Morgunblaðið - 12.04.2001, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001 D 29
DÁSAMLEGT veður var hér
syðra þennan dag. Sílamávurinn
lét hátt og vakti okkur, sólin skein
og rak okkur á fætur. Morgun-
stund gefur gull í mund, og mér
gekk vel að baka ekkiterturnar.
Við sóttum sólstóla niður í kjall-
ara, breiddum sumarlegan dúk á
borðið og borðuðum úti. Afkom-
endur okkar fjölmenntu eftir há-
degi og terturnar runnu ljúflega
niður. Fuglarnir sungu og mynd-
uðu samhljóm með skærum rödd-
um yngstu barnanna. Þau rifu sig
úr fötunum þótt andkalt væri, en
sólin skein glatt og þá fer maður í
sólbað. Ekki nutu allir landsmenn
slíkrar blíðu. Systir mín var í rútu-
ferðalagi vestur í Dölum í miklum
snjó og skafrenningi svo að varla
var fært út úr bílnum.
Möndlukubbar
Botninn:
4 eggjahvítur
200 g flórsykur
100 g hýðislausar malaðar
möndlur
2 msk. hveiti
1. Þeytið eggjahvítur mjög stíf-
ar og malið möndlurnar.
2. Blandið saman hveiti og flór-
sykri, sigtið út í hvíturnar, stráið
möluðum möndlum út í og hrærið
varlega saman með sleikju.
3. Setjið bökunarpappír á bök-
unarplötu, smyrjið deiginu þar á
og bakið við 160°C, blástursofn
150°C í 25–30 mínútur. Setjið
formið í miðjan ofninn.
4. Takið úr ofninum og kælið
svolítið, en hvolfið síðan á bökun-
arrist og kælið alveg.
Kremið:
3 eggjahvítur
75 g flórsykur
100 g smjör
2 tsk. duftkaffi
1–2 msk. flórsykur til að strá yfir
1. Látið smjörið standa í skál
við eldhúshita í 2 klst. Setjið
eggjahvítur og flórsykur í þykk-
botna skaftpott á minnsta straum.
Þeytið þar til þetta er orðið seigt
og létt. Það krefst þolinmæði.
Takið síðan pottinn af hellunni.
2. Hrærið eggjahvítu/flórsyk-
urkremið og kaffiduftið út í smjör-
ið.
3. Skerið kökuna í tvennt og
smyrjið kreminu á milli. Kælið í
kæliskáp í minnst 3 klst. Stráið
flórsykri yfir og skerið í ferkant-
aða bita 5x5 sm.
Hindberja-
tíglar
140 g smjör
250 g sykur
4 eggjarauður
225 g hveiti
1½ tsk lyftiduft
1 pundskrukka hindberjasulta
4 eggjahvítur
200 g sykur
½ msk. kakó
150 g kókosmjöl
1. Hrærið mjúkt smjör með
sykri og eggjarauðum. Setjið
lyftiduft og hveiti út í og hnoðið
deig. Setjið bökunarpappír á bök-
unarplötu. Þrýstið deiginu á papp-
írinn, notið kökukefli til hjálpar.
Smyrjið sultunni yfir.
2. Þeytið eggjahvíturnar hálf-
stífar, setjið þá 200 g af sykri
smám saman út í og hrærið á milli,
þeytið þar til vel stíft er orðið.
Bætið þá kakói og kókosmjöli út í
og smyrjið yfir sultuna.
3. Hitið bakaraofn í 160°C,
blástursofn í 150°C, setjið í miðjan
ofninn og bakið í 45 mínútur. Kæl-
ið vel.
4. Skerið í aflanga ferninga eða
tígla, um 5x7 sm.
Matur og matgerð
Ekkitertur
Sumarið kom hér sunnanlands 1. apríl,
það fannst a.m.k. kóngulónni sem hafði
spunnið þræði sína milli birkigreina við
húshornið þegar við komum á fætur um
morguninn, segir Kristín Gestsdóttir, og
það var ekki aprílgabb.
Gleðilega páska
Taska
aðeins 1.800 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
Veggklukka
aðeins 2.000
NETVERSLUN Á mbl.is