Morgunblaðið - 12.04.2001, Síða 2
2 D FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
F
YRIR rúmlega öld eða nán-
ar tiltekið sumarið 1887
flutti nær 17 ára táningur,
Helgi Einarsson, frá Ís-
landi til Manitobafylkis í
Kanada ásamt foreldrum sínum,
Guðrúnu Helgadóttur og Einari
Kristjánssyni, en þau bjuggu áður í
Neðranesi í Stafholtstungum í Borg-
arfirði. Fjölskyldan fluttist brátt að
Narrósnum við Manitobavatn, norð-
vestur af Eriksdale, og fljótlega varð
Helgi umsvifamikill í fiskveiðum, út-
gerð og fisksölu. Hann keypti fisk af
indjánum og seldi í Winnipeg og síð-
ar út um allt Manitoba, Saskatchew-
an og Alberta og var einn sá fyrsti í
Manitoba til að selja fisk í Bandaríkj-
unum, en hann byrjaði á því veturinn
1896. Ísafoldarprentsmiðja gaf út
ævisögu hans 1954 og þar segir hann
m.a. að í kringum 1900 hafi hann ver-
ið „þekktur frá hafi til hafs yfir þvera
Norður-Ameríku, líkast til betur en
nokkur Íslendingur í þá daga“.
Skömmu fyrir umrædd aldamót fékk
eitt fiskifélag í Selkirk einkaleyfi til
20 ára á allri veiði í vötnunum norðan
Winnipegvatns og varð annað hvort
að fá leyfi þess til að veiða eða veiða
fyrir það. Í ævisögu Helga gerir
hann því skóna að hann hafi átt sinn
þátt í því að leyfið var tekið af þessu
félagi með viðræðum sínum við inn-
anríkisráðherra Kanada. Um tíma
rak hann margar verslanir á vatna-
svæðinu, m.a. við Fairford, St. Mart-
in, Sandy Bay, Litla Saskatchewan
sem nú heitir Dauphin River og á
Hreindýraeyju í Winnipegvatni.
Hann notaði lengi eigin seðla og
mynt í viðskiptunum og gátu við-
skiptavinirnir, sem voru einkum
indjánar, keypt vörur í búðum hans
fyrir peningana, sem þeir fengu fyrir
fiskinn og loðskinnin. 1912 byrjaði
hann að selja ófrosinn fisk til New
York. Mun hærra verð fékkst fyrir
ófrosinn fisk en frosinn og ruddi
Helgi brautina fyrir aðra fiskimenn í
Manitoba með þessum viðskiptum.
Sagt hefur verið að Helgi hafi í raun
verið sem ríki í ríkinu og svo virðist
sem sonarsonur hans og alnafni hafi
endurtekið leikinn að sumu leyti.
Ferðamannaþjónusta
á indjánasvæðum
Helgi segir í bók sinni að hann hafi
fyrstur manna farið yfir fenin á milli
St. Martin-vatns og Winnipegvatns.
Hann byggði upp verslunarstað við
Dauphin River, sonur hans tók við og
nú er það sonarsonurinn og alnafni,
sem ræður þar ríkjum.
Dauphin River er við Winnipeg-
vatn í nágrenni verndarsvæða indj-
ána um 330 km norðaustur af Winni-
peg. Þetta er 23 manna sveitarfélag í
kyrrlátu umhverfi og þar hefur Helgi
Einarsson yngri haldið merki afa
síns og nafna á lofti. Hann er að sjálf-
sögðu íslenskur í föðurættina en
amma hans var indjáni og mamman
ensk. Helgi er fiskimaður, útgerðar-
maður og fiskkaupandi, en hefur
fylgt tíðarandanum og rekur auk
þess vinsæla ferðamannaþjónustu á
svæðinu ásamt Dale, eiginkonu sinni.
Helgi hefur verið sveitarstjóri síð-
an 1987, tók við af Henrik, föður sín-
um, sem stjórnaði sveitarfélaginu frá
1971, þegar það var formlega stofn-
að.
Fyrir fjórum árum, 24. maí 1997,
misstu Helgi og fjölskylda hans allt
sem þau áttu, þegar brotist var inn
og kveikt í húsi þeirra og þau víðs
fjarri. Í brunanum brann m.a. um
100 ára saga fjölskyldunnar í Vest-
urheimi en faðir Helga hafði meðal
annars safnað saman miklum upplýs-
ingum um fjölskylduna og allir papp-
írar afa hans urðu eldinum að bráð
auk íslenskra bóka, biblíu og fleira.
„Þarna fór efniviður í bók um fjöl-
skylduna og við misstum allt,“ segir
Helgi.
En það dró ekki kjarkinn úr þeim
heldur byggðu þau upp aftur og eru
nú með fjögur fullbúin bjálkahús fyr-
ir ferðamenn auk söluskála við hlið-
ina, þar sem ferðalöngum í skipu-
lögðum ferðum er boðið upp á mat og
aðrir geta keypt sér í svanginn. Enn-
fremur reka þau greiðaþjónustu í
Gypsumville, sem er næsti bær, um
70 km fyrir vestan Dauphin River, en
alls eru þau með 10 manns í vinnu.
Hvert bjálkahús er með tveimur
svefnherbergjum, eldunaraðstöðu,
baðherbergi og setustofu en her-
bergin eru hituð upp með rafmagni á
veturna. „Það var ekki til neins að
leggja árar í bát því ég gat ekki geng-
ið að neinu öðru,“ segir Helgi um
uppbygginguna. „Bruninn var mikið
áfall, allt ótryggt, en ferðamannaver-
tíðin var að byrja og ekki til setunnar
boðið. Við bjuggum í húsbíl í sex vik-
ur og rákum fyrirtækið þaðan en við
vissum ekki hverjir höfðu pantað
bjálkahúsin hverju sinni því allar
pantanir og skrásetningar brunnu.
En þetta bjargaðist allt þó við höfum
misst allt.“
Helgi er með margvíslega þjón-
ustu í fögru umhverfi þar sem villt
dýralíf er mikið í ósnortinni nátt-
úrunni. Fólk getur leigt báta hjá hon-
um og veitt í ánni. Það getur líka far-
ið í dagsveiðiferðir á litlum trefja-
plastbátum með leiðsögumanni og er
þá siglt um nærliggjandi svæði frá
sólarupprás til sólarlags. Mest eru
fjórir í hverjum báti og kostar dag-
urinn 300 dollara á mann, um 17.000
krónur. Ennfremur er hægt að fara í
lengri veiðiferðir með leiðsögumanni
á 50 feta báti og vera yfir nótt á leið-
inni.
Tveggja vikna ferðir á kanó njóta
mikilla vinsælda, einkum hjá unga
fólkinu, að sögn Helga, en þær kosta
750 dollara, um 43.000 kr., með gist-
ingu og fæði og hafa eingöngu verið
seldar Þjóðverjum. Áður en lagt er af
stað eru ferðamönnunum kennd
handtökin á tveimur dögum. Síðan er
lagt af stað gangandi með farangur-
inn og er um fjögurra km göngu í
fenjunum að ræða, en þá tekur við
fjögurra til fimm daga sigling niður
Warpathá út í Winnipegvatn. Síðan
er farið suður með strönd vatnsins
inn í Sturgeonflóa og aftur til Dauph-
in River, þaðan sem lagt var af stað.
Tveggja ára biðlisti er í tveggja
vikna ferðir sem farnar eru með því
markmiði að veiða svartbjörn en
Helgi er með 14 slík leyfi fyrir út-
lendinga og kostar ferðin 2.800 doll-
ara með öllu, um 160.000 kr., en
ferðalangarnir eru sóttir til Winni-
peg og þeim skilað þangað aftur.
Hann er með fjóra leiðsögumenn í
vinnu og fer einn leiðsögumaður með
hverjum tveimur veiðimönnum, en
hann fer ekki með fleiri en sex til átta
veiðimenn í hverja ferð.
Mikið er um dádýr á svæðinu og
geta veiðimenn veitt þau í nóvember
með aðstoð Helga, en Bandaríkja-
menn hafa einkum farið í þessar
tveggja vikna ferðir sem kosta 2.800
dollara á manninn.
Þá er þó nokkuð er um elg í
Dauphin River og geta íbúar Mani-
toba, sem hafa til þess leyfi, veitt dýr-
in í skipulögðum ferðum með Helga.
Ábatasamt
En hvernig stendur á því að Helgi
valdi að setjast á þessum stað, svo
fjarri annarri byggð?
„Fiskveiðarnar og ferðirnar með
ferðamennina gefa okkur mikið í
aðra hönd og svo hef ég líka góðar
tekjur af því að kaupa fisk af öðrum
og selja hann síðan á markað,“ segir
hann. „Áður en vegurinn kom 1961
kom varla sála hingað en síðan hefur
ferðamönnum fjölgað mikið og við
ákváðum að bjóða þeim þjónustu
okkar 1970. Sú þjónusta hefur verið
óslitin síðan. Til að byrja með voru
þetta einkum ferðamenn frá Mani-
toba en fljótlega fóru Bandaríkja-
menn að venja komur sínar hingað
og síðan Evrópumenn, einkum Þjóð-
verjar. Þýskir hermenn voru með æf-
ingabúðir hérna í Suður-Manitoba og
þeir komu hingað í veiðiferðir eins og
þeir höfðu vanið sig á í Póllandi,
Austurríki og á Ítalíu. Fyrir 15 árum
byrjuðum við að bjóða upp á tveggja
vikna kanóferðir. Venjulega erum við
með þrjár ferðir á sumri en við tök-
um mest 14 í ferð. Þessar ferðir eru
sérstaklega vinsælar hjá ungu fólki,
en allir fá tveggja daga þjálfun og
kennslu áður en lagt er af stað. Ég er
með leyfi til að veiða 14 svartbirni á
ári og ég leigi þau útlendingum en
Kanadamenn, sem koma hingað, eru
með sín eigin leyfi. Tímabilið er ann-
ars vegar frá því í lok apríl fram í
byrjun júní og svo frá ágústlokum til
10. október. Menn veiða birnina ým-
ist með rifflum eða boga og örvum.
Síðan leigi ég út báta fyrir þá sem
vilja veiða fisk hérna í nágrenninu en
leiðsögumaður fer með í lengri dags-
ferðir. Þá leggjum við af stað um
klukkan sex á morgnana og komum
aftur um sex-leytið á kvöldin en sex
manns geta verið á hverjum báti, þó
við takmörkum fjöldann við fjóra
hverju sinni. Flestir koma á sumrin
en margir koma með vélsleðana sína
um helgar á veturna og dorga á ísn-
um.“
Hvergi betra að vera
Helgi er 47 ára og ætlaði sér alltaf
að verða fiskimaður og útgerðarmað-
ur. Henrik, faðir hans, rak smávöru-
verslun í Dauphin River og Helgi
Helgi Einarsson, leiðsögumaður og fiskimaður í Dauphin River í Manitobafylki í Kanada, hefur fetað í fótspor afa
síns og alnafna frá Neðranesi í Stafholtstungum. Steinþór Guðbjartsson blaðamaður og Kristinn Ingvarsson ljós-
myndari heimsóttu manninn sem segist vera síðasti móhíkaninn í Dauphin River.
Helgi síðasti
móhíkaninn
Morgunblaðið/Kristinn IngvarssonDale og Helgi Einarsson reka meðal annars söluskála í Dauphin River.