Morgunblaðið - 08.12.2002, Page 47
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 47
ÞAÐ ER undarlegt tilþess að hugsa, að ein-hver skuli geta fyllstdepurð og kvíða áþessum tíma ársins,
hvað þá á sjálfri ljóssins hátíð og
kærleikans. Samt veit ég um
konu, 26 ára gamla, sem hatar
aðventuna og jólin eins og pest-
ina. Ástæðan er sú, að þegar
hún var barn ólgaði heimilið í
áfengi og barsmíðum, með til-
heyrandi glundroða í öllu sem
fyrir varð. Og ég veit að þessi
kona er ekki ein á báti, hún á
mörg þjáningarsystkin; konur í
meirihluta.
Sagt er að í Bandaríkjunum
verði kona fyrir líkamlegu of-
beldi á 15 sekúndna fresti, um 4
milljónir leiti sér aðstoðar á
bráðamóttökum og um 4.000
deyi af völdum áverkanna. Í
kanadískri rannsókn, sem gerð
var árið 1993, kom í ljós, að 25%
allra kvenna þar í landi höfðu
orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka,
fyrrverandi maka eða sambýlis-
manns. Ef einungis var litið til
giftra kvenna hækkaði talan í
29%.
Árið 1996 var gerð hér á landi
símarannsókn á útbreiðslu heim-
ilisofbeldis. Hún sýndi, að um
350 konur höfðu orðið fyrir of-
beldi einu sinni af núverandi eða
fyrrverandi eignmanni eða sam-
býlismanni, og 750 konur höfðu
orðið fyrir ofbeldi oftar en einu
sinni á því ári.
Og sænsk rannsókn, gerð árið
2001, sýndi að 15% allra kvenna
höfðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu
kærasta, 11% af hálfu núverandi
maka eða sambýlismanns, og
35% af hálfu fyrri maka eða
sambýlismanns. Næstum þrjár
af hverjum fjórum kvennanna,
sem höfðu reynt að fyrirfara sér,
höfðu orðið fyrir ofbeldi.
Í skýrslu Evrópuráðsins frá
því í september á þessu ári kem-
ur fram, að ofbeldi gegn konum
færist í aukana í öllum Evr-
ópuríkjunum, og að þetta sé al-
gengasta dánarorsök kvenna á
aldrinum 15–44 ára. Þetta gerist
í öllum stéttum þjóðfélaganna. Á
síðasta ári voru 1,3 milljónir
kvenna beittar andlegu eða lík-
amlegu ofbeldi af maka eða sam-
býlismanni í Frakklandi einu
saman, og í Rússlandi eru 13.000
konur myrtar árlega. Í fyrra tók
Kvennaathvarfið í Reykjavík á
móti 503 konum; um 60% þeirra
komu vegna andlegs ofbeldis.
Og símtöl í neyðarsíma voru
1.880.
Í heildina sýna rannsóknir í
u.þ.b. 35 löndum, gerðar á síð-
ustu þremur áratugum, að fjórð-
ungur til helmingur allra kvenna
hafi orðið fyrir líkamlegu ofbeldi
af hálfu fyrrverandi eða núver-
andi eiginmanns eða sambýlis-
manns. Þetta eru ískyggilegar
tölur. Og, það sem gerir illt
verra, hér er enginn dagamunur.
Ekki einu sinni hlé, þótt Betle-
hemsstjarnan skíni og kalli til
friðar.
Og hvað með öll börnin, sem
verða þarna á milli? Hvers eiga
þau að gjalda? Hvernig skyldu
þau verða, er fram í líður? Eins
og konan unga? Er annað hægt?
Árið 1992 orti Paulette nokk-
ur Kelly eftirfarandi ljóð, sem
ég hef kosið að gera að loka-
orðum mínum að þessu sinni,
með þeirri frómu ósk að augu
gerendanna ljúkist upp fyrir
þessu kalda óréttlæti og mis-
kunnarleysi og skammarlega at-
ferli, eða – ef það er borin von –
að þolendurnir leiti aðstoðar
fagfólks áður en úr verður enn
meiri harmleikur en þegar er
orðinn. Hér er mannleg reisn í
húfi, brothættar sálir, líf.
Umrætt ljóð er svona:
Ég fékk blóm í dag.
Þetta var samt ekki afmæli mitt eða
neinn sérstakur dagur.
Við rifumst í fyrsta skipti í
gærkvöldi,
og hann sagði ýmislegt grimmdarlegt,
sem meiddi.
Ég veit að hann sér eftir þessu og að
ekkert var á bak við orð hans.
Af því að hann sendi mér blóm í dag.
Ég fékk blóm í dag.
Þetta var samt ekki brúðkaupsafmæli
okkar eða neinn sérstakur dagur.
Í gærkvöldi fleygði hann mér á vegg
og ætlaði að kyrkja mig.
Mér leið eins og í martröð,
fannst ótrúlegt að þetta væri að
gerast.
Ég vaknaði í morgun, öll blá og aum.
Ég veit að hann sér eftir þessu.
Af því að hann sendi mér blóm í dag.
Ég fékk blóm í dag.
Þetta var samt ekki mæðradagurinn
eða neinn sérstakur dagur.
Í gærkvöldi barði hann mig aftur.
Og nú mun fastar en í öll hin skiptin.
Hvað á ég að gera, taki ég þá
ákvörðun að skilja við hann?
Hvernig á ég að sjá börnum mínum
farborða?
Hvað um peninga?
Ég óttast hann, og eins það að flýja.
En ég veit að hann sér eftir þessu.
Af því að hann sendi mér blóm í dag.
Ég fékk blóm í dag.
Og nú var þetta afar sérstakur
dagur.
Í dag var ég jarðsett.
Í gærkvöldi drap hann mig loksins.
Lamdi mig til bana.
Hefði ég bara megnað að safna
nægilegu hugrekki og kröftum til að
yfirgefa hann,
þá hefði ég ekki fengið blóm … í dag.
Ég fékk blóm
Morgunblaðið/Kristinn
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Aðventan og jólin
eru hjá flestum dag-
ar yls og gleði, ástar
og væntumþykju.
En ekki öllum. Sig-
urður Ægisson
fjallar um þann vá-
gest sem heimilis-
ofbeldið er, og sem
ekki tekur sér frí
þótt einn helgasti og
bjartasti tími krist-
inna manna sé fram-
undan.
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 892683
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ mánud. 2. des. 2002.
22 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S
Margrét Margeirsd.- Halla Ólafsdóttir 237
Jón Karlsson - Valur Magnússon 235
Oddur Halldórsson - Viggó Nordquist 235
Árangur A-V
Kristján Ólafsson - Ólafur Gíslason 250
Eysteinn Einarsson - Magnús Oddsson 248
Hannibal Helgason - Magnús Jósefsson 230
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 5. desember. 18 pör. Með-
alskor 216 stig.
Árangur N-S
Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss 26
Júlíus Guðm. - Rafn Kristjánss 254
Sæmundur Björnss. - Olíver Kristóferss. 241
Árangur A-V
Björn E. Pétursson - Gísli Hafliðason 249
Jóhann M. Guðm. - Hjálmar Gíslason 239
Jón Karlsson - Valur Magnúss. 231
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á níu borðum
fimmtudaginn 5. desember sl. Miðl-
ungur 168. Beztum árangri náðu:
NS
Guðm. Guðveigsson og Guðjón Ottósson 212
Unnur Jónsd. og Jónas Jónsson 193
Bragi Bjarnason og Haukur Guðm. 179
AV
Þórarinn Árnas. og Sigtryggur Ellertss. 206
Díana Kristjánsd. og Ari Þórðarson 184
Sigurpáll Árnason og Sig. Gunnlaugss. 178
Þrír spiladagar eru eftir fyrir jól:
mánudagurinn 10.12., fimmtudagur-
inn 12.12. og mánudagurinn 16.12,
sem er síðasti spiladagur í Gull-
smára á þessu ári.
Bridsfélag Reykjavíkur
Þriðjudaginn 3. desember var spil-
að þriðja kvöldið af fjórum í hrað-
sveitakeppni félagsins. Hæstu skor
kvöldsins náðu:
A-riðill
Jónas P. Erlingsson 679
Ferðaskrifstofa Vesturlands 654
Guðmundur Sv. Hermannss. 632
SUBARU-sveitin 623
Íslenskir aðalverktakar 621
B-riðill
Birkir Jónsson 710
Guðmundur Magnússon 636
Björn Friðriksson 630
Sveinn R. Þorvaldsson 620
Guðlaugur Sveinsson 606
Meðalskor var 594
Staða efstu sveita er:
Guðmundur Sv. Hermannsson 1957
Íslenskir aðalverktakar 1946
Jónas P. Erlingsson 1924
Ferðaskrifstofa Vesturlands 1922
Ljósbrá Baldursdóttir 1911
Eitt kvöld er eftir af þessari
keppni og síðasta þriðjudaginn fyrir
jól er Jólasveinatvímenningur.
Minnt er á að allir sem mæta með
jólasveinahúfu og spila með hana
eiga möguleika á rauðvínsverðlaun-
um.
Frekari upplýsingar um félagið er
að finna á heimasíðu félagsins,
www.bridgefelag.is.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is