Morgunblaðið - 08.12.2002, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 08.12.2002, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 51 DAGBÓK „Takk fyrir útspilið, makk- er,“ syngur í huga austurs þegar lauftían kemur út gegn fjórum hjörtum suð- urs: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ Á872 ♥ KD32 ♦ K5 ♣D53 Austur ♠ 53 ♥ 10986 ♦ 742 ♣ÁKG7 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 grand * Pass 2 lauf Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass * 15-17 HP. Austur fær þrjá fyrstu slagina á lauf og allir fylgja lit. Hvernig á austur nú að sýna þakklæti sitt í verki? Punktasamlagning leiðir í ljós að makker á 1-3. Ás get- ur hann ekki átt. Hins vegar gæti hann verið með kóng- inn eða drottninguna í trompi, og austur ætti að gera út á þann möguleika og spila þrettánda laufinu út í þrefalda eyðu: Norður ♠ Á872 ♥ KD32 ♦ K5 ♣D53 Vestur Austur ♠ K94 ♠ 53 ♥ 754 ♥ 10986 ♦ 10963 ♦ 742 ♣1098 ♣ÁKG7 Suður ♠ DG106 ♥ ÁG ♦ ÁDG8 ♣642 Það hefur þau áhrif að trompnía makkers færist öll í aukana. Ef suður stingur hátt, hendir vestur, en trompar ella með níunni og tryggir sér slag á kónginn. Þessi vörn er líka banvæn ef makker á D9x í trompi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 O-O 5. Rge2 d5 6. a3 Be7 7. cxd5 exd5 8. b4 c6 9. Rg3 b5 10. Bd3 a5 11. Hb1 axb4 12. axb4 Ra6 13. Ra2 Rc5 14. dxc5 Hxa2 15. Bb2 Be6 16. Re2 Re4 17. Rd4 Staðan kom upp á þýska meistara- mótinu sem lauk fyrir skömmu. Florian Handke (2504) hafði svart gegn Jan Gustafs- son (2554). 17... Bxc5! 18. bxc5 18. Bxe4 gekk ekki upp vegna 18... Bxb4+. Í framhaldinu reyndist sókn svarts óstöðvandi. 18... Da5+ 19. Kf1 Rd2+ 20. Ke2 Rxb1 21. Dxb1 Da3 22. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Kf3 Hxb2 23. Dc1 Bd7 24. Bf5 Bxf5 25. Rxf5 He8 26. Rd4 Ha2 27. Db1 Hxf2+! 28. Kxf2 Dxe3+ 29. Kf1 Dxd4 30. h4 Ha8 31. Ke2 He8+ 32. Kf1 Ha8 33. Ke2 Dc4+ 34. Kf2 Dxc5+ 35. Kg3 Dd6+ 36. Kf2 Dc5+ 37. Kg3 Ha3+ og hvítur gafst upp. Atkvöld Taflfélags Garða- bæjar fer fram mánudaginn 9. desember. VEÐUR mbl.is STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert vingjarnlegur og vin- sæll og gerir hlutina alltaf af heilum hug. Á komandi ári muntu læra eitthvað mikilvægt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Láttu ekki draga þig inn í samræður sem þú hefur eng- an áhuga á. Þú verður að ýta frá þér fólki sem reynir að koma skoðunum sínum upp á þig. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur sterkar skoðanir í peningamálum og varðandi sameiginlegar eignir. Þú ert ekki tilbúinn til að gefa eftir jafnvel þótt það kosti deilur. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft að takast á við ein- hvern sem reynir að hafa óeðlilega mikil áhrif á þig. Þú verður að standa á rétti þín- um til að gera hlutina eftir þínu eigin höfði. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að sinna viðgerðum og viðhaldi í dag til að koma í veg fyrir skemmdir. Drífðu í því þannig að þú getir snúið þér að öðru. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert að ganga í gegnum rómantískan og ástríðufullan tíma. Njóttu þess en gættu þess um leið að láta ekki ást- ríðurnar ræna þig allri skyn- semi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Bilanir á heimilinu og erfið- leikar í einkalífinu reyna á styrk þinn og staðfestu. Innst inni veistu þó að þú munt ná þér aftur á strik. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gættu þín á vafasömum við- skiptum í dag. Þú ættir að fylgjast vel með eigum þínum og læsa að þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Varastu að eyða peningum í óþarfa í dag. Löngun þín til að eignast hlutina er ekki í neinu samræmi við þarfir þín- ar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þér hættir til stjórnsemi í dag og á sama tíma laðarðu að þér stjórnsamt fólk. Þrjóska get- ur leitt til óþarfrar valdabar- áttu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Láttu ekki aðra stjórna þér með ótta eða hótunum í dag. Gættu þín á vafasömum at- höfnum. Haltu þig í birtunni. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vinur þinn vill endilega gefa þér góð ráð í dag en í raun er ekki um annað en óþarfa af- skiptasemi að ræða. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Gættu þess að andmæla ekki yfirboðara þínum og forðastu öll samskipti við lögreguna. Það er mikil hætta á deilum. Farðu með hægð. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT Á NÓTTU Hver eru ljósin logaskæru, er ég lít um ljóra? munu það blikandi, blíðmálugar, heimasætur himins? Eigi er það; – en annað fegra svífur mér að sjónum: það eru augu unnustu minnar, þau í svartnætti sjást. Jón Thoroddsen. Árnað heilla Ljósmyndaverið Skugginn. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. september sl. í Dómkirkjunni af sr. Pálma Matthíassyni þau Guðríður Anna Kristjánsdóttir og Ómar Björn Hansson. Svipmyndir – Fríður. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 7. september sl. í Grafarvogskirkju af sr. Vig- fúsi Þór Árnasyni þau Hermína Stefánsdóttir og Guðmundur L. Gunnarsson. Heimili þeirra er í Frosta- fold 10, Reykjavík. Svipmyndir – Fríður. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 21. september sl. í Kópavogskirkju af sr. Jóni Helga Þórarinssyni þau Nína Björk Ásbjörnsdóttir og Björn Ágústsson. Heimili þeirra er í Ljósheimum 11. Ljósmyndaverið Skugginn. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. júlí sl. í Háteigs- kirkju af sr. Kjartani Erni Sigurbjörnssyni þau Anna Kristrún Gunnarsdóttir og Styrmir Óskarsson. Með morgunkaffinu Auðvitað veit ég hvað lygamælir er! Ég er giftur einum slíkum. Dettur þér í hug að ég sé að borga þér fjórar og hálfa milljón á ári til að koma með betri hugmyndir en mín- ar? Toppar og skart Bankastræti 11 • sími 551 3930 20% Afsláttur af öllum kvenskóm Desember Dagana 5. - 8. bjó›um vi› 20% afslátt af öllum kvenskóm. tilbo› Opi› í dag sunnud. 13-18 Augustsilk Augustsilk Opið í dag frá kl. 13-18 í Síðumúla 35 – 3. hæð Hvítir síðir silkináttsloppar kr. 6.500 Silkipeysur frá kr. 3.900 Perlusaumaðir silkidúkar kr. 7.900 Pashminur 220x95 cm kr. 14.900 Engin kort - lægra verð  Einstakt verð!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.