Morgunblaðið - 21.03.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 59
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk
kvenna Nicole Kidman
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
kvikmyndir.com
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 16 .
9
Sýnd kl. 5.30. B.i. 12
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 12
HJ MBLHK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12.
„Ein besta mynd ársins“Fréttablaðið
Kvikmyndir.com
SG DV
HL MBL
Frábær spennutryllir sem hræðir
úr þér líftóruna.
FRUMSÝNING
Þegar röðin er komin að þér þá
flýrðu ekki dauðann!
www.laugarasbio.is
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og Powersýning kl. 12 á miðnætti. B.i. 16.
Eingöngu sýnd um helgar.
Þegar röðin er komin að þér
þá flýrðu ekki dauðann!
Frábær spennutryllir sem
hræðir úr þér líftóruna.
Skemmti-
legasta
rómantíska
gamanmyndin
síðan Pretty Woman!
Rómantík, grín og góð
tónlist í frábærri mynd!
POWERSÝNINGkl. 12.Á miðnættiÁ STÆRSTA THXtJALDI LANDSINS
rétti. Hún segir að alþjóðadagur um
afnám rasisma sé kjörinn til að vekja
upp umræðu um þessi mál. „Það er
gaman að dagurinn sé virtur og ekki
bara að halda upp á hann þennan
dag, heldur vekja fólk til umhugs-
unar, vekja umræður um málefnin
og hvetja til fræðslu.“
Menningarfræðsla fyrir alla
Alþjóðahúsið stendur einnig fyrir
ókeypis menningarfræðslu. Klukkan
13 í dag verður fræðsla um Mexíkó
og kl. 15 um Víetnam. „Þetta er fyrir
alla áhugasama,“ segir Naysaa.
Dagskrá næstu viku er margþætt.
Á laugardagskvöldið kl. 20.30 verð-
ur danssýning, en þar verður hægt
að sjá dans frá ýmsum heims-
hornum, m. ataílenskan dans, salsa
og magadans. Naysaa er ánægð með
starfsemina. „Það hefur gengið von-
um framar. Hér streymir inn fjöldi
fólks. Orðspor okkar stendur fyrir
sínu. Hér er þjónusta fyrir ýmsa
hópa, við gefum út upplýsingabækl-
ing sem hjálpar fullt af fólki. Hér er
líka túlkaþjónusta sem er mjög mik-
ið nýtt,“ segir hún um gengi Al-
þjóðahússins.
Dagskráin er nánar kynnt á vef
Alþjóðahússins en einnig má nefna
að bíókvöld verður á mánudaginn.
Dagskránni í tilefni alþjóðadags
um afnám rasima lýkur síðan næst-
komandi fimmtudag með málstofu í
Kornhlöðunni frá kl.17-19.
Alþjóðadagur um afnám rasisma
Fjöl-
breyti-
leika
fagnað
TENGLAR
.....................................................
www.ahus.is/gegnrasisma.htm
ALÞJÓÐAHÚSIÐ efnir til
dagskrár í tilefni þess að í
dag er alþjóðadagur um afnám ras-
isma. Dagurinn hefur verið haldinn
hátíðlegur víða um heim í krafti
Sameinuðu þjóðanna síðan 1966.
Naysaa Gyedu-Adomako, sem starf-
ar í upplýsinga- og fræðsludeild Al-
þjóðahússins, segir að dagsins hafi
verið minnst í fyrra en í ár sé haldið
upp á hann með veglegri hætti. „Við
viljum gera daginn sýnilegri,“ segir
Naysaa en dagskráin er fjölbreytt
með uppákomum kvöld hvert í viku.
Baráttufundur haldinn í dag
Klukkan 17 í dag verður haldinn
baráttufundur á Caffé Kúltúre,
kaffihúsi Alþjóðahúss við Hverf-
isgötu 18. Heiðursgestur dagsins er
Þórólfur Árnason borgarstjóri. Aðr-
ir ræðumenn verða Andri Snær
Magnason rithöfundur, Bjarney
Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
Alþjóðahúss, Melkorka Óskarsdóttir
formaður Heimsþorps og Toshiki
Toma prestur innflytjenda. Hljóm-
sveitirnar Delizei Italiane og HOD
skemmta.
Dagurinn er því sannarlega hald-
inn hátíðlegur og fjölbreytileikanum
fagnað. Naysaa minnir á að Ísland sé
ekki einsleitt og kynþáttahatur sé
leið staðreynd. „Hér á Íslandi búa
hópar alls staðar að. Ísland er ekki
einsleitt lengur. Fólk verður fyrir
rasisma hér. Það er staðreynd. Ég er
sjálf þeldökk og hef orðið fyrir ras-
isma hér á Íslandi.“
Naysaa bendir á að Ísland hafi
ákveðnum skuldbindingum að
gegna til að útrýma kynþáttamis-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Naysaa ásamt Bjarneyju Friðriksdóttur,
framkvæmdastýru Alþjóðahússins.