Morgunblaðið - 12.04.2001, Qupperneq 33
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001 D 33
Fyrstadagsumslög fást stimpluð
á pósthúsum um land allt.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni.
Sími: 580 1050 Fax: 580 1059
Netfang: postphil@postur.is
Heimasíða:
www.postur.is/postphil
Ný
frímerki
Y
D
D
A
/
S
ÍA
Íslandspóstur gefur út tvö ný frímerki þann 18. apríl
tileinkuð íslenska fjárhundinum.
Verðgildi frímerkjanna eru 40 kr. og 80 kr.
Sama dag verða einnig gefin út frímerkjahefti með
myndum af íslensku flugvélinni TF-ÖGN (55 kr.) og
þýsku flugvélinni TF-SUX (80 kr.).
MARGIR undruðust
þegar þingmenn Sam-
fylkingarinnar kvört-
uðu yfir því á Alþingi að
venjulegt fólk gæti nú
fengið yfirdráttarlán í
banka með einu símtali.
Eftir að hafa runnið á
rassinn með ódýrum
málflutningi í öryrkja-
málinu og spáð efna-
hagskreppu árum sam-
an virðist Samfylkingin
næst ætla að gera út á
nostalgíu haftatímabils
eftirstríðsáranna.
Það má vel vera að
einhverjir sakni þeirra
tíma þegar aðgangur
almennings að lánsfé var háður
ströngum takmörkunum. Þá þurfti
almenningur að fá leyfi hjá opinberri
nefnd til bílakaupa og jafnvel ferða-
laga til útlanda. Og eins ótrúlega og
það hljómar nú, eru ekki mörg ár síð-
an fólk þurfti að bíða vikum eða mán-
uðum saman eftir síma. En hvort sem
fólk þurfti að slá víxil, kaupa bíl eða
fara til útlanda á þessum árum, þurfti
það að eyða drjúgum tíma í biðröð-
um, skrá sig á hina og þessa biðlista
og eiga samskipti við ýmsar stofnanir
og skriffinna til að öðlast þessi eft-
irsóttu gæði.
Þessarar fortíðar virðast leiðtogar
Samfylkingarinnar sakna en þeir
geta huggað sig við það að Reykja-
víkurarmur Samfylkingarinnar, R-
listinn, stjórnar borg-
inni og vinnur ötullega
að því að biðlistavæða
þjónustu borgarinnar
og endurvekja and-
rúmsloft haftatímabils-
ins.
Dagvistarvandi
· Vorið 1994 lofaði
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir því að þörf reyk-
vískra barna fyrir heils-
dagsleikskólarými yrði
fullnægt, kæmist hún
til valda. Áttu allir bið-
listar eftir leikskóla-
rými að vera horfnir ár-
ið 1998. Nú hefur R-listinn verið við
völd í sjö ár og biðlistarnir hafa aldrei
verið lengri. Um 2.600 börn eru á
biðlista eftir dagvistarrými í borginni
og nemur fjölgunin rúmum 40% á sl.
fimm árum.
Lóðaskortur
· Á stjórnartíma sjálfstæðismanna
í borginni var sérstök áhersla lögð á
að tryggja nægt framboð á lóðum fyr-
ir fjölskyldur og fyrirtæki. Undir
stjórn R-listans hafa mál þróast á
verri veg og lóðaskortur er nú orðinn
viðvarandi í Reykjavík. Afleiðingarn-
ar eru lóðabrask og stórhækkað fast-
eignaverð. Lóðaskorturinn hefur þó
ekki komið í veg fyrir að fólk nákomið
borgarstjóra fái úrvalsíbúðarlóðir á
eftirsóttum stöðum. Og á sama tíma
og fyrirtæki fá þau svör að engar lóð-
ir séu til leggur borgarstjóri mikið á
sig til að úthluta styrktaraðilum R-
listans lóðum á bestu stöðum í bæn-
um eins og dæmin sanna. Slíkir vild-
arvinir fara fram fyrir allar biðraðir.
Félagslegt leiguhúsnæði
· R-listinn hefur hvað eftir annað
lofað stórátaki í úthlutun félagslegsra
leiguíbúða í borginni en öll slík loforð
hafa verið svikin. Aldrei hafa fleiri
verið á biðlista eftir slíku húsnæði eða
um 600 manns.
Hjúkrunar- og þjónusturými
fyrir aldraða
· Undir stjórn sjálfstæðismanna
var mikil áhersla lögð á að fjölga
hjúkrunarrýmum aldraðra. Í kosn-
ingabaráttunni 1994 gagnrýndu
frambjóðendur R-listans sjálfstæðis-
menn fyrir of hæga uppbyggingu og
hétu því að gera miklu betur. Eftir að
R-listinn komst til valda hefur hann
reynst afar áhugalaus um þessi mál
og svikið gefin loforð. Afleiðingin er
sú að biðlistarnir hafa lengst og nú
eru rúmlega 400 einstaklingar á bið-
lista og þar af eru um 300 metnir í
mjög brýnni þörf.
Biðlistinn
stjórnar
borginni
Kjartan
Magnússon
Þjónusta
R-listinn vinnur ötul-
lega að því, segir Kjart-
an Magnússon, að bið-
listavæða þjónustu
borgarinnar og end-
urvekja andrúmsloft
haftatímabilsins.
Höfundur er borgarfulltrúi.