Vísir - 12.06.1973, Blaðsíða 12

Vísir - 12.06.1973, Blaðsíða 12
12 VIsir' Þriðjudagur 12. júni 1973. vísir Þriðjudagur 12. júni 1973. 13 Spor i rs átt SwLip tf£ v Kla * Eusebio fékk gullskóinn Undramaðurinn Eusebio skoraðr 4 mörk, þegar lið hans sigraði Montijo 6-0 í síðustu umferð Portúgölsku deildarkeppninnar. Þar með vann Eusebio „gullna skóinn", sem sá knattspymumaður hlýtur, sem flest mörk skorar á keppnistímabilinu. Fyrir helgina voru þeir jafnir aö mörkum Eusebio og Vestur- Þjóöverjinn Gerd Mueller en 4 mörk Eusebios i siðasta leiknum réðu úrslitum. Akveöið hefur verið, að leikur til heiðurs Eusebio, og jafnframt hlýtur hann allan ágóöann, verði milliBenfica og heimsliðs 31. júli næst komandi. Meðal kappa, sem þar munu koma saman má nefna Gerd Mueller, Pele, Bobby More og Gordon Banks. STÆRSTA GOLF- MÓT HINGAÐ TIL Pierre Roberts keppn- in i golfi fór fram um helgina á Nesvellinum. Mikill fjöldi kylfinga tók þátt i keppninni og voru keppendur alls nærri 1(50 að tölu. í meistaraflokki sigr- aði Loftur Ólafsson NK., i hinni raunverulegu Pierre Roberts keppni en þegar henni lauk héldu 24 efstu menn áfram og léku 18 holur i viðbót. Sú keppni gilti i stigakeppni Golfsam- bandsins og þá tókst Thomasi Holton, að ná forustunni en Loftur varð i öðru sæti. Loftur Ólafsson fór 18 holurnar á 72 höggum en Thomas Holton á 76 höggum. í þriðja sæti varð Gunnar Júliusson frá Akranesi með 77 högg en bróðir hans Július varð fjórði á 78 höggum. í fyrsta flokki sigraði Konráð Bjarnason NK á 82 höggum. Jón t»ór Ólafsson GR. varð ann- ar á 84 höggum en hann varð að leika bráðabana við Eirik Smith GK og Eyjólf Jóhannsson GK um annað og þriðja sæt- ið. Jón varð hlut- skarpastur, Eirikur hlaut þriðja sætið og Eyjólfur það fjórða. í öðrum flokknum var mjög hörð keppni og þurftu þeir Guðmundur Ófeigsson og Donald Jóhannsson að leika til úrslita um fyrsta sætið. Guðmundur varð hiut- skarpari en báðir fóru þeir 18 holurnar á 87 höggum. Jóhann Reynisson, Jón Árnason og Magnús Guðmunds- son komu allir inn með 90 högg og þurftu þvi að leika til úrslita um það hver hlyti þriðja sætið. í úrslitunum sigraði Jó- hann Reynisson. Jakobina Guðlaugs- dóttir sigraði i meistaraflokki kvenna en í öðru sæti varð Anna Aðalsteinsdóttir. í fyrsta flokki kvenna var Sigrún Ragnarsdóttir hlutskörpust og Inga Keppendur aö undirbúa sig fyrir keppnina á Nesvellinum um helgina. öðru Magnúsdóttir sæti. Magnús Birgisson varð i fyrsta sæti i ung- lingaflokknum en Hallur Þórmundsson i öðru sæti. Það var allra rómur, FRANSKA KOVACS MEÐ að skipulag keppninnar allt og ástand vallarins á Seltjarnarnesi hefði ver- ið til mikillar fyrir- myndar. Keppnisstjóri var Kjartan L. Pálsson. LANDSLIÐIÐ Stefan Kovacs, sem verið hcfur þjálfari hollenzka liösins Ajax og leitt það þrisvar til sigurs I Evrópubikarkeppninni, hefur nú verið ráöinn sem þjálfari og stjórnandi franska landsliösins. Þetta kom fram i yfirlýsingu for- seta franska Knattspyrnusam- bandsins 1 Parls á föstudaginn. Kovacs gerði samning til eins árs, en ekkert er þvl til fyrirstööu, að sá samningur verði framlengdur. Ilann mun byrja nýja starfið 1. ágúst næstkomandi. Kovacs tekur við af Georges Boulgne, en hann hefur verið gagnrýndur mjög vegna þess, hve Frakklandi hefur gengiö illa I forkeppninni fyrir heims- meistarakeppnina. Einn+einn=einn Hvað á þetta nú að þýða? Einn plús einn eru auðvitað tveir. Víst er það. Meiningin er bara að minna þá, sem ætla að fara að mála, á það að nú er hægt að fá alla liti sem þeir geta látið sér detta í hug, með því að blanda saman tveimur grunnlitum. Einn plús einn af hinum 40 grunnlitum gefur einn af hinum ótal mörgu litum í litrófi Hörpu. Stór Hörpulita- bók gefur yfirlit yfir mögu- leikana. Og þar eru hlutföllin gefin. Alltaf miðað við tvo grunnliti, og stærð dósanna. Odýrara og einfaldara getur það ekki orðið fyrir þá sem vilja velja og ráða sjálfir. Auðvelt að fá hæfilegt magn og viðbót nákvæmlega eins. Látið HÖRPU gefa tóninn. HARPA EINHOLTI 8 Thomas Holton sem sigraði i stigaktppni Golfsambandsins um helgina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.