Morgunblaðið - 07.11.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2004 57
DAGBÓK
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20, Caprí–
tríó leikur fyrir dansi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
þriðjudaga og föstudaga létt ganga
um Elliðaárdalinn.
Hæðargarður 31 | Þriðjudag 9. nóv-
ember verður kynnisferð til LR í Borg-
arleikhúsi á vegum Bókmenntaklúbbs
Háaleitishverfis. Leikhússtjóri tekur á
móti hópnum, fræðsla og síðdeg-
iskaffi. Rúta frá Hæðargarði kl. 13.40,
Sléttuvegi kl. 13.45 og Furugerði kl.
13.50. Jólavörur frá B. Magnússon
fimmtudag 11. nóv.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Fundur
verður mánudaginn 8. nóvember kl.
20 í safnaðarheimilinu, tísku- og
skartgripasýning.
Skátamiðstöðin | Næsta samvera er
mánudaginn 8. nóvember kl. 12. Léttur
hádegisverður. Umfjöllun: Þrym-
heimur – ævintýri á Hellisheiði.
Vesturgata 7 | Fræðslu og fjöltefli
verður haldið þriðjudaginn 9. nóv-
ember kl. 13 Hendrik Daníelsen dansk-
ur stórmeistari mætir frá Hróknum.
Veislukaffi. Allir velkomnir óháð aldri.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Jólamark-
aður verður á Vitatorgi fimmtudaginn
11. nóvember kl. 13. Þar verður margt
til jólagjafa, jólaglögg og jólatónlist,
kaffiveitingar í matsalnum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Fundur í Æskulýðs-
félaginu kl. 20 sunnudag.
Grafarvogskirkja | Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka
daga frá kl. 9–17 í síma 587–9070.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Vörður Leví Traustason. Á samkom-
unni verður barnablessun. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Haf-
liði Kristinsson. Á samkomunni verður
skírn. Gospelkór Fíldelfíu. Aldursskipt
barnastarf á meðan samkomu stend-
ur. Allir velkomnir.
Kynning
Breiðholtskirkja | ClaMal kvenfatn-
aður verður sýndur í Safnaðarheimili
Breiðholtskirkju (jarðhæð) þriðjudag-
inn 9. nóv. kl. 20. Gengið inn að sunn-
anverðu. Kvf. Breiðholts.
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju flytur
sálumessur eftir Frakkana Gabriel Fauré
og Maurice Duruflé á tónleikum á allra
heilagra messu, kl. 20 í kvöld í Hall-
grímskirkju, en tónleikarnir eru liður í
dagskrá Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Þessi víðfrægu requiem verða flutt
við kertaljós og undirleik hins glæsilega
Klaisorgels kirkjunnar.
Allra heilagra messa (1. nóvember) er
haldin hátíðleg í íslenskum kirkjum á
fyrsta sunnudegi í nóvember og er lát-
inna minnst á þessum degi. Löng hefð
er fyrir því víða um lönd að flytja sálu-
messur á allra heilagra messu og eru
tónleikarnir í Hallgrímskirkju viðleitni til
að auka áhuga á þeim góða sið hér á
landi.
Mótettukór Hallgrímskirkju flytur
sálumessu Faurés í fyrsta sinn á tón-
leikunum á sunnudaginn, en kórinn flutti
requiem Duruflés fyrir áratug, m.a. á
opnunartónleikum sumartónlistar-
hátíðarinnar Klangbogen í Vínarborg. Í
kjölfarið var verkið hljóðritað og gefið út
af þýska útgáfufyrirtækinu Thorofon.
Einsöngvarar með Mótettukórnum á
tónleikunum verða þrír: hinn ellefu ára
gamli drengjasópran Ísak Ríkharðsson,
Sesselja Kristjánsdóttir messósópran,
sem syngur nú í fyrsta sinn með Mót-
ettukórnum, og Magnús Baldvinsson
bassi, sem kemur sérstaklega frá
Þýskalandi til að syngja með kórnum
sem hann hóf söngferil sinn með. Inga
Rós Ingólfsdóttir leikur á selló og
sænski orgelvirtúósinn Mattias Wager
leikur á Klaisorgelið. Stjórnandi er
Hörður Áskelsson.
Himneskar sálumessur
Morgunblaðið/Kristinn
ÓL í Istanbúl.
Norður
♠ÁG54
♥D32 A/NS
♦K75
♣643
Vestur Austur
♠9876 ♠KD10
♥G84 ♥5
♦D962 ♦G103
♣ÁK ♣D109875
Suður
♠32
♥ÁK10976
♦Á84
♣G2
Það var augljóst strax í fyrstu lotu í
viðureign Kína og Ítalíu að ekkert yrði
slegið af í sögnum. Fyrsta spilið féll í
harðri slemmu, sem stóð, og síðan kom
spilið að ofan. Ekki er að sjá að NS eigi
efnivið í geimsögn, en keppendur voru
á öðru máli. Byrjum í opna salnum:
Vestur Norður Austur Suður
Dai Bocchi Xin Duboin
– – Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði 2 lauf 2 hjörtu
3 lauf 4 hjörtu Allir pass
Vestur tók fyrstu tvo slagina á kóng
og ás í laufi, en skipti síðan yfir í tígul.
Duboin tók slaginn heima og lagði nið-
ur trompásinn. Spilaði svo spaða og
dúkkaði til austurs. Xin spilaði laufi, en
Duboin stakk frá með kóng og svínaði
svo fyrir hjartagosann. Hann tók síð-
asta trompið með drottningunni, síðan
spaðaás og trompaði spaða. Þegar
hjónin í spaða komu niður þriðju var
fundið niðurkast fyrir tígulhundinn
heima. Tíu slagir og 620 í NS.
Förum þá í lokaða salinn:
Vestur Norður Austur Suður
Versace Xin Lauria Shaolin
– – Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd !
Pass 3 grönd Allir pass
Þetta er frumleg nálgun, að byrja á
því að finna níu spila samlegu í hjarta
og enda svo í þremur gröndum. En
geimið er mun sterkara en fjögur
hjörtu, því sagnhafi á þó níu örugga
slagi þegar hann kemst að. Og Shaolin
komst strax að, því útspilið var tígull:
600 í NS, en 1 IMPi til Ítala.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
ÓLÖF K. Sigurðardóttir verður með sýn-
ingarstjóraspjall í Listasafni Reykjavík-
ur – Ásmundarsafni kl. 15 í dag í
tengslum við sýninguna Ásmundur
Sveinsson – Maður og efni, sem nú
stendur þar yfir. Á sýningunni getur að
líta mörg af helstu verkum Ásmundar,
þar sem leitast er við að skoða hvernig
ólík efni móta afstöðu listamannsins til
viðfangsefnisins.
Sýningarstjóraspjall í Ásmundarsafni
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson