Morgunblaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Einu sinni var ... Glæsileg útgáfa með nýrri þýðingu á tólf af þekktustu og vinsælustu ævintýrum H.C. Andersens. „Sögur Hans hafa fylgt íslenskum börnum lengi og þessi glæsilega útgáfa ætti að tryggja ungum og eldri lesendum yndislegar stundir enn um hríð.“ - Páll Baldvin Baldvinsson, DV Prinsessan á bauninni - Þumalína - Staðfasti tindátinn - Ljóti andarunginn - Svínahirðirinn - Litla stelpan með eldspýturnar - Nýju fötin keisarans - Eldfærin - Snjókarlinn - Grenitréð - Hans klaufi - Villtu svanirnir Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 24. – 30. nóv. 7. 8–80 ára GEIR H. Haarde fjármálaráðherra gerir engar athugasemdir við þá ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti um 1 prósentustig og telur að bankinn hafi sýnt mikla ábyrgð með ákvörðun sinni. Hann segir rík- isstjórnina munu standa við sitt varðandi áform um skattalækkan- ir aðspurður um það sem fram kemur í nýjasta hefti Peningamála þess efnis að ekki liggi fyrir hvar skuli skera niður í ríkisút- gjöldum. „Það hefur legið fyrir í hálft annað ár að ríkisstjórnin ætlaði sér að lækka skatta,“ segir Geir. „Bæði ríkisstjórn- in og Seðlabankinn þurfa að laga sig að þeirri staðreynd, en það hefur eng- inn sagt að hér yrði um auðvelt verk- efni að ræða. En við munum standa við okkar hlut og ég vona að Seðla- bankinn muni gera slíkt hið sama. Mér sýnist hann vera ákveðinn í því.“ Í Peningamálum kemur fram að þar sem ekki liggi fyrir áætlun um niðurskurð verði að telja verulegar líkur á að aðhald í opinberum fjár- málum verði ófullnægjandi. Um þetta segir Geir að ekki sé víst að bankinn og ríkisstjórnin séu sammála um túlk- un á hugtakinu „ófullnægjandi“. „Við lifum í heimi hins pólitíska veruleika og verðum að taka tillit til fleiri atriða en Seðlabankinn gerir. Þrátt fyrir miklar kröfur um útgjöld af hálfu stjórnarandstöðunnar og fleiri held ég að það aðhald sem við er- um að reyna að ná fram sé fullnægj- andi. Verðbólguspár Seðlabankans byggja á vöxtum og gengi frá því í nóvember. Nú eru breyttar aðstæður og auðvitað er eðlilegt að Seðlabank- inn bregðist við þeim og ég geri engar athugasemdir við það. Seðlabankinn spáir meiri hagvexti en fjármálaráðu- neytið en miðað við núverandi að- stæður tel ég aðhaldið í ríkisfjármál- unum fullnægjandi.“ Geir segist ekki telja að Seðlabank- inn sé með afstöðu sinni að gagnrýna fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar heldur sé hann að leggja sjálfstætt mat á hlutina, rétt eins og fjármála- ráðuneytið. „Ef maður horfir á verð- bólgutölur í heildarsamhengi nokkur ár fram í tímann sést að það skeikar ekki nema 1–1,5% frá upprunalegum markmiðum. Einhvern tíma hefði þótt merkilegt að ekki skeikaði meiru. Athugasemdir Seðlabankans um aukið aðhald beinast ekki að fjármála- ráðuneytinu heldur e.t.v. þeim sem gera kröfur um aukin ríkisútgjöld og meiri framkvæmdir á vegum hins op- inbera. Ég held því að þeir sem fara fram á auknar fjárveitingar ættu að skoða sinn gang í ljósi athugasemda Seðlabankans. Ég lít því á skoðun hans sem stuðning við það sem við er- um að gera í fjármálaráðuneytinu.“ Geir H. Haarde um athugasemdir Seðlabankans við skattalækkunaráformum Aðhaldið fullnægjandi miðað við núverandi aðstæður Geir H. Haarde UNDANFARIN þrjú ár hafa krakkar úr leikskólunum Arnarborg, Bakkaborg og Fálkaborg séð um að skreyta jólatrén í Mjóddinni með heimagerðu jólaskrauti. Að sjálfsögðu mættu jólasveinar á svæðið. Þvörusleikir er hrifinn af þvörunni og höfðu sumir áhuga á að kynnast því hvað er svona merkilegt við hana. Morgunblaðið/Kristinn Smakkar hjá Þvörusleiki 21 ÁRS gamall maður sem í nóvem- ber í fyrra rændi Vesturgötuútibú Búnaðarbanka Íslands var í gær dæmdur í tveggja ára óskilorðsbund- ið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík- ur. Félagi hans sem aðstoðaði hann við að útvega lambhúshettu og ók honum til og frá útibúinu hlaut átta mánaða skilorðsbundið fangelsi en hann kvaðst ekki hafa trúað því að hann myndi láta til skarar skríða. Þá fékk hann ekkert af ránsfengnum í sinni hlut. Ránsfengurinn var 430 þúsund krónur en þrátt fyrir að ræninginn hafi verið handtekinn samdægurs tókst aðeins að endurheimta rúmlega 30 þúsund. Fyrir dómi sagðist ræn- inginn, Jón Þorri Jónsson, fyrst hafa talið peningana en síðan farið og hitt mann sem hann sagðist hafa skuldað vegna kaupa á fíkniefnum. Honum hefði hann greitt 330 þúsund krónur. Því næst lá leiðin í Smáralind þar sem hann keypti tölvuleiki fyrir hluta af fjárhæðinni og hann keypti síðan fleiri leiki í Skeifunni í Reykjavík. Hann var byrjaður í tölvuleik þegar lögregla knúði hjá honum dyra. Með ráninu rauf hann skilorð eldri dóms sem kveðinn var upp í Héraðs- dómi Reykjaness og brotið var auk þess hegningarauki við tvo dóma sem hann hlaut í Héraðsdómi Norður- lands eystra, báða vegna fíkniefna- mála. Báðir mennirnir voru ákærðir fyr- ir rán og segir í ákæru að félagi Jóns hafi bæði látið honum í té lambhús- hettu og afhent honum hníf til að nota við ránið. Jón játaði skilyrðis- laust á sig ránið. Félagi hans viður- kenndi að hafa aðstoðað hann við að útvega lambhúshettuna en hann kvaðst ekki hafa látið hann fá hnífinn heldur hefði hann tekið hann úr hanskahólfinu án þess að hann yrði þess var. Jón hefði sagt sér að hann hygðist ræna útibúið en því hefði hann ekki trúað fyrr en hann kom út úr útibúinu með fjármunina með sér. Að svo komnu ók hann með honum á brott. Þennan framburð staðfesti Jón. Í niðurstöðum dómsins segir að með því að aka honum til og frá úti- búinu hafi hann gerst sekur um hlut- deild í brotinu. Haldi hann skilorð í þrjú ár fellur refsingin niður. Símon Sigvaldason kvað upp dóm- inn. Sigríður J. Friðjónsdóttir sak- sóknari sótti málið f.h. ríkissaksókn- ara, Jón Höskuldsson hdl. var til varnar fyrir Jón en Sigmundur Hannesson hrl. fyrir hlutdeildar- mann hans. Tveggja ára fangelsi fyrir bankarán Borgaði fíkni- efnaskuld og keypti tölvuleiki Dæmdur fyrir að ræna Búnaðarbankann á Vesturgötunni STÚLKAN sem lést þegar sprengjuárás var gerð á íslenska friðargæsluliða í Kabúl 23. október sl. hét Feriba. Hún var 13 ára gömul og var helsta fyrirvinna átta manna fjölskyldu. Vegna dauða hennar fékk faðir hennar greidda 2.200 bandaríkjadali frá afgönsku ríkisstjórninni, jafnvirði um 140.000 króna. Frá þessu var greint á vefritinu www.paktrib- une.com. Sagt er frá því að hún hafi sótt skóla á morgnana en síðan stundað götusölu á Chicken Street síðdeg- is. Viðskiptavinir hennar hefðu einkum verið útlendingar, einna helst hermenn í alþjóðlega frið- argæsluliðinu ISAF. „Þeir elskuðu hana,“ er haft eftir talsmanni kaupmanna við Chicken Street og nokkrir þeirra komu seinna á heimili fjölskyldunnar til að votta ættingjum samúð sína. 23 ára bandarísk kona lést einnig í árás- inni. Daginn sem árásin var gerð hafði hún sagt móður sinni að hún myndi sjá um að kaupa hráefni í sérstakan hátíðarmat vegna Ram- adan, föstumánaðar múslíma. Þeg- ar sprengingin varð hafði hún þeg- ar selt bók til hermanns fyrir 10 dollara. Leyniþjónusta Afganistan greindi frá því að maðurinn sem gerði árásina hét Matiullah. Hann var áður félagi í herskáum flokki sem gekk til liðs við talibana. Hann ferðaðist frá flóttamanna- búðum í Peshawar í Pakistan til að fremja árásina. Í fréttinni er greint frá því að í ágúst fórust a.m.k. tvö börn í bílasprengingu sem beindist gegn bandarísku öryggisgæslufyrir- tæki. Stúlkan sem lést í árásinni í Kabúl Fyrirvinna átta manna fjölskyldu LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í gærkvöldið karlmann með stolinn riffil og haglabyssu sem tekin voru í innbroti í heimahús í Grafarvogi í gær. Maðurinn vakti athygli árvök- uls borgarbúa í austurborginni sem hringdi í lögreglu og sagði frá grun- samlegum vopnaburði mannsins. Var hann þá að flytja vopnin úr bíl sínum inn í hús. Lögreglan kom fljótt á staðinn og tók skotvopnin í sína vörslu og setti manninn í fanga- klefa. Hann er þekktur fyrir afbrot og var grunur um að meira þýfi gæti verið inni í húsinu sem hann ætlaði með skotvopnin inn í. Rannsóknalögreglumenn voru ný- byrjaðir að kanna verksummerki í innbrotinu í Grafarvogi þegar upp komst um skotvopnin í fórum mannsins allt annars staðar í borg- inni. Málið hefur verið tekið til rann- sóknar. Tekinn með riffil og haglabyssu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.