppsafn-
aðann söluskatt. Þá sagði hann
nauðsynlegt að tæknivæða fisk-
vinnsluna betur en nú er enda væri
það forsenda þess að hún gæti greitt
hærri laun.
„Ég vil benda Þórami á að fara sér
hægt í öllum yfirlýsingum í dag-
blöðum en setjast þess í stað að
samningaborði með okkur og taka
upp alvöru umræður,“ sagði Guð-
mimdur J. Guðmundsson.
-S.dór
Fimm fyrirtæki buöu í fyrsta
áfanga Egilsstaðaflugvallar. Til-
boðin voru frá Samstarfsfélagi
bíla- og tækjaeigenda á Héraöi,
8,5 mifijónir, Vökvavélum hf. á
Héraöi, um 8,9 milljónir, Hvít-
serki frá Blönduósi, um 13,2
milljónir, Gunnari og Guðmundi
og Suðurverki, um 15,5 milljónir,
og Hagvirki i Hafnarfiröi, um 16,8
milljónir króna.
-JGH