Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Page 34
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997 UV
34 ^enning
:
Gyrðir Elíasson hlaut Menningarverðlaun DV í bdkmenntum:
Verðlaun breyta
ekki miklu
„Ég held að verðlaun breyti yfir-
leitt heldur litlu og allra síst fyrir
þann sem fær þau,“ segir Gyrðir El-
iasson rithöfundur sem hlaut Menn-
ingarverðlaun DV í bókmenntum
fyrir ljóðabókina Indíánasumar.
Að sögn Silju Aðalsteinsdóttur
hjá DV er Indíánasumar óvenju-
heildstæð og áhrifarík ljóðabók sem
knýr lesandann til að leita uppi þau
himnesku lögmál sem liggja jarð-
neskum ævintýrum hans til grund-
vallar. Gyrðir hefur fest sig í sessi
sem eitt af bestu ljóðskáldum lands-
ins og hefur oft verið tilnefndur til
verðlauna fyrir ljóð sín. Hann hlaut
Þórbergsverðlaunin og viðurkenn-
ingu Ríkisútvarpsins auk Menning-
arverðlauna DV.
„Hitt er annað mál að flestir lista-
menn, er hafa lág laun, geta vel not-
að peningana sem þeir fá stöku
sinnum ásamt viðurkenningum. En
skáldskapur er auðvitað köllun og
ég held að enginn maður sé i þessu
vegna peninganna, enda væri það
að fara í geitarhús að leita ullar,“
segir Gyrðir.
Ljóðlistinni ýtt út í horn
Gyrðir byrjaði að yrkja ljóð þegar
hann var í fjölbrautaskóla og gaf út
sína fyrstu ljóðabók 22 ára gamall.
Síðan hefur komið út eftir hann
flöldi ljóðabóka, nokkur smásagna-
söfn og tvær stuttar skáldsögur.
„Ætli staða ljóðlistar sé ekki svip-
uð því sem hún hefur verið. Það eru
alltaf nokkrir sem yrkja vel og
margir sem yrkja kannski ekki sér-
lega vel. Ljóðlistinni er dálitið ýtt út
í horn. Það er eins og menn haldi að
skáldsagan nái yflr allt en það gerir
hún reyndar ekki. Við þurfum á öO-
um bókmenntaformum að halda til
að hafa skýrari sýn á tilveruna.
Þetta er eins og með hlekkina í
lífskeðjunni,“ segir Gyrðir.
Einvera skálda
Gyrðir var um tíma búsettur á
Akranesi og þar gekk honum mjög
vel að yrkja. Hann er nú fluttur aft-
ur í ys og þys stórborgarinnar og
segist ekkert ósáttur við það. „Það
er svo sem alls staðar hægt að
vera,“ segir hann. „Það getur verið
að þörf fyrir einveru sé kannski
stærri þáttur í persónuleika svokall-
aðra skálda heldur en annars fólks.
En auðvitað fylgir löngun til ein-
sviðsljós
Gyrðir Elíasson, menningarverðlaunahafi DV í bókmenntum.
DV-mynd Brynjar Gauti
veru að einhverju leyti öllu fólki.
Það eru þó ef til vill önnur hlutfoll í
þessu fólki sem fæst við að koma
hugsunum sínum á pappír. Hins
vegar er einvera að mörgu leyti
hugarástand sem maður getur alveg
eins skapað sér í borg og annars
staðar," segir Gyrðir.
Að sögn Gyrðis er vinnutíminn
misjafn hjá honum. „Stundum er
eins og þetta mótist allt saman á
nóttunni á meðan maður sefur. Eins
konar óbein vinna er stærri hluti en
margir höfundar vilja vera láta.
Þetta þýðir ekki endilega að menn
séu latir. Blessaður sjálfsaginn er
auðvitað ómissandi nú sem fyrr. En
vinnan við skrifborðið er oft og tíð-
um ofmetin. Það segir sig sjálft að
hún er nauðsynleg en samt sem
áður er hún ekki nema einn hluti af
því sem er kallað sköprmarferli. Án
þess að ég sé að gera þetta óhóflega
dularfullt þá lýtur svona lagað ekki
lögmálum vinnusamfélagsins," seg-
ir Gyrðir að lokum. -em
Svipmyndir frá Menningarverðlaunum DV
Menningarverðlaun DV
voru afhent á fimmtudag í
nítjánda sinn við hátíðlega at-
höfn á Hótel Holti. Margt
manna var viðstatt afhending-
una. Verðlaunagripina hann-
aði Páll Guðmundsson, mynd-
listarmaður á Húsafelli, og
voru það einstaklega frumleg-
ar og fallegar steinstyttur.
-em
Bókmenntadómnefndin, Jón Karl Helgason og Eiríkur Guðmundsson, ræöa viö Gyröi Elíasson
sem hlaut menningarverölaunin fyrir bókmenntir.
Lára Halla Maack og Sigfríður Björnsdóttir sátu í dómnefnd fyrir tónlistina. A milli þeirra sést
Jónas Haraldsson, fréttastjóri DV, þungt hugsi.
Dómnefndin i byggingarlist, Auöur Ólafsdóttir listfræöingur og dr. Maggi Jónsson, ræða viö
vinningshafana Margréti Haröardóttur og Steve Christer arkitekta. DV-myndir BG
Eyjólfur Sveinsson, framkvæmdastjóri DV, lengst til vinstri, er greinilega ánægöur með
menningarhátiöina. Meö honum eru Reynir Traustason, fréttastjóri DV, Gunnar Helgason leikari
og Auöur Eydal, leiklistargagnrýnandi DV.