Morgunblaðið - 21.03.2003, Síða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 53
PATRICK Vieira, fyrirliði Arsenal, segir að
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, þori ekki
að taka af alvöru á kynþáttafordómum sem fari
stöðugt vaxandi í leikjum á meginlandi Evrópu.
Vieira varð sjálfur fyrir barðinu á áhorfendum í
Valencia á Spáni í fyrrakvöld ásamt fleiri sam-
herjum sínum sem eru svartir á hörund, svo sem
Thierry Henry, Lauren og Gilberto Silva. Ýmiss
konar hlutum var kastað að þeim þegar þeir tóku
hornspyrnur og innköst og ókvæðisorðin dundu á
þeim.
„Þetta er eintómt yfirskin. Þeir hjá UEFA segj-
ast ætla að gera eitthvað í þessu vandamáli en það
eina sem þeir gera er að sekta viðkomandi félög
um 2 til 3 þúsund pund (um 300 þúsund krónur),
sem eru smáaurar hjá þessum félögum. Það verða
engar úrbætur á meðan UEFA bregst ekki betur
við en þetta,“ sagði Vieira.
John Carew, norska blökkumanninum í liði Val-
encia, var nóg boðið vegna framkomu áhorfenda
svo hann gekk til Vieira og Henry og baðst afsök-
unar fyrir hönd síns liðs. „Patrick var ævareiður
vegna þess sem þarna gekk á, og ég var það líka.
Ég fór til hans og Thierrys, sem báðir eru góðir
vinir mínir, og bað þá afsökunar. Vandamálið er
að ég get ekkert gert frekar en vonbrigði mín eru
jafnmikil og þeirra,“ sagði Carew við Evening
Standard. Hann hefur sjálfur mátt þola svipaða
framkomu, meðal annars þegar hann lék með
norska landsliðinu gegn Rúmenum í Búkarest.
Mike Lee, talsmaður UEFA, sagði við Sky
Sports að sambandið skoðaði leikskýrslur og önn-
ur gögn vandlega. „En það er sérlega nauðsynlegt
að þeir leikmenn, sem verða fyrir slíkum ofsókn-
um, tilkynni það beint til UEFA en tali ekki bara
við fjölmiðla um vandamálið,“ sagði Mike Lee.
Vieira óhress með UEFA
vegna kynþáttafordóma
Patrick Vieira
ORRI Freyr Hjaltalín,
knattspyrnumaður frá
Akureyri, er kominn með
leikheimild með Þórsurum
á nýjan leik en hann fór til
Tromsö í ágúst á síðasta
ári. Hann hefur jafnframt
gert tveggja ára samning
við Akureyrarfélagið, sem
féll úr úrvalsdeildinni síð-
asta haust. Orri er því lög-
legur með Þór gegn KR en
félögin mætast í deildabik-
arnum í Egilshöllinni í
kvöld.
Orri var leigður til
Tromsö til að byrja með og
síðan festi norska félagið,
sem vann sig upp í úrvals-
deild síðasta haust, kaup á
honum. Orri lék þó aðeins
fjóra leiki með Tromsö eftir
komuna þangað en hann
veiktist, lunga féll saman,
og það sama gerðist í vetur.
Úr varð að hann fór ekki
aftur til Noregs eftir ára-
mótin og Þór og Tromsö
hafa gengið frá samkomu-
lagi um skipti hans til baka
í Þór.
Orri er 22 ára sóknar-
maður og skoraði 4 mörk í
12 leikjum með Þór í úr-
valsdeildinni í fyrra. Á
næstu tveimur árum þar á
undan gerði hann 36 deilda-
mörk fyrir Akureyrarliðið
og tók þátt í sigrum þess í 2.
og 1. deild tvö ár í röð.
Orri löglegur með
Þórsurum á ný
RÚNAR Alexandersson og Dýri
Kristjánsson, fyrrverandi Íslands-
meistarar í fimleikum, taka ekki þátt
í Íslandsmeistaramótinu sem hefst í
Laugardalshöllinni í kvöld og stend-
ur yfir um helgina. Rúnar tekur þátt
í heimsbikarmóti í Þýskalandi og
Dýri keppir á móti í Bandaríkjunum.
LÁRA Hrund Bjargardóttir,
sundkona úr Hafnarfirði, verður
ekki á meðal keppenda á meistara-
mótinu í Eyjum, þar sem hún er við
æfingar og nám í Bandaríkjunum.
GUNNAR Pettersen, þjálfari
karlalandsliðs Noregs í handknatt-
leik, er mjög ósáttur við þróunina hjá
bestu félagsliðum Noregs, sem leyfa
jafnan bestu leikmönnum sínum að
æfa minna en samherjar þeirra í lið-
unum gera. Sex leikmenn hjá Runar,
einu besta liða Noregs, þurfa ekki að
mæta á allar æfingar og þannig er
þetta hjá fleiri norskum liðum, bæði í
karla- og kvennaflokki.
PETTERSEN segir að með þessu
sé ungum leikmönnum gefið slæmt
fordæmi. „Þegar ég verð betri, þarf
ég ekki að æfa svona mikið,“ eru
skilaboðin sem þeir fá, að mati lands-
liðsþjálfarans, sem vill að norsk
handknattleiksyfirvöld geri eitthvað
í málinu. „Félög sem leyfa mönnum
að slaka á við æfingar, grafa sína eig-
in gröf,“ segir Pettersen.
RUUD Gullit, fyrrum knatt-
spyrnustjóri Newcastle og Chelsea,
hefur tekið við stjórn 20-ára landsliði
Hollands sem býr sig undir heims-
meistarakeppni í þeim aldursflokki á
sínum heimavelli eftir tvö ár. Gullit
hefur ekki starfað við knattspyrnu
síðan hann hætti hjá Newcastle fyrir
þremur árum.
FIMM af stærri félagsliðum Evr-
ópu hafa neitað leikmönnum sínum
um frí til þess að taka þátt í heims-
álfukeppni Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, í ágúst. Félögin
sem um er að ræða eru Bayern
München, Manchester United, AC
Milan, Real Madrid og Ajax. Sepp
Blatter, forseti FIFA, er afar óhress
með ákvörðun félaganna. Segir hann
ákvörðun um mótið hafa verið tekna
fyrir hálfu þriðja ári og því sem sé
óskiljanlegt að mótmæli við keppn-
inni væru að koma fram núna.
BRIAN McBride leikur ekki meira
með Everton á leiktíðinni en hann
hefur verið í láni hjá félaginu sl. þrjá
mánuði frá bandaríska félaginu Col-
umbus Crew. Lánssamningurinn við
Columbus Crew er runninn út og
vilja forráðamenn félagsins ekki
framlengja samninginn við Everton
þar sem bandaríska deildarkeppnin
hefst í næsta mánuði og félagið þarf
á kröftum McBride að halda.
McBride lék vel þann tíma sem hann
var með Everton, skoraði fjögur
mörk í átta leikjum.
FÓLK
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir er
sögð vera í góðri æfingu og mun ef-
laust synda nærri meti sínu í 200
metra fjórsundi í miklu formi og mun
eflaust höggva nærri meti sínu í 50
metra flugsundi auk þess sem hún
ætlar að reyna við Íslandsmet Elínar
Sigurðardóttur í 50 metra skrið-
sundi. Þá má einnig búast við að hún
freisti þessa að sækja að 16 ára
gömlu meti Bryndísar Ólafsdóttur í
100 m skriðsundi. „Kolbrún er sögð í
mjög góðri æfingu og ég bíð spennt-
ur eftir að sjá hvernig henni tekst
upp,“ sagði Steindór.
Búast má við mikilli keppni í 200
metra fjórsundi karla og er þetta
trúlega öflugasta keppnin í þessari
grein í áraraðir því þar keppa meðal
annars Örn, Ómar Snævar Friðriks-
son, SH, Jakob Jóhann Sveinsson,
Ægi, ásamt Núma Snæ Gunnars-
syni, Ægi. Á morgun verða einnig
Keppendur á mótinu eru 130 ogkoma þeir frá 16 félögum og
eru skráningar um 600 talsins, þar af
um 60 í boðsundum. Íslandsmeist-
aratitlarnir sem keppt er um eru
fjörutíu talsins og verður hart barist
um þá flesta ef ekki alla enda er allt
besta sundfólk landsins mætt til
leiks, nema Lára Hrund Bjargar-
dóttir.
Að loknu mótinu verður landsliðið,
sem keppir á Smáþjóðaleikunum á
Möltu í vor, tilkynnt og eins ung-
lingalandsliðið sem keppir á móti í
Lúxemborg í lok apríl. Steindór
landsliðsþjálfari sagði mikla keppni
vera framundan um sæti í landslið-
unum.
Mótið hefst með 50 m flugsundi
karla þar sem Örn Arnarson mun
meðal annars kljást við Hjört Má
Reynisson og spurning er hvort Ís-
landsmet Arnar stenst þann atgang.
margar skemmtilegar greinar ef að
líkum lætur og má til dæmis nefna
400 metra fjórsundið en þar verður
meðal annars Örn Arnarson. „Örn
hefur lagt aukna áherslu á fjórsund-
ið upp á síðkastið, við höfum aðeins
ákveðið að leggja minni áherslu á
baksundið um tíma. Það verður því
afar fróðlegt að sjá hvernig hann
stendur sig í fjórsundinu og einnig í
200 metra flugsundi,“ sagði Stein-
dór. „Örn mun að sjálfsögðu einnig
synda baksundsgreinarnar eins og
venjulega.“
Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi,
reynir að bæta met sitt í 100 metra
bringusundi og Jón Oddur Sigurðs-
son, ÍRB, hefur örugglega fullan hug
á að sjá við Jakobi í greininni, en
Jakob er Íslandsmethafi.
Fellur met Ragnheiðar?
Sunnudagurinn er síst síðri en
hinir tveir keppnisdagarnir. Örn og
Jakob Jóhann gera atlögu að metum
sínum í 100 metra fjórsundi og 200
metra bringusundi og spurning hvað
Íris Edda Heimisdóttir gerir í 200
metra bringusundi. „Ég geri mér
góðar vonir um að það fari að koma
að því að Íris slái met Ragnheiðar
Runólfsdóttur í bringusundi, en met-
ið er orðið rúmlega tíu ára gamalt.
Það er svo sannarlega kominn tími á
það auk þess sem við höfum verið að
bíða eftir frekari framförum hjá Írisi
og hún er til alls líkleg að þessu
sinni,“ segir Steindór en Íris æfir
undir hans stjórn í Keflavík.
Beðið er með nokkurri eftirvænt-
ingu eftir 50 metra bringusundi
karla þar sem þeir Jón Oddur og
Jakob hafa barist hart síðasta árið
og í dag á Jón Oddur Íslandsmetið,
Örn gæti líka blandað sér í baráttu
þeirra félaga en Örn hefur æft
bringusund síðustu misseri vegna
aukinnar áherslu á fjórsundið. „Ég
veit að Jón Oddur er í góðri æfingu á
þessu móti og Jakob ætlar sér einnig
stóra hluti og mætir því grimmur til
leiks,“ sagði Steindór.
„Í lengri sundgreinum kvenna má
búast við harðri keppni á milli Sig-
rúnar Benediktsdóttur úr Óðni og
Louisu Isaksen, Fjölni, en einnig
geta fleiri sundkonur blandast inn í
þá baráttu,“ sagði Steindór og bætti
við: „Mér líst vel á þetta mót og ég
vænti þess að það verði skemmtileg
keppni í mörgum greinum, það eru
margir sundmenn sem stefna hátt að
þessu sinni,“ sagði Steindór Gunn-
arsson, landsliðsþjálfari í sundi.
Steindór Gunnarsson spáir spennandi Innanhússmeistaramóti í sundi í Eyjum
„Reikna með að
Íslandsmet falli“
Morgunblaðið/Sverrir
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir verður í sviðsljósinu í Eyjum og mun gera hríð að meti í 50 m skriðsundi í kvöld.
IMÍ, Innanhússmeistaramót Íslands í sundi, verður haldið í Vest-
mannaeyjum um helgina og er þetta í þrettánda sinn sem mótið er
haldið þar. Mótið hefst í dag og lýkur á sunnudaginn og er keppt alla
þrjá dagana frá morgni til kvölds. „Ég vænti mjög skemmtilegrar
keppni í mörgum greinum og reikna með að nokkur Íslandsmet falli
þar sem okkar bestu sundmenn eru í afar góðri æfingu um þessar
mundir,“ sagði Steindór Gunnarsson, landsliðsþjálfari og þjálfari
Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, í samtali við Morgunblaðið í gær.