Dagblaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 28
Sementsskipiö viö bryggju
í sex vikur—allir á kaupi
Sementflutningaskipió
Skeiðfaxi hefur undanfarnar
sex vikur legið ónotað á Akra-
nesi — og skipshöfnin (fjórir
menn) á fullu kaupi. Gallinn er
sá, og jafnframt ástæðan fyrr
legu skipsins, að ekki hefur
verið samið um kaup skipverj-
anna.
Skeiðfaxi er i eigu Sements-
verksmiðju ríkisins. Guðmund-
ur Guðmundsson, fjármála-
legur forstjóri verksmiðjunnar,
sagði í samtali við fréttamann
DB í gær, að vonandi væri þess
nú ekki langt að bíða að lausn
fyndist á þessari deilu. „Sátta-
semjari fékk málið í sínar
hendur í lok september og þar
hefur það verið siðan. Nokkrir
sáttafundir hafa verið haldnir,
og á þeim síðasta náðum við
samkomulagi við hásetann, en
yfirmennirnir þrír, skipstjóri,
stýrimaður og vélstjóri, standa
saman um kröfur sínar,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagói stjórn Sements-
verksmiðjunnar hafa leitað
eftir fráviki til kjarasamning-
um farmanna til að semja beint
við skipverjana, enda væri
Skeiðfaxi nokkuð mikið „öðru-
vísi settur en önnur farskip,
eins og til dæmis flóabátar,
olíuskip, Herjólfur og fleiri.
Okkur tókst að fá undanþágu
fyrir vélstjóra, stýrimann og
háseta, en það hefur ekki dugað
okkur til að ná samkomulagi.
Tíminn hefur annars ekki allur
farið til ónýtis, því skipið er um
það bil að koma úr sex mánaða
klössun,“ sagði Guðmundur.
En þótt skipverjar séu á óum-
sömdu kaupi fá þeir ekki laun
sín útborguð reglulega „enda
er ekki hægt að borga það, sem
ekki er vitað hvað er,“ sagði
Guðmundur ennfremur. Hefur
þetta atriði ekki orðið til að
greiða fyrir lausn deilunnar.
Forstjórinn treysti sér_ekki
til að nefna tölur um tap Sem-
entsverksmiðjunnar vegna deil-
unnar, en kvað kostnað óhjá-
kvæmilega verða nokkurn, því
halda þyrfti úti fimm vörubíl-
um til að flytja sement milli
Akraness og Reykjavíkur, en
Skeiðfaxa er einungis ætlað að
flytja ósekkjað sement frá
verksmiðjúnni til höfuðborgar-
innar.
Dagblaðið reyndi í gær
árangurslaust að ná tali af tals-
manni Vélstjórafélags íslands,
en erfiðasta hefur gengið að
semja við vélstjórann, að sögn
Guðmundar.
ýristel og Guðmundur við lokun Traðar í gær. Þeim hafði borizt fjöldi blóma frá vinum hússins. Stóra hringborðið var flutt yfir í Nýja
kökuhúsið. Þar munu hádegisumræður Traðar halda áfram að sögn. — DB-mynd Hörður.
Er miðborgin að deyja?
TRÖÐ HÆTTIR - OG SIÐASTIKULTÚRINN HVERFUR
„Eru ekki alltaf blóm við
jarðarfarir," sagði Guðmundur
Kristinsson veitingamaður í Tröð
i gær en þá var Tröð endanlega
lokað. Velunnarar og fastagestir
sendu Guðmundi og konu hans
Kristel blóm með þakklæti fyrir
viðskiptin á undangengnum
árum.
„Miðbærinn er að deyja,“ sagði
Guðmundur," og nú hverfur
síðasti kúltúrinn úr miðborginni.
Það er ekki grundvöllur fyrir því
að reka lítið og persónulegt
veitingahús í miðborg Reykja-
víkur. Hér eru mötuneyti allt í
kring, sem bjóða mat fyrir skít og
ekki neitt. Þá hefur umferð
minnkað hér frá því áður var og
sú þróun hófst með tilkomu
göngugötunnar. Göngugata í svo
köldu landi, sem Islandi er út í
bláinn. En við verðum að apa allt
eftir útlendingum."
Enn er ekkert ákveðið hvað vió
tekur hjá þeim hjónum
Guðmundi og Kristel, hvort þau
hefja rekstur veitingahúss á
nýjum stað. En þar sem Tröð var
verður lager bókabúðar Sigfúsar
Eymundssonar.
JH
Lokun sjúkrahótels RKÍ:
Talar ráöherrann ekki við
ráðuneytisstjóra sinn?
gði svo í niðurlagi:
„I lokin má minnast á eitt
rauða kross mál, sem er sér-
staklega á döfinni. Það varðar
rekstur sjúkrahótela Rauða
krossins í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Þó að nýting hafi verið góð,
þá má hún verða enn meiri og
væri æskilegt að læknar og
starfsfólk sjúkrahúsa hafi þetta
í huga. Hér er urn tilraun að
ræða, sem er reyndar þraut-
reynd hjá Rauða kross félögum
í nágrannalöndunum. en sem
sér alls ekki fyrir endann á,
hvernig til tekst hér, hvort fjár-
hagsgrundvöllur sé fyrir hendi.
Viðræður standa f.vrir dyrum
um framhald eða hugsanlega að
lcggja starfsemina niður."
- ÓV
„Það er rangt að Rauði kross-
inn hafi ekki haft samband við
heilbrigðisráðuneytið um fyrir-
hugaða lokun sjúkrahótelsins,
eins og heilbrigðisráðherra hélt
fram í Dagblaðinu í gær,“ sagði
Olafur Mixa, formaður RKl,
þcgar DB leitaði áliTs hans á
þeim ummælum Matthíasar
Bjarnasonar.
Ólafur Mixa sagðist sjá'fur
hafa haft símasamband við Pál
Sigurðsson, ráðuneytisstjóra í
heilbrigðisráðuncytinu, í
hádeginu á mánudaginn og til-
kynnt honum unt fyrirhugaða
lokun. „Eg tilk.vnnti honum,
jafnframt," sagði Ólafur. „að
við vierum reiðubúnir að kynna
álit eða skoðun ráðuneytisins á
blaðamannafundinum, sem
haldinn var á þriðjudaginn.
Einnig lýsti ég vilja Rauða
krossins til að hefja viðræður
við ráðuneytið um framtíð
sjúkrahótclsins og lofaði að
Rauði krossinn hefði frum-
kvæði að þeim viðræðum."
Formttður RKÍ sagðt. að ef
eitthvað væri „á Bak við þetta“,
eins og heilbrigðisráðherra orð-
aði það í samtali við fréttamann
DB í gærmorgun, „þá er það
sambandsleysi innan ráðunevt-
isins."
Hann bætti þvi við, að Rauði
krossinn myndi nú standa við
loforð sitt og eiga frumkvæði að
viðræðum við heilbrigðisráðu-
neytið um framtiðarlausn á
vanda sjúkrahötelsins.
Af hálfu RKl er starfandi
þriggja manna nefnd, sem
hefur umsjön með rekstri
sjúkrahótelsins.Formaður
þeirrar nefndar er Björn
Tryggvason, aðstoðarseðla-
bankastjóri, fyrrum formaður
Rauða kross Islands.
„I fyrri viku hafði Björn
Tryggvason oftar en einu sinni
santband við ráðuneytisstjóra
heilbrigðisráðuneytisins og
gerði honum grein fyrir stöð-
unni og að hverju stefndi með
sjúkrahótelið," sagði Ólafur
Mixa í samtalinu við DB.
„Ráðuneytið hafði því næg
tækifæri til að fylgjast með
þessu máli og afþakkaði að gerð
yrði grcin fyrir áliti þess á
blaðamannafundinum, eins og
ég sagði áður."
Þá mágeta þess, að í kjallara-
grein Björns Tryggvasonar í
Dagblaðinu 1. növember sl.
frjálst, áháð dagblað
FIMMTUDAGUR 1. DES. 1977.
Öll félögin á
Vestfjörðum
hafa sagt upp
samningum
„Við hljótum að geta samið, án
þess að komi til harðari aðgerða,"
sagði Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Vestfjarða, i
morgun. Öll verkalýðsfélögin á
Vestfjörðum munu búin að segja
upp kauþliðum kjarasamning-
anna frá og með 1. janúar næst-
komandi.
Pétur kvaðst þó ekki hafa heyrt
frá Strandamönnum um uppsögn,
en líklega væru þeir einnig búnir
að segja upp samningum.
I Alþýðusambandi Vestfjarða
eru um 1600 félagar. Samningum
er sagt upp, að því er tekur til
landverkafólks.
Orsök uppsagnanna er-, að
verkalýðsfélögin telja, að opin-
berir starfsmenn hafi fengið
meiri hækkun en verkafólk. Þann
mun þurfi að leiðrétta._HH
Veiðibann:
Tólf dagarnú
—tíu seinna
Allar veiðar með þorskfisk-
netum verða bannaðar i 10 daga á
komandi vetrarvertíð. Nánar
verður auglýst með 7 daga fyrir-
vara, hvenær bannið verður.
Þessar aðgerðir voru tilkynntar i
gær, auk 12 daga veiðibanns í
desember.
Á tímabilinu 1. janúar til 31.
maí verður bannað áð stunda
veiðar með þorskfisknetum án
sérstaks leyfis sjávarútvegsráðu-
neytisins.
Algert bann verður á þorsk-
veiði á tímabilinu 20. til 31.
desember. Þó geta útgerðir skut-
togara tekið þessa 12 daga
einhvern tíma á tímabilinu 1. til
31. desember. Þeim skipum, sem
stunda þorskveiðar, skal heimilt
að veiða annan fisk á bann-
tímanum, og má þorskur ekki
fara yfir 10 prósent af afla. HH
Framsókná
Norðurlandi vestra:
Taliðídag
Talning atkvæða i skoðana-
könnun Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra,
sem fram fór um síðustu helgi,
hefst á hádegi í dag.
Alls var kosið á sex meginkjör-
stöðum, en einnig í hverjum
hreppi í kjördæminu fyrir sig svo
talsverðan tíma hefur tekið að
safna atkvæðum saman.
Talið verður í Framsóknar-
húsinu á Sauðárkróki og for-
maður kjörstjórnar er Guttormur
Óskarsson. HP
Hafnarfjörður:
Báturáhliðina
Hundrað þrjátíu og sex tonna
bátur, Hringur GK 18. fór á
hliðina í Hafnarfjarðarhöfn í
gærkvöldi. Það sem bjargaði
bátnum var að hann Iagði
möstrin á bryggjukantinn.
Tveirstórir kranar voru
kvaddir til og réttu þeir bátinn
síðan við.
Báturinn er í lengingu og er
búið að taka úr honurn bæði vél
og ballest, þannig að hann er
mjög valtur á bárunni. Ekki
ertt sjáanlegar aðrar skemmdir
á batnum en beygluð möstur.
Báturinn hallaðist nokkuð i
rnorgun þegar DB menn komu
á staðinn. en stór krani studdi
við hann. JH