Morgunblaðið - 21.03.2003, Síða 28
SUÐURNES
28 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Inflúensa
meðal
nemenda
í rénun
Ástandið
ennþá slæmt –
einn nemandi í
6. bekk í Holta-
skóla frískur
INFLÚENSA, sem herjað hef-
ur á nemendur í Reykjanesbæ
sem og annars staðar á landinu
og raunar fólk um allt land, virð-
ist vera í rénun ef marka má
fjölda þeirra barna sem hafa til-
kynnt sig veik í skólum í
Reykjanesbæ undanfarna daga.
Í fyrradag var þriðjungur
barna í Holtaskóla frá vegna
veikinda, samtals 151 barn, en
Jónína Guðmundsdóttir skóla-
stjóri segir að þau hafi verið eitt-
hvað færri sem voru veik í gær.
Þau voru samt yfir hundrað. Í
einum 6. bekk skólans var t.a.m.
aðeins einn nemdandi mættur.
Sagði hún það til marks um
hvernig inflúensan hegðaði sér,
heilu bekkirnir legðust í veik-
indi.
Björn Víkingur Skúlason, að-
stoðarskólastjóri í Heiðarskóla,
sagði um 15–20% nemenda hafa
verið veik að undanförnu, sam-
tals á bilinu 60–100 manns.
Hann sagði að kennarar hefðu
margir hverjir einnig nælt sér í
pestina en útlit væri fyrir að
veikindi væru í rénun.
Vilhjálmur Ketilsson, skóla-
stjóri Myllubakkaskóla, sagði
ástandið eðlilegt í skólanum.
Inflúensan hefði stungið sé nið-
ur fyrir helgi og 50–70 börn
hefðu lagst í veikindi þá. Nú
væri hins vegar að draga úr
veikindum. Um 390 nemendur
eru í skólanum.
Þær upplýsingar fengust í
Njarðvíkurskóla að inflúensan
væri í rénun. Í gær voru 76 nem-
endur skráðir veikir af 413 nem-
endum.
Biðtíminn hefyr styst
Að sögn Sigurðar Árnasonar,
yfirlæknis heilsugæslunnar hjá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
er von til þess að hámarki inflú-
ensufaraldursins sé náð.
„En það er náttúrulega fleira
en inflúensa í gangi, þetta er hið
klassíska sýkingatímabil með
hvers kyns veirusýkingum.“
Sigurður sagði að fjöldi
manns hafi leitað sér aðhlynn-
ingar á heilsugæslunni undan-
farið en nú væri heldur að draga
úr tilfellum.
Hann segir að þó nokkur
lungnabólgutilfelli hafi komið
upp í kjölfar inflúensu, einkum
hjá ungum börnum, 6 mánaða
og upp í tíu ára aldurinn.
Spurður hvernig hafi gengið
að sinna þeim sem leita sér að-
stoðar í ljósi læknaskorts hjá
Heilbrigðisstofnuninni segir
Sigurður að þörf hafi verið á að
endurskipuleggja starfsemina
til að mæta álaginu og færa
verkefni til milli ólíkra lækna.
„Við höfum sinnt bráðatilfell-
um og ég fullyrði að bráðatilfell-
um hefur verið sinnt vel. Ókost-
urinn er sá að fólk hefur þurft að
bíða lengi en biðin hefur samt
styst.“
Undanfarnar tvær vikur hef-
ur Heilbrigðisstofnunin verið
með aðstoðarlæknamóttökur,
allt frá tveimur og upp í fjórar á
dag. Þær eru mannaðar af
læknanemum á 5. og 6. ári og
hafa sinnt tilfellum sem ekki
hafa endilega flokkast sem
bráðatilfelli.
Reykjanesbær
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
er að skoða hvort unnt sé að finna
bráðabirgðalausn á vanda heilsu-
gæslunnar á Suðurnesjum. Í því
felst að ráðuneytið ætlar að reyna
að aðstoða Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja við að manna heilsugæsl-
una. Einn heilsugæslulæknir er
sem stendur að störfum á stofn-
uninni en ítrekað hefur verið aug-
lýst eftir heilsugæslulæknum og
viðbrögðin engin verið.
Skýrist vonandi næstu daga
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra átti í gær fund með fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðisstofnun-
ar Suðurnesja og öðrum
yfirmönnum stofnunarinnar þar
sem rætt var um bráðavanda
heilsugæslunnar og framtíðarupp-
byggingu heilbrigðisþjónustu á
svæðinu.
„Við erum að skoða hérna í
ráðuneytinu hvort við getum hjálp-
að eitthvað til við að manna heilsu-
gæsluna. Við erum ekki búin að
leysa þessa mönnun en við erum
að skoða það. Ég vonast til að það
skýrist á næstu dögum,“ sagði ráð-
herra.
Hann segir að ráðuneytið hafi
stutt hugmyndir Heilbrigðisstofn-
unarinnar um að efla sérfræði-
þjónustu. Hins vegar verði heilsu-
gæslan áfram grunnþjónustan á
svæðinu sem byggir á svipuðu lík-
ani og tíðkast hefur víða á lands-
byggðinni. Einboðið sé að gott
samstarf verði á milli heilsugæslu
og sjúkrahúss. Hann segir það alls
ekki viðunandi að einn heilsu-
gæslulæknir sé að störfum á
17.000 manna íbúasvæði.
Ráðuneytið muni reyna að
hjálpa til við að bæta úr því
ástandi, ef ekki með fastráðning-
um til langs tíma þá til einhvers
tíma meðan menn séu að ná áttum.
Fjárhagsvandi til athugunar
Jón segir að ráðuneytið hafi haft
til meðferðar fjárhagsvanda stofn-
unarinnar. „Þarna hefur verið fjár-
hagsvandi á undanförnum árum og
við þurfum á einhverju stigi að
fást við það mál. Við erum að und-
irbúa fjárlagagerð fyrir næsta ár
og munum taka tillit til þeirra
mála í því efni.“ Hann segir að
kappkostað verði að leysa bráða-
vanda heilsugæslunnar, þ.e.
læknaskort, svo menn fái tóm til
að móta framtíðarstefnu stofnun-
arinnar í heild.
Sigríður Snæbjörnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri HSS, sagðist sjálf
hafa óljósar hugmyndir um þær
viðræður sem væru í gangi milli
ráðuneytisins og einhverra aðila.
„Ég sjálf hef mjög litlar upplýs-
ingar.“
Hún sagði að heilsugæslan væri
að reyna að gera sitt besta við erf-
iðar aðstæður. Meðal annars hefðu
nemar á 5. og 6. ári í læknisfræði
unnið á stofnuninni að undanförnu
undir eftirliti og hefði það gefist
vel.
„Ég vonast til þess að þetta
unga fólk muni jafnvel verða hjá
okkur eitthvað áfram,“ segir hún.
Ráðuneytið athugar hvort unnt sé að
finna bráðabirgðalausn á læknaskorti
Ætla að reyna að
aðstoða við ráðn-
ingar á læknum
Reykjanesbær
ÞAÐ er alltaf gaman að sjá fram-
farirnar hjá krökkunum í 7. bekk
Grunnskólans í Grindavík í upp-
lestri þegar þau eru að æfa sig fyr-
ir stóru upplestrarkeppnina. Flest-
ir nemendur bekkjanna byrja
keppnina en síðan er hópurinn
skorinn niður og svo aftur þannig
að í úrslitakeppninni taka þátt tíu
bestu upplesararnir. Óhætt er að
segja að upplestrarkeppnin í fyrra-
dag hafi verið jöfn en eins og æv-
inlega eru einhverjir aðeins betri
en aðrir. Sú sem sigraði heitir Sól-
veig Dögg Birgisdóttir og fékk að
launum 15 þúsund kr. frá spari-
sjóðnum og bókina Þjóðsögur við
sjó frá Eddu – Miðlun, reyndar
fengu allir tíu efstu bókina frá
bókaútgefandanum. Sólveig Dröfn
Jónsdóttir hafnaði í öðru sæti og
fékk auk bókar inneign í spari-
sjóðnum upp á 10.000 kr. og í
þriðja sæti varð Jón Ágúst Eyjólfs-
son en hann fékk 5.000 kr. frá
sparisjóðnum.
„Krakkarnir búnir að standa sig
vel, mikill undirbúningur og æf-
ingar. Það er mjög skemmtileg
hefð hjá okkur í undirbúningi þess-
arar keppni en það er að krakk-
arnir lesa fyrir yngri nemendur
kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum.
Ég er mjög ánægð með hvernig til
tókst og ekki skemmdu tónlistar-
atriðin frá Tónlistarskóla Grinda-
víkur fyrir,“sagði Valdís Krist-
insdóttir, deildarstjóri 5.-7.bekkar.
Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson
Krakkarnir sem höfnuðu í tíu efstu sætunum í upplestrarkeppninni.
Stóra upplestrarkeppnin
Grindavík
AKUREYRI
Skákþing Norðlendinga í yngri
flokkum hefst á morgun, laugardag-
inn 22. mars, kl. 13.30. Teflt verður í
Brekkuskóla og verður teflt í
stúlknaflokki, unglingaflokki, 13 til
16 ára, drengjaflokki, 10 til 12 ára,
og að lokum í barnaflokki. Á sunnu-
dag hefst taflið kl. 13 og verður þá
aðalmótið klárað og að því loknu
hefst hraðskákmót.
Á MORGUN
KJARNAFÆÐI og Norðlenska, tvö
stærstu kjötvinnslufyrirtækin í
Eyjafirði, kanna nú möguleika á að
stofna sameiginlegt félag um kaup á
þrotabúi Íslandsfugls. Félagið, sem
varð gjaldþrota í liðinni viku, hefur
verið starfandi í Dalvíkurbyggð um
tveggja ára skeið.
„Við erum að skoða þetta, en ætl-
um okkar að stíga hægt til jarðar,
eins og staðan er nú er ekki grund-
völlur fyrir því að framleiða fugl fyr-
ir kostnaði,“ sagði Sigmundur
Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norð-
lenska.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna áttu
fund með starfsfólki Íslandsfugls
þar sem staðan var kynnt, en Sig-
mundur sagði að verið væri að kanna
möguleika á endurreisn fyrirtækis-
ins.
Hann sagði að ef niðurstaðan yrði
sú að félagið yrði selt í bútum væri
það glatað. Sigmundur sagði að til að
fyrirtækið bæri sig þyrfti það að
stækka og framleiðslan að aukast,
„og við erum að skoða hvaða leiðir
eru færar í þeim efnum“. Sigmundur
sagði að málin myndu skýrast eftir
einhverja daga eða í byrjun apríl.
Ólafur Rúnar Ólafsson skipta-
stjóri sagði að búið væri að tryggja
að varphænustofninum yrði ekki
slátrað, en í honum fælust mikil
verðmæti fyrir félagið. Hins vegar á
ekki að klekja út ungum fyrst um
sinn.
„Það er enn unnið að því að skoða
forsendur fyrir rekstri kjúklingabús
á Dalvík, en niðurstaða er ekki feng-
in í málinu,“ sagði Ólafur Rúnar.
Hann sagði einnig unnið að því að
bjarga verðmætum og er nú unnið
að því að pakka fugli sem til var hjá
fyrirtækinu í neytendapakkningar.
Þá er fyrirhugað að slátra með
venjubundnum hætti í byrjun næstu
viku.
Ólafur Rúnar sagði að starfsfólk
Íslandsfugls hefði sýnt óvissu-
ástandi sem ríkt hefði síðustu daga
mikinn skilning og það verið tilbúið
að leggja mikið á sig til að bjarga
verðmætum. „Það er mikill styrkur
fyrir Íslandsfugl hvað félagið hefur
gott starfsfólk.“
Kjarnafæði og Norðlenska
Kanna kaup
á þrotabúi
Íslandsfugls
MIKILL áhugi er fyrir íbúðum sem
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti á
Akureyri hyggst selja í Nausta-
hverfi. Að sögn Heimis Ingimars-
sonar, framkvæmdastjóra Búseta,
hefur félagið verið að byggja að
meðaltali 20 íbúðir á ári undanfarin
þrjú ár og er stefnt að því að halda
áfram á sömu braut. Búseti auglýsti
á dögunum eftir umsóknum vegna
20 íbúða í Naustahverfi, sem ætl-
unin er að afhenda á næsta ári og
bárust alls 42 umsóknir. Heimir
sagði að félagið hefði verið að kanna
viðhorf fólks til væntanlegra fram-
kvæmda. „Við höfum ekki trygga
fjármögnun á öllu því sem við viljum
byggja en væntum þess að fá fjár-
magn hjá Íbúðalánasjóði til fram-
kvæmdanna. Áhuginn er fyrir
hendi, eða um tvær umsóknir á
hverja íbúð. Þessi áhugi er í sam-
ræmi við reynslu undanfarinma ára.
Þegar við auglýstum 20 íbúðir í
Klettaborg fengum við um 50 um-
sóknir, þannig að þetta virðist vera
viðvarandi ástand hér.“
Heimir sagði að þessi mikla eft-
irspurn bæri jafnframt með sér að
ekki væri um að ræða offramboð á
leigumarkaðnum í bænum. Búseti
afhenti fyrstu fjórar íbúðirnar af 20 í
Klettaborg um síðustu mánaðamót
og eru þær allar fimm herbergja.
Heimir sagði að fjórar íbúðir yrðu
afhentar þar um hver mánaðamót
fram til mánaðamótanna júní/júlí.
Byggingafyrirtækið Hyrna byggir
íbúðirnar í Klettaborg og sagði
Heimir að félagið fengi íbúðirnar á
mjög hagstæðu verði. Í hverju húsi
eru fjórar íbúðir og eru þær mjög
mismunandi að stærð, eða frá
tveggja til fimm herbergja. Heimir
sagði að félagið legði áherslu á að
haga gerð og stærð íbúða sinna með
tilliti til þeirra óska sem fram komi í
umsóknum félagsmanna.
Búseti hefur lýst yfir áhuga á
svæði undir alls 100 íbúðir í Nausta-
hverfi á næstu árum. Heimir sagði
að bæjaryfirvöld hefðu lýst því yfir
að hugmyndir félagsins yrðu teknar
til umfjöllunar við skipulag næsta
svæðis þar. Búseti mun afhenda 100.
íbúðina á Akureyri nú í vor.
Mikill áhugi á
íbúðum Búseta
Morgunblaðið/Kristján
Byggingafyrirtækið Hyrna er að byggja 20 íbúðir í Klettaborg fyrir Búseta
og voru 4 fyrstu íbúðirnar afhentar um síðustu mánaðamót. Félagið hyggst
einnig byggja 20 íbúðir í Naustahverfi sem verði tilbúnar á næsta ári.