Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1987, Page 36
36
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987.
Fólk í fréttum
Steingrímur Hermannsson
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráöherra lagöi þaö til á fóstu-
daginn í DV aö Reykjavík veriö
gerö að friðarvin fyrir andvirði
einnar sprengjuþotu. Steingrímur
er fæddur 22. júní 1928 og lauk B.Sc.
prófi í rafmagnsverkfræði frá IIT í
Chicago 1951. Hann lauk M.S. prófi
frá CIT í Pasadena 1952 og var verk-
fræðingur hjá Rafmagnsveitu
Rvíkur 1952-1953, Áburðarverk-
smiðjunni hf. 1953-1954 og SCEC í
Los Angeies 1955-1956 og fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins 1957-1978. Steingrímur var
alþingismaöur Vestfjarðakjör-
dæmis 1971-1987 og Reykjaneskjör-
dæmis frá 1987. Hann var dóms-,
' kirkjumála- og landbúnaðarráö-
herra 1978-1979, sjávarútvegs- og
samgöngumálaráðherra 1980-1983,
forsætisráðherra 1983-1987 og ut-
anríkisráöherra frá 1987. Stein-
grímur hefur verið formaður
Framsóknarflokksins frá 1979.
Fyrri kona Steingríms var Sara
Jane, f. 30. október 1924. Foreldrar
hennar eru Leos J. Donovan, tann-
læknir í Chicago, og k.h. Marie
Blanche Donovan. Böm Steingríms
og Söru eru Jón Bryan, f. 23. októb-
er 1951, arkitekt og vélaverkfræð-
ingur í Los Angeles, giftur Lisalotte
Hedvig Mueller, Ellen Herdís, f. 6.
nóvember 1955, vinnur viö al-
mannatengsl í New York, Neil, f.
16. desember 1957, er að ljúka tann-
læknanámi í Bufíalo í New York.
Seinni kona Steingríms er Guðlaug
Edda GuOmundsdóttlr, r. zi. JanUar
1937. Foreldrar Eddu: Guðmundur
Gíslason, skólastjóri á Reykjum í
Hrútaflröi, og k.h., Hlff Böövars-
dóttir. Böm Steingríms og Eddu
eru Hermann Ölvir, f. 25. ágúst
1964, verkfræðinemi, Hlíf, f. 22. júh
1966, læknanemi og Guðmundur,
f. 28. október 1972, nemi.
Systur Steingríms eru Herdís, f.
12. maí 1927, d. 19. maí s. ár og Pá-
lína, f. 12. september 1929, gift
Sveinbirni Dagflnnssyni, ráðu-
neytisstjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu. Foreldrar Steingríms:
Hermann Jónasson, alþingismaður
og forsætisráðherra, og kona hans,
Vigdís Oddný Steingrímsdóttir.
Faðir Hermanns var Jónas, b. og
smiöur í Syðri-Brekkum í Akra-
hreppi, Jónsson. Móðir Hermanns
var Páhna ljósmóðir, systir Önnu,
ömmu Sigurðar Björnssonar, bæj-
arverkfræðings í Kópavogi, og
langömmu Héðins Steingrímsson-
ar, heimsmeistara sveina í skák.
Pálína var dóttir Bjöms, b. á Hofs-
stöOum, Péturssonar. Móölr Pállnu
var Margrét, systir Þorkels, foöur
Þorkels veðurstofustjóra og afa
Sigurjóns Rist vatnamælinga-
manns. Margrét var dóttir Páls
Þórðarsonar, b. í Viðvík, bróður
Jóns á Hnjúki, langafa Jóns á Hofl,
föður Gísla menntaskólakennara.
Bróðir Páls var Jón á Ytrahvarfi,
langafi Guðjóns B. Ólafssonar, for-
stjóra SÍS. Jón var langafi Jóns á
Jarðbrú, afa Atla Rúnars Halldórs-
sonar fréttamanns. Jón á Ytra-
hvarfi var einnig langafi Hallgríms,
föður Hafliða sellóleikara og Jó-
hanns, föður Þórunnar Ashkeriazy.
Móðir Páls var Sigríður Guð-
mundsdóttir, systir Jóhönnu,
langömmu þeirra bræðra Hall-
gríms, fyrsta forstjóra SÍS, Sigurö-
ar, forstjóra SÍS, og Aðalsteins
Kristinssonar, forstjóra innflutn-
ingsdeildar SÍS, sem er afi Árna
Árnasonar, frv. framkvæmda-
stjóra Verslunarráðs. Móðir
Margrétar var Guðný Bjömsdóttir,
systir Guðrúnar, ömmu Páls Zóp-
bónlassonar bUnaOarmaiastjóra,
föður Hjalta, frámkvæmdastjóra
innflutningsdeildar SÍS, og Zóp-
hónfasar, skipulagsstjóra ríklsins.
Bróðir Guðrúnar var Bjöm, afi
Snorra Sigfússonar námsstjóra.
Móðir Steingríms, Vigdís, var
dóttir Steingríms, byggingarmeist-
ara í Rvík, Guðmundssonar, b. á
Svalbarða á Álftanesi, Runólfsson-
ar. Móðir Vigdísar var Margrét,
systir Ingibjargar, ömmu Berg-
steins Gizurarsonar brunamála-
stjóra. Margrét var dóttir Þorláks,
útvegsbónda í Þórukoti á Álftanesi,
Steingrímur Hermannsson.
bróðir Sæmundar, langafa Tómas-
ar, frv. formanns Sölusambands
ísl. fiskframleiðenda, Guðlaugs
Þorvaldssona ríkissáttasemjara og
Ellerts Elrikssonar varaþlng-
manns. Sæmundur var einnig
langafi Bjarna, forstjóra Byggða-
stofnunar, og Guðmundar Einars-
sonar, forstjóra Skipaútgeröar
ríkisins. Bróðir Þorláks var Einar,
langafi Eiríks, föður Ásgeirs Hann-
esar varaþingmanns. Einar var
einnig langafi Ólafs Gauks og Dag-
bjarts Einarssonar, formanns
Sölusambands ísl. fiskframleið-
enda. Þorlákur var sonur Jóns,
útvegsbónda á Húsatóftum í
Grindavík, Sæmundssonar, forföð-
ur Húsatóftaættarinnar.
Afmæli
Oskar Friðbjamarson
Óskar Friðbjarnarson fram-
kvæmdastjóri, Bakkavegi 31,
Hnífsdal, er sextugur í dag.
Kona Óskars er Fjóla Hannes-
dóttir, f. 8. júní 1928, og eiga þau
fimm syni: Hannes vörubílstjóra,
f. 1957; Friðbjörn verkamann, f.
1959, giftan Guðrúnu Hreinsdóttur
og eiga þau tvö börn; Aðalstein,
námsmann í Noregi, f. 1962; Ind-
riða, menntaskólanema á ísafirði,
f. 1967, og Guðmund sem býr í for-
eldrahúsum, f. 1968.
Óskar á níu bræður sem allir eru
á lífi.
Foreldrar Óskars: Friðbjörn, b. í
Sútarabúð í Grunnavík, en hann
er látinn, og kona hans, Sólveig
Pálsdóttir.
Guðmundur Sigfusson
Guömundur Sigfússon, bóndi á
Kolbeinsá I, Bæjarhreppi, Stranda-
sýslu, er sjötíu og fimm ára í dag.
Guðmundur giftist 1939, Hönnu
Hannesdóttur, f. 17. september
1916, börn þeirra eru, Hilmar, f.
1938, b. á Kolbeinsá, giftur Sigur-
rósu Jónsdóttir, og eiga þau þrjú
börn. Agnar, f. 1940, vörubílstjóri í
Grindavík. giftur Sólveigu Guð-
bjartsdóttir og eiga þau fimm börn.
Ásdís, f. 1942, gift Pálma Sæmunds-
son, sparisjóðsstjóra í Laugarholti
í Hrútafirði og eiga þau þrjá syni,
Margrét, f. 1955, gift Halldóri Sig-
urössyni b. á Efri-Þverá í Vestur-
hópi, og eiga þau tvær dætur.
Sigfús, f. 1958, b. á Kolbeinsá, sam-
býliskona hans er Ingibjörg Karls-
dóttir.
Guðmundur átti þrettán systkini
en eitt þeirra dó í barnæsku. Þau
systkinin eru nú tíu á lífi.
Foreldrar Guðmundar voru Sigf-
ús, b. á Stóru-Hvalsá, Sigfússon. og
kona hans, Kristín Guðmundsdótt-
ir.
Laufey Stefánsdóttir
Laufey Stefánsdóttir, Fálkagötu
9, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára
- í dag. Laufey fæddist í Viðey en
faðir hennar var þar vinnumaður
hjá Ólafi Gislasyni, forstjóra Millj-
ónafélagsins. Hún flutti svo fljót-
lega með foreldrum sínum aö Haga,
sem stóð þar sem nú er Hofsvalla-
gata í Reykjavík, en frá Haga flutti
fjölskyldan á Grímsstaðaholtið þar
sem Laufey býr enn.
Maður Laufeyjar er Jón, f. 26.2.
1909, en hann var húsvörður á
Hótel Sögu í u.þ.b. tuttugu ár. For-
eldrar hans: Þórður, b. á Reykjum
á Skeiðum, Þorsteinsson, af Bergs-
ætt, og Guðrún frá Sandlækjarkoti
Jónsdóttir sem einnig er af Bergs-
ætt.
Laufey og Jón eignuðust átta
j böm sem öll eru á lífi: Fjóla Jeffri-
es húsmóðir, f. 1936, er búsett í
Texas, gift Marvin Jeffries flug-
stjóra og eiga þau fjögur börn; Árni
Laufdal húsasmiður, f. 1938, býr í
Reykjavík og á einn son; Stefán
sendibílstjóri, f. 1947, á tvö börn,
Laufey Stefánsdóttir.
býr í Reykjavík og er giftur Sigríði
Sigurðardóttur; Kristján Þór stýri-
maður, f. 1948, býr í Reykjavík, er
giftur Lunu Jakobsen og eiga þau
tvö börn en hann átti eitt barn fyr-
ir; Þórður, deildarstjóri hjá Krist-
jáni Ó. Skagfjörð, f. 1950, er giftur
Ásu Bjamadóttur og eiga þau eina
dóttur; Smári, starfsmaður hjá
Sandsölunni hf„ giftur Jóhönnu
Sigurjónsdóttur og eiga þau tvö
börn; Geir stýrimaöur, f. 1954, á tvö
börn og er giftur Elínu Kristjáns-
dóttur; Guðlaug húsmóðir, f. 1956,
býr í Hnífsdal og er gift Viðari
Finnssyni sjómanni.
Systkini Laufeyjar voru átta en
þrjú þeirra eru látin: Pétur, sjó-
maður og útgerðarmaður 1 Reykja-
vík, er giftur Guðrúnu Svein-
björnsdótur; Ágústa, húsmóðir,
býr í Seattle í Washington en henn-
ar maður heitir Garry; Árni er
starfsmaöur hjá Þórskaffi og er
giftur Sigríði Helgadóttur; Guðrijn,
býr í Reykjavík, en hún var lengi
þerna á Gullfossi; Auöur, starfar
við barnagæslu í Reykjavík; Fjóla,
dó ung; Ingvar, dó í barnæsku; og
Björgvin Laufdal var ungur maður
þegar hann lést.
Foreldrar Laufeyjar vom Guð-
laug Pétursdóttir og Stefán, sonur
Áma, b. í Mýrdalskoti, Guðbrands-
sonar og Guðrúnar Jónsdóttur.
Ingibjövg Ámadóttir
Ingibjörg Árnadóttir, Miðhúsum,
Reykhólasveit, er níræð í dag. Ingi-
björg fæddist að Kollabúðum og
ólst þar upp til átta ára aldurs en
þá missti hún föður sinn og varð
móðir hennar þá aö bregða búi.
Ingibjörg og Anna systir hennar
fóru þá í fóstur að Stað á Reykja-
nesi í Barðastrandarsýslu, til séra
Jóns Þorvaldssonar og Ólínu Krist-
ínar Snæbjarnardóttur. Frá því
menningarheimili minnist hún
m.a. gestakomu þeirra Matthíasar
Jochumssonar, Stefáns frá Hvíta-
dal, Þórbergs Þórðarsonar og
Emils Thoroddsens. Ingibjörg
stundaði nám í Húsmæðraskólan-
um á ísafirði 1917-1918, lærði síðan
vefnað og fatasaum í Reykjavík og
garðyrkju lærði hún í Gróðrarstöð-
inni í Reykjavík hjá Ragnari
Ásgeirssyni. Hún var matráðskona
á Bændaskólanum á Hólum í
Hjaltadal 1924-26 og síðan ráðs-
kona á búi Thors Jensens að
Lágafelli í Mosfellssveit. Ingibjörg
fór síðan til Reykjavíkur og vann
þá um hríð með Helgu Sigurðar-
dóttur skólastjóra í matsölu
Oddfellowreglunnar en stofnaði
síðan eigin matsölu.
Ingibjörg og maður hennar hófu
búskap á Miðhúsum í Reykhóla-
sveit 1939. Hún var einn af stofn-
endum Kvenfélagsins Liljunnar og
var formaður þess um langt skeið.
Ingibjörg hafði forgöngu um aö
friða land í Barmahlíð en á þeim
stað, sem löngum var nefndur
Kvenfélagsgirðingin, stunduðu
Ingibjörg og aörir áhugamenn trjá-
rækt um áratuga skeið. Þau
Miðhúsahjón voru meðal stofn-
enda Kirkjukórs Reykhólasveitar
og Ingibjörg var lengi í sóknar-
nefnd kirkjunnar. Ingibjörg er vel
ern og við sæmilega heúsu.
Ingibjörg giftist 1930 Jóni Daða-
syni, f. 31. maí 1899, d. 15. maí 1977,
ættuðum frá Skógarströnd á Snæ-
fellsnesi. Foreldrar hans voru Daði
Daníelsson og María Andrésdóttir,
systír þeirra skáldsystra Herdísar
og Ólínu.
Ingibjörg Árnadóttir.
Dóttir Ingibjargar og Jóns er
Ólína Kristín, f. 15. júlí 1931, gift
Sveini Guðmundssyni, kennara og
b. á Miðhúsum, og áttu þau fimm
börn: Jón Hjálmar, f. 15. júlí 1955,
sjóliðsforingja; Guðmund, f. 27.
apríl 1957, d. 27. september 1974;
Ingibjörgu Ernu, f. 19. maí 1960,
gifta Daníel Engilbertssyni; Þrym
Guðberg, f. 31. maí 1966; og Guð-
mund, f. 13. apríl 1976.
Systkini Ingibjargar voru átta:
Anna, f. 11. október 1884, d. 3. apríl
1957, gift Eyjólfi Guðmundssyni,
sjómanni í Rvík; Finnboga, f. 14.
október 1886, d. 4. febrúar 1941, gift
Oddi Jónssyni, lækni á Miöhúsum;
Guðmundur, f. 29. maí 1889, b. í
Naustavik, giftur Steinunni Guð-
mundsdóttur, f. 29. september 1896,
d. 19. febrúar 1986; Ragnheiður
Jónína, f. 25. júní 1890, d. 29. mars
1982, gift Daníel Ólafssyni, b. í
Tröllatungu; Þórarinn Guðmund-
ur, f. 4. júlí 1892, b. á Miðhúsum,
giftur Steinunni Hjálmarsdóttur;
Ólafía Halldóra, f. 19. október 1893,
gift Ólafi Jónssyni, sjómanni í
Rvík; Hallvarður Einar, f. 23. des-
ember 1895, d. 20. janúar 1969,
sjómaður í Rvík, giftur Guðrúnu
Kristjánsdóttur; Brandís, f. 4. ágúst
1900, gift Ólafi Bjarnleifssyni,
verkamanni í Rvík.
Foreldrar Ingibjargar voru Árni
Gunnlaugsson, b. á Kollabúðum í
Reykhólasveit, og kona hans,
Kristín Hallvarðsdóttir.
Andlát
75 ára
Marinó Árnason skipstjóri, Suður-
götu 97, Akranesi, er sjötíu og fimm
ára í dag. Hann verður að heiman
í dag.
60 ára
Steinar Magnússon, Þinghólsbraut
67, Kópavogi, er sextugur í dag.
Ásta Sóley Lárusdóttir, Hallveigar-
stíg 9, Reykjavík, er sextug í dag.
50 ára________________________
Guðný Steingrímsdóttir, Lóni,
Raufarhafnarhreppi, Norður-Þing-
eyjarsýslu, er fimmtug í dag.
Pétur Ragnar Enoksson, Suður-
landsbraut, Rauðavatni 1 G 11,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Guðni Aðalsteinn Arthúrsson,
Heiðarvegi 14, Reyðarfirði, er
fimmtugur í dag.
Sigtryggur Vagnsson, Hriflu 2, Ár-
skógsstrandarhreppi, Eyjafirði, er
fimmtugur í dag.
40 ára
Halla Halldórsdóttir, Rjúpufelli 31,
Reykjavík, er fertug í dag.
Þórður Helgason, Bjarnhólastíg 18,
Kópavogi, er fertugur í dag.
Ólafur Guðnason, Neðstabergi 6,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Trausti Magnússon, Hjallabrekku
1, Ólafsvík, er fertugur í dag.
Birgir Guðmundsson, Krummahól-
um 8, Reykjavík, er fertugur í dag.
Viðar Jónsson, Ásbraut 15, Kópa-
vogi, er fertugur í dag.
Ásdís Magnúsdóttir, Brekkubyggð
24, Garðabæ, er fertug í dag.
Guðrún Ragna Sveinsdóttir, Mið-
túni 19, Hafnarhreppi, Austur-
Skaftafellssýslu, er fertug í dag.
Sveinsina Ágústsdóttir frá Kjós í
Árneshreppi andaðist á dvalar-
heimilinu Hrafnistu 3. nóvember
sl.
Margrét Jónsdóttir, Sauðhú-
svelli, V-Eyjaíjöllum, lést í-
Landspítalanum þriðjudaginn 3.
nóvember.
Stefanía Magnúsdóttir, Múlavegi
16, Seyðisfirði, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu, Neskaupstað, 3.
nóvember.