Morgunblaðið - 21.03.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kvitta hér, góði, þú verður að afsaka dráttinn, þetta er nú ekki eins og að panta pizzu.
Ráðstefnan „Fólk og ferskvatn“
Á að vekja til
umhugsunar
ÍSLENSKA vatna-fræðinefndin hyggstfjalla um vatn í tilefni
af degi vatnsins á ári fersk-
vatnsins, 22. mars, sem
sagt á morgun. Íslenska
vatnafræðinefndin mun
standa fyrir ýmsum við-
burðum í tilefni af ári
ferskvatnsins og byrjar
það á opnu málþingi fyrir
almenning um ferskvatns-
mál, yfirskriftin er „Fólk
og ferskvatn“, í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur á
morgun frá klukkan 11 til
17. Kristinn Einarsson
vatnafræðingur hjá Orku-
stofnun er í forsvari fyrir
ráðstefnuna.
– Hvert verður skipulag
ráðstefnunnar?
„Yfirskriftin er Fólk og
ferskvatn og við skiptum dag-
skránni í þrjá hluta. Fyrir hádeg-
ið verður farið yfir stöðu fersk-
vatnsmála erlendis, milli hádegis
og kaffis verður farið yfir stöðu
þeirra mála á Íslandi og eftir
kaffitímann síðdegis verður skoð-
uð framtíðarsýn í ferskvatnsmál-
um jafnt innanlands sem utan.
Ráðstefnan er í Tjarnarsalnum,
en í hliðarsal verður veggspjalda-
og tækjasýning og fræðsluefni
tengt vatni á tölvuskjám. Ein-
hverjar veitingar við hæfi verða
líka fyrir börnin, en aðgangur er
ókeypis.“
– Hvers vegna þessi dagur?
„Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna ákvað fyrir þremur ár-
um að árið 2003 skyldi vera Ár
ferskvatnsins, á sama hátt og árið
2002 var Ár fjallsins. Þetta er
gert til að vekja almenning og
stjórnvöld til umhugsunar og við-
eigandi aðgerða í tilefni af sífellt
meiri skorti á hreinu ferskvatni
handa mannkyni, svo sem til
neyslu, áveitna, landbúnaðar og
iðnaðar. Í framhaldi af umhverf-
is- og þróunarráðstefnunni í Ríó
de Janeiro 1992 ákvað Allsherj-
arþingið að útnefna 22. mars ár-
lega sem dag vatnsins, á sömu
forsendum. En í ljósi reynslunn-
ar þótti ekki nóg að gert, og því
er efnt til Árs ferskvatnsins nú.“
– Hvað er Íslenska vatnafræði-
nefndin?
„Íslenska vatnafræðinefndin
er skipuð af menntamálaráðherra
og fer með alþjóðasamstarf í
vatnafræði innan ramma
UNESCO, Menningar- og vís-
indastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Það innifelur bæði alþjóð-
legt vísindasamstarf og
upplýsingagjöf til stjórnvalda og
almennings um mikilvægi þess að
varðveita auðlindir vatnsins. Hún
er skipuð níu fulltrúum frá bæði
samtökum og stofnunum sem
koma að vatnamálum. Formaður
er Árni Snorrason forstöðumaður
Vatnamælinga og skrifstofa
nefndarinnar er á Orkustofnun.“
– Fyrir hvaða viðburðum
stendur nefndin bæði í dag og á
árinu?
„Á Degi vatnsins á
morgun ætlum við að
hafa ráðstefnu fyrir al-
menning um fersk-
vatnsmál og með
haustinu eru uppi hug-
myndir um ráðstefnu fyrir sér-
fræðinga, stjórnendur og tækni-
menn um vatnarannsóknir á
Íslandi. Þar höfum við jafnframt
hugsað okkur að hlusta á fulltrúa
ungu kynslóðarinnar, sem við
veljum væntanlega í kjölfarið á
ritgerðasamkeppni í grunnskól-
um Reykjavíkur. Við höfum einn-
ig hugleitt að standa að gerð
sjónvarps- og fræðslumyndar um
auðlindir vatnsins, en of snemmt
er að segja til um hvort af því geti
orðið, þar gæti fjárskortur staðið
í veginum. Og síðast en ekki síst
höfum við komið okkur upp
heimasíðu, www.vatn.is/ivan.“
–Hverjar eru helstu áherslur
og markmið ráðstefnunnar á
morgun?
„Við leggjum mesta áherslu á
að auka áhuga almennings á
ferskvatni og koma því á fram-
færi hvað sé til bóta í umgengni
um vatnsauðlindina. Til þess þarf
aukna umræðu sem verður að
grundvallast á góðum upplýsing-
um, og því er markmiðið að ráð-
stefnan verði í senn fræðandi og
vekjandi. Þótt vatnsmagn sem er
til reiðu og ástand vatns sé í góðu
horfi á Íslandi, þá er nauðsynlegt
að halda vöku sinni, því vatnsauð-
lindin er viðkvæm fyrir mengun
og að vissu leyti berskjaldaðri
hér en erlendis.“
–Hverjir taka til máls?
„Fyrir hádegið ræða þau Haf-
steinn Helgason, Birgir Jónsson,
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
Jónas Þórir Jónsson og Ingibjörg
E. Björnsdóttir um stöðu fersk-
vatnsmála erlendis frá hinum
ýmsu hliðum, frá vatnsauðlindum
heimsins til hjálparstarfa í þró-
unarlöndum.
Milli hádegis og kaffis eru með
erindi þau Sigurður S. Snorra-
son, Hrefna Kristmannsdóttir,
Hákon Aðalsteinsson, Freysteinn
Sigurðsson, Birgir Þórðarson og
Ingólfur Gissurarson.
Efnið er staða fersk-
vatnsmála á Íslandi,
svo sem vatn sem auð-
lind, fráveitur, vatns-
orkunýting, neyslu-
vatn, efnabúskapur og líf í vatni.
Síðdegis fjalla svo Geir Odds-
son, Davíð Scheving Thorsteins-
son, Haraldur Briem, Trausti
Valsson og Tómas Jóhannesson
um framtíðarsýn í ferskvatns-
málum innanlands og utan, frá
útflutningi á vatni, stjórnun og
nýtingu vatnsauðlindarinnar og
yfir í viðbragðsáætlanir og áhrif
veðurfarsbreytinga.“
Kristinn Einarsson
Kristinn Einarsson er fæddur í
Reykjavík 15. júlí 1948. Nam
jarðfræði og eðlisræna landa-
fræði við háskólana í Leníngrad
og Kaupmannahöfn með sérhæf-
ingu í vatnafræði. Hóf störf hjá
Orkustofnun 1978 og er nú yf-
irverkefnisstjóri á Vatnamæl-
ingum. Jafnframt ritari Íslensku
vatnafræðinefndarinnar. Maki er
Margrét Hallsdóttir jarðfræð-
ingur hjá NFÍ og eiga þau dæt-
urnar Bjarnheiði verkfræðinema
og Líneyju Höllu mennta-
skólanema. Hann á og soninn
Baldur af fyrra hjónabandi.
Vatnsauðlind-
in er viðkvæm
fyrir mengun