Morgunblaðið - 08.12.2002, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á
RNI Þór Vigfússon mun
standa upp úr stól sjón-
varpsstjóra Skjás eins um
næstu áramót og hverfa til
annarra starfa. Hann ætl-
ar að einbeita sér að
skemmtun í víðara sam-
hengi og lítur m.a. út fyrir
landsteinana í þeim til-
gangi. „Það er með miklum söknuði sem ég tek
þessa ákvörðun. Á síðastliðnum þremur árum
höfum við á Skjá einum unnið sem samhent
fjölskylda að því að búa til fyrstu ókeypis sjón-
varpsstöðina á Íslandi. Það er svo sannarlega
erfitt að fara að heiman en ég ásamt fólkinu á
Skjá einum átti þann draum að láta Skjá einn
verða að veruleika og allt það sem hann stend-
ur fyrir. Í dag held ég að sá draumur sé orðinn
að veruleika. Mig hefur alltaf dreymt um að
starfa í mínu fagi á erlendri grundu líka og nú
hafa myndast þau tækifæri sem ég hef ákveðið
að stökkva á þótt ég geri það með miklum
söknuði,“ segir Árni Þór.
Hinn 26 ára gamli Árni Þór sleppir þó ekki
alveg hendinni af Skjá einum þótt hann láti af
störfum sem sjónvarpsstjóri en
hann mun verða í forsvari fyrir
dagskrárráð Íslenska sjónvarps-
félagsins og verður áfram stór
hluthafi í því en félagið á og rekur
Skjá einn. Skipuriti Skjás eins
verður breytt um áramótin á þann
hátt að staða sjónvarpsstjóra
verður lögð niður og vægi dag-
skrárstjóra verður aukið og dag-
skrárráð stofnað, honum til halds
og trausts. Hlutverk dagskrár-
ráðs, sem skipað verður þremur
mönnum, verður að þróa dagskrá
og markaðssetningu stöðvarinn-
ar.
Ásamt Kristjáni Ra. Kristjáns-
syni, fóstbróður sínum og sam-
herja í viðskiptum til margra ára
og leikaranum og leikstjóranum
Bjarna Hauki Þórssyni, hefur
Árni Þór stofnað fyrirtækið Þrjár
sögur/Three Sagas Entertain-
ment í þeim tilgangi að framleiða
leiksýningar og sjónvarpsþætti
víða um heim. Það er einmitt síð-
asta orðið í enska heiti félags
þeirra þremenninga sem Árna
Þór er hugleikið. „Enska hugtakið
entertainment er mjög gott og
nær yfir svo stórt svið. Mér finnst
íslenska orðið afþreying ekki ná
því fullkomlega því afþreying hef-
ur þá skírskotun að vera eitthvað
annars flokks. Skemmtanaiðnað-
ur getur hugsanlega náð utan um
þetta. En orðið entertainment
hefur á sér goðsagnakenndan blæ
í Ameríku þar sem það að vinna í
skemmtanaiðnaðinum jafnast á
við himnaríki,“ segir Árni Þór og
hlær.
Leiksýningar og sjónvarpsþættir
á Norðurlöndunum
Upphafið að samstarfi Árna
Þórs og Kristjáns Ra. við Bjarna
Hauk var uppfærslan á Train-
spotting en eftir það settu þeir
upp Hellisbúann árið 1998. Stykk-
ið varð gríðarlega vinsælt en upp-
haflega er það bandarískt uppi-
stand sem þeir félagar í samstarfi við Hallgrím
Helgason og Sigurð Sigurjónsson færðu í leik-
ritsbúning. Nú hefur Bjarni Haukur leikstýrt
Hellisbúanum í Noregi og Svíþjóð í útgáfum
sem þróaðar hafa verið í samstarfi við þarlenda
meðframleiðendur. Einnig hefur Hellisbúinn
verið settur upp í Danmörku.
Áður hefur komið fram að ákveðið var að
vinna að gerð sjónvarpsþátta með hliðsjón af
sögunni fyrir norsku sjónvarpsstöðina TV2.
Árni Þór segir að nú hafi verið ákveðið að sjón-
varpsþættirnir verði ekki tengdir Hellisbúan-
um heldur verði gamanþáttaröð um samskipti
kynjanna skrifuð af Bjarna Hauki Þórssyni.
„Þetta verður að ég held í fyrsta skipti sem Ís-
lendingar skrifa, leikstýra og framleiða gam-
anþáttaröð í útlöndum. Ef þetta gengur vel
munum við reyna að framleiða þetta líka í öðr-
um löndum.“ Þrjár sögur munu framleiða sjón-
varpsþættina í samstarfi
við norska fyrirtækið Din-
amo og áætlað er að sýn-
ingar á þáttunum hefjist á
TV2 snemma árs 2004. Þeir
verða svo væntanlega sýnd-
ir á Skjá einum? „Vonandi,“
segir Árni Þór hlæjandi.
Innan fyrirtækisins er nú
verið að þróa alþjóðlega útgáfu af bandarísk-
um einleik eftir leikarann Rob Duvac en hann
hefur sýnt verkið Male Intellect 600 þúsund
áhorfendum í Bandaríkjunum, að sögn Árna
Þórs. Verkið er nútímalegra en Hellisbúinn,
fjallar um samskipti kynjanna í nútímanum og
fylgjast áhorfendur með síðustu 90 mínútum
þess frests sem karlmaður hefur fengið til að
komast að því hvað konan hans, sem hefur yf-
irgefið hann, vill að hann geri. Nú er verið að
þýða og staðfæra þetta verk og ætlunin er að
sýna það á Íslandi næsta haust og fara svo víð-
ar með stykkið ef vel gengur á sama hátt og
með Hellisbúann. Árni Þór nefnir Norðurlönd-
in og Eystrasaltsríkin í því sambandi, sem og
meginland Evrópu og Asíulönd.
„Við munum reyna að hefja alltaf leikinn á
Íslandi. Hér er hægt að koma hlutum fljótt af
stað og fá viðbrögð hratt og vel. Við erum Evr-
ópubúar en Ameríka hefur haft mikil áhrif á
okkur. Í Íslendingum tengjast í rauninni tveir
menningarheimar. Ísland er því góður mark-
aður fyrir svona prófanir.“ Árni Þór bjó í
Bandaríkjunum í eitt ár sem unglingur og
hreifst þar af skemmtimenningunni en svo má
e.t.v. útleggja orðið entertainment á íslensku.
Svo flutti hann aftur til Íslands, kláraði grunn-
skólann og byrjaði í Verzlunarskólanum. Hlut-
irnir æxluðust þannig að
hann varð formaður nem-
endamótsnefndar sem setti
upp söngleikinn Cats. „Þá
endurnýjaði ég kynni mín
af skemmtimenningunni og
fann hvað mér þótti gaman
að setja saman sýningu
sem var samspil hundrað
einstaklinga. Þarna var ég í fyrsta skipti í hlut-
verki framleiðandans og fann að ég vildi starfa
á þessu sviði. Ég vil láta fólki líða vel í kringum
mig því ef það tekst, skilar það sér í góðu verki.
Okkur á Skjá einum hefur einmitt tekist þetta
mjög vel og ég tel að það hafi skilað sér inn á
Skjáinn. Því er útgangspunktur alls sem ég tek
mér fyrir hendur að skemmta fólki. Þegar við
vorum að setja Hellisbúann upp á Íslandi, fór
ég oft inn í sal og ætlaði að líta á hvort allt væri
ekki í lagi. Ég endaði á því að horfa á níutíu
sýningar. Þá var ég ekki alltaf að horfa á
Bjarna Hauk heldur að horfa á fólkið skemmta
sér. Ég hef gaman af því að sjá að eitthvað sem
ég hef unnið í létti fólki lundina.“ Árni Þór
skemmtir fólki á fleiri en einu sviði. Hann
stofnaði sjónvarpsstöðina með því markmiði að
skemmta fólki, rekur nokkra skemmti- og veit-
ingastaði og líkamsræktarstöð í félagi við fleiri
og setur upp leiksýningar hér og þar um heim-
inn undir merkjum Þriggja sagna. Hann tekur
undir að skemmtistaðirnir falli líka undir hatt
skemmtimenningarinnar. „Við viljum að fólk
skemmti sér og líði vel. Íslendingar vinna mjög
mikið en þeir mega líka passa betur upp á að
lyfta sér upp orðsins fyllstu merkingu. Til
dæmis fara út á meðal fólks í notalegt umhverfi
og slappa af eftir erfiðan vinnudag. Ég held að
þetta veiti fólki meiri orku
og létti lund þess,“ segir
Árni Þór.
Í lagi að horfa á létt efni
„Það hefur oft verið dá-
lítið snobb á Íslandi fyrir
svokallaðri hámenningu.
Það er að sjálfsögðu frá-
bært að hér sé haldið úti sinfóníuhljómsveit og
ég tel það vera nauðsynlegt. Grasrótin er
sömuleiðis nauðsynleg og þaðan koma okkar
stærstu listamenn í dag. En við eigum ekki að
vera hrædd við að búa til það sem markaðurinn
vill. Skemmtiefni getur kennt fólki jafnmikið
og lestur bóka sem teljast til hámenningar.
Þetta er spurning um að klæða efnið í þann
búning að fólk vilji horfa og það er það sem
Ameríkanar hafa gert svo vel. Það hefur oft
verið litið niður á Ameríkana af menningarvit-
um en í rauninni á að klappa fyrir þeim.
Ég held að Skjár einn hafi haft þau áhrif á
Íslandi að hér er orðið meira lagt upp úr
skemmtun og skemmtanagildi hluta. Fólk
hugsar meira um að gera skemmtilega hluti í
menningu og listum. Við höfum kannski verið
einum of föst í því Íslendingar að list sé bara
fyrir ákveðinn hluta þjóðarinnar. Skjár einn er
stöð fólksins og þar hefur verið búið til
skemmtiefni fyrir heildina. Ég held að Skjár
einn hafi létt íslenska þjóðfélagið og ýtt undir
það hugarfar að það er allt í lagi að horfa á létt
efni því viska lífsins liggur ekki alltaf djúpt.
Efnið þarf heldur ekki að vera fullt af tilvís-
unum í eitthvað sem gerðist í fortíðinni því for-
tíðin er ekki alltaf merkilegri en nútíminn. Við
eigum að vera stolt af nútímanum.“
Að upplifa veruleikann í fjölmiðlunum
Það var árið 1999 að tveir 23 ára strákar með
háleit markmið hófu útsendingar undir merkj-
um Skjás eins. „Við ætluðum að gera allt á
einni nóttu,“ segir Árni Þór um áætlanir sínar,
Kristjáns Ra og allra þeirra
starfsmanna sem réðust í verk-
efnið með þeim. „Okkur datt í hug
að stofna sjónvarpsstöð og sáum
tækifæri til að bæta við innlent
efni á markaðnum. Hver þjóð
verður að upplifa sinn veruleika í
fjölmiðlunum því það er horft svo
mikið til fjölmiðlanna. Fjölmiðl-
arnir eru vísbending unga fólksins
og áttaviti þeirra út í umhverfið.
Ef það sér bara amerískt efni, fær
fólk ekki sérkenni Íslands eins
sterkt á tilfinninguna eða ekki
eins mikinn áhuga á því eins og ef
nóg af innlendu efni er á dagskrá.
Fólki má ekki finnast Ísland vera
útibú frá Ameríku.“
Komin í rekstrarlega höfn
Sjónvarpsstöðin er rekin með
auglýsingatekjum og reksturinn
hefur ekki verið dans á rósum. Á
síðasta ári kom fjárfestahópur að
fyrirtækinu með um 200 milljónir
króna og nú fyrir skömmu var 600
milljóna króna skuld breytt í
hlutafé og verið er að ganga frá
skuldbreytingu á 40 milljónum
króna, síðasta „vanskilahalanum“
eins og Kristinn Þór Geirsson,
framkvæmdastjóri Íslenska sjón-
varpsfélagsins, komst að orði í
samtali við Viðskiptablað Morg-
unblaðsins í lok síðasta mánaðar.
„Við erum komin í fyrsta sinn í
alvöru rekstrarlega höfn og búin
að tryggja reksturinn til ákveðins
tíma,“ segir Árni Þór en áætlanir
gera ráð fyrir að fjármagnskostn-
aður Skjás eins lækki mikið á
næsta ári. Og það er fyrst nú sem
sjónvarpsstjórinn fráfarandi
treystir sér til að sleppa hendinni
af „barninu sínu“ – þegar búið er
að tryggja framtíð þess og það
hefur fengið góðar einkunnir í
könnunum. Skjár einn kom nefni-
lega vel út í síðustu fjölmiðlakönn-
un og Árni Þór er auðvitað ánægð-
ur með það.
Mikið tækifæri í sameiningu
Nokkrar umræður hafa átt sér stað um sjón-
varpsstöðvarnar og hvort bæði sé pláss fyrir
Skjá einn og stöðvar Norðurljósa á markaðn-
um. Bæði fyrirtæki hafa átt í rekstrarvanda og
bent hefur verið á að leiðin út úr honum væri
annað hvort sú að fyrirtækin sameinuðust eða
að annað hvort þeirra legði upp laupana. „Við á
Skjá einum höfum haft það fyrir reglu að tala
sem minnst um hvernig keppinautunum geng-
ur. En tækifærið er mikið ef hægt er að sam-
eina þessi fyrirtæki. Hvað gerist hjá Norður-
ljósum get ég ekkert sagt um. En það er
allavega alveg öruggt að Skjár einn er kominn
til að vera. Fyrir mér og starfsmönnum Skjás
eins er forgangsatriði að Skjár einn lifi áfram
sem skemmtistöðin. En við bíðum auðvitað eft-
ir tækifærum. Ef þau eru fólgin í sameiningu
við einhverja miðla Norðurljósa þarf að skoða
það. Eitt af markmiðum
okkar er að reka stafræna
áskriftarstöð við hlið aug-
lýsingasjónvarpsins Skjás
eins. Það munum við gera
um leið og tækifæri býðst.
Það tækifæri gæti falist í
auknum dreifingarmögu-
leikum en við þurfum að
bíða og sjá hvernig tæknin þróast. Það er
vissulega fljótlegra að tengjast einhverjum
fyrirtækjum á markaðnum en að bíða eftir
framtíðardreifileiðum. En ég er búinn að læra
að þolinmæði þrautir vinnur allar. Það er eitt-
hvað sem ég vissi ekki fyrir þremur árum,“
segir Árni Þór að lokum.
Útgangspunkt-
ur alls að
skemmta fólki
Árni Þór í húsakynnum Hótels Borgar. „Ég hef gaman af því að sjá að eitthvað sem ég hef unnið í létti fólki lundina.“
Árni Þór Vigfússon stofnaði sjónvarpsstöð þar sem skemmtigildið er í
fyrirrúmi en lætur um næstu áramót af starfi sjónvarpsstjóra til að einbeita
sér að skemmtimenningunni í víðara samhengi í fyrirtækinu Þrjár sögur.
Steingerður Ólafsdóttir ræddi við manninn sem fylgdist með áhorfendum
Hellisbúans á a.m.k. níutíu sýningum.
steingerdur@mbl.is
Fyrir okkur er for-
gangsatriði að Skjár
einn lifi áfram sem
skemmtistöðin.
Fara víðar með
stykkið ef vel gengur
á sama hátt og með
Hellisbúann.
Morgunblaðið/Kristinn