Fréttablaðið - 25.04.2004, Page 32
Kirkjur
Sjálfboðaliðastarf í kirkjum er mjög öflugt og á höfuðborgar-
svæðinu má gróflega áætla að um 50 - 100 manns komi að
sóknarstarfinu á einn eða annan hátt með sjálfboðaliðastarfi.
Misjafnt er í hverju starfið er fólgið en sem dæmi má nefna
kóra, þjónustuhópa, lesara, sóknarnefnd, bænahópa, alfa-
hópa, kvenfélög og svo mætti lengi telja.
Sóknir landsins
eru 280 talsins
auk þess sem
fjórar eru starf-
ræktar erlendis.
Þess ber að
geta að sóknirn-
ar eru misstórar
en óhætt er að
segja að sjálf-
boðaliðarnir
hlaupi á
nokkrum þúsundum.
Margir sem taka þátt í sóknarstarfi kirkjunnar leggja einnig
sitt af mörkunum til Hjálparstarfs kirkjunnar. Innan hjálpar-
starfsins starfa einnig nokkrir sjálfboðaliðar sem sinna ýms-
um verkum, svo sem að setja í umslög, ganga í hús með
söfnunarbauka, hjálpa til í matarbúri fyrir jól svo fátt eitt sé
nefnt.
6
25SUNNUDAGUR 25. apríl 2004
NÝTT Á LEIGUMARKAÐI!
Heimkynni ehf, bjóða nýjar og glæsilegar íbúðir við
Þórðarsveig, til útleigu á almennum leigumarkaði.
Þórðarsveigur 32-36 er nýtt 33ja
íbúða fjölbýlishús, vel staðsett í fögru
umhverfi Reynisvatns. Um er að ræða
3ja og 4ra herbergja íbúðir. Íbúðirnar
eru fullbúnar innréttingum og tækj-
um. Sér inngangur er í allar íbúðir.
Suðurgarður hússins nýtur skjóls af
stórum gamalgrónum trjálundi, sem
umlykur garðinn og gerir hann að afar
fjölskylduvænu útivistarsvæði.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR ERU Á VEFNUM OKKAR
W W W . H E I M K Y N N I . I S .
HJÁLPARSTARF
Sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins í Serbíu dreifa matvælum til
bágstaddra í Kosovo. Um þúsund Serbar flúðu heimili sín í kjölfar of-
beldisöldu sem risið hefur upp þar síðustu daga. Í slíkum kringum-
stæðum er oft þörf á fólki sem vill hjálpa til og láta gott af sér leiða.
a gott af sér leiða
Foreldraráð
Í flestum leik- og grunnskólum eru starfandi foreldraráð og/eða félög. Í
foreldraráðum grunnskólanna eru þrír aðalmenn og þrír varamenn og
má gróflega áætla að um 600 sjálfboðaliðar taki þátt í starfi foreldraráð-
anna. Sums staðar er þó farið að greiða fyrir fundarsetu þar sem um
lögbundin ráð er að ræða. Foreldrafélög eru einnig starfrækt í flestum
grunnskólum, sem eru hátt í 200 talsins, og leikskólum, sem eru um
250, og má því ætla að rúmlega þúsund manns taki þátt í því starfi. Þá
eru ótalin bekkjaráð sem starfrækt eru í mörgum grunnskólum.
Einnig er algengt að foreldraráð eða hollvinafélög séu starfrækt í sjálf-
boðavinnu í framhaldsskólum.
Íþróttafélög
Um 400 íþróttafélög eru starfandi á landinu. Í hverju félagi er minnst
þriggja manna stjórn sem vinnur í sjálfboðaliðastarfi. Þar að auki kemur
fjöldinn allur af sjálfboðaliðum við sögu, til dæmis í gegnum foreldra-
starfið, dómarar, þjálfarar og svo framvegis. Áætla má að fjöldi sjálf-
boðaliða í kringum íþróttadeildirnar hlaupi því á tugþúsundum.
Til að taka þátt í starfi íþróttafélaganna nægir yfirleitt að bjóða sig fram
hjá viðkomandi félögum.
Félagið Ísland - Palestína
Félagið var stofnað árið 1987 og
meðal markmiða þess er að stuðla
að jákvæðum viðhorfum Íslendinga
til ísraelsku og palestínsku þjóð-
anna, vinna gegn aðskilnaðarstefnu
og hvers kyns mismunun á grund-
velli uppruna, ætternis eða trúar-
bragða.
Félagsmenn í Íslandi - Palestínu eru
um 400 talsins og eru félagsgjöld
aðaltekjulind þess. Með því að
ganga í félagið, taka þátt í fundum
þess og aðgerðum og greiða félags-
gjaldið leggur fólk sitt af mörkum.
Landsbjörg
Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunar-
sveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Slysavarnafélagið
Landsbjörg var stofnað 2.október 1999 en þá sameinuðust
Slysavarnafélag Íslands, sem var stofnað 1928 og Lands-
björg, landssamband björgunarsveita sem var stofnað
1991. Við stofnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar urðu til
ein stærstu samstök sjálfboðaliða á Íslandi með um 18
þúsund félögum sem starfa í björgunarsveitum, slysavarna-
og unglingadeildum, alls 242 félagseiningar sem staðsettar
eru víðs vegar um landið.
FLEIRI HUGMYNDIR:
- Skátarnir
- Stjórnmálaflokkar
- Lionsklúbbar
- Vímulaus æska
- Barnaspítalinn Hringurinn
- Skógræktarfélög
- Mæðrastyrksnefnd
Svo er einnig mögulegt að
stofna sín eigin góðgerðar-
samtök, kenna þau jafnvel
við sjálfan sig, og byrja að
gera góðverk. Slíkt er þó
flóknara.
4
5
7
8