Pressan - 22.10.1992, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. OKTÓBER 1992
35
Platonov
í leikgerð Péturs
Nítján árum eftir að rússneska skáldið Anton Tsjekov dó, árið 1923,
fundust í bankahólfi nokkru í Moskvu gleymd fjármálaskjöl sem hann
hafði átt og, sem ekki síður var merkilegt, handrit að leikverki. Verk
þetta, sem nefnist Platanov, var sex klukkustunda langt og hafði að
geyma 25 persónur. Tsjekov á að hafa sent hinni ffægu rússnesku leik-
konu Jermelovu verkið óstytt og hún endursent honum það með þeim
skilaboðum að best væri að hann að gleymdi því. Sú var ástæðan fyrir
því að enginn annar hafði litið það augum fyrr en það fannst í áður-
nefhdri bankahirslu.
Fyrir nokkrum árum
gerði Pétur Einarsson
leikgerð að verkinu, sem
nú á að taka til sýningar í
Borgarleikhúsinu. Flann
segist hafa verið grimm-
ur í að strika út aukaat-
riði. „Upprunalega gerist
Platanov á einu sumri en
í minni leikgerð fer það
niður í sólarhring og ég
sameinaði jafhvel nokkr-
ar persónur í eina,“ segir
Pétur. „Verkið er skrifað
fyrir um einni öld og fjallar um yfirstéttina á krepputímum; allt að fara
á hausinn og fólkið skemmtir sér mikið með viðeigandi lauslæti. Við
sem unnum að verkinu nú höfum náð að nálgast það ekki of hátíðlega
og húmorinn er skýrari.“
Platanov, í leikgerð Pét-
urs Einarssonar, verður
frumsýnt í Borgarleik-
húsinu um helgina. Pétur
stytti upprunalega verkið
um nokkra klukkutíma
og sameinaðijafnvel
margar persónur í eina.
Indversk
Kópavþgsprinsessa
geíin út í
Tékkóslóvakíu
Indverska prinsessan, eins og hún
hefur ævinlega verið kölluð á Is-
landi, ræðst ekki á garðinn þar sem
hanner lægstur ef tekið er mið af
titlum söngva á fyrstu geislaplöt-
unni hennar sem gefin var útí
Tékkóslóvakíu á dögunum. Þar ber
eitt laganna heitið Madonna is De-
ad (that is the question), eða hvorki
meira né minna en Madonna er
dauð, en textana semur hún flesta
sjálf. Er Madonna dauð íþínum huga?„Það gæti eins verið ég sem slæ henni við, af
hverju ekki indversk prinsessa frá Islandi? Ég er alveg jafngóð og hún/'sagði Leoncie
Martin, tónlistarkonan sem búsett er í Kópavogi. Titillag geislaplötunnar, Have Faith,
er í tékkneskri fjölskyldumynd sem tekin var til sýningar í25 kvikmyndahúsum víðs-
vegar um Tékkóslóvakíu í byrjun október. Myndin heitir A Friend for Rainy Weather II,
story from Brooklyn.
Hlöðvers
og Erla Friðgeirs
hafa tekið við af
Tveimur með öllu
á Býjgjumn og
líður bara Ijóm-
andi vel í hljóð-
ÆTLAAÐKÆFA
SKAMMDE6IÐ í FÆÞINCU
Bylgjuhlustendur hafa tekið eft-
ir því að Tveir með öllu eru horfn-
ir og í þeirra stað komin þau Sig-
urður Hlöðvers og Erla Friðgeirs.
Að eigin sögn eru þau að setja sig í
ákveðinn vanda að ætla að feta í
fótspor Jóns og Gulla. „Við ætlum
frekar að brydda á nýjungum og
ala á jákvæðninni í okkur,“ segir
Sigurður. „Við hyggjumst kæfa
skammdegið í fæðingu; hafa sum-
ar fram að jólum og verðlauna já-
kvæðasta íslendinginn.“
Erla og Sigurður telja að Jón
Axel og Gulli hafi hætt á réttum
tímapunkti og komið í veg fyrir að
þreyta kæmi í morgunþáttinn.
Þau eru því síður en svo hrædd
við það sem á undan er gengið og
h'ður að eigin sögn vel í hljóðstofu.
„Við vorum svosem alveg viðbúin
því að vera tekin í nefið fyrir að
vera ful, en við hefðum ekki þurft
að kvíða neinu því viðtökurnar
hafa þvert á móti verið mjög góð-
ar.“ Sumum þykir reyndar ansi
stórt upp í sig tekið að nefna út-
varpsþátt „íslands eina von“, eins
og þau gera, en Sigurður segir þau
ætla að reyna að standa undir
nafni og ágætt sé að byrja á
smámonti.
Loksins fyrir sælkerana!
SóCþurrfaðir tóma
Margir sælkerar ráku upp fagn-
aðaróp þegar fréttist að loksins
væri farið að fást á íslandi hið
margrómaða balsamedik og sól-
þurrkaðir tómatar sem þekktir
eru undir nafninu Pumate Sanr-
emo. Þetta eru eðalvörur sem
mörgum hefur fundist vanta í
kryddflóruna. En nú fæst þetta
loksins á íslandi, nánar tiltekið í
Heilsuhúsinu.
Balsamedikið, sem fyrstu rit-
uðu heimildir um eru ffá 1046, er
framleitt úr pressuðum vínberj-
um í sveitinni umhverfís Modena
á Ítalíu. Berin eru elduð í stórum
koparkötlum þar til eftir stendur
dökkur karamellulitaður vökvi
sem er þykkur og sætur. Vökvan-
um, sem gengur undir nafninu
must, er síðan blandað saman við
vínedik og það geymt í hefð-
bundnum viðarámum. Við þetta
verður til balsamedik sem fæst í
þremur mismunandi gæðaflokk-
um; Green label er vinsælast og á
hagstæðasta verðinu, Gold label
inniheldur meira af musti og er
því sætara og bragðmeira og Gold
label RISERVA er eins og eðal-
vínin; hefur verið geymt lengst og
inniheldur mest af musti.
Pumate Sanremo eru hins
vegar sólþurrkaðir tómatar sem
bleyttir eru upp aftur
í kryddaðri ólífuol-
íu. Sólþurrkun gef-
ur tómötunum sér-
stakt bragð, svo
sérstakt að enginn
gleymir því sem ein-
hvern tíma hefur
bragðað tómatana.
Aðeins ekta ítölsk veitingahús
ff amreiða þessa tómata.
Hér koma nokkrar uppskriftir
frd Emi Svavarssyni í Heilsuhús-
inu sem hafa að geyma þennan
eðalvaming.
0£ Baísamediíf
‘Kfúíifinyjur
M(a Lumira
handa fjórum
Hráefhi: Einn heill kjúklingur
eða bitar, 1 tsk. rósmarín, 1 tsk.
salvía, 2 hvítlauksrif, ólífuólía, 3
ansjósur, 1 bolli þurrt hvítvín, 1
bolli balsamedik, salt og pipar.
Aðferð: Hlutið kjúklinginn í
um það bil sextán hluta.
Setjið í eldfast mót með
um það bil 1 dl af vatni,
setjið ohu og salt og pip-
x á kjötið eftir smekk.
Setjið þá fínskorið
rósmarín, salvíu, hvít-
lauk og ansjósur í
bolla ásamt bal-
samedikinu og
ivítvíninu. Hellið
þessari blöndu yf-
ir kjúklinginn og
eldið í 20 til 30
mínútur. Berið fram
með hrísgijónum.
Pumate-pastasalat, handa
sex til átta
Hráefni: 6 bollar penne-pasta,
80 g pumate-tómatar (um 6 pör),
6 skalottlaukar, 2 msk. rifinn
parmesanostur, 1/2 bolli jómffú-
arolía, 1/3 bolli balsamedik, 2
msk. steinselja.
Aðferð: Sjóðið pastað í salt-
vatni í 9 mín. Látið kalt vatn renna
á það. Saxið Pumate-tómatana og
skalottlaukinn í litla bita. Blandið
þessu saman við pastað ásamt
ostinum og bætið kryddinu við.
Þetta salat er bæði hægt að borða
heitt og kalt, en efþið borðið það
heitt þarf að bæta við það 5 msk.
afjómffúarolíu.
íPumate Sanremo-
partísnittur
Hráefni: 200 g sólþurrkaðir
tómatar, 2 löng ffönsk brauð, 400
g rjómaostur, svartur pipar eða
óreganó.
Aðferð: Skerið brauðið í
tvennt, langsum. Smyrjið með
ólífuolíunni úr tómatkrukkunni
og ijómaostinum þar ofan á, Að-
skiljið tómatana og setjið lag af
þeim yfir ostinn. Malið pipar eða
sáldrið svolidu óreganó þar ofan
á. Skerið brauðið þá þversum með
rúmlega 1 cm millibili, svo úr
verði um fimmtíu snittusneiðar.
B I O B O R G I N
Hinir vægðarlausu Unforgiven
★★★★ Clint Eastwood er vernd-
ari hiris vestræna heims — að
minnsta kosti þess villta. Þegar
engum dettur lengur í hug að
bjóða upp á vestra kemur hann
með þetta meistarastykki.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg þrátt fyrir augljósa
hnökra.
Ferðin til Vesturheims Far and
Away ★★★ Rómantísk stórmynd,
ákafíega gamaldags en oft stór-
skemmtileg.
Á hálum ís The Cutting Edge ★★
Ástir og afrek íshokkímanns oq
skautalistdanskonu. Dálítið sérhæft
og ekki vantar klisjurnar.
Lygakvendið Housesitter ★★
Myndin er spunnin út frá bráð-
snjallri hugmynd, en það er líka allt
og sumt. Goldie Hawn og Steve
Martin leika eins og þau séu grín-
sjálfsalar. Hvorugt þeirra virðist
hafa neina tilfinningu, en bæði
þurfa þau að fara að hafa áhyggjur
afferlinum.
Kaliforníumaðurinn California
Man ★ Mynd sem hefði ekki átt að
fara út fyrir fylkismörk Kaliforníu.
Rush ★★ Fíknó eru líka bóhemar
og fikta við eiturlyfjaneyslu. Dálítið
skemmtilega hrá og stundum trú-
verðug mynd. En aðalpersónurnar
ná ekki að lifna við.
Hvítir geta ekki troðið White
Men Can't Jump ★★★ Glúrin
mynd og oft stórsniðug um hvítan
mann og svertingja sem iðka
körfubolta á götum Los Angeles.
Tveir á toppnum 3 Lethal Wea-
pon 3 ★★ Minni hasar og minna
grín en í fyrri myndum en meira af
tilraunum til dramatíkur.
Burknagil — síðasti regnskógur-
inn ★★ Mynd fyrir umhverfis-
væna aðdáendur teiknimynda á
öllum aldri.
Alien 3 ★★★★ Meistaralegur
lokaþáttur þessarar trílógíu, gerir
Batman-veröldina að hálfgerðu
Lególandi.
Tvídrangar Twin Peaks, Fire Walk
With Me ★★ David Lynch hefur
verið að missa flugið og er hættur
að koma á óvart. Ljóðræni fjar-
stæðustíllinn hans er orðinn klisja.
Háskaleikir Patriot Games ★★
Stundum æsileg, en oftar stirð-
busaleg. Fátt kemur á óvart; smá-
smugulegheit eru helsti kostur
reyfara eftirTom Clancy, þegar þau
vantar verður söguþráðurinn helsti
fátæklegur.
Sódóma Reykjavík ★★★ ímynd-
aðir undirheimar Reykjavíkur eru
uppfullir af skemmtilegum kjánum
og aulahúmor.
Svo á jörðu sem á himni ★★★ í
heildina séð glæsileg kvikmynd og
átakanleg. Varla hefur sést betri
leikur í íslenskri bíómynd en hjá
Álfrúnu litlu Örnólfsdóttur.
Steiktir grænir tómatar Fried
green tomatoes ★★★ Konumynd;
um konur og fyrir konur. Góðir eig-
inmenn láta undan og fara með.
LAUGARASBI
Kristófer Kólumbus Christopher
Columbus: The Discovery ★ Ágæt
fyrir þá sem vita ekki að búið er að
finna Ameríku.
Ferðin til Vesturheims Far and
Away ★★★ Rómantísk stórmynd,
ákafíega gamaldags en oft stór-
skemmtileg.
Beethoven ★★ Ágæt fyrir börn og
hunda.
REGNBOGINN
Sódóma Reykjavík ★★★ Álappa-
legir og hlægilegir smákrimmar í
höfuðborginni.
Hvítir sandar. White Sands ★
Mickey Rourke er orðinn vöru-
merki á vondum myndum. Nokkrir
listrænir tilburðir ná ekki að draga
fjöður yfir kjánalegt plott og holar
persónur.
Prinsessan og durtarnir ★★★
Myndin er tal- og hljóðsett af mik-
illi kostgæfni og ekkert til sparað.
Að öðru leyti frekar meinlítið ævin-
tvri.
Ognareðli Basic Instinct ★★
Markaðsfræðingarnir fá báðar
stjörnurnar. Annað við myndina er
ómerkilegt.
Lostæti Delicatessen ★★★★
Hugguleg mynd um mannát.
Henry, nærmynd af fjöldamorð-
ingja ★★ Að ýmsu leyti ókræsi-
legri morðingi en Hannibal Lecter.
Mynd sem gekk vel á síðustu kvik-
myndahátíð.
ÉBHaiBHÐ
Ruby ★ Mynd fyrir þá sem enn
eru ekki búnir að fá sig fullsadda af
samsæriskenningum um morðið á
Kennedy.
Ofursveitin Universal Soldicr ★★
Mynd um karlmenni, fyrir stráka
sem kannski pína kærusturnar
með.
Börn náttúrunnar ★★★ Rómað-
asta íslenska bíómyndin.
S O G U B I O
Seinheppni kylfingurinn ★ ★
Frekar fábrotinn sænskur húmor
þótt ekki vanti tilþrif. Golfarar ættu
að geta öskrað úr hlátri, en varla
aðrir.
Fyrir strákana For the Boys ★ ★
Bette Midler fer fjarskalega vel með
múslkina sem er frá tímanum áður
en rokkið tröllreið öllu. En allt verð-
ur frekar útþynnt þegar tónlistinni
sleppir.
Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★★
Vfirleitt hugjjúf, en nornin er býsna
hræðileg og hefur valdið mörgum
börnum andvökunóttum.