Þjóðviljinn - 23.03.1986, Page 20
Danskir vinstrimenn ræöa það nú aö nauðsyn sé á aö vinstriöflin endurskoöi
afstööu sína til Nató, jafnvel slá á frest kröfunni um úrsögn úr bandalaginu.
Abyrg
varnar-
stefna
Fátt hefur vakið meiri athygli á
dönskum vinstrivæng það sem af
er þessu ári en kúvending ýmissa
róttækra forystumanna í
afvopnunar- og friðarmálum.
Helstu forystumenn Sósíalíska
þjóðarflokksins og Vinstrisósíal-
istaíþessum málaflokkum, menn
eins og Pelle Voigt og Klaus Birk-
holm, hafa horfið frá hinni sígildu
vinstripólitík um algera afvopnun
og úrsögn úr NATÓ. Þeir segja
að alger stöönun muni ríkja á
þessum vígstöðvum nema vinstri-
öflin endurskoði afstöðu sína.
Rétt sé að slá á frest kröfunni um
úrsögn úr NATO, en þess í stað
beri að krefjast þess að danski
herinn verði einungis til varnar
og mun minni en nú. Jafnframt sé
rétt að leita samstarfs við önnur
framsækin öfl innan NATO og
efla þannig þrýsting um afvopn-
un.
Það er að vísu rétt að víglínurn-
ar í afvopnunarbaráttunni hafa
lítið hreyfst að undanförnu. Unt
áratuga skeið hefur krafan urn úr-
sögn úr NATO veriö lítið annað
en trúarjátning minnihlutahóps
og álíka vænleg til árangurs og
krafa Jóns Dúasonar um íslensk
yfirráð yfir Grænlandi. Nýja friö-
arhreyfingin hefur staðnað á allra
síðustu árum, og þá er rétt að
spyrja nýrra spurninga og leita
nýrra leiða. Málstað vinstri
manna er lítill greiði geröur með
því að berja á sömu lokuöu dyrn-
ar um áratuga skeið, heldur ber
okkur að læra af þeim félögum
Che, Ho og Mao og mæta óvinin-
um þar sem hann væntir okkar
ekki. í þeim skilningi ber að
fagna því að forystumenn dan-
skra sósíalista skuli hugsa þessi
mál upp á nýtt, eins og einstaka
maður hefur reyndar gert á ís-
landi.
Hins vegar vil ég leyfa mér að
Goya smyglað
Spænsk yfirvöld báðu nýlega
breskan hæstarétt um að stöðva
uppboð á meistaraverki eftir
spænska málarann Goya. Þau
segja að málverkið hafí vcrið flutt
með ólöglegum hætti frá Spáni.
Málverkið nefnist Markgreifa-
frúin af Santa Cruz og átti að fara
á uppboð hjá Christies þann 11.
næsta mánaðar. Spænska sendi-
ráðið sagðist hafa sönnun fyrir
því að útflutningsleyfi fyrirtækis
þess, sem setti málverkið á upp-
boð, væri falsað.
efast um að þeir hafi bent á rétta
valkosti við fyrri stefnu. Einu
dönsku varnirnar, sem vit væri í,
eru þær sem afturhaldsgaurinn
Glistrup stakk upp á: „Símasjálf-
sali sem segir á rússnesku: „Við
gefumst upp“. Og ég leyfi mér að
halda að það verði álíka auðvelt
að berjast fyrir afvopnun innan
NATO og fyrir kynþáttajafnrétti
innan Ku Klux Klan.
Endurskoðun danskra sósíalista
á afstöðu í friðarmálum ber líka
að skoða í Ijósi þess að verka-
Iýðsflokkarnir fá e.t.v. þing-
meirihluta við næstu þingkosn-
ingar hér. „Einstrengingsleg" af-
staða SF og VS til NATO og af-
vopnunar hefur verið talin koma í
veg fyrir stjórnarsamstarf, og því
telja einstakir forystumenn að
rétt sé að slátra þessurn heilögum
kúm og einbeita sér að mótun
vinstri stefnu í atvinnu- og kjara-
málum. Hér feta danskir sósíal-
istar í raun í spor Alþýðubanda-
lagsins, en bæði 1956-8 og 1971-4
sætti það sig við áframhaldandi
veru bandaríska hersins til að ná
fram öðrum málum. Ekki skal
farið út í það hér að meta hvort
slíkar hróksfórnir sósíalista hafi
fært þeim betri stöðu í skákinni
við auðvaldið.
GESTUR
GUÐMUNDSSON
Hins vegar er það nýtt í stöð-
unni nú, að yfirlýstir friðarsinnar
vilja ræða af alvöru hversu miklar
varnir eru nauðsynlegar hverju
landi. Þetta er kallað „realpol-
itik“, og friðarsinnar eru vændir
um rómantík. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar, að þá fyrst flýja
menn veruleikann, þegar þeir
fara að taka þátt í tindátaleik
NATO-generála; það er mun
raunsærra að afneita rökum
vopnavalds. Hins vegar er kú-
vending afvopnunarsérfræðinga
vísbending um.óleystan vanda:
Friðaröflin hafa enn ekki leyst
það verkefni að endurvekja eíd-
ntóð nýju friðarhreyfingarinnar
og móta jafnframt kröfur og bar-
áttuaðferðir, sem gætu skilað
áþreifanlegum árangri strax.
Kaupmannahöfn í feb. 1986
Gestur Guðmundsson.
Sunnudagur 23. mars 1986
Ætlar þú að mála
fyrir páska?
Málning og
lökk o.f 1.
Allir litir og áferðir á veggi, gólf,
glugga, vinnuvélar og skip.
Hitaþolinn lakkúði, margir litir.
Blakkfernis.
RYOEYOIR - RYOVÖRN
Málningaráhöld
Rúllur, penslar, málningarbakkar og sköfur — og allt annað sem
til þarf m.a. áltröppur og stigar, margar stærðir.
Fyllingaref ni — Kítti
PolyfiUa fyllingarefni og uppleysir.
Linolin — Silicon — Seal one — Kítti.
20% afsláttur af máln-
ingu til páska.
Ánanaustum, Grandagaröi 2, sími 28855.
VFRFXTFSf A
-góð vöm gegn
veröhækkunum
VERÐLAGSSTDFNUN