Morgunblaðið - 21.03.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 61
Sýnd kl. 4.
ÁLFABAKKI
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 7.
Áður en þú deyrð, færðu að sjá
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10. / Sýnd kl. 10.
SV MBL
RADIO X
KVIKMYNDIR.IS
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12. / Sýnd kl. 10.10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. / Sýnd kl. 5.50, 8, 9, 10.10 og 11.15. B.i. 16. / Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Radíó X H.K. DV
1/2 HL Mbl Kvikmyndir.is
1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.45 og 8. B. i. 14.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
SV MBL
Kvikmyndir.is
ÁLFABAKKI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.40, 8 OG 10.10. B.I. 16.
SG DV
Kvikmyndir.is
hugh grant sandra bullock
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 7 og 10.
Tilnefningar
til Óskar-
sverðlauna,
þ.á.m. besta
mynd og
besti leik-
stjóri
10
HJ MBL
RADIO X
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
SV MBL
Tilnefningar til
Óskarsverð-
launa:
Aðalhlutverk
karla: Jack Nic-
holson.
Aukahlutverk
kvenna: Kathy
Bates.
2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Mögnuð spennumynd sem sló rækilega í gegn við opnun í
Bandaríkjunum í síðustu viku með óskarsverðlaunahöfunum
Tommy Lee Jones og Benicio Del Toro í aðalhlutverki.
ÞAÐ eru vægast sagt stórglæsilegar átta leik-
konur sem leika í þessari nýjustu kvikmynd
franska leikstjórans François Ozon. Hann er
þekktur er fyrir að fara heldur óhefðbundnar
leiðir í kvikmyndagerð sinni og fjalla um hluti
sem aðrir láta kjura liggja. Nú er það morð, en
kannski á léttari nótunum, ef segja má svo.
Sagan gerist í Frakklandi fimmta áratugar-
ins, sögusviðið er óðalssetur iðnjöfursins Marc-
el, sem býr þar ásamt eiginkonu sinni Gaby,
tengdamóður Mamy, mágkonunni Augustine og
tveimur dætrum, Catherine og Suzon. Morgun
einn finnst Marcel dáinn í rúmi sínu, stunginn í
bakið með rýtingi, og þá vaknar spurningin:
Hver þeirra drap hann? Undir grun falla líka
þjónustukonurnar þær Chanel og Louise, auk
varhugaverðrar systur Marcels heitins, Pier-
ette. Allar eru þær innilokaðar í húsinu vegna
vonskuveðurs, auk þess sem klippt hefur verið á
símalínuna og bíllinn kyrrsettur.
8 konur fékk firnagóðar móttökur í heima-
landinu. Hennar hafði líka verið beðið með
óþreyju þar sem leikkonurnar átta eru þær dáð-
ustu í Frakklandi, og margar þeirra að sýna á
sér nýja hlið. Gagnrýnendur hvarvetna í heim-
inum hafa heldur ekki sparað stóru orðin og
vegtyllurnar ekki látið á sér standa en leikkon-
urna átta fengu allar saman Silfurbjörninn í
Berlín.
Morð – á léttu nótunum
Ætli sú áttunda sé sú seka?
Háskólabíó frumsýnir frönsku kvikmyndina 8 kon-
ur (8 femmes). Leikstjórn: François Ozon. Aðal-
hlutverk: Catherine Deneuve, Fanny Ardant, Isa-
belle Huppert, Virginie Ledoyen, Danielle Darrieux,
Emmanuelle Béart, Ludivine Sagnier og Firmine
Richard.
WILLIAM Friedkin er þekktur fyrir að leik-
stýra ekki ómerkari kvikmyndum en Særinga-
manninum (The Exorcist) og Frönsku maf-
íunni (French Connection). Það ætti því að
vera forvitnilegt að sjá hvað kemur út úr því
þegar hann etur saman tveimur sterkum leik-
urum sínum af hvorri kynslóðinni, á við
Tommy Lee Jones og Benicio Del Toro. Og
gleymum ekki að þeim til aðstoðar er vestur-
íslenska leikkonan Leslie Stefanson.
Og sagan hljómar spennandi. Benicio leikur
mann, sem þjálfaður hefur verið af bandaríska
hernum til að drepa. Hann virðist nú eitthvað
truflaður og er álitinn hlaupa um og drepa fólk
sem hann heldur að vilji honum eitthvað illt.
Það er einungis einn maður sem getur stoppað
kauða, og það er kennarinn hans, sem leikinn
er af Tommy Lee. Með aðstoð alríkislögregl-
unnar heldur sá gamli af stað í leiðangur að
góma morðingjann. Og veiðin hefst!
Sumir segja myndina blöndu af Flóttamann-
inum (The Fugitive) og Rambó, og ætti það að
vera ágætis kokteill fyrir þá sem vilja spennu
og hasar. Enda þykir myndin halda mjög vel, í
henni eru mörg mjög spennandi og skemmti-
leg hasaratriði, og einsog nafnið bendir til er
þó nokkuð um eltingarleiki. Leikararnir séu þó
ef til vill það allra besta við myndina og eru at-
riðin þar sem kennari og nemandi standa
frammi fyrir hvor öðrum og berjast með kjafti
og klóm, víst sérlega mögnuð.
Blóðug
skógarferð
Sambíóin frumsýna kvikmyndina Veiðin (The Hunt-
ed). Leikstjóri: William Friedkin. Aðalhlutverk:
Tommy Lee Jones, Benicio Del Toro, Connie Niel-
sen, Jenna Boyd og Leslie Stefanson.
Mögnuð átök nemanda og kennara.
ÞAÐ telst alltaf til tíðinda þegar leikstjórinn
Steven Soderbergh lætur frá sér nýja mynd.
En allt frá því að hann gerði kvikmyndina
Kynlíf, lygar og myndbönd (Sex, Lies and Vid-
eotapes) 1989 hefur hann verið sérlega af-
kastamikill og forvitnilegur. Þótt myndir hans
hafi einnig verið ólíkar á alla vegu, verður að
segjast að nýjasta kvikmynd hans er mjög ólík
þeim fyrri. Nú hefur hann skrifað handrit eftir
samnefndri skáldsögu pólska rithöfundarins
Stanislaw Lem, en Andrei Tarkovsky gerði
„költmyndina“ Soljaris eftir henni árið 1972.
Þar segir frá sálfræðingi nokkrum sem
sendur er til að rannsaka áhöfn í einangraðri
rannsóknarstöð á sporbaug kringum furðulega
plánetu er nefnist Solaris. Við komuna kemst
sálfræðingurinn að því að leiðangursstjórinn
hefur dáið dularfullum dauðdaga. Og brátt
fara aðrir undarlegir atburðir að gerast, m.a.
koma gamlir kunningar áhafnarinnar í heim-
sókn, en sumir þeirra eru dánir.
Solaris hefur verið líkt við Geimkviðu Ku-
bricks. Það liggur í augum uppi að bera hana
við Tarkovsky-myndina. Þessi útgáfa er mun
styttri, en býr víst yfir mörgum sömu sterku
hliðum, einsog það að Soderbergh takist, þrátt
fyrir hraðari frásögn, að skapa sömu draum-
kenndu stemmninguna sem leyfi hlutunum að
gerast með sínum hraða.
Draum-
kennd geim-
stemmning
Chris Kelvin (Clooney) á átakanlegum endur-
fundi við eiginkonuna Rheyu (McElhone).
Smárabíó frumsýnir kvikmyndina Solaris. Leik-
stjóri: Steven Soderbergh. Aðalhlutverk: George
Clooney, Natascha McElhone, Viola Davis, Jeremy
Davies og Ulrich Tukur.
ENDASTÖÐIN 2 er sjálfstætt framhald fyrri
endastöðvarinnar, sem sýnd var við miklar
vinsældir, enda þótti myndin af mörgum með
betur heppnuðu og mest spennandi ungling-
hrollvekjum sem fram hafa komið á seinni ár-
um.
Kimberly er ósköp venjuleg góð stelpa, sem
ákveður ásamt vinum sínum að fara í ferðalag.
En leiðinni lenda þau í hryllilegu slysi, þar sem
Kimberley lifir af en vinir hennar deyja hrika-
legum dauðdaga. Hins vegar tekst Kimberley
að bjarga nokkrum öðrum manneskjum úr
slysinu.
En nokkrum dögum seinna fara þeir sem
komust lífs af að deyja í hrönnum. Svo nú þarf
aumingja stelpuskjátan, með hjálp eitur-
lyfjasjúklingsins Thomas Burke, Clear Rivers
og útfararstjórans William Bloodworth, að
komast að því hvernig hægt er að stöðva dauð-
ann, áður en röðin kemur að henni!
Endastöðin 2 mun búa yfir mörg atriðum
sem sæma góðum hryllingsmyndum, enda yfir
höfuð mjög blóðug mynd, og opnunaratriðið er
víst meira en óhuggulegt. Sömuleiðis felst ekki
spennan einungis í því hver verði drepinn
næstur, heldur hvernig! Það er því nóg að
skjálfa yfir, og víst að fáir sitja rólegir í sætinu
sínu yfir Endastöðinni 2.
Hjálp! Kannski erum við næstar!
Dauðadans
Laugarásbíó, Regnboginn og Borgarbíó Akureyri
frumsýna kvikmyndina Endastöðina 2 (Final Dest-
ination 2). Leikstjórn: David R. Ellis. Aðalhlutverk:
Ali Larter, A.J. Cook, Michael Landes, Terrence
’T.C.’ Carson, Jonathan Cherry, Keegan Connor
Tracy.