Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Blaðsíða 24
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997
- dóttirin er okkur allt, segir Haukur sem kominn er á fimmtugasta og sjöunda aldursár
Þegar ekiö er inn í Stokkseyri má
fljótlega sjá hús á hægri hönd við
sjávarkambinn sem við fyrstu sýn
viröist vera snyrtilegt iðnaöarhús-
næði. En svo er ekki alveg heldur er
þar komið listmunagallerí í eigu
Hauks Dórs Sturlusonar, listmálara
og leirlistamanns, og Þóru Hreins-
dóttur graflklistamanns. í fyrra
keyptu þau húsiö sem áður hýsti
Hitaveitu Stokkseyrar og innrétt-
uðu einnig íbúð þar sem voru skrif-
stofur hitaveitunnar og gamla verk-
stæðisaðstaöan er orðin að huggu-
legu listmunagalleríi og vinnuaö-
stöðu. DV leit inn hjá þeim skötu-
hjúum í vikunni en á hverjum
sunnudegi eru þau með opið hús
fyrir gesti og gangandi. í galleríinu
eru margar mjög góöar myndir og
leirlistaverk sem þau hafa unniö og
aldrei að vita nema farið sé að stytt-
ast í sýningu þó að hún hafi ekki
verið ráðgerð enn.
Haukur og Þóra búa ekki ein á
Stokkseyri. Um húsið skríður á gólf-
um og trítlar í göngugrind hún
Salka litla, átta mánaða dóttir
þeirra. Haukur kynntist Þóru fljót-
lega eftir að hann missti eiginkonu
sína í rúm 30 ár, Ástrúnu Jónsdótt-
ur, úr krabbameini árið 1994. Sam-
band þeirra Hauks og Þóru mun
ekki hafa verið vel séð af mörgum
þeirra nánustu ættingjum, m.a.
vegna þess hversu stutt var liðið frá
fráfalli Ástrúnar. Haukur segir
þetta vitanlega erfitt mál innan fjöl-
skyldunnar sem hann vilji sem
minnst ræða. Mestu skipti aö þau
Þóra séu hamingjusöm og eigi sam-
an yndislega dóttur sem sé þeim
allt. Fyrir á Þóra tvær dætur, 16 og
19 ára, og Haukur á tvær dætur á
þrítugsaldri, Tinnu og Tönju, sem
hann og Ástrún ættleiddu kornung-
ar frá Kóreu.
Rétt að byrja í listinni
Haukur er fæddur í Reykjavík
árið 1940 og á því ekki langt eftir í
60 árin. Hann hefúr getiö sér gott
orö sem einn okkar fremstu lista-
manna, var t.d. einn þeirra sem
stofnuðu Gallerí-Súm á símun tíma
og hefur haldiö tugi einka- og sam-
sýninga hérlendis sem erlendis. Þá
hannaði hann eitt sinn verölauna-
gripi fyrir Menningarverðlaun DV.
Haukur er hógvær maöur og tel-
ur sig eiga nóg eftir í listinni, hann
sé rétt aö byrja. Þegar hann er
Hamingjusöm fjölskylda á Stokkseyri
Ir sér ekkl í svip Hauks Dórs.
spurður hver hafi veriö hátindur
ferilsins segir Haukur hann enn
Hin átta mánaða Salka í fangi móður sinnar, Þóru Hreinsdóttur, og stoltið leyn-
DV-myndir GVA o.fl.
Kjördætur Hauks, Tanja og Tinna, eru komnar á þrítugsaldurinn og eru bú-
settar f Danmörku f dag. Haukur heldur nánu sambandi við þær.
eiga eftir að koma. Vonandi lifi
hann langt í 100 árin og geti á þeim
tíma náð einhverjum árangri! „Ég
er svo seinþroska, maður,“ segir
Haukur og glottir.
Fyrir utan „elítuna"
Kunnugir segja að Haukur sé
nokkurs konar utangarðsmaður í
myndlistinni, hann hafi aldrei haft
áhuga á að koma sér í mjúkinn hjá
„menningar-elítunni" og liðið illa í
kokkteilboðum, ef hann hefur þá
sótt þau. Hann sé miklu frekar
brautryðjandi - ráðist í verkefni og
sigrist á þeim en gefi sér kannski
ekki tíma til að njóta sigurvímunn-
ar. Aðspurður segist Haukur geta
verið sammála þessu aö mörgu
leyti. Hann hafi ekki eytt tíma í að
rækta nauðsynleg sambönd í lista-
heiminum. Hann hafi haft meiri
áhuga á að þróa sína listsköpun og
tekiö þann tíma í það sem þurfti.
Dómar um sýningar hans hafi yfir-
leitt veriö mjög jákvæðir og gagn-
rýnendur tekiö honum opnum örm-
um oftast nær.
Haukur Dór hefúr málað myndir
alveg frá bamæsku en ætlaði sér
upphaflega ekki aö veröa listamaö-
ur. Átján ára gamall fór hann að
læra jámsmíði og lauk þvi námi. En
undir lok jámsmíöanámsins var
myndlistin farin aö toga í hann.
Hann byijaði á því að nema mynd-
list í kvöldskóla í Reykjavík og siö-
an fór hann í tveggja ára nám í
myndiist í Skotlandi. Þaö var þar
sem Haukur kynntist leimum. Þaö-
an fór hann til Kaupmannahafnar
og læröi mynd- og leirlist í tvö ár í
Listaakademíunni.
Stofnaði Kúnígúnd
Útskrifaður kom hann heim til ís-
lands 1966. Fljótlega eftir það stofn-
uðu þau Ástrún listmunagalleríið
Kúnígund ásamt hjónmium Guö-
rúnu Magnúsdóttur, Dúnu, og Jens
Kristleifssyni grafíker.
Næstu árin var Haukur fyrirferð-
armikill í leirlist og gat sér gott orð
fyrir verk sín. Eftir um tíu ára far-
sælan rekstur seldu þau sinn hlut í
Kúnígúnd og snem sér að öörum
verkefnum. Gerðu þau sér lítið fyr-
ir og reistu sér íbúðarhús og leir-
verkstæði við sjávarsíðuna á Álfta-
nesi.
I endurhæfingu til
Bandaríkjanna
Á Álftanesi vom þau til ársins
1981 en þá var ákveðið að söðla um
og flytja búferlum til Bandaríkj-
anna. Haukur segir tilganginn með
þeirri ferö hafa verið að reyna að
umbylta sér sem listamanni eða,
eins og hann orðar það: „Ég fór í
endurhæfingarskóla fyrir staönaða
leirkerasmiði." Hann er ánægður
með Bandaríkjadvölina, hún hafi
verið sem vítamínsprauta og gefið
honum nýjar víddir í listinni. Á
þessum tíma hafi áhuginn á leirlist
verið farinn að dofna og hugurinn
leitað til málverksins. Enda lítur
hann svo á í dag að leirlistin hafi
meira verið hans lifibrauð á meðan
málverkin hafi lengi vel veriö nokk-
urs konar áhugamál eða hliöar-
grein.
í Bandaríkjunum voru þau
Ástrún í tvö ár. Þau vildu ekki fara
til íslands heldur lá leiðin til Dan-
merkur.
Undir stráþaki í Dan-
mörku
Þau settust að í smábæ á Sjálandi
sumarið 1983, nánar tiltekiö í
Frederiksværk, um 70 kílómetra
norðvestur af Kaupmannahöfn. Þau
festu kaup á 200 ára gömlum bónda-
bæ með stráþaki, sem var líkt og
klipptur út úr ævintýri H.C. Ander-
sens, og settu þar á stofii listmuna-
verslun og veitingahús, auk þess
sem Haukur vann að listsköpun
sinni. Þama var Haukur tekinn til
við málverkiö á fullu á meðan
Ástrún var á kafi í veitingarekstrin-
um.
Hann kom jafnan til íslands á
sumrin, málaði þar og hélt sýning-
ar. í nokkur ár var hann m.a. með
vinnuaðstöðu í Álafosshúsinu
Haukur Dór og Þóra hafa komiö sér
upp huggulegu listmunagallerfi ó
Stokkseyri og hér vinnur hann viö
eitt málverkanna.