Pressan - 22.10.1992, Side 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. OKTÓBER 1992
ÞETTA
BLAÐ
HEFUR
ÁHRIF
... eins og Kólumbus
hafði á líf okkar allra
en þó kannskisér-
staklega á lífafkom-
enda indíánanna sem
hann hitti í heimsálf-
unni sem hann rakst á
á leið sinni til Ind-
lands, eins og sjá má
á blaðsíðu 20.
... eins og EES-samn-
ingurinn. Það er ekki
bara að hann sé á
góðri leið með að
kljúfa Kvennalistann
(eða að minnsta kosti
Ingibjörgu Sólrúnu
frá listanum, eins og
sjá má á biaðsíðu 22)
heldur hefur samn-
ingsgerðin haft um-
talsverð áhrifá
pyngju skattborgar-
anna eins og lesa má
um á blaðsíðu 9.
... eins og öllþau 50
gáfumenni, skoðana-
höfundar og alltum-
lykjandi spekingar
sem taldir eru upp á
blaðsíðu 26. Án þessa
fólks vissum við ekki
hvað við héldum og
ekki einu sinni hvern-
igokkurliði.
... eins og verkalýðs-
hreyfingin. Áhrif
hennar ná útyfir gröf
og dauða. Það skiptir
engu máli þótt maður
segi sig úr félaginu
sínu; maður þarfsamt
að halda áfram að
borga, eins og lesa
má um á blaðsíðu 16.
... eins og Breta-
drottning. Á meðan
ættmenni hennar
ergja samlanda sína
erhún komintil
Þýskalands, eingöngu
til að ergja þarlenda
að þvi er virðist. Sjá
blaðsíðu 19.
Munduð þið ekki spara
meira ef þið réðuð Fil-
ippseying sem for-
stjóra, Baldur?
„Ég vil ekki láta hafa neitt eftir
mér um þetta mál. Ég er ekki tals-
maður Eimskipafélags íslands út á
við.“
Baldur Guðlaugsson er stjórnarmaður
hjá Eimskipafélagi (slands. Áeinu flutn-
ingsskipa félagsins, Bakkafossi, eru sjö
Filippseyingar sem kvartað hafa undan
mjög lágum launum, eða sem sam-
svara 22 til 23 þúsund krónum á mán-
uði með 100 tíma yfirtíð. Það eru tölu-
vert lægri taun en Hörður Sigurgestsson
hefur I laun á mánuði sem forstjóri fyrir-
tækisins.
F Y R S T
F R E M S T
ÖRN FRIÐRIKSSON. Má sig vart hræra án þess að það sé túlkað
sem liður í kosningabaráttu. JÓN KARLSSON. Ætlaði að draga sig
út úr Bókatíðindum.
ASÍ BÍÐUR EFTIR. ERNI
Enn er mánuður til ASf-þings,
en undirbúningur að kjöri forseta
er í fullum gangi. Tveir hafa
ákveðið að gefa kost á sér, þeir
Guðmundur Þ. Jónsson, for-
maður Iðju, og Pétur Sigurðs-
son, formaður Alþýðusambands
Vestfjarða, og eru báðir famir að
undirbúa framboðið af fullum
krafti. Þriðji maðurinn sem
nefndur er, Grétar Þorsteins-
son, formaður Trésmiðafélags
Reykjavíkur, hefur ekki gefið end-
anlegt svar af eða á og fer sér
ífemur hægt í málinu öllu.
Æ oftar heyrist hins vegar nefht
nafn Amar Friðrikssonar, for-
manns Málm- og skipasmiðasam-
bandsins. Leitað hefur verið til
hans um framboð og von er á yfir-
lýsingu frá honum í lok vikunnar.
Innan verkalýðshreyfingar og ut-
an vakti athygli framganga hans í
Heklumálinu á Fáskrúðsfirði um
síðustu helgi og spurt er hvort hún
hafi verið liður í kosningabaráttu.
Það er hins vegar svo, þessar síð-
ustu vikur fyrir þingið, að verka-
lýðsleiðtogar mega sig varla hræra
án þess að lögð sé í það djúp
valdapólitísk merking sem á sér
sjaldnast stoð í veruleikanum.
IÐUNN HÆITIRVIÐ AÐ
HÆITAVIÐ
Töluverður titringur kom upp í
bókaútgáfunni í vikunni þegar
spurðist að Iðunn hygðist ekki
taka þátt í útgáfu Bókatíðinda fyr-
ir þessi jól eins og hin fyrri. Skotið
var á neyðarfundi í félagi bókaút-
gefenda í fyrradag, en formaður
þar er Jóhann Páll Valdimars-
son hjá Forlaginu, fjandvinur
Jóns Karlssonar hjá Iðunni.
Á fundinum varð niðurstaðan
að halda áfram útgáfunni þrátt
fyrir ákvörðun Iðunnar og jafn-
framt var ákveðið að lækka verð á
heilsíðuauglýsingum í blaðinu. Þá
bar svo við að Jón Karlsson til-
kynnti að Iðunn yrði með eftir allt
saman og þar með eiga öll forlög-
in aðild að útgáfunni eins og áður.
Engar skýringar hafa fengist á af-
stöðu og sinnaskiptum Iðunnar í
málinu, en þar á bæ munu for-
svarsmenn aðallega hafa verið að
velta fyrir sér hvort kostnaður
sem fyígdi þátttöku skilaði sér á
einhvern hátt til baka.
PLTTTINN Á MATTA KOST-
AR FJÓRAR MILLJÓNIR
Sem kunnugt er fór allt í loft
upp á síðasta vetri vegna „takka-
gleði“ Matthíasar Bjarnasonar
alþingismanns, sem greiddi at-
kvæði fyrir Árna Johnsen, eins
og frægt varð. Eftir atvikið var
nýja tölvuatkvæðakerfið lagt til
hliðar en það hafði kostað á milli
sex og sjö milljónir króna.
Nú er hins vegar ætlunin að
endurbæta kerfið og í fjáraukalög-
unum kemur fr am að Alþingi bið-
ur um Ijórar milljónir til að lag-
færa það. Það má því með sanni
segja að puttinn á Matta kosti fjór-
ar milljónir. Dýr mundi Matti all-
ur!
HALLURFERTIL
PROPAGANDA
Hallur Helgason er ungur
maður sem lært hefur kvik-
myndagerð í Kaliforníu, leikið í
hljómsveitinni Kátir piltar, verið
barnastjarna í kvikmyndinni
Punktur punktur komma strik, en
var síðast framleiðslustjóri í bíó-
myndinni Sódóma Reykjavík. Nú
mun Hallur vera að yfirgefa þessa
syndum spilltu Reykjavík, því
hann hefur verið ráðinn í vinnu
hjá Propaganda Film, kvikmynda-
fyrirtæki Sigurjóns Sighvats-
sonar í Los Angeles.
Margir fslendingar munu leita
ásjár hjá Siguijóni, en hann getur
ekki liðsinnt mörgum. Því þykir
þetta gott skref á framabrautinni
hjá Halli.
BJÖRKVILL ÚRSYKUR-
MOLUNUM
Það hafa verið miklar vanga-
veltur um framtíð Sykurmolanna
að undanförnu og nú virðast flest-
ir komnir á þá skoðun að þeir
muni hætta eftir hljómleikaferð-
ina með U2, sem þó hlýtur að
vissu leyti að teljast hápunkturinn
á ferli sveitarinnar. Þetta er að
minnsta kosti skoðun Q, sem er
víðlesnasta tónlistartímarit á Bret-
landi. í frétt í nóvemberhefti
Þarf að tala
skýrt og leyna
trett
S T A R F S IV! A N N
TBL. %6. Ám. OKTÓSER tttt
■ ■
Forsíða fréttablaös starfs-
manna Flugleiða er allný-
stárleg að þessu sinni en
hana prýða aðeins þrjú
flennistór orð: „Spörum 500
milljónir". Það fer ekki fram-
hjá neinum að útlit sem
þetta er ætlað til að ná at-
hygli væntanlegra lesenda
og koma innihaldi blaðsins
markvisst til skila, en ætla
má að starfsfólki hafi brugð-
ið nokkuð. Einar Sigurðs-
son, blaðafulltrúi Flugleiða,
sagði hugmyndina fengna
að láni hjá PRESSUNNI, en
mörg djörf og skemmtileg
blöð væru í útgáfu og
ákveðið hefði verið að slást í
þeirra hóp. „Forsíðan er til
að setja punktinn yfir i-ð á
þeirri kynningu sem hefur
verið í gangi innan fyrirtæk-
isins að undanförnu," segir
Einar. „Þarna er lögð áhersla
á hvernig staðan er og spilin
lögð á borðið. Skilaboðin eru þau að við erum komin að niðurstöðu um hvað þarf að gera varð-
andi sparnað innan fyrirtæksins og kemur starfsmönnum ekki í opna skjöldu vegna þess að
greinar og viðtöl í síðustu blöðum hafa gefið nasasjón af því í hvaða átt viðskiptin hafa þróast.
Vegna þess hvernig ástandið er þarf að tala skýrt, einfalt og undirstrika það að engu má leyna.
Þetta er nokkurs konar plakat til áminningar."
SPORUM
500
i/IILLJÓNIR
blaðsins segir að hljómsveitin
muni tilkynna að hún sé hætt eftir
hljómleikaferðina.
Blaðið segir að „vandamálið“ sé
löngun Bjarkar Guðmunds-
dóttur til að hljóðrita á eigin spýt-
ur og þótt hljómsveitin hafi áður
komið saman eftir langt hlé sé
ekki hætta á að það endurtaki sig.
ÞINGMENN FÁ
ÞÚSUNDIR BRÉFA
Þingmenn landsins fá nóg að
gera við að opna póstinn sinn
næstu daga. Nemendur Háskóla
íslands og sérskóla landsins ætla
að senda þingmönnum bréf og
kvarta yfir niðurskurðinum til
menntamála. Bréfin eru stöðluð,
þau eru öll eins fyrir utan nafn
nemanda og skóla hans. Talað er
um niðurskurð ríkisstjómar Dav-
íðs Oddssonar til skólanna og
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
og skattlagningu á íslenskar
námsbækur og þingmaðurinn er
beðinn að beita sér fyrir því að
niðurskurðurinn og skattlagning-
in verði ekki að veruleika. Skól-
arnir skipta þingheimi á milli sín
en nemendur Háskóla fslands
senda Sturlu Böðvarssyni, Jó-
hönnu Sigurðardóttur, Eyjólfi
Konráði Jónssyni og össuri
Skarphéðinssyni bréf. Hver
nemandi sendir einum þing-
manni bréf og vonast nemar í Há-
skólanum til að hver fjórmenning-
anna fái að minnsta kosti 750 bréf
inn um bréfalúguna sína frá há-
skólanemum á næstu dögum.
MATTHÍAS BJARNASON. Enn er verið að endurbæta atkvæðagreiðslukerfið. HALLUR HELGASON. Fær
vinnu hjá Sigurjóni Sighvatssyni. BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR. Breska músíkpressan segir hana undir-
rótina að skilnaði Sykurmola. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON. Fær hann 750 bréf inn um lúguna?
UMMÆLI VIKUNNAR
DeVito er reglulega skemmtilegur
en svakalega er hann lítill
//
Alveg einstök
tilfinning
I ÁRNI SAMÚELSSON KVIKMYNDARISI
cjetu/i maSuti
a*uHaÍ léttaA.
„Ég hætti ekki við þessar
aðstæður í þjóðfélaginu.“
Steingrímur Hermannsson
fjallkona
0g stúlkurnar eru
orðnar svo stórar!
HIN NYJA
SAUÐFJÁRVEIKI
„Ég veit ekki hvort mönnum
finnst það furðulegt að ég skuli
hugsa mig um áður en ég neita að
taka við opinberu fé.“
Kári Þorgrímsson
frjáls bóndi
„Ég hef það sterklega á tilfinning-
unni að þrátt fyrir þessa svartsýnu
blaðamenn, sem ég hlusta á, mun-
um við vinna þessar kosningar.“
George Bush
forseti
„Ég veit að ég er að fara í mjög
stóra keppni sem er stærri og erf-
iðari en hinar keppnimar."
María Rún Hafliðadóttir
fegurðardis
BARA KARLA!
,Við þvingum ekki konur í skoð-
unum.“
Kristín Einarsdóttir
þingkona
»
Uppreisn
bítskúrsbandsins
Okkur tókst hins vegar að bijót-
ast út úr bílskúrnum."
Hallur Ingólfsson
þungarokkstrommari
Friðrík Sophusson fjármálaráðherra upplýstí í fjáriaga-
ræðu sinni að sérhver Islendingur skuldaði sem nasmi
720 þúsund krónum eriendis. Samkvæmt því skuidar
fjögurra manna jölskylda 2 milljónir og &&0 þúsund
krónur. Fyrsti vinningurinn ! Lottóinu um síðustu heigi
var 2 milljónir 42! þúsund oq !&7krónur. Effjögurra
manna fjölskylda flytur úr landi losnar hún við að borga
þessar2 milljónirog ð&O þúsund krónur. Hún vinnur þvíí
raun þessa fjárhæð. Sem, nota bene, er 19 prósentum
hærri en lottóvinningurinn um síðustu heigi.
Gáum að því.