Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Síða 63
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997
75
Milos Forman:
Lærði af Chaplin
og Keaton
Milos Forman er einn af fáum
leikstjórum sem hefur tekist aö sam-
eina haö hesta i
Milos Forman, amerískur Tékki.
kvikmyndagerð og þeirri banda-
rísku. Hann hefur tvisvar fengið
óskarsverðlaun sem besti leikstjóri
og er tilnefndur í ár. Milos Forman
er Tékki en telur sig nú vera alþjóð-
legan borgara.
Forman er yngstur þriggja bræðra
sem ólust upp rétt fyrir utan Prag.
Þegar hann var níu ára gamall voru
foreldrar hans handteknir af nasist-
um og dóu þeir í fangabúðum Þjóð-
veija. Forman fékk fljótt áhuga á
leikhúsi en mest áhrif á framtíðará-
form hans höfðu snillingarnir
Charlie Chaplin og Harold Lloyd og
vestrar Johns Fords. Eftir að hafa
numið við háskólann í Prag hóf
Forman að skrifa kvikmyndahandrit
og gerði nokkrar stuttmyndir.
Fyrsta kvikmynd hans i fullri lengd
var Svarti Pétur og byggði hann
mynd sína á eigin ævi. Kvikmynd
þessi fór víða og vakti athygli á
kvikmyndahátíðum á borð við Cann-
es og New York. Þetta var árið 1963.
í kjölfarið fylgdu tvær myndir sem
gerðu hann heimsfrægan, Loves of a
Blonde (1965) og Fireman’s Ball
(1967).
Var í París þegar innrásin var
gerð
Árið 1968 var Milos Forman í
París þegar sovéskir skrið-
» drekar gerðu innrás í
Prag og stöðvuðu þá
hreyfingu sem var far-
in að blómstra undir
stjórn Dubceks.
Forman sneri aftur
til heimalands síns en
fór fljótlega til New
York þar sem hann
gerði sína fyrstu
kvikmynd í Banda-
ríkjunum, Taking
Off. Mynd þessi var
framlag Bandaríkj-
anna á kvikmyndahá-
tíðinni í Prag árið 1971
þar sem hún var valin
besta kvikmyndin af
dómnefhdinni. Næst
gerði Forman í samvinnu
við aðra heimildarmynd
um Ólympíuleikana í
Múnchen og var
það hans verk
að gera tug-
þrautinni skil.
Árið 1973
hitti Michael
Douglas Milos
Forman að
máli, en þá var
Douglas að
hefja feril sem
kvikmyndaframleiðandi, og spurði
hvort hann væri ekki til í að leik-
stýra kvikmynd eftir skáldsögu Kens
Kesey, One Flew Over the Cuckoo’s
Nest. Forman leist vel á og má segja
að á því herrans ári 1975 hafi One
Flew Over the Cuckoo’s Nest unnið
til allra verðlauna sem myndin
keppti um, meðal annars fékk hún
fimm óskarsverðlaun.
Milos Forman fylgdi þessum sigri
sínum með kvikmyndagerð af söng-
leiknum fræga Hárinu (1979) og fékk
síðan James Cagney til að leika í
Ragtime (1981) en Cagney hafði ekki
leikið í kvikmynd í fjölda ára. Átta
árum eftir að Milos Forman leik-
stýrði Cuckoo’s Nest fór hann til
Tékkóslóvakíu og gerði þar Ama-
deus og fékk sú kvikmynd átta ósk-
arsverðlaun. Forman var síðan
nokkuð seinheppinn með Valmont,
næstu kvikmynd sína, en hún kom í
kjölfarið á Dangerous Liasons, en
þær voru báðar byggöar á sömu
sögu. Vakti Valmont litla athygli.
Milos Forman gerðist amerískur
ríkisborgari árið 1975 og hefur skrif-
að sjálfsævisögu sína sem nefnist
Turnaround: A Memoir. -HK
Stuttmynda-
dagar 1997
Stuttmyndadagar verða nú haldn-
ir í 6. sinn af Kvikmyndafélagi ís-
lands í samvinnu við Reykjavíkur-
borg og að þessu sinni verður sú ný-
breytni að myndimar verða sýndar
(forsýndar) á Stöð 2 I apríl (2.-9. apr-
íl fyrir 19 20). Úrslitakvöld með
bestu myndunum verður svo haldið
í kvikmyndahúsi í Reykjavík þann
11. apríl.
Glæsileg peningaverðlaun eru í
boði fyrir sigurvegarana (1.-3. sæti)
auk ýmissa annarra aukaverðlauna.
Auk þess munu verðlaunamyndim-
ar keppa fyrir íslands hönd á alþjóð-
legri stuttmyndahátíð í vor. Þess
má geta að hámarkslengd mynda á
erlendum stuttmyndhátíðum er
yfirleitt 15 min„ og em þátttakend-
ur í Stuttmyndadögum beðnir um
að halda sig innan þeirrar lengdar -
þó ekki séu sett bein lengdartak-
mörk.
Úrslitakvöldið verður með glæsi-
legasta móti. Vonir standa til að er-
lend verðlaunastuttmynd verði
sýnd þar auk þess sem góðir gestir
verða viðstaddir og ýmislegt fróð-
legt verður á boðstólum. Áhorfend-
ur og dómnefnd hafa jafnt vægi við
val á myndunum og gefst sjónvarps-
áhorfendum tækifæri til að taka
þátt í að velja þær myndir sem kom-
ast í úrslit í gegnum síma.
Málið gegn Larry Flynt:
Að græða peninga
og skemmta sér
Stjörnubíó hóf sýningar í gær á
hinni umtöluðu kvikmynd Málið gegn
Larry Flynt (The People vs. Larry
Flynt). Mynd þessi er þegar farin að
salla að sér verðlaunum. Stutt er síð-
an hún fékk tvenn Golden Globe-verð-
laun í Hollywood og um síðustu helgi
fékk hún sjálfan Gullbjöminn á kvik-
myndahátíðinni í Berlín. Þá má geta
þess að hún er tilnefnd til tveggja ósk-
arsverðlauna, Milos Forman er til-
nefhdur sem besti leikstjóri og Woody
Harrelson er tilnefndur sem besti leik-
ari í aðalhlutverki, en auk Harrelsons
leika stór hlutverk í myndinni þau
Courtney Love og Edward Norton.
Málið gegn Larry Flynt er byggð á
skrautlegri ævi milljónamæringsins
Larry Fiynt, sem þekktastur er fyrir
að vera útgefandi karlatímaritsins
Hustler. Hann komst í heimsfréttirn-
ar þegar reynt var að drepa hann en
síðan hefur hann verið bimdinn við
hjólastól. Þá má geta þess að málaferli
gegn honum, sem titill myndarinnar
vitnar til, vöktu mikla athygli og þá
aðallega Flynt með framkomu sinni.
Málaferlin byrjuðu þegar Larry
Flynt var handtekinn fyrir „sóða-
skrif ‘ í tímaritum sínum eins og það
var orðað. Og það er einmitt í réttar-
salnum sem Larry Flynt gerir sér
grein fyrir því að hann getur í gegn-
um réttarhöldin náð
athygli þjóðarinnar
á því óréttlæti
sem hann tel
ur sig beitt-
an. Hann
stefnir því
yfirvöldum
á móti þar
sem þau séu
að reyna að
mál-
og tjáning-
arfrelsi
hans.
Réttar-
höld og
réttarhöld
á ofan taka
nú við og
eftir því
sem þau
lengjast
er hann
Rokksöngkonan Courtney Love hefur fengiö hrós fyrir leik sinn í hlutverki
eiginkonu Flynts.
ákveðnari i að halda þeim til streitu
og nota milljónir sínar til að verja rétt
sinn. Það er svo meðan á einu réttar-
haldinu stendur að hann lamast fyrir
neðan mitti þegar hann er skotinn.
Hin umdeilda rokksöngkona Court-
ney Love vinnur mikinn leiksigur í
Málinu gegn Larry Flynt. Leikur hún
eiginkonu Flynts, Althea Leasure. Það
er óhætt að segja að fáar söngkonur
hafa vakið jafn mikla athygli fyrir
taumlaust líferni og hneykslun á al-
mannafæri. Hún var aðeins þrettán
ára þegar hún ákvað að verða rokk-
stjarna. Hún lagðist um leið í ferðalög
og var næstu árin á stanslausri ferð
um heiminn. Hún fékk smáhlutverk í
Sid and Nancy og má segja að hún
hafi eftir það tekið upp lifnaðarhætti
sem sýndir voru í myndinni. Árið
1989 stofnaði hún hljómsveitina Hole
og vakti fyrsta plata hennar, Pretty on
the Inside, mikla athygli og hrifust
gagnrýnendur af hljómsveitinni.
Næsta plata hljómsveitarinnar, Live
through This, sat lengi í efstu Sætum
vinsældalista um heim allan.
-HK
'lf, Æm- Hhl Æmm |||ggS BájsBk ▼ JHH| I Í«iglÉy ÆHk Æftsðma .