Dagur - 20.12.1950, Side 17
JÓLABLAÐ DAGS
17
A þessi svarthæröi drengsnáði eftir að kynnast íafeurri hugsjón,
sem breytir viðhorfi hans til lífsins?
Kona skósmiösins stundar iðju mannsins, en börnin leika í
sandinum meðan hún reynir að afla heimilinu málsverðar.
Bogarnir eru heimkynni hinna
fátæku fjölskyldna. Grjóti er liiað-
ið í bogann öðrum megin, á móti
nor#ri, en kassafjalir eru hinum
megin og þar hafðar útgöngudyr.
Bogarnir eru yfirleitt ekki stærri
en það, að rúmfletið nær á milli
veggjanna og tekur yíir helming
góllHatarins, en hinn helmingur-
inn er notaður fyrir eldhús og fyrir
börnin og allt annað, sem gera
þarf á heimilinu. Pottar og pönn-
ur og matarílát fjölskyldunnar
hanga gljáfægð uppi á veggjunum.
Á stöku stað í borg útlaganna
eru efnin meiri. Nokkrir hafa
reynzt þess megnUgir að hlaða
steinskúta utan við veggjaropið og
hafa þannig stækkað ílntðina. Aðr-
ir hafa komizt ylir kassafjalir á ein-
hvern óskiljanlegan liátt og nota
þær til þess sama. Slík höfðingja*
setur í samfélagi fátæktarinnar geta
tekið við fjölskyldu dóttur eða son-
ar með tilheyrandi barnahóp.
Þvotturinn er hengdur til þerris yfir sandbrautina,