Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 45 Fréttir Fjárhagsáætlun borgarinnar: 560 milljónir í sparnað með hagræðingu og sölu eigna Tekjur borgarsjóös verða tæplega 16,9 milljaröar á þessu ári, þar af nema skatttekjur samtals um 11 milljöröum króna og er þaö hækkun um 794 milljónir frá árinu 1994. Mestu munar um tekjur að fjárhæð um 550 milljónir króna vegna álagn- ingar 0,15 prósenta holræsagjalds, auk þess sem útsvarstekjur hækka um 200 milljónir króna. Útsvar hækkar úr 6,7 prósentum í 8,4 pró- sent og verður til 130 milljóna tekju- auka. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri kynnti fjárhagsáætlun borg- arsjóðs í borgarstjórn á fimmtudag. í ræðu hennar kom fram aö framlög úr Vegasjóöi til þjóðvegafram- kvæmda hækka um 610 milljónir króna, úr 257 milljónum í 867 milljón- ir, og arðgreiðslur fyrirtækja borgar- innar hækka um tæplega 600 milljón- ir, úr 984 milljónum í 1.565 milljónir króna. Þá hækká endurgreiðslur borgarinnar gegnum Félagsmála- stofnun um rúmlega 350 milljónir, meðal annars vegna 250 milljóna húsaleigubóta. í frumvarpi að fjárhagsáætlun borgarsjóðs 1995 er gert ráð fyrir 4,2 prósenta arðgreiðslum af skuldlausri eign borgarfyrirtækja, með þeirri undantekningu þó að Hitaveitan skih 5,2 prósenta arði og bókfærður eign- arhluti Rafmagnsveitunnar í Lands- virkjun skili 3,2 prósentum. „Tillagan felur í sér það markmið að ná með hagræðingu og sölu eigna , samtals 560 milljónum króna og ná þannig því sem á vantar til þess að skuldir borgarsjóðs aukist ekki svo neinu nemi á næsta ári,“ sagði borg- arstjóri í ræðu sinni á fimmtudags- kvöld. Niðjar Benedikts Ásgrímssonar: Niðjar Benedikts Ásgrímssonar, enda las hann mikið, er hann hafði dóttir og komust þrjú börn þeirra guUsmiðs í Reykjavík (1845-1921), tóm til, hafði góða söngrödd og lék upp. koma saman til kafíidrykkju í dag nokkuð á organ. Hafðí yndi af Afkomendur hans munu nú vera milU kl. þrjú og fimm i Víkingasal skáldskap, enda Uggja eftir hann tæplega 130 og er búist við aö þeir Hótel Loftleiða í tilefni af þvi að þijár skáldsögur prentaöar." tjölmenni á mótið. Þar verða sýnd- Uðin eru 150 ár frá fæöingu hans. ar bækur sem hann samdi og gaf Benedikt var kunnur borgari í Benedikt var tvíkvæntur. Hann út og einnig nokkrir gripir sem Reykjavík á sinni tíð og stundaði átti fyrst Margréti Gestsdóttur frá hann smíðaði. Þá verður ættartala og kenndi gullsmiðar. í Islenskum Útskálahamri og komust tvö af hans, sem nýlega var tekin saman, æviskrám segir um hann: „Vel gef- fjórum börnum þeirra upp. Síðari seld á staðnum. inn maður, bókhneigður mjög, kona hans var Jóhanna Gunnars- Mjög góð þátttaka í jólakrossgátu og jólamyndagátu: Vinningshafar í jólagátum DV Mjög góð þátttaka var í jólamynda- gátu og jólakrossgátu DV en síðasti skUadagur var 19. janúar. Dregið hefur verið úr þeim fjölda réttra lausna sem bárust og eru nöfn þeirra heppnu birt hér að neðan. Glæsilegir vinningar voru í boði fyrir réttar lausnir. Fyrstu verölaun fyrir rétta myndagátu er AKAI ferðatæki og segulband með geislaspilara, að verðmæti kr. 19.900, frá Sjónvarps- miðstööinni, Síðumúla 2. Önnur verðlaun fyrir rétta mynda- gátu eru TENSAI ferðatæki, að verð- mæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmiðstöð- inni, Síðumúla 2. Fyrstu verðlaun fyrir rétta jóla- krossgátu er AIWA ferðatæki með geislaspilara og segulbandi, að verð- mæti kr. 18.790, frá Radíóbæ, Ármúla 38. Önnur verðlaun fyrir rétta jóla- krossgátu eru AIWA vasadiskó með útvarpi, að verðmæti kr. 5.980, frá Radíóbæ, Ármúla 38. Rétt lausn jólamyndagátu SÓL RÚN STOÐ AÐ STOFN UN R LISTA í REYKJA VÍK. Þ JÓÐ VAKI VERÐUR Á BER ANDI Á STJÓR N MÁLA SVIÐ I ÁR SIN S. Rétt lausn á jólakrossgátu UM EINA LITLA TÁRATJÓRN TÆPAST NOKKUÐ VITA STELKUR, LÓA, LUNDI, ÖRN, LANGVÍA OG RITA. Verðlaunahafar fyrir rétta myndagátu eru: 1. verðlaun hlýtur Fjóla Höskulds- dóttir, Látraströnd 12,170 Seltjarnar- nes. 2. verðlaun hlýtur Sigrún Kaaber, Eikjuvogi 2,104 Reykjavík. Selma Víðisdóttir, starfsmaður á ritstjórn DV, dró úr þeim mikla fjölda réttra lausna sem bárust í jólakrossgátu og jólamyndagátu. DV-mynd GVA Verðlaunahafar fyrir rétta 2. verðlaun hlýtur Ásgeir Ingólfsson, krossgátu eru: Vanabyggö 2b, 600 Akureyri. 1. verölaun hlýtur Vigdís Pálsdóttir, Verðlaunin verða send heim. Tjarnargötu 38,101 Reykjávík. Ungtfólktilhjálp- ar Súðvikingum Ungt fólk í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið sig saman og ætlar að standa fyrir samkomu til styrktar Súðvíkingum sem eiga um sárt að binda eftir náttúruhamfarir. í kvöld, laugar- daginn 21. janúar, verður í því til- efni dagskrá í Háskólabíói sem til- einkuö er landssöfnuninni „Sam- hugur í verki“. Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til söfnunarinnar og þar verða flutt atriði frá flestum fram- haldsskólum á höfuðborgarsvæð- inu. Dagskráin hefst klukkan 20 og stendur til 23 en miðaverð er 1000 krónur. Miðasala er í Kringlunni frá klukkan 10 í dag og í Hinu hús- inu frá klukkan 12. Til sýnis og sölu 2,8 litra, dísil, turbo, intercooler, ek. 75 þús. km, útvarp/segulband, 4x4, 5 gíra, svartur og grár, me- tallic, aukadekk á felgum, yfirfarinn með 6 mán. ábyrgð. Tilboðsverð 1.480.000 AMC Cherokee Laredo, árg 1990 4,0 Htra vél, injection, ek. 89 þús. km, 5 gíra, 4x4, dökkgrár, metallic, útvarp/segulband. Tilboðsverð 1.620.000 Opið laugardaga 12.00-16.00 BRIMB0RG Faxafeni 8 - simi 91-68 58 70

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.