Tíminn - 12.06.1974, Side 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur. 12. júni 1974
..Þýzku" Svíarnir
hqfa verið á skot
skónum í vetur...
— vsrða þeir markhæstir í HAA?
Þeir gjörþekkja veliina, sem Svíþjóð leikur á
Svíar binda miklar vonir
við ,/útlendingaher-
sveit" sína á HM. Þarer
auðvitað átt við þá Svia,
sem leika knattspyrnu
fyrir félagslið í Evrópu.
Tveir þessara manna
eru þeir Conny Thor-
stensonog Roland Sand-
berg, sem s.l. vetur léku
með þýzkum liðum í
„Bundesligunni". Þar
hafa þeir verið iðnir við
að skora mörk í vetur.
Thorstensson hefur
skorað um 10 mörk fyrir
Bayern, mest i Evrópu-
keppninni, en Sandberg
hefur skorað 20 mörk
fyrir Kaiserslautern,
allt í „Bundesligunni".
Hann var fjórði mark-
hæsti maður þar, næst á
eftir þeim Múller,
Heynckes og Fischer.
Ekki hefur það liklega
hvarflað að Conny Thorstens-
son, aðhann ættieftirað verða
Evrópubikarmeistari, þegar
Atvidaberg keppti i fyrstu um-
ferö f Evrópukeppni meistara-
liða á móti Bayern Múnchen.
Hann gerði sitt ýtrasta til að
slá Bayern út, skoraöi tvö
mörk I seinni leiknum, sem
Atvidaberg vann 3-1, en Bay-
ern hafði unniö fyrri ieikinn
með sömu markatölu. Bayern
komst svo áfram i vftaspyrnu-
keppni, 4-3, en til hamingju
fyrir Thorstensson misnotuðu
Sviartvær spyrnur. Hann hef-
Koma
frá
Sviss
Astraiska HM-liðið kemur tii
Vestur-Þýzkalands I dag frá
Sviss, en þar hefur liðiö veriö I
æfingabúðum undanfarið. A
laugardaginn lék liðið sinn þriðja
ogsiðasta æfingaleik i Sviss fyrir
HM-átökin. Astralfumenn sigruðu
þá 1. deildar liðið Neuchtei 1:0 —
markið skoraði Reymond
Richards. Astraliumenn mæta A-
Þjóöverjum á föstudaginn I HM-
keppninni.
ur áreiðanlega verið vonsvik-
inn þá, en seinna prisað sig
sælan yfir þvi, að úrslitin urðu
þessi. Vegna frammistöðu
hans i leikjunum keypti nefni-
lega Bayern hann fyrir 500.000
mörk. Og svo fór Thorstensson
aö skora mörk fyrir þaö lið,
sem hann hafði barizt eins og
hetja á móti. Mörk hans fyrir
Bayern í Evrópukeppninni
fleyttu þeim áfram, þangað til
i úrslitaleiknum, en þá sáu
þeir Gerd Miiller og Uli
Hoeness um að skora.
Thorstensson er 25 ára og
hefur ieikið 13 landsleiki, nú
siðast á móti Dönum i Kaup-
mannahöfn, en þar skoruðu
þeirsitt markið hvor, hann og
Sandberg.
Sandberg var, eins og Thor-
stensson, i Atvidaberg áður en
Kaiserslautern keypti hann.
Þar hafa forráðamenn
Kaiserslautern gert góð kaup,
þvi að hann hefur siður en svo
brugðizt vonum þeirra.
Tuttugu mörk f þrjátfu leikj-
um er hreint ekki svo slæmur
árangur. Þetta gæti orðið til
þess, að Kaiserslautern kæm-
ist i EUFA-keppnina næsta
haust, en það er komið undir
úrslitunum i úrslitaleik bikar-
keppninnar, sem fer ekki fram
fyrr en 17. ágúst. Þar keppa
Eintrakt Frankfurt og Ham-
borg. Ef Frankfurt vinnur,
kemst Kaiserslautern i
EUFA-keppnina, en ef Ham-
borg vinnur, fer Frankfurt I
EUFA keppnina.
Sandberg er 28 ára og hefur
leikið 19 landsleiki. Fyrir utan
það að vera mikiil markaskor-
ari hefur hann það hlutverk að
gefa háar sendingar inn f vita-
teiginn, þar sem hinn hávaxni
Edström sér um að koma
knettinum inn.
Þaö má segja, að i Þýzka-
landi leiki þeir Thorstensson
og Sandberg á heimavelli.
Þeir gjörþekkja veliina, sem
Sviþjóö keppir á. Sviþjóö er I
riðli með Búlgariu, HoIIandi
og Uruguay og keppa á völlun-
um I Dusseldorf og Dortmund.
Fullvist má telja, að Sviþjóð
komist ekki áfram i HM, nema
þeir Thorstensson og Sand-
berg veröi á skotskónum i for-
keppninni. ó.O.
Zaire fyrsta
hindrun Skota
„Brasi líu menn og
Júgóslavar verða ekki
aðalkeppinautar okkar í
riðlinum, eins og svo
margir halda", segir
Billy Bremner, fyrirliði
Skotlands. Heldur
verður það Zaire, vegna
þess að Zaire-menn eru
fyrsta hindrunin á vegi
Skota í HM-keppninni.
Skotar leika gegn Zaire
á föstudaginn.
Skotar gera sér fyllilega
grein fyrir þvi, að leikurinn
við Zaire getur ráðið úrslitum
um það, hvort þeir komast I 8-
liða úrslitin. Þeir verða að
vinna leikinn á föstudaginn, og
það örugglega, þvf aö marka-
talan ræður úrslitum I riðlin-
um, ef tvö eða fleiri liö verða
jöfn.
-SOS.
Skotlandi
gengur illa
á móti
Brasilíu...
Nú, þegar heimsmeistara-
keppnin er að hef jast, gæti
verið gaman að velta fyir
sér hvernig farið hafa
fyrri leikir liðanna, sem
leika í sama riðli eða rétt-
ara sagt hvernig leikirnir
samtals hafa farið, ef þeir
eru fleiri en einn. Fyrsta
talan táknar leikjafjölda,
síðan koma unnir leikir, þá
jafntefli, þvf næst tapaðir
leikir. Síðast er svo marka-
talan.
1. riðill
1 fyrsta riðli keppa V-Þýzka-
land, A-Þýzkaland, Chile og
Astralfa. Leikir V-Þjóðverja hafa
farið þannig:
viö A-Þýzkaland 1 0 0 1 2:3
viðChile 4 2 0 2 6:6
við Ástraliu enginn leikur.
Leikir Chile:
við A-Þýzkaland 3 1 0 2 3:6
Astralia hefur ekki keppt við
löndin i sinum riðli fyrr.
2. riðill
1 öðrum riðli keppa Júgóslavfa,
Brazilia, Zaire og Skotland.
Leikir Brasiliu hafa farið þannig:
við Skotland 3 2 1 0 3:2
við Júgóslaviu 10 5 3 2 25:19
við Zaire enginn leikur.
Leikir Júgóslavfu:
viðSkotland 4 0 3 1 5:7
Zaire hefurekki keppt viö löndin i
sinum riðli fyrr.
3. riðill
t þriðja riðli leika Uruguay,
Hoiland, Sviþjóð og Búigaria.
Leikir Uruguay hafa farið þann-
ig:
við Holland 2 2 0 0 4:1
viðSviþjóð • 2 1 0 1 3:3
við Búlgariu engihn leikur.
Lcikir Holiands:
við Sviþjóð 15 7 2 6 28:36
viðBúlgariu 4 112 7:8
Leikir Sviþjóöar:
viðBúlgariu 2 0 0 2 0:5
4. riðill
t fjóröa riöli keppa, ttaiia,
Argentfna, Haiti og Pólland.
Leikir ttaliu hafa farið þannig:
viðArgentinu 4 3 0 1 9:2
viðPólland 2 110 6:1
við Haiti enginn leikur
Leikir Argentfnu:
viðPólland 2 1 1 0 2:1
Haiti hefur ekki leikið á móti
þessum löndum i sinum riðli fyrr.
Þess má þó geta, að Haiti hefur
spilað leik á móti áhugamannaliði
Argentinu og tapað 0:1. Eins
hefur Zaire keppt á móti áhuga-
mannaliði Brasiliu og vann Zaire
þann leik 2:0.
Það kemur margt athyglisvert
fram i þessum úrslitum. t fjórum
leikjum er V-Þýzkaland með
jafna útkomu á móti Chile, Skot-
landi gengur illa á móti Brasiliu,
en aftur á móti vel á móti
Júgóslaviu. Uruguay hefur unnið
Holland i báðum leikjunum, sem
löndin hafa spilað, Holland og
Sviþjóð eru svo að segja jöfn, i
þeirra innbyrðis átökum, en bæði
Holland og Sviþjóð hefur gengið
illa á móti Bulgariu. Italia hefur
betri útkomu á móti bæði
Argentinu og Póllandi.
Hvort þetta gefur einhverja
visbendingu um úrslit i HM er
ekki gott að segja, en eitt er
öruggt, að liðin munu leggja hart
að sér i undankeppninni, þvi að til
mikils er að vinna, eitthvert
þessara 16 landa verður i lok
keppninnar krýnt sem heims-
meistari i knattspyrnu, og þeim
titli heldurþaði a.m.k. fjögur ár.
Ó.O.