Vísir - 15.06.1979, Blaðsíða 4
Föstudagur 15. júní 1979
■
VÍSIR
4
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 112., 15. og 17. tbl. Lögbirtingablaðs 1979 á
hluta i Kambsvegi 1, þingl. eign Sigriöar Ársælsdóttur fer
fram eftir kröfu Landsbanka tslands á eigninni sjálfri
mánudag 18. júni 1979 kl. 15.30
Borgarfógetaembættib i Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 113., 16. og 19. tbl. Lögbirtingablaös 1979 á
hluta i Skarphéöinsgötu 10 , þingl. eign Jóhannesar
Björnssonar fer fram eftir kröfu Útvegsbanka tslands og
Veödeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudag 18.
júni 1979 kl. 14.00
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 113., 16. og 18. tbl. Lögbirtingablaös 1979 á
hluta I Grænuhliö 13, þingl. eign Björns Stefánssonar fer
fram eftir kröfu Ctvegsbanka íslands á eigninni sjálfri
mánudag 18. júni 1979 kl. 13.30
Borgarfógetaembættiö i Reykjavlk
Nauðungaruppboð
Aö kröfu ýmissa lögmanna og innheimtumanns rikissjóös
veröa eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauöungarupp-
boöi föstudaginn 22. júni n.k. kl. 16 aö Vatnesvegi 33,
Keflavik
Bifreiöarnar: Ö-1537, Ö-5686, Ö-5687, Ö-157, R-15283, ö-
4872, Ö-1750, Ö-4008, Ö-5081, Ö-432, Ö-2008, Ö-3801, Ö-1495,
Ö-5277, Ö-1556, P-1886, auk Bantan vélskófla árg. ’69 og
Wadkinvandken ristisög.
Uppboöshaldarinn I Keflavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 186., 88. og 91. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
hluta I Hjaltabakka 12, þingl. eign Jónu G. Alexanders-
dóttur fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á
eigninni sjálfri mánudag 18. júni 1979 kl. 15.00
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta I Hringbraut 95, talinni eign
Stefáns Björnssonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag
18. júni 1979 kl 11.30
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik
Teiknari óskast strax
Góður teiknari óskast strax. Góð laun í boði/
góð vinnuaðstaða. Tilboð leggist inn á augld.
Vísis merkt //1644".
LÖGTAKSÚRSKURÐUR
KEFLAVÍK, GRINDAVÍK,
NJARÐVÍK OG
GULLBRINGUSÝSLA
Þegar feröamenn fara aö flykkjast til Kaupmannahafnar þá byrjar vertiö hjá vasaþjófum. Þeir koma i
hópum til borgarinnar frá suölægari löndum. Þar sem margmenni er ráöast þeir til atlögu viö fórnar-
lömbin.
Vasaþjöfar stðrtækir
f Kaupmannahöfn
- skipulagðlr fiokkar pelrra koma
t.d. frá Júgóslavfu
Þegar feröamenn fara aö flykkjast til Kaupmannahafnar byrjar
vertiö hjá vasaþjófum. Svo rammt hefur kveöiö aö þjófunum
undanfariö aö lögreglan hefur sent út tugi af óeinkennisklæddum
lögreglumönnum til aö reyna aö hafa hendur I háriþeirra.
En þaö eru ekki aðeins verömæti sem hverfa úr vösum ferða-
manna. Töskur og farangur þeirra tapast einnig. Ef feröamenn
hafa ekki nánar gætur á farangri sinum, hverfur hann eins og hendi
sé veifað.
A einni viku var tilkynnt um 50 þjófnaöi. Var þá jafnt um aö ræöa
töskur og verömæti úr vösum. Fórnarlömbin voru öll stödd á Járn-
brautarstööinni I Kaupmannahöfn.
Skipulögð samtök vasa-
þjófa
Vegna hinna tiöu þjófnaöa á
Járnbrautarstööinni setti lög-
reglan sérstaka menn þar á
vakt allan sólarhringin'n.
Þetta leiddi til handtöku 29
ára gamals Júgóslava. Lög-
reglumennirnir tóku eftir þvi aö
hann stillti sér upp i biöraöir viö
miðasölur og söluturna á Járn-
brautarstöðinni. En rétt áður en
rööin var komin að honum fór
hann ávallt út úr henni. Þetta
gerði hann til að komast að því
hvar fólk geymdi peningaveski
sin og hvaö það hafði mikla fjár-
muni á sér. Eftirleikurinn var
auöveldur, hann krækti yfirleitt
I þaö sem hann ætlaði sér.
Við yfirheyrslur kom fram að
hér var kominn maöur sem áöur
hafði verið vikiö úr landi fyrir
þjófnað. Hann var kominn til
Dapmerkur á fölsku vegabréfi
og I þetta sinn voru meö honum
landar hans, sem stunduðu
sömu iðju. Höfðu þeir komiö
gagngert til Kaupmannahafnar
til að stela af ferðamönnum.
Þeir skipulögðu þjófnaðinn og
höföu með sér samtök.
Væg refsing og góð
fangelsi.
Við yfirheyrslur sagöi
Júgóslavinnað þeir hefðu komið
til Danmerkur til að stunda iðju
sina, vegna þess að i landinu
væru ekki ströng viðurlög við
þjófnaöi, eins og. t.d. I Þýska-
landi. Einnig væri aöbúnaður I
dönskum fangelsum góöur og
þvl væri allt I lagi að taka áhætt-
una á þvi að vera gómaður.
Dæmiö um þjófaflokkinn frá
Júgóslaviu er ekkert einsdæmi.
Lögreglan i Kaupmannahöfn
segir aö fjöldinn allur af útlend-
ingum komi til borgarinnar á
sumrin i þvi skyni að krækja i fé
úr vösum feröamanna.
Vandræðaástand hefur
skapast á Járnbrautarstöðinni
og á öðrum fjölförnum stöðum
vegna sifelldra þjófnaða.
Ferðamenn mættu varla hafa
augun af farangri sinum.
Þjófarnir rifa handtöskur af
kvenfólki um hábjartan dag á
götum úti. Ef um hliðartöskur
er að ræða klippa þeir einfald-
lega á ólina og eru hlaupnir á
brott áður en fórnardýrið hefur
áttaö sig á hlutunum.
HjáIpsamir sóðar í Tívolí.
Blásaklausir feröamenn sem
heimsækja TIvoli I Kaupmanna-
höfn verða fyrir barðinu á þess-
um óprúttnu náungum.
Þjófarnir finna sér eitthvert
árennilegt fórnarlamb. Siðan
haga þeir hlutunum svo að þeir
rekast á það og sulla um leiö
yfir það is, eða einhverju öðru
góðgæti. Mikill oröaflaumur
fylgir óhappinu, þjófarnir eiga
ekki orð yfir þaö hvað þeim
þykir þetta leitt. Þeir hjálpa
þeim sem i þessu lendir að
þurrka af fötunum, en þegar
það er búið eru þeir venjulegast
búnir að hreinsa allt úr vös-
unum. Alltþetta gerist svo hratt
að fórnarlambið er varla búið
að átta sig þegar maöurinn er
rokinn burt.
—KP.
Lögtaksúrskurður vegna ógreiddrar en gjald-
fallinnar fyrirframgreiðslu þinggjalda 1979
var uppkveðinn í dag, þriðjudaginn 12. júní
1979
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fara
fram aðsdögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar verði þau eigi að fullu greidd inn-
an þess tíma.
Keflavík 12. júní 1979
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Jón Eysteinsson (sign)
Bretar Pamstra
Prennlvln
Bretar hamstra nú hver sem
betur getur sigarettur og
brennivin. Astæðan er sú að
búist er viö hækkun óbeinna
skatta, sem felur I sér hækkaðar
álögur á þessar vörur.
Stjórn Margretar Thatcher
ætlar að lækka beina skatta úr
33 prósentum I 30 prósent, I
lægsta skattaþrepi, en úr 83
prósentum i 70 prósent I þvi
efsta.
Til aö mæta þvi tekjutapi sem
af þessu verður hefur frúin sett i
fjárlagafrumvarpið, sem ný-
lega var lagt fram,ákvæöi um
hækkun óbeinna skatta.
Söluskattur er ekki á nauð-
synjavörum I Bretlandi, t.d.
matvörur ýmis konar. En á öðr-
um vörum er skatturinn yfirleitt
8 prósent, nema á lúxusvörum,
12.5 prósent.
Vin og sigarettur flokkast
undir lúxusvörur I Bretlandi,
eins og hér hjá okkur, en búist
er viö að hann verði hækkaður
til muna samkvæmt ákvæðum
sem er að finna i nýja fjárlaga-
frumvarpinu hennar
Margretar.