Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Side 12
12
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997
0n//sf
Halda til írlands um páskana:
Papar
heitna
t
fyrir
Hljómsveitin Papar, sem notið hefur verulegra vinsælda fyrir að spila þjóð-
lagatónlist að hætti íra, heldur áleiðis til írlands á skírdag og munu dvelja þar
um páskana. Á fóstudaginn langa mun hún spila fyrir farþega Samvinnuferða-
Landsýnar á Burlingtonhótelinu en hina dagana hyggjast þeir sýna sig og sjá
aðra, hlusta á írska listamenn, spila sjálflr og afla sér sambanda.
Páll Eyjólfsson, sem spilar á hljómborð og harmoníku, segir að þeir fé-
lagar hlakki til fararinnar. Papar fóru einnig til írlands um síðustu páska
en spiluðu þá eingöngu fyrir íslendinga þar. Reyndar fóru þeir með gítara
reidda um öxl og spiluð órafmagnaðir á Bracinhead, elsta pöbb írlands, og
hlutu góðar undirtektir.
„írarnir fíluðu okkur í botn og okkur tókst að gera allt vitlaust. 1 þessari ferð
munum við heimsækja smáþorp á suðurströnd írlands sem heitir Watterford og
spila þar. Það er mjög áhugavert að komast að því markaður er fyrir oklcur á ír-
landi sem er eins og fyrirheitna landið í okkar augum. Þar liggja rætur þess sem
við erum að fást við í dag.“
Páll segir að þeir muni viða að sér ýmsum upplýsingum, skoða sig um og hitta
aðra tónlistarmenn. „Við gerum okkur vonir um að afla góðra sambanda en hugs-
um eingöngu um eitt skref í einu. Það borgar sig ekki að vera með of miklar vænt-
ingar.“
Papar eru á dúndrandi siglingu hér heima og hafa vinsældimar ekki verið
meiri. Þeir eru bókaðir um hverja helgi ijórar vikur fram í tímann. Þegar tek-
ur að vora hefja þeir flakk um landið en láta sér nægja að spila á pöbbunum í
bænum þangað til. En þeir stefna hátt. „Draumur okkar er að starfa erlendis með-
fram spilamennskunni hér heima.“
Papar urðu 10 ára gamlir í nóvember síðastliðnum en héldu upp á þau tímamót í janúar.
Papar
eru á mikilli
siglingu hér
heima og munu láta á
það reyna um páskana
hvort áhugi er fyrir þeim á ír-
landi, fyrirheitna landinu. Hljómsveitina skipa þeir
Ingvar Jónsson, Vignir Ólafsson, Georg Ólafsson, Eysteinn Eysteinsson, Páll
Eyjólfsson og Dan Cassidy.
á leiðinni
landsins
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Catherine Cookson:
The Upstart.
2. Nick Hornby:
High Fldellty.
3. Marlan Keyes:
Lucy Sulllvan is Getting Marrled.
4. Mlchael Klmball:
Undone.
5. Nicholas Evans:
The Horse Whlsperer.
6. James Patterson:
Hide and Seek.
7. Terry Pratchett:
Johnny and the Bomb.
8. Helen Forrester:
Mournlng Doves.
9. Colin Forbes:
Preclpice.
10. Dlck Francis:
Come to Grief.
Rit almenns eðlis:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Sebastlan Faulks:
The Fatal Engllshman.
3. Paul Wllson:
A Little Book of Calm.
4. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
5. Griff Rhys Jones rltstjóri:
The Nation's Favourlte Poems.
6. Fergal Keane:
Letter to Danlel.
7. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers. (kvlkmyndaútgáfa)
8. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
9. R. Bauval & G. Hancock:
Keeper of Genesis.
10. Bill Bryson:
The Lost Contlnent.
Innbundnar skáldsögur:
1. Catherine Cookson:
Bondage of Love.
2. Mary Wesley:
Part of the Furnlture.
3. Ken Follett:
The Thlrd Twln.
4. Patricla D. Cornwell:
Cause of Death.
5. Penny Vincenzi:
The Dilemma.
Innbundin rit almenns eðlis:
1. Dava Sobel:
Longltude.
2. Anne Frank:
Dlary of a Young Glrl.
3. Scott Adams:
The Dllbert Prlnciple.
4. Nlcholas Falth:
Black Box.
5. Benedlct Allen:
The Skeleton Coast.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Fyrir rúmum þrjátíu árum voru
nöfnin Sinjavskí og Daniel á margra
vörum á Vesturlöndum. Þeir voru
rithöfundar sem sovésk stjórnvöld
handtóku, drógu fyrir rétt og
dæmdu til langrar fangavistar í
þrælkunarbúðum fyrir að birta
„róg“ um Sovétríkin erlendis.
Málaferlin vöktu mikla athygli
vestan járntjaldsins og þóttu boða
aukna hörku stjórnvalda gegn rit-
höfundum sem vildu ekki fylgja
flokkslínunni og þar með endalok
þeirrar „þíðu“ sem kennd var við
nýfallinn aðalritara kommúnista-
flokks Sovétríkjanna, Nikita Kru-
stjoff.
Annar þessara rithöfunda, And-
rei Sinjavskí, lést síðastliðinn
þriðjudag á heimili sínu í París,
Frakklandi, en þangað hafði hann
flúið eftir fangavistina í Sovétrfkj-
unum. Hann var 71 árs að aldri.
Faðirinn handtekinn
Andrei Sinjavskí fæddist í
Moskvu 8. október árið 1925. Faðir
hans var einlægur byltingarmaður.
Á unga aldri gekk Andrei í samtök
ungkommúnista, gegndi herþjón-
ustu í síðari heimsstyrjöldinni en
hélt svo áfram námi og lauk því
með ritgerð um skáldsagnahöfund-
inn Maxím Gorký árið 1952. Að
námi loknu fékk hann starf sem að-
stoðarprófessor hjá bókmennta-
stofnun sovésku vísindaakademi-
unnar.
Tímamót urðu I lífi hans árið
1951. Þá var faðir hans handtekinn
í einni af siðustu hreinsunum
Stalíns, sem þá fór enn með öll
völd í Sovétríkjunum. Eftir lát ein-
ræðisherrans fór Sinjavski í vax-
andi mæli eigin leiðir í skrifum
sínum og vék frá formúlu ríkisins
um svokallað félagslegt raunsæi í
Andrei Sinjavskí ásamt Marie, konu
sinni, nokkrum árum eftir aö hann
slapp úr fangelsi.
skáldskap. Fyrsta skáldsagan nefh-
ist á ensku „The Circus“ og kom út
árið 1955.
Sinjavskí lenti fljótlega upp á
kant við sovésk stjórnvöld. Hann
snerist til varnar fyrir Boris
Pasternak, sem fékk bókmennta-
verðlaun Nóbels árið 1958 fyrir
skáldsöguna „Dr. Sivagó" sem hafði
verið hafnað af sovéskum stjórn-
völdum en var gefin út á Vestur-
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
löndum. Stjórnvöld í Moskvu
neyddu Pasternak til að afþakka
verðlaunin. Stuðningur Sinjavskís
við nóbelsskáldið nýja varð til þess
að hann missti vinnuna.
Á næstu árum samdi hann nokk-
ur ádeiluverk og fékk þau útgefin á
Vesturlöndum undir höfundarheit-
inu Abram Tertz. Þar á meðal voru
skáldsögumar „The Renters" (1959)
og „Lyubimov" (1962) og ritgerða-
safnið „Unguarded Thoughts"
(1965) - sama ár og hann var hand-
tekinn.
í fangabúðum til 1971
Sinjavskí og Daníel voru dæmd-
ir til fangavistar í febrúar árið
1966. Sinjavskí var sendur í
Potma- fangabúðirnar, sem eru á
bökkum Volgu um 450 kílómetra
austan Moskvu, til að afplána sjö
ára dóm.
Honum tókst að smygla úr fang-
elsinu minnisblöðum um vist sína
þar. Þau notaði hann síðar þegar
hann fór að skrifa bækur um lífs-
reynslu sína. Tvær þeirra eru
merkilegastar: „A Voice From the
Chorus", sem kom út árið 1973 og
hefur að geyma endimninningar úr
Potmabúðunum, og skáldsagan
„Good Night“ (1984) sem er lauslega
byggð á ævi höfundarins og er hans
frægasta verk.
Tveimur árum eftir að Sinjavskí
slapp úr fangelsinu, eða árið 1973,
fór hann til Frakklands ásamt
konu sinni, Marie, og ungum syni
þeirra, Igor - en þau lifa hann
bæði. Hann fékk starf sem prófess-
or í rússneskum bókmenntum við
Sorbonne háskólann og hélt áfram
að skrifa bækur sem hann birti
undir gamla höfundarnafninu.
Þeirra á meðal eru „In Gogol’s
Shadow" (1975) og „Walks with
Puskhin" (1976). Þá stofnaði hann
ásamt konu sinni tímaritið „Sin-
taksis" árið 1978.
Síðasta verkið sem Sinjavskí
sendi frá sér nefnist „Ivan le
Simple" og fjallar um rússneskar
þjóðsögur (1991).
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Danielle Steel:
IRve Days In Paris.
2. Michael Ondaatje:
The English Patient.
3. Tami Hoag:
Gullty as Sin.
4. Jane Hamilton:
The Book of Ruth.
5. Nlcholas Evans:
The Horse Whisperer.
6. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
7. Richard North Patterson:
The Flnal Judgment.
8. John Saul:
The Blackstone Chronicles: Part 1.
9. Peter Blauner:
The Intruder.
10. David Baldacci:
Absolute Power.
11. Iris Johansen:
The Ugly Duckling.
12. Phllip Friedman:
Grand Jury.
13. Michael A. Stackpole:
X-Wing: The Bacta War.
14 Elaine Coffman:
If You Love Me.
15. Michael Conelly:
The Poet.
16. Mlchael Crichton:
The Lost World.
Rit almenns eðlis:
1. Jonathan Harr:
A Clvil Action.
2. Mary Pipher:
Revivlng Ophelia.
3. Andrew Weil:
(Spontaneous Healing.
4. Thomas Cahill:
How the Irlsh Saved Civilization.
15. Dava Sobel:
Longltude.
6. Mary Karr:
The Liar's Club.
7. B. Gates, Myhrvold & Rinearson:
The Road Ahead.
8. Barbara Kingsolver:
High Tide In Tucson.
9. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
10. Clarissa Pinkola Estés:
Women Who Run With the Wolves.
11. John Feinsteln:
A Good Walk Spoiled.
12. Isabel Fonseca:
Bury Me Standing.
13. Thomas Moore:
ICare of the Soul.
14. Betty J. Eadie & Curtis Taylor:
Embraced by the Ught.
15. B.J. Eadle & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
16. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
(Byggt á New York Times Book Reviow)