Pressan - 22.10.1992, Side 34
34
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. OKTÓBER 1992
Popp
FIMMTUDAGUR H LAUGARDAGUR
Gréta Sigurjóns-
Idóttir er fyrrverandi
Dúkkulísa sem hefur nú
_lþroskastfrá þeim og ætl-
ar að látá'trúþadortaktana hljóma
með gítar ( handarkrikanum. Gréta
ætlar að skemmta gestum Feita
dvergsins í kvöld, en hún þreytti
frumraun sína sem trúþador á Fóget-
anum á dögunum við góðar undir-
tektirviðstaddra bjórfíkla.
• Guðmundur Rúnar múnar alla
helgina á Fógetanum. Sem betur fer
gerir hann það ekki á hjólinu.
• Papar frá Vestmannaeyjum spila
tónlist með irsku ívafi. Þeir þóttu
hreint ágætir um síðustu helgi þegar
þeir hituðu upp fyrir Diarmuid '0 Le-
ary and the Bards á Púlsinum. (kvöld
fá þeir að vera með sóló á sviðinu á
Púlsinum.
• Af Iffi og sál spila lög Chicago,
James Brown og Commitments.
Einn hljómsveitarmeðlimanna ber
nafnið Haukur Hauksson. Hann er þó
ekki hinn frægi fréttahaukur, heldur
bróðir Eiríks Haukssonar, hins eina
sanna íslenska rokkara, sem búsettur
er í Noregi.
• Út að skjóta hippa er hljómsveit
sprottin upp úr Skriðjöklunum; mikil
grínsveit eins og nafnið ber með sér.
Meðlimir hennar eru Jakob Jóns, Jón
Haukur, Fúsi trommari, Sölvi söngvari
og Kristján Eðalsteinn. Þeir verða á
Gauknum.
FOSTUDAGUR
• Todmobile sýnir ekki á sér nein
þreytumerki. Það er ávallt húsfyllir
þar sem hljómsveitin kemurfram. Þvl
má búast við að það sama verði upp
á teningnum I kvöld á Tveimur vin-
um þegar þau Andrea, Þorvaldur og
Eyþór stíga fram í sviðsljósið, en
trommarinn og hljómborðsleikarinn
verða baksviðs að vanda.
• Jötunuxar hvetja alla rokkara
landsins til að mæta á Grjótið í kvöld,
að minnsta kosti alla þá sem ekki
eiga við áfengisvandamál að stríða.
Ástæðan fyrir því er sú að rokkið sem
þeir fremja er djöfullegt og kallar
fram áfengisþorstann hjá mönnum,
ef marka má áfengissölumetið er sett
var á Grjótinu er þeir spiluðu þar síð-
ast. Þeir sem fremja hið demónska
rokk eru Rúnar Söngörn Friðriksson,
Jón Óskar Gítarsson, Hlöðver Bassi
Ellertsson og Guðmundur Gunn-
laugstromma. Aðgangur er ókeypis.
• Guðmundur Rúnar heldur upp-
teknum hætti á Fógetanum. Nýjustu
fregnir herma að hann hafi komist yf-
ir ágæta fúavörn og verði því um
ókomna tíð á Fógetanum.
• Hermann Ingi trúbador er ekki
mjög gamall í hettunni. Hann er kall-
aður Hermann Ingi yngri, því hann er
sonur föður síns, Hermanns Inga
eldri, sem einnig er trúbador. Engum
hefur enn tekist að sanna að tónlist-
argen gangi I erfðir en hver veit
nema þeir feðgarnir verði fýrstu til-
raunadýrin. Sá yngri skemmtirá Feita
dvergnum alla helgina en óvíst er
hvað sá eldri hefur fyrir stafni þessa
dagana.
• Vinir Dóra halda áfram að blúsa
fyrir land og þjóð. Þeir eru aftur
komnir á Púlsinn og óvíst hvort þeir
eiga þaðan afturkvæmt í bráð. Það
segir að minnsta kosti reynslan okk-
• Jökulsveitin verður gestur Vina
Dóra á Púlsinum í kvöld. Kannski þeir
geti vingast við þá jöklamenn.
• Tveir Logar halda sig við Rauða
Ijónið, sem er staður á uppleið eftir
bjórhátíðina sem haldin var á dög-
unum.
• Stjórnin er aftur komin á ról eftir
smáhlé og ber með sér ferskan and-
blæ. Þeir hafa risið upp úr sykur-
poppinu í rokkið, enda fara vinsældir
þeirra vaxandi ef marka má vin-
sældakönnun PRESSUNNAR frá í sum-
ar. Næsta lag sem Stjórnin gefur út
verður á safnplötu sem kemur út í
nóvember, en það er rokkballaða eft-
ir Friðrik Karlsson gítarsnilling. Safn-
platan inniheldur að mestu erlend
lög með erlendum flytjendum en
auk Stjórnarinnar ætlar Jet Black Joe
að láta Trúbrotsljós sitt skína á plöt-
unni. Engin stór plata með Stjórninni
er væntanleg á næstunni, en hljóm-
sveitin hefur hins vegar í hyggju að
koma út tveimur geislabreiðskífum á
næsta ári. í kvöld munu þeir Stjórnar-
menn skemmta Hafnfirðingum á
gleðistaðnum Firðínum.
• Hermann Ingi jr. syngur einsöng
á Feita dvergnum.
• Guðmundur Rúnar enn á Fóg-
etanum.Ætl'ann sofi þar?
• Jötunuxarnir verða á sömu bux-
unum í kvöld og í gærkveldi á Grjót-
inu; það er að segja á rokkbuxunum
með áfengisívafinu.
• Bleeding Volcano spila afar
þungt rokk eins og sannast á plöt-
unni Damcrack sem tekin var upp í
bílskúr fýrir skömmu. Þeim tókst, ólíkt
mörgum öðrum, að brjótast út úr bíl-
skúrnum og koma sér á íslenska
plötukortið. Sveitina skipa þeir Vil-
hjálmur Brekkan söngvari, Guð-
mundur Þ. Sigurðsson bassi, Sigurð-
ur Kristinsson gítarleikari og trymbill-
inn Hallur Ingólfsson. Þeir taka Púls-
inn í kvöld.
• Gleðigjafar eru hópur kunnra
skemmtikrafta sem treður upp á
Dansbarnum. I þeim hópi eru Jó-
hannes Kristjánsson eftirherma,
Bjarni Presley Arason, Ellý Vilhjálms
og dansparið Sigrúo Jónsdóttir og
Sigurður Hjartarson. Hljómsveitina
skipa Andri Backmann, Tryggvi
Hubner, Jón Ingólfsson og Tryggvi
Ingólfsson. Segja má að þarna ríki
gamaldags Broadwayfjör.
• Herbert Guðmundsson og
hljómsveit hans Herbertstrasse með
kombakk annað kvöldið í röð á Nilla-
bar.
• Tveir Logar verða á Rauða Ijón-
inu og vonandi margir aðrir.
• Herbert & Herbertstrasse eru
komin fram í dagsljósið á ný eftir
fimm ára hlé. Það má þvf segja að
hér sé enn eitt kombakkið (oj) á ferð.
Herbert Guðmundsson leikur rokk
og popp á Nillabar í Hafnarfirði
ásamt Einari Vilberg, Sigurði Hannes-
syni og Sigurði Inga Ásgeirssyni.
Þrátt fýrir að Herbert sé aftur kominn
í poppbransann ku hann ekki vera
hættur að selja bækur úti á landi.
• Diskóstemmning verður á
Hressó alla helgina. Enda þótt engar
hljómsveitir troði upp að þessu sinni
verða skífurnar, sem þeyttar verða í
kvöld og annað kvöld, með besta
móti, — að minnsta kosti fyrir þá
sem elska þessa tegund tónlistar.
Þeir eru aftur á móti afskaplega fáir
sem hafa þorað að viðurkenna það.
Diskófrfk, komið út úr skápnum! Ekk-
ert kostar inn f húsið og kakóið er
gott.
• Út aö skjóta hlppa halda áfram
að skjóta hippa á Gauknum. Þeim
hippum sem ekki eru hrifnir af skot-
hríð er ráðlagt að leita eitthvert ann-
að.
• Út að skjóta hippa ætla að
enda veru sína á Gauknum með
glæsibrag. Þeir koma kannski ein-
hvern tíma í bæinn aftur ef þeim
tekst ekki að útrýma reykvísku hipp-
unum.
SUNNUDAGUR
• Hermann Ingi yngri er enn á
Feita dvergnum.
• Jökulsveitin heldur sitt eigið
blúskvöld á Púlsinum. Sveitin er sam-
sett úr óreyndum krökkum um tví-
tugt, þeim Margréti Sigurðardóttur
söngkonu, Georg Bjarnasyni á bassa,
Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar, Finni Júlí-
ussyni á pfanó og Baldvini Jónssyni á
trommur.
• Gréta Sigurjóns, fyrrum með-
limur Dúkkulfsanna, spilar Cohen og
fleiri góða upp á sitt eindæmi á Fóg-
etanum.
Sveitaböll
FOSTUDAGUR
|ð Hótel Skálavík á Fá-
Iskrúðsfirði verður með
llnga Gunnar Jóhannsson
Ivísnasöngvara á sinum
snærum um helgina. Hann ætlar að
halda upp stuði og kráarstemmn-
ingu með lögum af nýju plötunni
sinni ,Undir fjögur augu'.
LAUGARDAGUR
• Hótel Skálavík á Fá-
skrúðsfirði býður aftur upp
á Inga Gunnar trúbador.
Kllkuklúbburinn ætlar
einnig að mæta á svæðið i kvöld.
• Sjallinn á Akureyri fær Svartan
pipar f heimsókn í kvöld. Hafnfirðing-
arnir ætla að halda uppi dúndrandi
sveitaballsstemmningu á eyrinni.
Nafn Óskars Jónassonar tengja flestir við kvikmyndir og bíó
hús. Nú er hann hins vegar að renna nemendum Leiklistar-
skólans í gegnum síðustu æfingar fyrir frumsýningu, en
sú staðreynd að upplifim getur aldrei orðið sú sama í
leikhúsi og í kvikmyndahúsi fer vart framhjá leikstjór-
anum. „Aðalmunurinn felst í því að í leikhúsi snýst
nær allt um leikarann en í kvikmyndum eiga alls kyns
tækniatriði það til að flækjast fyrir,“ segir Óskar.
„Vinna í leikhúsi byggist á því að leikarinn skilji hug-
myndina sem er í gangi, svo og persónu sína, en í bíó
er auðvelt að svindla á því og slíkt svindl á sér reyndar
oft stað.“ Óskar segir þó tæknivinnu kvikmyndarinnar
heilla sig en Ieikhús geti hrifið meira; ef það er gott og ef
það er lítið. Stórt leikhús virkar ekki, nálægðina vantar.
Vinnan hefur gengið vel, að sögn Óskars, og hópurinn
sem nú er að útskrifast virðist duglegur og áhugasamur.
Ekkert um prímadonnur.
í lokin má fara nokkrum orðum um verkið en „Clara
S“, eins og það nefnist, fjallar um listafólk sem lætur
kúgast af peningavaldinu. Að mati Óskars er sýningin að
mestu hefðbundin fyrir utan hvað húsið allt er notað
fyrir leikmynd, sem er haldið í lágmarki að öðru leyti.
Verkið er einnig óvenjulegt fýrir það að ekki er um
sama plottið að ræða og fólk á að venjast í leikverkum og
skáldsögum.
Oskar Jónasson:
Aðalmunurinn felst íþví
að í leikhúsi snýst nœr
allt um leikarann en í
kvikmyndum eiga alls
kyns tœkniatriði það
til aðflœkjastfyrir. “
rokksveitin Les Ejectes er á lélð til landsins um rniðjan næsta mánuð, fyrir tilstuðlan
þeirra Bergs Más Bernburg og Jóhanns Sigfussonar, meðlima hljómsveitarinnar Orgils. Þeir kynnutust
hljómsveitinni, sem er frá tvö hundruð þúsund manna borginni Limoges, við gerð sjónvarpsþáttarins um
franska poppið sem sýndur var í Sjónvarpinu á dögunum. „Les Ejectes er töluvert þekkt í Frakkiandi og hef-
ur spilað með þekktum hljómsveitum víða um Frakkland. Tónlistin sem þeir spila er sambland af rokki,
pönki, reggí og ska ogþví mjög fjölbreytt, en meðlimir hljómsveitarinnar eru allir hvítir,“ sagði Bergur Már.
Les Ejectes spila í gleðihúsinu Tunglinu helgina 19. og 20. nóvember og bregða sér jafnvel út á land ef
landsbyggðarmenn sýna áhuga. Hljómsveitin Orgill mun spila með þeim á tónleikunum en þá verður hún
væntanlega búin að gefa út nýja geislaplötu. Útgáfutónleikar Orgils eru áætlaðir 4. nóvember.
Guðríður
Haraldsdóttir
skrifstofumaðurog Ijósvíkingur
„Góðan dag. Þetta er sjálfvirk-
ur símsvari hjá Guðríði Har-
aldsdóttur, hinni miklu mekt-
arfrú í vesturbænum, og syni
hennar, Einari Þór, prins af
Hringbraut. Leggið inn skila-
boð, eða hafið verra af.“
Lifandi listaverk
Það er ekki alveg Ijóst
hverju Sif Sigfúsdóttir klæð-
ist á myndinni og undrar
sjálfsagt margan að litir eru
það eina sem hylja nekt
hennar. Lína Rut Karlsdóttir,
förðunarfræðingurinn
snjalli, var hátt í fjórar
klukkustundir að mála fyrir-
sætuna, sem mátti sig hvergi
hræra allan þann tíma.
„Þetta var mjög óvenjulegt
og skemmtilegt," segir Sif.
„Lína Rut er mjög fær og
margir nemendur hennar
fylgdust með verkinu. Mér
leiddist því ekki og tíminn
var fljótur að líða."
Sif kannast flestir við en
hún hefur um sjö ára skeið
unnið að fyrirsætustörfum.
Hún hefur starfað og búið í
París, Finnlandi og Dan-
mörku en nú nemur hún
enskar bókmenntir og er á
lokaári.
María
Gísladóttir
listdansstjóri Þjóðleikhússins
„Ég varmjög ánægð
með Kunakovu, að-
alkvendansarann,
en afar óánægð með
þann semfórmeð
hlutverk prinsins og
einnig með búning-
ana en trúðarnir
voru góðir. Ég er
ekkihrifin afþessari
uppfærslu. Ég hefði
viljað sjá verkið á
stærra sviði en vissi
svosem við hverju
var að búastþví
þetta varekki Kírov-
flokkurinn sjálfur,
aðeins hluti hans."
Sóley
Elíasdóttir
Sódómuleikkona
„Mér fannst gaman
að sýningunni en
Þjóðleikhússviðið er
allt oflítið fyrir þetta
verk. Prinsinn fannst
mér ömurlegur en
prímaballerínurnar
æðislegar, sérstak-
lega sú sem fór með
hlutverk svarta
svansins. Hún var
yndisleg. Henni
fannst greinilega
gaman á sviðinu."
Hermann
Lára
Ragnar
Stefánsson
danskennari
„Mér fannst þetta
falleg og góð sýn-
ing. Eg hefsaman-
burð, því ég sá þessa
sömu uppfærslu í
Konunglega leikhús-
inu í Danmörku fyrir
einum þrjátíu árum.
Það gætti mikils ör-
yggis í hópatriðun-
um. Það sem mér
finnst að mætti hins
vegar gagnrýna er
hve lítið leiksvið
Þjóðleikhússins er,
sem varð tilþess að
dansararnir nutu sín
ekki sem skyldi. “
Stefánsdóttir
ballettdansari og danshöf-
undur
„Sviðið var allt oflít-
ið fyrir hópatriðin
og ég held að sýn-
ingin hefði notið sín
miklu betur i Borg-
arleikhúsinu. Mest
hafði ég gaman af
sólóatriðunum, en
ég hef samanburð af
miklu betri sýning-
um en þessari og því
verð ég að segja að
ég var ekkert upprif-
in. Það sást einnig
greinilega á sýning-
unni að dansararnir
eru búniraðsýna
þessa sýningu allt of
oft því þeir virkuðu
á mig sem deyjandi
svanir."