Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 25 Aldarafmæli Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi: Forvitnileg sýning urn ástsælt skáld - Leikfélag Akureyrar frumsýnir Á svörtum fjöðrum Þrír leikarar i hlutverki Davíðs Stefánssonar, f.v. Dofri Hermannsson, Sigur þór Albert Heimisson og Aðalsteinn Bergdal. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld, á 100. afmælisdegi Davíös Stef- ánssonar skálds frá Fagraskógi leik- sýningu sem unnin er úr ljóðum skáldsins. Sýningin ber heitið Á svörtum fjöðrum og er Erlingur Sig- urðarson íslenskufræðingur höfund- ur leikverksins. Erlingur skrifaði verkið að beiðni Leikfélags Akur- eyrar og minnist Leikfélagið aldaraf- mælis skáldsins með frumsýningu verksins í kvöld. „Mér hafði dottiö í hug fyrir ein- hvetjum árum að það gæti verið gaman að búa ljóð Davíðs til sviðs- ílutnings með þessum hætti og eftir að við Þráinn Karlsson höfðum rætt málið var haft samband við mig frá Leikfélaginu. Það má segja að Þráinn eigi mjög stóran þátt í sýningunni og það var sjálfgefið að hann myndi leikstýra henni,“ segir Erlingur. Hann segir að erfitt sé að lýsa í smáatriöum hvernig verkið hafi ver- iö unniö. „Ég bý að ákveðinni grunn- þekkingu á ljóðum Davíðs sem ég hef aflað mér með því að lesa þau, heyra og fara með. En ég þurfti að sökkva mér ofan í þennan heim og tína þetta saman, eitt hér, annað þar, vinsa úr og pússa og fægja. Þetta var mikil vinna og oft fannst mér erfitt að vera með texta annars manns og reyna að vera honum svo trúr sem mögu- legt væri og halda um leið því markmiði að láta ljóðin tala sem mest sjálf þótt ekki sé um ljóðaflutn- ing að ræða. Það má segja að hér sé um að ræða ljóðheim en ekki ævisögu Davíðs Stefánssonar eða tilraun til að endur- skapa persónu hans. Ég hef fylgst með æfingum á verkinu og það hefur verið gaman. Það er ljóst að þetta er ekki mitt verk eins. Það er leitað í smiðju til Davíðs og það er hin mikla vinna í leikhúsinu sem ræður mestu um útkomuna að lokum. Fyrir mitt leyti sýnist mér þetta ganga eins vel upp og ég gat vænst en hvaða sam- bandi verkið nær við áhorfendur sker úr um það hvort það hafi verið rétt að reyna þetta. Ég vona að þetta verk auðveldi fólki aö nálgast ljóð Davíðs," segir Erlingur. í þessu nýja leikverki tjáir skáldið Davíð hug sinn á ýmsum tímum og leitar á vit minninganna þar sem persónur stíga fram úr hugskoti hans og íjölbreytilegar myndir lifna. Á sviöinu gæðast þessar táknmyndir og talsmenn ólíkra viðhorfa lífi þar sem ástin er í aðalhlutverki. Þetta er forvitmleg sýning um ástsælt skáld. Með hlutverk í sýningunni fara Aðalsteinn Bergdal, Bergljót Arn- alds, Dofri Hermannsson, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigurþór Albert Heimisson, Sunna Borg og Þórey Aðalsteinsdóttir. Fjöldi laga er í sýn- ingunni og eru söngvarar Atli Guð- laugsson, Jóhannes Gíslason; Jónas- ína Arnbjörnsdóttir og Þuríður Bald- ursdóttir. Þráinn Karlsson er sem fyrr sagði leikstjóri og hann er einn- ig leikmyndahöfundur. Búninga ger- ir Ólöf Kristín Sigurðardóttir, tón- listarstjóri er Atli Guðlaugsson og um lýsingu sér Ingvar Björnsson. Kvöldverðartilboð 20.-26. janúar * I tilefni bóndadagsins * Rjómalöguð villisveppasúpa með sérrírjóma * Heilsteikt nautafilet með kjörsveppum og camembertsósu * Kaffi, konfekt og ekta Sörur Kr. 1.950 Opið í hádeginu mánud.-föstud. Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud. Auglýsingarnúmer 3502 Langar þig í ööruvísi skóla eitt kvöld í viku? ■ Langar þig að vita hvað best og mest er vitað í gegnum sálarrannsóknarhreyfmguna, sem og vísindalegar rannsóknir á líkunum á lífi eftir dauðann og hvar framliðnir líklega eru og í hvernig samfélagi þeir líklegast lifa? ■ Langar þig að vita af hverju langflestir „vísinda- menn“ heimsins hafa eins mikla fordóma fyrir dulrænni reynslu fólks og raun ber vitni? ■ Langar þig að vita hvað eru afturgöngur og draugar og hvers vegna þessi fyrirbæri sjást? ■ Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn hugsanlega og líklega eru í dag og hversu öruggt meint samband við þá og þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla? ■ Langar þig að lyfta þér upp eitt kvöld í viku í bráðskemmtilegum og vönduðum skóla innan um lífsglatt og skemmtilegt fólk, þar sem skóla- gjöldunum er stillt í hóf? Efsvo er þá áttu ef til vill samleiö meö okkur. Tveir byrjunarbekkir hefja brátt nám í Sálarrannsóknum 1 nú á vorönn ’95. Hringdu og fáöu allar nánari upplýsingar í símum 5-619015 og 5-886050. Yfir skráningardagana er að jafnaöi svarað í síma Sálarrann- sóknarskólans alla daga vikunnar kl. 15.00 til 20.00. Skrif- stofa skólans verður hins vegar opin alla virka dagá kl. 17.15 til 19.00 og á laugardögum kl. 14.00 til 16.00. Flísar Útsalan er hafin Opið alla daga vikunnar frá 9-21. Einnig opið laugardaga og sunnudaga. Skeifan 8, sími 813500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.