Morgunblaðið - 21.03.2003, Page 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
26 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
Lutein eyes
Öflugt bætiefni fyrir sjónina
PÓSTSENDUM
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
HUGMYNDIR eru um að rífa stíflu-
og vatnstökumannvirki í Úlfarsá sem
staðsett eru við Keldnaholt og Hafra-
vatn. Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar
og Veiðimálastofnun eru jákvæð í
garð hugmyndanna enda telur sú síð-
arnefnda að niðurrif mannvirkjanna
verði til hagsbóta fyrir búsvæði lax-
fiska, veiði og umhverfi árinnar. For-
stöðumaður Verkfræðistofu Reykja-
víkurborgar bendir hins vegar á að
stíflurif muni valda því að vatnsbakki
Hafravatns færist talsvert frá sum-
arhúsum þar í kring og leggur til að
málið verði skoðað betur.
Um er að ræða stíflu og inntak við
Keldnaholt og stíflu við útrás Hafra-
vatns en umsögn forstöðumannsins
var lögð fram á fundi umhverfis- og
heilbrigðisnefndar Reykjavíkur sl.
fimmtudag. Kemur þar fram að mál-
ið hafi verið kynnt Fiskræktar- og
veiðifélagi Úlfarsár og Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins (RALA) auk
Veiðimálastofnunar og Mosfellsbæj-
ar.
Umtalsverð umhverfisáhrif
Sem fyrr segir eru tveir síðast-
töldu aðilarnir jákvæðir í garð þess
að inntaksmannvirki og stíflur verði
rifnar en umhverfisnefnd Mosfells-
bæjar taldi þó þörf á að kanna áhrif
breytinganna á lífríki Úlfarsár og
Hafravatns nánar áður en endanleg
afstaða verður tekin til málsins. Þá
óskaði framkvæmdastjóri RALA eft-
ir því að athugað yrði með vatnstöku
vegna starfsemi stofnunarinnar í
tengslum við rif mannvirkjanna.
Segir í umsögn forstöðumanns
Verkfræðistofu að við frekari skoðun
hafi komið í ljós að stíflurif á báðum
stöðum muni hafa umtalsverð um-
hverfisáhrif og þannig sé ljóst að
vatnsbakki Hafravatns muni færast
talsvert frá sumarhúsum þar í kring
því vatnið sé mjög grunnt upp við
land. Þá sé uppistaðan við Keldna-
holt talin skipta máli fyrir göngu lax-
ins upp ána.
Leggur hann til að inntaksmann-
virki við Keldnaholt verði fjarlægt en
að öðru leyti verði málið skoðað bet-
ur áður en ráðist verði í niðurrif
stíflnanna tveggja. Samþykkti Um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur að óska eftir áframhaldandi
könnun á þeim kostum, sem fyrir
hendi eru.
Stíflur í Úlfarsá verði rifnar
Reykjavík/Mosfellsbær
Ljóst er að með því að rífa stíflur við Hafravatn og Keldnaholt í Úlfarsá
muni vatnsbakki Hafravatns fjarlægjast sumarhúsin þar í grennd.
Hér er horft til austurs yfir Grafarholt en efst á myndinni er Hafravatn,
Reynisvatn er til hægri og Úlfarsá liggur til vinstri.
ÞAÐ var mikil krakkafjöld sam-
ankomin á Garðatorgi í gær þegar
setningarathöfn Listadaga barna
fór fram enda full ástæða til þar
sem næstu fjórir dagar verða
helgaðir listsköpun barna og ung-
linga í sveitarfélaginu.
Allir grunnskólar og leikskólar
bæjarins, Fjölbrautaskólinn í
Garðabæ auk Tónlistarskólans og
annarra stofnana taka þátt í hátíð-
inni. Það var Ásdís Halla Braga-
dóttir bæjarstjóri sem setti hátíð-
ina en eftir það mátti sjá og heyra
brot af því besta í listum barnanna
auk þess sem fjöldi sýninga á
verkum þeirra var opnaður.
Morgunblaðið/Sverrir
Krakka-
fjöld á
listahátíð
Garðabær
SÍÐUSTU daga hafa nokkrir bíl-
skúrar á Seltjarnarnesinu verið
troðfullir af ótrúlegasta dóti. Meðal
þess sem þar er að finna eru bækur,
skart, púðar, föt, rammar, klukkur,
blaðagrindur, kommóða, fatahengi,
pels, DVD-mynddiskur, útskorin
glös og svo mætti lengi telja. Eftir
morgundaginn má þó búast við því
að skúrarnir verði orðnir tómir á
ný því til stendur að selja alla þessa
hluti á risaflóamarkaði á Eiðistorgi
á morgun til fjáröflunar fyrir 5.
flokk Gróttu í handbolta.
Það eru hvorki meira né minna
en 65 strákar og stelpur á aldrinum
12–13 ára sem hafa unnið hörðum
höndum að því síðastliðna mánuði
að safna dótinu saman en ætlunin
er að nota ágóðann af sölunni til að
fara í keppnisferð til Svíþjóðar í lok
júní næstkomandi.
Meðal þeirra sem hafa ekki látið
sitt eftir liggja í söfnuninni eru vin-
konurnar Helga Benediktsdóttir,
Dagmar Magnadóttir, Vigdís Ingi-
björg Pálsdóttir, Berglind Gunn-
arsdóttir og Ólöf Sara Gregory.
Þær tvær síðastnefndu féllust á að
segja blaðamanni svolítið frá uppá-
tækinu. „Það eru mömmur úr
Gróttu og fullt af fólki sem skipu-
leggja þetta,“ segja þær þegar þær
eru inntar eftir því hver hafi komið
flóamarkaðssöfnuninni af stað.
Enda segja þær foreldra krakk-
anna hafa verið meira en liðlega við
að ljá þeim geymslupláss undir allt
dótaríið.
Bubbi og Jóhann Örn troða upp
Aðrir foreldrar ætla að leggja
málstaðnum lið með annars konar
hætti á sjálfum flóamarkaðsdeg-
inum. „Bubbi Morthens ætlar að
syngja og Jóhann Örn verður með
línudans,“ segir Ólöf og þær stöllur
upplýsa að báðir listamennirnir eigi
krakka í hópnum. Flóamarkaðinum
sjálfum verður komið fyrir á opna
svæðinu á Eiðistorgi og eiga vin-
konurnar von á að á morgun verði
rýmið meira og minna undirlagt
undir herlegheitin.
Þær segjast vonast til að ná að
safna 70–80 þúsundum króna á
flóamarkaðinum og ætti ekki að
verða skotaskuld úr því miðað við
öll ósköpin sem verða þar til sölu.
„Við höfum fengið allskonar dót,“
segir Berglind, „dúka, föt, bækur,
skart og allt mögulegt. Meira að
segja fengum við einhverjar regn-
hlífar sem á að hengja upp á vegg.“
Eftir nánari umhugsun verða
vinkonurnar þó sammála um að það
allra undarlegasta hljóti þó að vera
gylltir og silfurlitaðir tannburstar
sem voru gefnir á flóamarkaðinn.
„En þeir eru ónotaðir,“ taka þær
fram að lokum.
Tann-
burstar
og troðnir
bílskúrar
Morgunblaðið/Jim Smart
Ryksugur og skíðaskór: Vinkonurnar Vigdís Ingibjörg, með systur sína Ingu Þóru í fanginu, Dagmar, Berglind,
Ólöf og Helga með hluta af því góssi sem verður til sölu á Eiðistorgi á morgun.
Seltjarnarnes
Sextíu og fimm krakkar halda risaflóamarkað á Eiðistorgi á morgun
Á MILLI 80 og 90 manns komu sam-
an á íbúaþingi í Bessastaðahreppi
sem haldið var í Álftanesskóla á laug-
ardag. Þingið var hið fyrsta sinnar
tegundar sem haldið er í hreppnum.
Kjörorð íbúaþingsins voru Horfum
til framtíðar – mótum hreppinn okkar
saman. Unnið var með fjóra megin-
þætti en þeir voru skólamál, fjöl-
skyldumál, umhverfismál og útivist
og loks menningarmál og ferðaþjón-
usta. Var þátttakendum skipt í átta
vinnuhópa sem mótuðu stefnu varð-
andi ofangreind málefni.
Að sögn Gunnars Vals Gíslasonar
sveitarstjóra munu niðurstöður
þingsins nýtast hreppnum við áætl-
anagerð og stefnumótun í framtíð-
inni. „Við erum að móta skólastefnu
og fjölskyldustefnu þannig að við
fáum góðar upplýsingar inn í þá mála-
flokka báða. Svo erum við að fara af
stað með endurskoðun aðalskipulags
auk þess sem menn eru að vinna að
undirbúningi menningarhúss og þar
höfum við fengið gott efni líka.“
Opinn kynningarfundur um niður-
stöður íbúaþingsins verður haldinn í
hátíðarsal íþróttahússins þriðjudag-
inn 25. mars nk. kl. 20:30.
Vel sótt íbúaþing
Bessastaðahreppur
Unnið var í átta vinnuhópum á þinginu.
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.