Fréttablaðið - 25.04.2004, Page 21
Hvíld er nauðsynleg Starfsmaður á rétt á minnst 11 klukkustunda hvíld
milli vinnudaga. Ef fólk er beðið um að mæta til vinnu fyrr má fresta hvíld-
inni. Þá safnast 1,5 tíma frítökuréttur fyrir hvern tíma sem hvíldin skerðist.
! HÚSRÁÐ: HEILSA Í VINNUTÍMANUMSetur við skrifborð eru ekki heilsusamlegar íóhófi og því gott að taka sér góðar pásur áklukkutímafresti.
Gott er að standa á fætur og teygja úr sér.
Ekki nota lyftuna - það er ágætis líkamsrækt að
labba alltaf upp stigann.
Sittu rétt - það fer illa með bakið að húka fram
á borðið.
Umhverfisviðurkenning Reykjavíkurborgar er veitt
fyrirtæki eða stofnun sem leitast við að haga rekstri
sínum eða einstökum rekstrarþáttum í samræmi
við grunnregluna um sjálfbæra þróun. Til greina
koma fyrirtæki eða stofnanir í Reykjavík sem sýnt
hafa slíka viðleitni. Viðurkenningin verður veitt
formlega á umhverfisdegi Sameinuðu þjóðanna
þann 5. júní nk. Viðurkenningin kom í hlut
Umslags ehf árið 2003 og var það í sjöunda sinn
sem hún var veitt.
Þeir sem óska eftir að koma til greina í ár eða óska
eftir að tilnefna fyrirtæki eða stofnun til Umhverfis-
viðurkenningarinnar eru vinsamlegast beðnir að
fylla út sérstök eyðublöð sem liggja frammi hjá
Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur,
Skúlagötu 19, hjá Upplýsingarþjónustu Ráðhúss
Reykjavíkur og á heimasíðu Umhverfis- og heil-
brigðisstofu, www.umhverfisstofa.is.
Tilnefningum ber að skila Umhverfis- og heil-
brigðisstofu eigi síðar en 15. maí 2004.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar
mun óska eftir frekari upplýsingum frá tilnefndum
fyrirtækjum eða stofnunum og frá þeim aðilum
sem tilnefna.
Frekari upplýsingar fást hjá
Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur
Skúlagötu 19
101 Reykjavík
Sími 563 2700
Umhverfisviðurkenning
Reykjavíkurborgar
Borgarstjórinn í Reykjavík auglýsir eftir
tilnefningum til Umhverfisviðurkenningar
Reykjavíkurborgar 2004.
Alls bárust Nýsköpunarsjóði
námsmanna 375 umsóknir vegna
styrkja til rannsóknarverkefna af
fjölbreyttum toga í ár en ákvörðun
vegna úthlutunar liggur nú fyrir
og hafa svör þegar verið send til
þeirra 140 styrkþega, sem munu
vinna að rannsóknarverkefnum í
sumar. Hanna María Jónsdóttir,
framkvæmdarstjóri Nýsköpunar-
sjóðs, segir öll verkefni enn á
frumstigi og vinnu ekki hefjast
fyrr en prófum lýkur í vor. Hluti
háskólanema þurfi því ekki að
hafa áhyggjur af sumarvinnu í ár.
„Það er náttúrulega almennt um
sjóðinn að segja að hann er til þess
gerður að útvega háskólastúdent-
um sumarvinnu og er í upphafi
hugsaður sem atvinnubótaúrræði,
en hefur á þessum tólf árum sem
hann hefur starfað, fest sig í sessi
sem fullgildur rannsóknarsjóður.“
Hanna María segir reynslu þá er
námsmenn öðlast á tímaskeiði
rannsóknarvinnu oft á tíðum mikil-
væga viðbótarþekkingu við há-
skólanám, því oftar en ekki eru
rannsóknarverkefni tengd námi
háskólanema sem taka sumarstarf
á vegum Nýsköpunarsjóðs. Nem-
endur eru úr hópi allra háskóla á
landinu, en afrakstri rannsóknar-
verka er skilað í formi loka-
skýrslna í haustbyrjun. „Útkoma
rannsóknarverkefna er iðulega
mjög spennandi. Verkefni sem
sjóðurinn styrkir eru af verulega
fjölbreyttum toga í ár, en umsókn-
irnar spanna mjög vítt svið og
sýna helst hversu mikil gróska er í
öllum greinum á háskólastigi.
Nokkuð jafnt hlutfall er á milli
rannsóknargreina í ár, en fjöldi
umsókna leiðir berlega í ljós
hversu mikil raunveruleg þörf er
fyrir sjóð af þessu tagi og mætti
fjárstreymi gjarna vera meira en
raunin hefur verið því vöxtur
rannsóknargreina er hraður og full
þörf á frekari styrkveitingum.“ ■
Unglingavinnan:
Skráningu lýkur 30. apríl!
„Hún er liðin sú tíð
þegar íslenskir ung-
lingar voru komnir í
sumarvinnu daginn
eftir að vorprófum lauk
og unnu til síðasta
dags fyrir nýtt skólaár
að hausti,“ segir Arn-
finnur U. Jónsson,
skólastjóri Vinnuskóla
Reykjavíkur, sem sér
um unglingavinnu fyrir
unglinga úr áttunda,
níunda og tíunda bekk
grunnskólanna. Í fyrra
unnu um 3.300 ung-
lingar við gróðurum-
hirðu og snyrtingu á
vegum Vinnuskólans
og Arnfinnur á von á
svipuðum fjölda í
sumar. „Hérna fá allir
vinnu sem á annað
borð skrá sig. Því þarf
enginn á þessum aldri
að ganga um atvinnu-
laus í sumarfríinu.“
Vinnutímabilið er mis-
munandi fyrir aldurs-
hópana, en unglingar í
áttunda bekk vinna
fimm vikur í þrjá og
hálfan tíma í senn, meðan unglingar í níunda og tíunda bekk vinna í sex vikur, sjö
stunda vinnudag. Ástæðu fyrir því að unglingavinnan er ekki lengri en raun ber vitni
segir Arnfinnur vera breytta tíma. „Þetta eru vitaskuld ungir krakkar sem stunda nám all-
an veturinn og nám er vinna. Þeir hafa því rétt og þörf á sumarfríi eins og aðrir Íslend-
ingar. Svo hefur skólaárið lengst og þessi stífa sumarvinna á unglingum úrelt.“ Arnfinn-
ur segir þó margan unglinginn langa í meiri vinnu, einkum þegar litið er til frekari tekju-
möguleika. „En mörg eru í blaðaútburði og barnapössun samhliða unglingavinnunni,
svo fátt eitt sé nefnt.“
Tímalaun fyrir unglingavinnuna í sumar eru krónur 265 fyrir áttunda bekk, krónur 299
fyrir níunda bekk og 397 krónur fyrir tíunda bekk.
Þess má geta að skráningu í unglingavinnuna lýkur 30. apríl. Þeir sem ekki skrá sig
fyrir þann tíma fá ekki vinnu í sumar. ■
Námsmöguleikar:
Hvernig verð
ég ljósmóðir?
STARFIÐ:
Á Íslandi starfa um 180 ljósmæður á
heilbrigðisstofnunum landsins. Starfið
þykir eitt fegursta og mest gefandi í
heimi, en auk þess að taka á móti ný-
fæddum börnum í heiminn, sjá ljós-
mæður um mæðravernd og eftirlit, og
starfa á sængurlegu- og meðgöngudeild-
um, sem og í heimaþjónustu í sængur-
legu.
INNTÖKUSKILYRÐI:
Forkröfur í nám í ljósmóðurfræðum er að
nemandi hafi lokið stúdentsprófi og
námi í hjúkrunarfræði. Sem hjúkrunar-
fræðingur verður nemandinn ennfremur
að hafa leyfi til starfa sem slíkur á Ís-
landi. Fjöldatakmarkanir eru í námið og
haustið 2004 verður tíu nemendum
hleypt inn. Því má við bæta að æskilegir
kostir ljósmæðra eru gnótt þolinmæði og
gott innsæi.
NÁMIÐ:
Nám í ljósmóðurfræðum tekur tvö ár, en
þar sem skilyrði fyrir inntöku er próf í
hjúkrunarfræði, tekur námið sex ár. Ljós-
móðursnámsárin tvö skiptast í tvennt;
byrjað er á tíu mánaða fræðilegu og
klínísku námi, en þá tekur við tólf mán-
aða starfsþjálfun á fæðingadeild.
ATVINNUHORFUR:
Börn halda áfram að fæðast og alltaf er
þörf fyrir ljósmæður. Um hríð hefur
meira að segja verið mikill skortur á ljós-
mæðrum á landsbyggðinni.
LAUN- OG VINNUTILHÖGUN:
Ljósmæðrastarfið er vaktavinna, alla
daga, allan ársins hring. Starfið tilheyrir
láglaunastéttum með háskólamenntun.
Byrjunarlaun eru um 190 þúsund á mán-
uði.
Blómarós í blómabeði. Víst væri borgin okkar ekki jafn sumar-
fögur ef starfskrafta unglinganna okkar nyti ekki við.
„Vöxtur rannsóknargreina hraður og full þörf á frekari styrkveitingum,“ segir Hanna María Jónsdóttir.
Úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna lokið
Mikil gróska í öllum
greinum á háskólastigi