Tíminn - 12.06.1974, Side 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur. 12. júni 1974
Ég verð að fd að
elska þann, sem
ég vel mér sjdlf
Tengdamó&ir min er stórkostleg
kona, en hún skiptir sér af allt of
miklu. Ég verð að hafa rétt á að
lifa minu eigin lifi — ég vil, að
hún láti mig um það, hvaða
mann ég vel mér að elska. Ethel
Kennedy hefur nú verið ekkja i
fimm ár, eða frá þvi maður
hennar Robert Kennedy var
myrtur, og nú hefur hún i fyrsta
skipti mótmælt tengdamóður
sinni, og yfirráðastefnu hennar.
Rose Kennedy hefur helgað allt
sitt lif börnunum sinum og
fjölskyldunni og vill hennar veg
sem mestan. í tvö ár hefur
Ethel Kennedy farið i felur með
ást sina á Andy Williams.
,,Þessum þarna söngvara,”
segir tengdamóðir hennar með
fyrirlitningartón. — Hugsaðu
um fjölskylduna. — En ég er
hamingjusöm, þegar ég er með
Andy, segir Ethel. — Ég vil
giftast honum. Við ætlum að
flytjast til Kaliforniu með
börnin, og þá losnar ættin við
okkur
o
Picasso veldur
vandræðum
Þegar Picasso lézt, ánafnaði
hann Louvre-safninu um 200
myndir og málverk eftir heims-
fræga listamenn. Þessi dánar-
gjöf er nú farin að valda stjórn-
endum safnsins nokkrum
áhyggjum. Astæðan er sú, að
listamaðurinn setti það skilyrði
fyrir gjöfinni, að öll yrðu lista-
verkin höfð i einum og sama
salnum, eða i samfelldum hluta
safnsins, svo þau mynduðu eins
konar safn i safninu. Þetta veld-
ur nokkrum erfiðleikum, meðal
annars vegna þess, að fram til
þessa hefur sá háttur verið
hafður á i Louvre, að lista-
verkunum er raðað saman eftir
höfundum, þannig að verk sama
manns eru höfð saman. Einnig
er timabilið, sem myndirnar
eru frá, og landið, látið ráða
nokkru um uppsetningu safns-
ins. Það hefur komið fyrir, að
ekki hefur verið tekið við dánar-
gjöfum, vegna þess að þær voru
gefnar með einhverjum þeim
★
skilyrðum, sem safnstjórnin gat
ekki sætt sig við. Þá er enn eitt
vandamál samfara Picasso-
gjöfinni. Myndirnar i safni hins
látna listamanns eru mjög mis-
jafnlega verðmætar. Sumar
myndirnar eru mjög verðmæt-
ar, aðrar ekki jafndýrar, og til
er, að þær séu ekki einu sinni
eftir þá menn, sem Picasso taldi
hafa gert þær. Sem dæmi um
þetta má nefna, að sennilega
eru myndir þær, sem Picasso
taldi sig eiga eftir Gauguin, alls
ekki eftir hann og sömu sögu er
að segja um myndir eftir
Courbet. Mikill vafi leikur á um
uppruna mynda eftir Corots og
Claude Lorrain, og segja safn-
menn, að þær séu áreiðanlega
ekki eftir þessa tvo listamenn.
Að lokum má svo nefna tvær
myndir eftir Matisse. Þær eru
svo lélegar, að vart þykir sómi
að þvi fyrir safnið að sýna þær.
Talið er koma til greina, að
safnið leggi mál þetta fyrir
dóm, og kanni, hvort ekki megi
upphefja fyrirmæli Picassos um
það, hvernig geyma eigi mynd-
irnar i framtiðinni, að minnsta
kosti að einhverju leyti.
★
Frost reynir
á nýjan leik
Getur það verið, að svo illa fari
fyrirDavid Frost, að hann verði
svikinn i þriðja skiptið? — við
vonum ekki. Fólki er eiginlega
farið að þykja leiðinlegt, hversu
illa honum gengur að ná sér i
konu. Tvisvar sinnum hefur
hann verið rétt að þvi kominn að
gifta sig, en i bæði skiptin hefur
sú, sem hann hefur valið sér,
gert sér litið fyrir og gifzt
öðrum beint fyrir framan nefið
á honum. Það gekk meira að
segja ekki, þegar hann ætlaði að
krækja sér i Karen tizku-
sýningardömu, þrátt fyrir það
að hin 71 árs gamla mamma
Frosts sagði opinberlega, að nú
væri hún áreiðanlega að eignast
tengdadóttur. En David náði sér
fljótt, og nú horfir hann sem
oftast og fastast i augun á
Alexöndru Bastedo. Vonast
menn til að þar hafi hann fundið
sinn rétta lifsförunaut. Hér eru
þau brosmild á svip að ræðast
eitthvað við.
— Þetta er svaka trommusóló.
sem nágranni okkar er að lemja i
veggina....
DENNI
DÆMALAUSI
Við erum stutta orðið, Jói.