Pressan - 22.10.1992, Síða 30
30
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 22. OKTÓBER 1992
f Þ R Ó T T I R
„Stefni auðvitað á landsliðið"
„ÍR-ingarnir höfðu samband
við mig og báðu mig að koma. Ég
tók boðinu, leit á það sem tæki-
færi til að fá að spreyta mig í fyrstu
deildinni, og þetta hefur gengið
framar vonum það sem af er með
hjálp leikmanna og þjálfara ÍR,“
segir Magnús Sigmundsson, hirrn •
ungi markvörður fR í handbolta.
Magnús hefúr vakið milda athygli
í vetur enda geysilega efnilegur
markmaður og hefur átt hvern
stórleikinn á fætur öðrum með ÍR.
Magnús lék áður með FH en
fékk ekki mikið að spila með
meistaraflokki, sem er kannski
ekki furða því þar er fyrir Berg-
sveinn Bergsveinsson, einn okkar
besti markmaður og margreyndur
landsliðsmaður.
Magnús hefúr leikið með öllum
yngri landsliðum íslands og þess
verður væntanlega ekki langt að
bíða að hann fari að banka hressi-
lega á dyr A-landsliðsins. Um síð-
ustu helgi lék íslenska landsliðið
æfmgaleiki við Egypta og þar var
mörgum nýliðum gefinn séns. Er
Magnús svekktur yfir að hafa ekki
fengið að spreyta sig? „Nei, ég er
ekkert svekktur yfir því, Þorberg-
ur (Aðalsteinsson landsliðsþjálf-
ari) velur liðið eftir sínu höfði. Ég
er að leika mína fyrstu leiki í
fyrstu deild og til að komast í
landsliðið þarf ég að sýna áfram
góða leiki. Ég átti ekki séns á
landsliðssæti núna, en vonandi
Gervihnattasport
WúMi'WWMiM'æil
12.00 Slglingar Eurosport. Frá
siglingakeppni í St. Tropez
i Frakklandi.
16.30 Norwich City Sky Sports.
Þetta ágæta féiag kynnt (
máli og myndum.
21.00 Spaniki fótboltinn Scre-
cnsport. Nú er Maradona
kominn til Spánar en
kannski ekki til langframa
ef Sevilla þrjóskast við að
borga milljónirnar allar.
13.00 Tonnlt Sky Sports. Bein út-
sending frá miklu móti þar
sem kvenstjörnur tennis-
heimsins reyna með sér.
Þeirra á meðal Steffi Graf
og Zena Garrison.
14.00 Hastaiþróttir Screensport.
Frá móti I Norrköping í Sví-
þjóð. Hestarnir fara létt yfir
flestar hindranir.
23.30 Rall SkySports. Sýnt frá rall-
keppni sem fram fór á
Spáni. Allir þeir bestu eru
með: Hannu Mikkola, Ari
Vatanen, Carlos Saintz og
fleiri.
12.00 fþróttir á laugardagi Sky
Sports. Fimm klukkutlmar
sneisafullir af alls konar
iþróttum. Til daemis tennis,
íshokkli og fótbolta.
13.00 Golf Screensport. Bein út-
sending frá þriðja degi
móts I Madrid á Spáni.
Margir frægir golfarar eru
með. Á síðasta ári vann
Englendingurinn Andrew
Sherbourne þetta mót öli-
um að óvörum þar sem
hann telst til minni spá-
manna.
19.00 Fjölbragðaglíma Sky
Sports Þægilegt að horfa á
slagsmál á laugardags-
kvöldi. A eftir Hulk Hogan
og félögum kemur box.
12.55 Júdó Eurosport. Bein út-
sendlng frá Austurrlki þar
sem júdókappar gllma af
miklum kraftl. Er Bjarni
með?
13.00 Fótbolti Sky Sports. Bein
útsending frá leik Wim-
bledon og Tottenham f
ensku úrvalsdeildinni. Eng-
inn Lineker og sennilega
enginn Guðni heldur, en
Vinnie Jones ætti að halda
uppi fjörinu.
17.00 Körfubolti Screensport.
Bein útsending frá leik I
þýsku úrvalsdeildinni.
Þjóðverjar eru ein sterkasta
Evrópuþjóðln I körfubolta.
19.00 Hollanskl fótboltfnn
Screensport. Hollendlngar
eiga marga frábæra knatt-
spyrnumenn og þótt rjóm-
inn af þeim leiki ekki I Hol-
landi er boltinn sem þar er
spilaður mjög skemmtileg-
kemur að því að maður komist í
hópinn," svarar Magnús.
Þjálfari ÍR er markmanns-
kempan gamalreynda Brynjar
Kvaran. Magnús segir að Brynjar
hafi vissulega kennt sér ýmislegt;
lagað hjá sér staðsetningar og
jafiivægi og sýnt sér nýjar æfingar.
Magnús hefur þótt sérlega lun-
kinn við að verja víti. Hver er
kúnstin þar að baki? „Ég er auð-
vitað búinn að skoða leikmenn á
myndbandi, það er líka mikilvægt
að tímasetningin sé rétt og snerp-
an í lagi.“ Það hlýtur að vera sál-
fræðilega mikilvægt að verja víti,
veita markmanninum aukið
sjálfstraust og brjóta andstæðmg-
inn niður? „Það er rosalega sterkt
að verja fyrstu vítin í leik. Verji
maður fyrstu tvö- þrjú skotin utan
af velli kemst maður í gang, en ef
maður fær á sig þrjú-fjögur mörk í
upphafi án þess að koma við bolt-
ann getur líka allt farið í spað,“
segir Magnús.
Hugmyndir FIFA um sérstaka forriðla
„Ekkert í þessa
veru á döfínni“
segir Eggert Magnússon, formaður KSÍ
Eins og greint var frá í PRESS-
UNNI í síðustu viku virðast uppi
hugmyndir innan Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins (FIFA) um
að lakari þjóðum Evrópu verði
gert að leika í sérstökum forriðl-
um fyrir stórmót í framtíðinni,
um sæti í hinni eiginlegu riðla-
keppni. fsland er neínt sem eitt
þeirra landa sem gætu þurft að
vera í forriðli.
„Ég held að þetta sé ekki á
teikniborðinu, að minnsta kosti
ekki í náinni framtíð, auk þess
sem það er ljóst að í dag ertun
við ekki í þessum hópi. Frammi-
staða okkar er betri en svo og
útilokar þetta, í það minnsta eins
og staðan er núna, hvað svo sem
framtíðin kann að bera í skauti
sér,“ sagði Eggert Magnússon,
formaður Knattspyrnusam-
bands íslands (KSÍ), er PRESS-
AN bar þessar hugmyndir undir
hann.
Eggert sagði ekkert vafamál að
staða íslands í alþjóðaknatt-
spymu væri betri en svo að jafii-
vel þótt þessar hugmyndir yrðu
að veruleika ætti ísland ekki
heima í forriðli. Hann benti á að
lönd eins og Tyrkland, með tugi
milljóna íbúa, væru lægra skrif-
uð í dag en við. Það væri skiljan-
legt að svona umræða færi af
Eggert Magnússon, formaður
KSf, segir fslendinga ekki
þurfa að óttast að lenda í for-
riðli í fótbolta.
stað í kjölfar stórra ósigra til að
mynda San Marínó-manna og
Færeyinga, en ekkert benti til að
af þessu yrði. „Þetta kviknar hjá
blaðamönnum og þeir fara af
stað og fá tvíræðar yfirlýsingar
frá talsmanni FIFA, sem segja í
raun ekki neitt,“ sagði Eggert.
Neil Webb
öllum gleymdur
Karlgreyið hann Neil Webb
virðist vera búinn að vera. Þessi
fyrrum stjama Nottingham Forest
er nú hjá Manchester United og
kemst ekki í liðið. Webb meiddist
illa í landsleik í Svíþjóð fyrir
heimsmeistarakeppnina á Ítalíu
árið 1990 og komst því ekki til
Ítalíu. Paul Gascoigne blómstraði
aftur á móti þar í sömu stöðu og
Webb hafði leikið. Webb átti
slæman dag þegar United tapaði
fyrir Sheffield Wednesday í úr-
slitaleik Rumbelows-bikarkeppn-
innar 1991, hann var tekinn út úr
liðinu og var ekki með þegar Unit-
ed vann Barcelona í úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa. „Þegar
ég missti af þeim leik var botnin-
um á ferli mínum náð,“ segir
Webb. f upphafi síðasta keppnis-
tímabils var Webb á bekknum hjá
United og átti erfiða daga. Brian
Clough, stjóri Forest, sýndi áhuga
á að fá Webb til baka en ekki varð
af því. Webb fékk um síðir tæki-
færi með United og nýtti það vel,
spilaði af krafti og bankaði aftur á
dyr landsliðsins. En þá kom eitt
áfallið enn; hann var tekinn út úr
liðinu fyrir úrslitaleik Rum-
belows-bikarkeppninnar er Unit-
ed vann Forest — gamla liðið
hans. Forest vann United síðan í
deildinni undir lok tímabilsins og
slökkti vonir United-manna um
meistaratitilinn — Webb var
kennt um tapið. f síðustu þremur
leikjunum á síðasta tímabili
Neil Webb: Einu sinni dáöur
knattspyrnusnillingur. Er hann
nú að verða öllum gleymdur?
komst hann ekki í liðið. Hann var
þó í landsliðshópnum sem fór til
Svíþjóðar í úrslit Evrópukeppn-
innar en var ekki með í fyrstu
tveimur leikjunum. Hann var í
liðinu í leiknum gegn Svíum, sem
Englendingar töpuðu, og enn var
Webb greyinu kennt um tapið.
Hann þótti feitur, þungur og léleg-
ur. Núna kemst hann ekki í lið
United, því síður kemur hann til
greina í enska landsliðið og
áhangendur virðast búnir að
gleyma honum. Hinn 29 ára gamli
Neil Webb á því ekki sjö dagana
sæla og alls óvíst að hann komist
aftur í sviðsljósið.
Magnús Jónatansson,
Þrótti Reykjavík, Mar-
teinn Geirsson, Fylki, og
Vignir Baldursson,
Sandavags Færeyjum.
Nú reka einhverjir upp
stór augu og segja
þetta tóma lygi. Þjálf-
aöi Magnús ekki Fylki,
Marteinn Leiftur og
Vignir Breiöablik? Jú,
vissulega, en þeir voru
samt ekki I félögunum
sem þeir þjálfuðu.
Undantekningarlitiö
hafa þjálfarar gengið I
þau liö sem þeir hafa
þjálfað en það geröu
þeir þremenningar
ekki fyrir siðasta
keppnistímabil en
bættu úrþví á föstu-
daginn var. Þá voru
samþykkt félagaskipti
Magnúsar í Fylki, Mar-
teins i Leiftur og Vignis
i Breiöabiik. Magnús
og Marteinn munu
þjálfa þessi lið áfram á
næsta tímabili. Vignir
hætti sem þjálfari
Breiðabliks á miðju
síðasta tímabili í kjöl-
far slaks gengis iiðsins
en er nú genginn i
Breiðablik, þar sem
Ingi Björn Albertsson
verður við stjórnvöl-
inn á komandi tima-
bili. Samkvæmt þessu
ætlar Vignir að taka
sér frí frá þjálfun
næsta tímabil. Eða
hvað?
Magnús Sigmundsson,
markmaður ÍR, er 21
árs og virðist sannar-
lega eiga framtíðina
fyrir sér í markinu.
I sumar var sérstakt
golfmót haldið á Mo-
ortown-velli nærri Le-
eds á Englandi. Sér-
staða mótsins var
fólgin í því að kepp-
endur urðu að vera
orðnir áttræðir eða
eldri. Mótþetta var
haldið að undirlagi
milljónamæringsins
Lawrence Batley nokk-
urs, sem sjálfur er
áttatíu og tveggja ára.
Hvorki meira né
minna en 88 átta karl-
ar mættu til keppni. Á
fyrsta teigi fengu
keppendur afhentan
poka af kartöfluflög-
um og smáflösku af
viskíi til að gera sér
gott afá hringnum.
Viskíið, fiögurnar,
gangan og sveiflan
gerðu þó ekki öllum
keppendum gott, því
hinn áttatíu og
tveggja ára gamli
Frank Hart datt niður á
fjórðu braut og lést á
leiðinni á spitala. Þrátt
fyrir þetta áfall var
mótinu haldið áfram
eftir að keppendur
komust að þeirri nið-
urstöðu að Hart hefði
ekki viljað að þeir
hættu keppni sín
vegna.
-sem
Hvaða leiki
spilar Hlagic?
Körfuboltaáhugamenn um allan heim glöddust mjög þegar ljóst varð
að Magic Johnson ætlar sér í slaginn í NBA- deildinni bandarísku í vetur.
Magic gaf þá yfirlýsingu eftir að Ijóst varð að hann var HlV-smitaður að
hann mundi leggja skóna á hilluna. Karlinn kennir sér hins vegar -
betur fer — einskis meins og hefúr reynst örðugt
að hætta; er í botnlausu formi og hefúr víst bara
aldrei leikið betur. Sitt sýnist þó hverjum um þá
ákvörðun hans að snúa aftur — ekki af því að
hann er með eyðniveiruna heldur vegna þess að
það er ekki ljóst hvaða leiki hann ætlar að leika
og hverja hann ætlar ekki að leika. Magic
treystir sér nefnilega ekki til að leika alla leiki
Los Angeles Lakers, mun „einungis“ spila í
kringum sextíu leiki í vetur. Tilvonandi and-
stæðingar Lakers í NBA í vetur vilja fá að vita
hvort þeir eru að selja miða á leiki með eða
án Magic þegar þeir selja miða á hefina-
leiki sína. „Hver á að ákveða hvaða
leikjum Magic sleppir?" spyrja þeir.
Hljómar í raun hálfhjákátlega
því varla er hægt að tryggja
það í körfubolta frekar en
öðrum íþróttagreinum að
stjömumar séu alltaf með. Þær geta veikst og
slasast (meira að segja dáið ef út í það er farið),
rétt eins og aðrir dauðlegir menn.
Þá halda sumir því fr am að lið Lakers muni í
raun veikjast við endurkomu Magic! Rökin
em þau að það muni hafa ill áhrif á aðra leik-
menn liðsins að hafa Magic á ferð inn og út
úr liðinu; vera eina stundina með þann leik-
mann sem flestu og bestu stoðsendingamar
gefur og hina með einhvem allt annan.
Magic Johnson er einn besti körfubolta-
maður sem nokkru sinni hefur komið
fram á sjónarsviðið. Nú vilja þau lið sem
mæta Lakers í vetur vita hvort Magic
verður með gegn þeim. dL.
y
McEnroe hætlir
Hinn kjaftfori tennissnillingur
John McEnroe ætlar að hætta
keppni um áramótin. Og ástæðan
er, eftir því sem hann segir sjálfur,
skapofsi hans. „Ég missi enn
næstum því stjóm á mér á vellin-
um og það er mér ekki hollt, ekki
tennisíþróttinni og ekki konu
minni eða börnum," segir
McEnroe. Hann segir tennis-
ástríðu sína svo rosalega að hann
gleymi öllu öðm á vellinum, hann
missi stjórn á skapi sínu og geti
bara ekki annað. Því ætlar hann
að hætta.
Draumur hans nú er að verða
fyrirliði liðs Bandaríkjanna á Da-
vis Cup, þeirri miklu tennis-