Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987.
19
DV
Iþróttir
Sekt Arnórs gæti numið
allt að300 þús. kvónum
- „Amórfær hæstu sektfrá upphafi hjáAnderlecht,
segir stjómarmaður félagsins
Allt bendir nú til þess aö eftirmálar deilna Arnórs Guðjohnsen viö þjálfara og
forráöamenn Anderlecht veröi þeir að Arnór veröi látinn greiða himinháa sekt.
Samkvæmt heimildum DV gæti upphæð sektarinnar numið allt aö 300 þús. ís-
lenskra króna.
jafnvel talið að það verði ekki ljóst
fyrr en um næstu mánaðamót hve
há sektin verður.
í belgíska stórblaðinu Het
Niewsblat í gær er sagt að Arnór
muni fá hæstu sekt sem leikmaöur
í bði Anderlecht hefur fengið frá
upphafi. Þetta er raunar haft eftir
einum stjórnarmanni Anderlecht í
viðtali við blaðið. Ekki hafa forr-
áðamenn liðsins enn ákveðiö hver
upphæð sektarinnar verður og er
Arnór var fluttur á hótel
Forráðamenn Anderlecht hafa
ákveðið að refsing sú sem Arnór
fær muni aðeins bitna á honurn
einum en ekki liðinu. Um miðjan
dag í gær var náð í Arnór og hann
var þá fluttur á hóteliö sem leik-
menn Anderlecht dvöldu á fyrir
Evrópuleikinn gegn Spatra Prag í
gærkvöldi. Arnór var síðan í liði
Anderlecht í gærkvöldi og kom inn
á þegar tíu mínútur voru til leiks-
loka eins og fram kemur annars
staðar í blaðinu. -SK
Harkan og mistökin
voru í fyrirrúmi
- Þegar KA sigraði Þór, 19-14, á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Handknattleiksunnendur hér á
Akureyri troðfylltu íþróttahölhna
þegar KA og Þór léku saman í fyrsta
skipti í 1. deild í handknattleik. KA-
menn sigruðu með 19 mörkum gegn
14 eftir að hafa haft yfir, 10-8. Leikur
liðanna var ekki áferðarfallegur og
mikið um mistök hjá leikmönnum
beggja liða. Töluverð harka ein-
kenndi leikinn og leikmenn úr
báðum liðum voru reknir af leikvelli
í 22 mínútur samtals.
KA komst í 2-0 í upphafi með mörk-
um Erlings Kristjánssonar úr víta-
kasti og Guðmundar Guðmundsson-
ar. Þeir Sigurður Pálsson, vítakast,
og Ólafur Hilmarsson jöfnuðu metin
fyrir Þór en þá voru níu mínútur
liðnar af leiknum. Síðan var jafnt,
3-3, 5-5 og 6-6, en þá skoruðu KA-
menn fjögur mörk í röð og breyttu
stöðunni í 10-6. Þórsarar skoruðu
síðan tvö síöustu mörk fyrri hálf-
leiksins og staðan var því 10-8 í
leikhléi.
KA gerði út um leikinn
í upphafi síðari hálfleiks
Segja má að leikmenn KA hafi gert
út um leikinn í upphafi síðari hálf-'
leiks er þeir skoruðu þrjú mörk í röð
og staðan var oröin 13-9. Þegar hér
var komið sögu má segja að sigur
KA hafi verið tryggður. Þórsarar
náðu aldrei að ógna sigri KA og það
sem eftir lifði síðari hálfleiks munaði
yfirleitt þremur til íjórum mörkum.
Munurinn var síðan fimm mörk í
lokin og endanleg úrslit 19-14 eins
og áður sagði.
Markverðirnir bestu
menn liðanna
Markverðirnir, Brynjar Kvaran
hjá KA og Axel Stefánsson hjá Þór,
voru bestu menn þessa leiks. Axel
varði meðal annars tvö vítaköst
KA-manna. Að öðru leyti voru engir
leikmenn áberandi í sínum liðum.
• Tólf hundruð áhorfendur sáu
Sigurð Baldursson og Björn Jó-
hannsson dæma leikinn og skiluðu
þeir sínu hlutverki vel. Þeir ráku
Þórsara út af í 14 mínútur en KA-
menn í 8 mínútur.
Mörk KA: Guðmundur Guðmunds-
son 4, Erlingur Kristjánsson 4/4,
Pétur Björnsson 3, Axel Björnsson
2, Friðjón Jónsson 2, Haíþór Heimis-
son 2, Jóhannes Bjarnason 1 og
Eggert Tryggvason 1/1.
Mörk Þórs: Sigurður Pálsson 4, Ólaf-
ur Hilmarsson 3, Sigurpáll Aðal-
steinsson 3/2, Kristinn Hreinsson 2,
Árni Stefánsson 1 og Jóhann Samú-
elsson 1. -SK
• Arnór Guðjohnsen sést hér taka við verðlaunum sínum fyrir mestu
markaskorun í 1. deildinni í Belgíu í fyrra. Arnór verður nú að greiða
^iáa upphæð í sekt til Anderlecht. Símamynd/ Marc de WaeJ^j
Houghton skoraði
eftir tvær mínútur
- Liverpool á
Ray Houghton, sem Liverpo-
ol keypti frá Oxford á dögunum
fyrir 800 þúsund pund, var heldur
betur í sviðsljósinu í gærkvöldi
þegar Liverpool lék gegn Wimble-
don í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar.
Houghton kom inn á sem vara-
maður þegar staðan var 0-0 en
hann hafði aöeins verið inn á í
tvær mínútur áöur en hann skor-
aði mark fyrir Liverpool. Markið
nægði þó ekki Liverpool til sigurs
því Carlton Fairweather jafnaði
metin fyrir Wimbledon.
Leikmenn Tottenham máttu
ný í efsta sæti
þakka fyrir að ná markalausu
jafntefli gegn Portsmouth. Kevin
Dillon fékk rakið tækifæri til að
skora fyrir Portsmouth er hann
framkvæmdi vítaspyrnu þremur
mínútum fyrir leikslok. Honum
tókst hins vegar ekki að skora og
skaut framhjá markinu. Víta-
spyman var dæmd eftir að Tony
Parks hafði brotið á Vince Hilaire
innan vítateigs.
• í gærkvöldi sigraði Oldham
Leeds, 4-2, í deildarbikarnum.
Oldham mætir Everton í fjórðu
umferð.
-SK
Dömur:
Nú drífið þið
ykkur í leikfuni!
Tímarvið allra hæfi
Ný 5 vikna
námskeið
heflast
9. nóvember.
Leikfimi fyrir konur á öllum
aldri.
Hressandi, mýkjandi, styrkj-
andi ásamt megrandi
æfingum.
Karlmenn!
Hinir vinsælu
herratímar
í hádeginu.
Þarftu að missa
15 kíló?
Sértímar fyrir konur sem vilja
léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og
þær sem eru slæmar í baki eða
þjást af vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, nýinnréttuð
gufuböð og sturtur. Kaffi og
sjónvarp í heimilislegri setu-
stofu.
30ám
k1957-1987C
Brautryðjendur
Júdódeild Ármanns, sem
verður 30 ára á þessu ári. er
brautryðjandi i frúarleikfimi.
Mörg hundruð, ef ekki þús-
undir kvenna. hafa tekið þátt
í starfi okkar - viltu ekki slást
í hópinn? Fyrsti prufutíminn
ókeypis.
Innritun
og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl.
13-22 í síma
83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.