Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988. 9 Uflönd Reyna að bjarga Finnmörku Björg Eva Erlendsdóttix, DV, Osló: Norska ríkisstjómin ætlar að gera stórátak til aö bjarga Finnmörku, norðlægasta fylki landsins, frá gjald- þroti. Gro Harlem Brundtland for- sætisráðherra er nýkomin heim frá Finnmörku þar sem hún gaf íbúum fylkisins loforð um 650 millj. norskra króna aukaíjárveitingu á næstu þremur árum. Þessir peningar eiga að bjarga atvinnuiífinu í Finnmörku og sérstaklega eiga þeir að forða fisk- iðnaðinum frá algeru hruni. Flestir sveitarstjórnarmenn og at- vinnurekendur í Finnmörku voru ánægðir með framlag ríkisstjómar- innar þó að sumir hefðu getað hugs- að sér meiri hjálp. Mesta gagnrýni fékk forsætisráðherrann fyrir að hafa ekki létt nógu mikið á skatta- og lánabyrðum Finnmerkurbúa. Aflabrestur á flskimiöum Noregs hefur orðið til þess aö margir báta- eigendur hafa selt báta sína á nauð- ungamppboðum nú þegar og enn fleiri bátar eru í hættu. Þetta getur orðið til þess að þegar fiskurinn kem- ur aftur verði engir bátar til segja forkólfar fiskiðnaðarins í Finn- mörku. Þeir em bjartsýnir á framtíð fylkisins ef tekst að bjarga flotanum á meðan beðiö er eftir fiski. En margir em svartsýnir og fólks- flóttinn úr fylkinu lýsir því best. Hvert þorpið á fætur ööm minnkar um helming og meira en þaö á nokkr- um áram. Það er sérstaklega unga fólkið sem flytur suöur á bóginn. Á fundinum með forsætisráðherra heyrðust meira að segja raddir sem sögðu að það þýddi lítið að veita íjár- magni til Finnmerkur því það væri . eins og aö gefa dauðum manni með- ul. En norska ríkisstjórnin viil ekki gefast upp ennþá. Stuðningurinn, sem Finnmörk þiggur árlega, er nú kominn upp í tvo milljarða norskra króna á ári þó að íbúunum fækki stöðugt. Brundtland vildi ekki úti- loka að Finnmörk fengi fleiri auka- fjárveitingar ef á þyrfti áð halda og hefur hún með heimsókn sinni til Finnmerkur sýnt að norski Verka- mannaflokkurinn vill halda til streitu dreifbýlisstefnu sinni þrátt fyrir efnahagsvandann sem Noregur á við að glíma. Super Glandin - hin náttúrulega andlitslyfting Nú er komið helmingi sterkara Super Glandin næturkrem. • > Eftir áralangar rannsóknir hafa sænskir vísinda- menn þróað húðnæringu sem inniheldur GLA- fitusýru. í tilraunum, sem gerðar voru í Svíþjóð með Super Glandin, kom árangurinn ótvírætt í ljós. • Super Glandin gekk fyrr og betur inn í húðina en nokkurt annað húðkrem. • Eiginleikar Super Glandins sem rakakrems reyndust ótvíræðir. Það klesstist ekki og það jók mýkt og téygjanleika húðarinnar mikið. • Blóðstreymi í húðinni jókst en það var í mörgum til- . fellum nauðsynlegt til að eðlileg endurnýjun gæti átt sér stað. • Nær allar konurnar, sem tóku þátt í tilraununum með Super Glandin, kusu að nota það áfram, jafnt þær sem áttu viö húðvandamál að stríöa og hinar. KfistÍH * IMK INNFLUTNINGSVERSLUN • • INNROMMUN RAMMA OPIÐ TIL MIÐSTOÐIN KL. 18 Á LAUGARDÚGUM SIGTÚN 10-SÍMI 25054 SÉRVERSLUN MEÐ INNRÖMMUNARVÖRUR Friðargæslumenn í Irak skoða stööuna á vigstöðvunum. Símamynd Reuter Viðræður írana og ír- aka ganga eðlilega Fyrsti sáttaumleitanafundur Talsmaöurinn sagði greinilegt að fulltrúa írana og íraka stóð í hálfa bæði írönum og írökum væri nú þriðju klukkustimd í Genf í gær og alvara með aö leita sátta í deilum að honum loknum drógu fulltrúar ríkjanna. Sagöist hann telja að hvors ríkis sig í hlé til að ræða þaö gangur fundarins hefði stefnt í sem fram hafði komið. rétta átt Talsmaður Sameinuöu þjóðanna Vopnahlé það sem gekk í gildi sagði að fundinum loknum að hann milli ríkjanna tveggja síðastliöinn heföihvorkigengiðvelnéillaheld- laugardag, eftir átta ára langa ur eðlilega. Bað hann fjölmiðla að styijöld, hefur verið haldið til láta vera að túlka athafnir fundar-' þessa. setumanna á einn veg eða annan. Húðnæríng fyrir alla með Verkföllin brot in á bak aftur Verkfallsmenn í skipasmíðastöðinni i Gdansk sitja og biöa átekta. Símamynd Reuter Verkfóll í kolanámum í suðurhluta Póllands voru brotin á bak aftrn- af óeirðalögreglu í gær en í norðri eru verkamenn í þremur námum enn í verkfalli. Verkfollin hófust fyrir ellefu dög- um í Manifest Lipcowy kolanámunni í bænum Jastrzbie. Vinna Uggur enn niðri í námunni þrátt fyrir að óeirða- lögregla hafi reynt að stöðva mót- mæli námumanna. Verkfallsmenn segja aö lögregla hafi umkringt námuna í gærkvöldi og reynt að-svæla verkfallsmenn út með vatni. Þeir segja einnig aö óeirðalögregla hafi barið marga verkfallsmanna á miðvikudagskvöld þegar lögreglan réðst inn í þrjár námur nálægt Jastrzþie við landa- mæri Tékkóslóvakíu. Lech Walesa, leiðtogi hins bannaða verkalýðsfélags Samstöðu, átti í gær viðræður við fulltrúa pólskra yfir- valda í fyrsta sinn síðan verkfóflin hófust. Fundurinn átti sér stað í Len- in skipasmíðastöðinni. Fulltrúinn vfldi ekkert segja um árangur við- ræðnanna að loknum fundinum og hélt tfl Varsjár á ný. Viðræður stjórnvalda og fulltrúa hafnarverkamanna, sem em í verk- fafli í bænum Szcezin í norðurhluta Póllands, áttu sér einnig stað í gær en enginn árangur hefur enn komið í ljós. Verkfallsmenn krefjast þess að Samstaða verði viðurkennd og að kjör þeirra veröi bætt. Þetta eru verstu verkföll í Póllandi síöan áriö 1981 þegar herlög voru sett í landinu. Talsmaður stjórnvalda sagði að of snemmt væri aö segja tfl um hvort verkfallsöldunni væri lokið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.