Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2000, Blaðsíða 14
ÞEGAR GRAF VON
SPEE VAR SÖKKT
EFTIR HJÖRT J. GUDMUNDSSON
Um þessar mundir eru
60 ár liðin frá því að
þýzka vasaorrustuskipinu
Admiral Graf von Spee
var sökkt á La Plata-flóan-
um við strendur Suður-
Ameríku. Var þetta
f/rsta herskipið sem Þjóð-
verjar misstu í síðari
heimsstyrjöldinni, en það
sem gerir þennan atburð
enn merkilegri er sú
staðreynd að skipinu
sökktu Þjóðverj-
ar sjálfir,
'■k ^■asaorrustuskipinu Admiral
K Graf von Spee var hleypt af
K stokkunum í Wilhelmshav-
K en, árið 1934. Eftir fyrri
K heimsstyrjöld hafði nær öll-
um flota Þjóðverja verið
sökkt, en í Versalasamn-
▼ ingnum var þó tekið fram
að Þjóðverjar mættu eiga nokkur úrelt
herskip. Ennfremur var tekið fram að eina
nýsmíði þeirra mætti vera sex 10 þús. tonna
beitiskip. I samningnum var hins vegar ekk-
ert minnst á stærð vopnabúnaðar og nýttu
Þjóðverjar sér þetta með því að smíða 14 þús.
tonna beitiskip (opinberlega sögð 10 þús.
tonn) með sex 28 cm orrustuskipabyssum.
Bandamönnum brá í brún en gátu ekkert að-
hafst, Þjóðverjar virtust ekki hafa brotið
samninginn. Vegna vopnabúnaðar skipanna
þótti ekki hæft að flokka þau sem beitiskip og
ekki voru þau heldur nógu stór til að teljast
til orrustuskipa. Var því afráðið að búa til
nokkurs konar milliflokk, svokallaðan flokk
vasaorrustuskipa (enska Pocket Battleships,
þýska Panzerschiffe). Var áætluð smíði fjög-
urra slíkra skipa en aðeins þremur var lokið:
Admiral Graf von Spee, Admiral Scheer og
Deutschland. Nafni þess síðastnefnda var
síðar breytt að skipun Hitlers þar sem óþol-
andi yrði ef nafnskip Þýskalands færist.
Vasaorrustuskipin voru, eins og fyrr segir,
14 þús. tonn. Þau höfðu 26 hnúta hámarks-
hraða, voru 182 m á lengd, 21,7 m á breidd og
ristu 5 metra. Þau voru búin átta 6.750 hest-
afla vélum, samtals 54 þús. hestöflum og 2
skrúfum. Síður skipanna voru með 60 mm
brynvörn, þilfar með 40 mm, stjómstöð 150
mm, og skotturnar 140 og 100 mm brynvörn-
um. Þau voru búin sex 28 cm fallbyssum í
tveimur skotturnum, átta 15 cm fallbyssum,
tuttugu og fjórum loftvamarbyssum af ýms-
um stærðum, átta 53,3 cm tundurskeytarör-
um og tveimur flugvélum. í áhöfnum skip-
anna voru 1.150 manns.
Síðari heims-
styrjöldin
Þegar síðari heimsstyrjöldin brauzt út
voru Þjóðverjar eina þjóðin sem undirbúin
var fyrir styrjöld. Þeir voru ekki aðeins und-
irbúnir á landi og í lofti heldur einnig á haf-
inu. Áður en Þjóðverjar réðust inn í Pólland,
1. september 1939, höfðu þeir sent bæði
Graf von Spee brennur ennþá 18. desember 1939, daginn eftir að í því var kveikt og botnhlerarnir opnaðir.
Admiral Graf von Spee. Skipið var nefnt eftir frægum þýzkum flotaforingja úr heimsstyrjöldinni
1914-18, Maximilian von Spee greifa.
Gerði skipherrann á Graf
Spee, Hans Langsdorf, í
byrjun þau mistök að dreifa
skothríð sinni á brezku
skipin í stað þess að reyna
að sökkva þeim einu á fæt-
ur öðru. Breyttu Þjóðverj-
ar þó fljótlega út af þessu
og einbeittu sér að Exeter
þar sem byssur þess vom
þeim hvað skæðastar, enda
hafði Exeter öflugasta
vopnabúnaðinn af bresku
skipunum, sex 20 cm byss-
ur. Varð Þjóðverjum vel
ágengt á tuttugu fyrstu
mínútum orrustunnar og
tókst að eyðileggja fjórar af
sex byssum Exeter. Mörg
skot Graf Spee reyndust þó
gölluð og sprungu ekki þó
þau hittu brezku skipin. Á
meðan hafði hinum brezku
skipunum tekist að koma
nokkrum vel miðuðum
Atburðurinn áttl sér stað á La Plata-flóa við
austurströnd Suður-Ameriku.
herskip og vopnuð kaupför út á sunnanvert
Atlantshaf til að stunda sjórán þegar styrj-
öldin brytist út. Þessum skipum tókst að
valda töluverðu tjóni og beindust árásir
þeirra einkum gegn siglingum breskra skipa.
Gerðu Bretar ýmsar ráðstafanir til að hafa
hendur í hári þessara skipa sem skiluðu þó
yfírleitt mjög litlum árangri. Eitt þessara
skipa var Ádmiral Graf von Spee, þá undir
stjórn Hans Langsdorf skipherra.
Fyrstu þrjá mánuði styrjaldarinnar hafði
Graf Spee, eins og það var yfirleitt nefnt,
sökkt níu kaupskipum Breta á Suður-:
Atlantshafi, samtals yfír 50 þús tonnum. í
þessum átökum hafði þó enginn týnt lífí
vegna - skilyrðislausrar hlýðni
Langsdorfs skipherra við Haag-
stríðssáttmálann. í hvert skipti
sem Graf Spee hafði grandað óvina-
skipi voru farþegar og áhöfn flutt
yfir í þýzka herskipið og þeir síðan
settir í land í fyrstu hlutlausu höfn.
„The Battle of
the River Plate"
Bretum var Graf Spee sem þyrn-
ir í augum, en þrátt fyrir mikla
gæslu hafði þeim ekki tekist að
granda því. Reynt var að gera ráð
fyrir því á hvaða slóðum Graf Spee
héldi sig hverju sinni miðað við
neyðarsendingar sem borist höfðu
frá sumum fórnarlömbum þess. Af-
mörkuðu Bretar að lokum svæði nálægt La
Plata-flóa í Suður-Ameríku þar sem þeir
töldu líklegast að þýzka skipið væri. Hélt S-
Ameríkudeild brezka flotans, með beitiskip-
unum Exeter, Ajax og Achilles, á þetta svæði
og sigldi loks fram á Graf Spee við mynni
flóans, þann 13. desember 1939.
Graf Spee hafði mikla yfirburði á við
brezku skipin og átti frá hernaðarlegu sjón-
armiði séð að geta sökkt þeim öllum. Þjóð-
verjar lögðu þó aðaláherslu á að koma sér
undan, en varð ekki ágengt vegna yfirburða
brezku skipanna í hraða. Var hleypt af fyrstu
skotunum kl. 6.18 að morgni 13. desember.
Brezku skipin umkringdu strax Graf Spee.
skotum á Graf Spee úr 15 cm byssum sínum
og breyttist orrustan fljótlega í eltingarleik
þar sem þýzka skipið reyndi að komast undan
í átt að La Plata ármynninu. Beittu þeir til
þess m.a. reykvél.
Eftir um klukkustundar eltingarleik sneri
Graf Spee við og réðst til atlögu við Exeter til
að reyna að gera út af við illa laskað beitiskip-
ið. Exeter beit þó illa frá sér með þeim byss-
um sínum sem ekki höfðu verið eyðilagðar og
sneri þýzka skipið fljótlega við aftur með
minniháttar eld innanborðs. Fimm mínútum
síðar greiddi Graf Spee Ajax þungt högg sem
eyðilagði báða afturskotturna breska skips-
ins. Að öðrum fimm mínútum liðnum neydd-
ist Exeter til að láta undan síga og halda und-
an þar sem þær byssur þess sem eftir voru í
lagi voru orðnar ónothæfar vegna mikils leka
í skipinu. Sömuleiðis loguðu miklir eldar um
borð í skipinu, auk mikils mannfalls.
Á sama tíma og Exeter hélt undan reyndu
hin brezku skipin að þrengja að Graf Spee og
koma þannig betur skotum á það. Einn af
fjórum skotturnum Ajax var á þessari stundu
með öllu orðinn ónothæfur. Graf Spee reyndi
á ný að komast undan og notaðist enn við
reykvélina. Brezku skipin eltu og tókst að
koma nokkrum skotum á þýzka skipið. Er
talið að annar skotturn Graf Spee að aftan
hafí orðið ónothæfur um þetta leyti þar sem
ekkert var skotið úr honum eftir þetta.
Um 7.40 höfðu brezku skipin nær klárað
skotfærabirgðir sínar og voru að auki orðin
-14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 5. FEBRÚAR 2000