Morgunblaðið - 12.04.2001, Qupperneq 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001 D 39
hinumegin Skútuklappar er lögð í
rúst þar sem einkabryggja hans
þyrfti að víkja fyrir veginum, en
þessa aðstöðu hefur maðurinn haft
fyrir atvinnu sína á langri ævi. Skilj-
anlegt er að hann sætti sig ekki
bótalaust við eyðileggingu starfsað-
stöðu sinnar og lóðarmissinn.
Einu óskemmdu fjörunni í þorp-
inu er fórnað. Þetta svæði er með
fallegri blettum bæjarins; vinsælt
leiksvæði barna, og bæjarbúar fara
þar gjarnan um í göngutúrum og
leiða þangað gesti og ferðamenn.
Stefnt er í milljónakostnað sveit-
arfélagsins fyrir veg sem engin
raunveruleg þörf er fyrir.
Öllu þessu skal fórna fyrir hags-
muni vinarins og verkkaupans í
Skútuklöpp; en sjálfsagt einnig með
hliðsjón af buddu þeirra sem vinna
munu verkið. Það þarf til dæmis
vörubíla.
Kosningar
Fjörubúar mótmæltu tillögunni.
Svo og einyrkinn. Svo og allir smá-
bátaeigendur sem sjá enga þörf fyr-
ir þessa tengingu. En athugasemdir
eru virtar að vettugi, tillagan sam-
þykkt og send skipulagsstofnun til
staðfestingar.
Þar sem öll málsmeðferð sveitar-
stjórnar er gölluð tel ég óhugsandi
að ráðherra staðfesti breytinguna
heldur má telja fullvíst að hreppnum
verði gert skylt að byrja ferlið að
nýju samkvæmt lögum um grennd-
arkynningu og aðkomu hagsmuna-
aðila. Gamla aðalskipulagið mun því
enn gilda næstu mánuði og á meðan
það er í gildi er opnunin við Nýja-
bæjarlæk ólögleg.
Hinu fær ekkert breytt að sveit-
arstjórn Búðahrepps hefur gróflega
brotið á rétti fjörubúa, í krafti meiri-
hlutavalds Framsóknarflokksins.
Þau brot hafa nú staðið í ár; valdið
fjörubúum óþægindum og ama í of-
análag við stöðugt ónæði frá fisk-
vinnslunni sjálfri, oft langt fram á
nætur.
Það má telja víst að þetta mál
verður ekki til lykta leitt fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar. Og
hitt þykist ég geta fullyrt að al-
menningur á Fáskrúðsfirði er ekki
fylgjandi siðleysi né valdníðslu, og
síst lögleysu. Þá þykir áreiðanlega
flestum nóg komið af illdeilum og
átökum í þessu fámenna plássi sem
má ekki við að enn fleiri kjósi að
hverfa á brott vegna yfirgangs og
hroka einnar valdaklíku. En fyrst
forkólfar Framsóknarflokksins þar
eystra skilja ekki svo einföld sann-
indi finnst mér ráð að formaður
hans noti aðferð Davíðs og kenni
þeim hvað má og hvað má ekki.
Höfundur er íslenskufræðingur.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r