Tíminn - 12.06.1974, Page 8
8
TÍMINN
MiOvikudagur. 12. júni 1974
LEIKFELAG
AKUREYRAR
í SJÓNVARPI
HP.-Reykjavik. Þessa dagana
vinnur sjónvarpiO aO upplöku á
leikriti Moliéres l.e Festin de
Pierre, eöa Don Juan eins og þaö
er vcnjulega ncfnt. Leikrit þetta
mun vera frá árinu 1665 og er
taliö i hópi beztu gleðiieikja
Moliéres. Leikfélag Akureyrar
sýndi þetta verk fyrst verka á
siðasta vetri, og þaö er cinmitt sú
uppsetning undir leikstjórn
Magnúsar Jónssonar, sem
sjónvarpið myndar nú.
Aðspurður kvaðst Magnús hafa
sérlega gaman af að Akur-
eyringar fengju að sýna hvað i
þeim byggi á sjónvarpsvettvangi.
Timinn til upptöku væri auðvitað
skammtaður, og það naumlega
en tæknimenn sjónvarps og leik-
myndadeild næðu oft á undra-
verðan hátt að skapa það um-
hverfi, er leikurinn ætti að gerast
i. Margt af tækjum þarna væru
komin til ára sinna og úr sér
gengin og aðstaða erfið.
Egill Eðvarðsson, stjórnandi
upptökunnar tók undir orð
Magnúsar um skemmtilegt sam-
starf og taldi ánægjulega
tilbreytingu i að vinna með
Leikfe'Iagi Akureyrar.
15 leikarar taka þátt i sýning-
unni, tvö aðalhlutverkin eru
leikin af Arnari Jónssyni, sem
leikur Don Juan, og bráni Karls-
syni, sem hefur hlutverk Saganar
elle með höndum. Alls mun
sýningartimi verksins verða um
ein og hálf klukkustund.
Hringið, og ruslið verður fjarlægt
Fegrunarvikan stendur 9. til 16.
júni og er þess fastlega vænzt, að
allir leggist nú á eitt um að
hreinsa og fegra borgina fyrir
þjóðhátiðardaginn. Þeir, sem
þurfa að losna við rusl umíram
það, sem kemst i venjuleg sorp-
ilát verða aðstoðaðir þessa viku
við að fjarlægja það og er fólki
bent á að hringja i sima 18000.
A sama stað verður tekið við
öllum ábendingum, sem fólk vill
koma á framfæri um fegrun borg-
arinnar. Rétt er að benda iðn-
fyrirtækjum og verzlunum á, aö
Reykjavikurborg mun veita þeim
tæknilega og faglega aðstoð við
hreinkun og lagfæringar á-lóðum,
gegn greiðslu.
Málarameistarafélag Reykja-
vikur (simi 81165) mun veita hús-
eigendum leiðbeiningar um lita-
val og annað er varðar málun
utanhúss.
F.h. Fegrunarnefndar
Reykjavikur
TONLISTAR-
LÆKNINGAR
— fyrirlestur og námskeið
Hér á landi er stödd frú
Helen Bonny, bandariskur
tónlistarlæknir, sem vinnur
viö rannsóknir og viö sállækn-
ingar hjá rannsóknastofnun
Marylandrikis, Baltimore i
geðsjúkdómum. Frú Bonny
mun halda fyrirlestur með
tóndæmum um tónlistar-
lækningar föstudagskvöldið
14. júni kl. 20.15 I sal Tónlistar-
skólans, Skiphoiti 33.
Laugardaginn 15. júni held-
ur Helen Bonny svo heils dags
námskeið i tónlistarlækning-
um ásamt Geir Vilhjálmssyni,
sálfræðingi. Hefst námskeiðið
kl. 09.00 að morgni og stendur
fram til kl. 20.00 um kvöldið i
húsnæði Jógastöðvarinnar
Hátúni 6. A námskeiði þessu
verða sýnd undirstöðuatriði
þeirrar tegundar tónlistar-
lækninga, sem Helen Bonny
stundar, en hún byggir þær á
djúpri slökun og innleiðslu i
móttækilegt sálarástand áður
en hin sérstaklega valda tón-
list er látin hljóma af segul-
bandi. Tónlistin er samvaldir
kaflar úr klassiskum tónverk-
um. Lengd hvers prógramms
er yfirleitt á bilinu fra 30 og
upp I 120 minútur. Verður far-
iði 3mismunandi prógrömm á
námskeiðinu og að loknu
hverju prógrammi gefst þátt-
takendum tækifæri, til þess að
ræða um reynslu sina og vinna
úr henni.
Aðgangur að fyrirlestrinum
er öllum heimill, en þar eð
fjöldi þátttakenda I námskeið-
inu er takmarkaður er nauð-
synlegt að tilkynna þátttöku I
þvi fyrirfram til Rannsókna-
stofnunar vitundarinnar.
Helen Bonny er tónlistar-
læknir og vinnur við
rannsóknir og við sállækning-
ar við rannsóknastofnunMary-
landsrikis, Baltimore, USA,
við geðsjúkdóma. Hún hefur
haldið mörg námskeið og fyr-
irlestra innan Bandarikjanna
og utan og hún er forstöðu-
maður Insitute for Conscious-
ness and Music i Baltimore.
Bók hennar, Music And Your
Mind, kom út hjá Harp-
er&Row 1973. Hún er einn af
ráðgjöfum Rannsóknar-
stofnunar vitundarinnar og
stjórn Association for Trans-
personal Psychology.
Geir V. Vilhjálmsson er sál-
fræðingur og stjórnandi
Rannsóknarstofnunar vitund-
arinnar. Hann stundar sál-
fræðilega ráðgjöf, kennir
sálarfræði, og vinnur að
rannsóknum. Hann hefur
haldið mörg námskeið og fyr-
irlestra á íslandi og erlendis.
Hann stjórnaði fyrstu alþjóð-
legu ráðstefnunni um
transpersónulega sálarfræði
að Bifröst 1972.
Við upptöku á Don Juau Moliéres: Magnús Jónsson leikstjóri, Egill Eðvarðsson stjórnandi upptöku og
Snorri Þórisson myndatökumaður.
Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson I hlutverkum Don Juans og Sganarelles
Akureyringar að skylmast.
Sjóstangamót í Keflavík: Veiddu út af Stafnesi
BH-Reykjavik. — A laugar-
daginn efndi sjóstanga-
vejðifélagið Sjóstöng i Keflavik til
sjóstangaveiðimöts i yndislegu
veðri við sérstaklega góðar
aðstæður. Þátttakendur voru alls
47, og var róiö á 6 bátum frá
Keflavik kl. 6 um morguninn, en
komið aftur heim um tvöleytið
um daginn. Var aflinn þó veginn
og skráður.
Veiðisvæðið var aðallega út af
Stafnesi og Sandgerði, en- par er.
oft góð veiði, enda brást hún ekki i
þetta sinn, og voru þátttakendur
mjög ánægðir með gott mót.
Um kvöldið var haldið hóf á
Hótel Sögu. Þar fór fram
verðlaunaafhending, og margir
forkunnarfagrir bikarar veittir.
Skipstjorabikarinn fékk Bene-
dikt Guðmundsson á mb Fram
fyrir 485 kg veiði. Sveitabikarinn
fékk 1. sveit Vestmannaeyinga
fyrir 274,5 kg. veiði, en fast á hæla
hennar fylgdi 1. sveit Kefl-
vikinga, svo að aðeins munaði 1
kg. á afla sveitanna.
Mestan afla kvenna dró
Margrét Helgadóttir frá Kefla-
vik, 89,9 kg., en mestan afla yfir
heildina dró Jón ögmundsson frá
Vestmannaeyjum, en afli hans
var 128,1 kg. Var hann lika verð-
launaður fyrir að hafa dregið
flesta fiskana.
Þá voru og verðlaunaðir þeir,
sem drógu stærstu fiskana af
hverri tegund, og skuli þeir nú
taldir upp: Jóhann Lindal dro
þorsk, 8,6 kg., Jóhann Einvarðs-
son dró ufsa, 6,4 kg. Magnús
Gunnarsson dró lúðu, 4.4 kg. D.E.
Hixon dró keilu 2,8 kg. Kristinn
Þorhallsson dró ufsa 4,3 kg,
Margeii Margeirsson dró löngu
1,1 kg, Agnar Guðjónsson dró háf
1,7 kg., Marinó Pétursson og
Friðgeir Kristvinsson drógu jafn-
stóra steinbita 4,5 kg. og Sævar
Sæmundsson dró stærsta
karfann, 1,2 kg.
Það er enginn vafi á þvi, að að-
staða til sjóstangaveiði er mjög
góð þarna i Keflavik og miðin sér-
lega heppileg. Félagið Sjóstöng
hefur starfað i Keflavik um 10 ára
skeið. Formaður þess er Margeir
Margeirsson.